Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990 19 Morgunblaðið/Árni Sæberg Gylfi Héðinsson t.h. og Gunnar Þorláksson t.v. afhenda Svani Friðgeirssyni, formanni hússtjórnar, íbúðirnar formlega við athöfn sem fram fór 21. desember sl. Ibúðir aldraðra við Skúlag’ötu afhentar BYGGINGAFÉLAG Gylfa og Gunnars sf. afhenti nýlega Félagi eldri borgara í Reykjavík 65 íbúðir í þriggja eininga kjarna við Skúlagötu 40 í Reykjavík. íbúðirnar eru 2ja herbergja, 3-4ra herberga og nokkrar 5-6 herbergja. Þeim fylgir öllum eitt bílastæði í bílageymslu og eru allar búnar fullkomnu eldvarna- og öryggiskerfí sem tengt er stjórnstöð Securitas og húsvarð- arherbergi. Þrír öryggishnappar eru í hverri íbúð; í baðherbergi, í svefnherbergi og í holi. Sjón- varpsskermur tengdur dyrasíma er í hverri íbúð svo íbúar geti séð hveijir banka upp á hjá þeim. Sameign er búin fullkomnu sjónvarpskerfi með sjónvarps- disk, gufubaði, heitum nuddpotti og 130 fermetra sal með full- komnu eldhúsi. Þá verður í sam- eign aðstaða fyrir starfsemi sjúkranuddara, hárgreiðslustofu, rakara og fótsnyrtingu. Garður í kringum íbúðakjarnann er þeg- ar fullfrágenginn.. Byggingartími var 18 mánuðir og höfðu félagar í Félagi eldri borgara í Reykjavík forkaupsrétt að íbúðunum. Skúlagata 40. Utivist með miðbæjargleði í síðustu göngu sinni á árinu ÚTIVIST býður öllum Reykvíkingum og nágrönnum þeirra í skemmtilega gönguferð frá Arbæjarsafni eftir Elliðaárdal, með Foss- vogi, um Oskjuhlið, Vatnsmýri og Hljómskálagarð með Tjörninni niður í Grófina sunnudaginn 30. desember en þessi leið er neðri hluti svokallaðrar Bláfjallalciðar. Lagt verður af stað frá Arbæjar- safni kl. 13.00. Boðið verður upp á rútuferð frá bensínsölu við BSI kl. 12.30 að Árbæjarsafni. Þeim sem Um 30 millj. kr. í 1. vinning í FYRSTA sinn í sögu islenska lottósins er vinningspotturinn fjórfaldur að þessu sinni en dreg- ið verður í kvöld. Talið er að 1. vinningur fari vel yfir 20 milljón- ir kr. en vinningar alls verðir um eða yfir 30 milljónir kr. Ástæðan er sú að 1. vinningur gekk ekki út sl. laugardag og fær- ast því 14,3 milljónir kr. sem þá voru í 1. vinning yfir á 1. vinning í kvöld. í fréttatilkynningu frá ís- lenskri Getspá er fólk hvatt til að koma tímanjega á sölustaði til að losna við óþarfa biðraðir. koma á eigin bílum að Árbæjar- safni og að áfangastöðunum verður ekið til baka þegar gönguferð lýkur. Hægt verður að koma í gönguna við htið Skógræktarfélags Reykja- víkur í Fossvogsdal kl. 15.00 og við Loftleiðahótelið kl. 16.00 eða hvar sem er á leiðinni, t.d. í síðasta spöl- inn frá Víkurgarði (Fógetagarðin- um) en þaðan verður gengið með blys á lofti eins og venja hefur ver- ið undanfarin ár í síðustu göngu ársins. í leiðinni verður stærsti jóla- sveinn landsins heimsóttur. Þegar á Grófartorg kemur um kl. 17.00 hefst sannkölluð miðb’æjargleði fyr- ir utan skrifstofu Útivistar með því að dansað verður í kringum jólatréð á Grófartorginu undir dynjandi harmonikkumúsík óg ómi jólabjöll- unnar. Síðan verður boðið upp á léttar veitingar. Allir eru velkomnir í gönguna og á jólatrésskemmtun- ina. Ekkert þátttökugjald. (Fréttatilkynning) Konum hættara við eyðnismiti Tíðni eyðnismitunar vex meðal kvenna 144 eyðnitilfelli voru þekkt meðal kvenna í Evrópu árið 1985 eða 9,3% af öllum skráðum tilfellum en árið 1989 voru tilfellin 1.470 eða 14,3% af öllum tilfellum. Sá grunur að konum sé hættara við smiti frá körlum en körlum frá konum staðfestist æ betur, segir í frétt frá landlækni. Um 6% af körlum virðast hafa smitast við samfarir við konur en um 27% kvenna af samförum við karla, samkvæmt niðurstöðum Eyðnimið- stöðvar WHO (alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar) í París. Niðurstöður rannsókna meðal eyðnismitaðra, er lifa í sambúð eða hjónabandi, eru að áhættan á eyðni- smiti er að öllu jöfnu margfalt meiri fyrir konur en karla. (Statens Serum- institut, Kaupmannahöfn.) Dæmi frá Danmörku sýnir að hjá 19 konum er smituðust við samfarir voru ástæður smits eftirfarandi: 7 fengu smit frá tvíkynhneigðum mönnum, 4 frá mönnum sem höfðu ferðast á „áhættusvæðum", 2 frá sprautusjúklingum, 3 frá eyðnismit- uðum mökum og hjá þremur er ekki vitað um áhættu. Um 70% kvenna smituðust af körl- um er lifa „áhættusömu lífi“. Konur ættu því að grandskoða feril rekkju- nauta sinna. Sprautusmit er aðal smitleiðin í Evrópu en þeim fjölgar er Smitast hafa við samfarir við gagnkyn- hneigða. Athyglisvert er að í flestum Norður- og Vestur-Evrópulöndum hafa langflestir gagnkynhneigðir smitast á ferðalögum til suðrænna landa, segir í fréttinni frá landlækni. ÞETTA ERU SÖLUSTAÐIR OKKAR: ^REYKJAVÍK Skátahúsiö, Snorrabraut 60, Stilling, Skeifunni, Hekla v/ Laugaveg, við Kaupstað, Mjódd, Seglagerðin Ægir, Eyrargötu 7, Örfirisey, Bílaborgarhúsið, Fosshálsi 1, söluskúr við Miklagarð, á efra bílaplani v/ Kringluna, Bílabúö Benna, Vagnhöfða. OBARÐASTRÖND Hjálparsveitin Lómfell. O ÍSAFJÖRÐUR Skátaheimiliö. Oblönduós Hjálparsveitarhúsið Efstubraut 3. Odalvík Flugeldamarkaöur i söluskúr neöan viö Hafnarbraut. Oakureyri Stór-flugeldamarkaðir i Lundi, söluskúr við Hagkaup, Norðurgötu 2, söluskúr við verslunina Síðu, söluskúr við Verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð, Glerárgata28. O SAURBÆJAR- HREPPURí EYJAFIRÐI Hjálparsveitin Dalbjörg. -0- AÐALDALUR Hjálparsveit skáta Aðaldal. ^EGILSSTAÐIR Stór-flugeldamarkaöur í nýja áhaldahúsinu við Tjarnarás. {£ VESTMANN AEY J AR Skátaheimilið við Faxastíg 38. ^FLÚÐIR Hjálparsveitin Snækollur. i^SELFOSS Við Tryggingu hf., Austurvegi 22, við Fjölbrautarskólann Tryggvagötu 25, Hrísmýri 5. NJARÐVÍK- KEFLAVÍK Hjálparsveitarhúsið við Holtsgötu 51, íþróttavallarhúsið, söluskúr v/ Hitaveituplanið, Stakkshúsið, Skátahúsið, Keflavík, söluskúr v/ Skrúðgarðinn. ^GARÐABÆR Hjálparsveitarhúsiö v/ Bæjarbraut, viö Lyngás, á Garöstorgi, á Álftanesi. Okópavogur Toyota, Nýbýlavegi 8, Skátaheimilið, Borgarholtsbraut 7, viö Sparisjóö Kópavogs, Dalvegur 14 (viö Reykjanesbraut). FLUGELDAMARKAÐIR HJÁLPARSVEITA SKÁTA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.