Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990 Frá æfingu á Jólaóratoríu Bachs í Langholtskirkju, Kór Langholtskirkju: Jólaóratoría Bachs flutt í sjötta sinn KÓR Langholtskirkju ásamt Kammersveit Langholtskirkju flytur jólaóratoríu Johanns Sebastians Bachs í kvöld og annað kvöld. Hefjast báðir tónleikarnir klukkan sautján. Þetta er í sjötta sinn sem kórinn flytur Jólaóratoríu Bachs en síðast var verkið flutt jólin 1987. Einsöngvarar eru Ólöf Kolbrún Harðardóttir, sópran, Solveig M. Björling, alt, Michael Goldthorpe, tenór og Bergþór Pálsson, bassi. Jólaóratorían er mikið verk og langt. Skiptist það í sex hluta og er sjaldnast flutt í heilu lagi. Að sögn Jóns Stefánssonar, stjórn- anda Langholtskirkjukórsins, flytur kórinn að þessu sinni fyrstu þijá hlutana í heild sinni, síðan tvær aríur úr fjórða hlutanum og loks upphafskórinn í fimmta hlut- anum. Verkið samdi Bach á fyrstu árum sínum í Leipzig, nánar til- tekið árið 1734, og fjallar það um jólaguðspjallið; fæðingu Krists. „Sagan er sögð af guðspjalla- manninum en hlutverk hans syng- ur Bretinn Michael Goldthorpe eins og svo oft áður,“ segir Jón. „Jólaóratorían er flutt á þýsku en það er hið upprunalega tungumál sem hún var samin á. Auk frá- sagnar guðspjallamannsins flétt- ast kórar og kórasálmar inn í til að undirstrika textann." Hann sagði kórinn hafa byijað að æfa verkið eftir að hann kom heim frá Finnlandi um miðjan nóvember og æft það ásamt jóla- söngvunum sem fluttir voru fyrir jól. „Margir í kórnum kunna Jóla- óratóríuna mjög vel enda sungið verkið oft áður. Það hefur verið regla hjá okkur að flytja Jólaórat- oríuna á tveggja ára fresti en í fyrra tókum við ákvörðun um að syngja Sköpunina eftir Haydn með Sinfoníuhljómsveit íslands rétt fyrir jól.“ Bergþór Pálsson syngur nú fyrsta skipti einsöng með kórnum í Jólaróratóríunni en hann er gam- all kórfélagi og starfar nú við óperusöng í Þýskalandi. Hinir ein- söngvararnir hafa allír sungið þessi hlutverk með kórnum áður. Sjávaraflinn 1990: Verðmæti jókst um 21% frá síðasta ári SAMKVÆMT spá Fiskifélags íslands verður heildarafli ís- lenskra skipa 1,504 milljónir tonna árið 1990, en í fyrra var heildaraflinn tæplega 1,506 milljónir tonna. Þetta er sjö- unda árið í röð sem heildarafli landsmanna nær því að verða ein og hálf milljón tonna, en mesti ársafli fékkst árið 1988 þegar hann varð 1,752 milljónir tonna. Fiskifélagið áætlar að verðmæti aflans upp úr sjó 1990 verði um 45,2 milljarðar króna, en það var 37,3 milljarðar árið Samvinnubankinn á Húsavík: Islandsbanki kaupir útibúið LANDSBANKINN er að selja íslandsbanka hf. útibú Sam- vinnubankans á Húsavík. Bankastjórar Landsbanka Is- lands og Islandsbanka hafa gert samkomulag um ramma að sölu útibúsins, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá bönkunum. Landsbankinn er sjálfur með útibú á Húsavík. 1989 og hefur því aukist um 21% milli ára. Aætlað er að andvirði útflutnings sjávaraf- urða á árinu verði um 71,5 millj- arðar króna, eða 1,222 milljarð- ar Bandaríkjadala, en árið 1989 nam það 58,3 milljörðum króna, eða 1,020 milljörðum dala. Birgðir sjávarafurða eru hins vegar allnokkru minni í árslok nú en undanfarin ár. Botnfiskaflinn er áætlaður 666 þúsund tonn í ár, en hann var 691 þúsund tonn í fyrra. Þorskaflinn verður 322 þúsund tonn, sem er um 9% minna en í fyrra, en þá var hann 354 þúsund tonn. Ýsuafl- inn verður um 65 þúsund tonn, og eykst hann um þijú þúsund tonn .frá fyrra ári, eða um 4,8%. Ufsaaflinn eykst um 16 þúsund tonn, eða 20%, og er þetta mesti ufsaafli, sem fengist hefur á einu ári. Karfaaflinn verður um 97 þúsund tonn, sem er aukning um INNLENT fímm þúsund tonn frá fyrra ári, en í þessari aukningu felst meðal annars úthafskarfí, en hann nem- ur um ijögur þúsund tonnum. Grá- lúðuaflinn verður hins vegar 22 þúsund tonnum minni en í fyrra, en þá var hann 58 þúsund tonn, sem er mesti ársafli. Miðað við verð á grálúðu upp ur sjó minnkar heildarverðmæti hennar um 1,6 milljarða króna. Humaraflinn verður um 1.700 tonn árið 1990, en í fyrra var hann 1.900 tonn. Rækjuaflinn eykst hins vegar um rúm tvö þús- und tonn og verður 29.300 tonn. Hörpudiskur verður um eitt þús- und tonnum meiri nú en í fyrra, en þá var hann 11 þúsund tonn. Loðnuaflinn á árinu verður 695 þúsund tonn, en á vertíðinni, jan.- apríl, veiddúst 608 þúsund tonn, og á nýliðinni haustvertíð veiddust 87 þúsund tonn. Vertíðina 1989 veiddust 616 þúsund tonn, og á haustvertíðinni það ár 51 þúsund tonn. Árið 1988 varð loðnuaflinn 909 þúsund tonn, og þá veiddust 311 þúsund tonn á haustvertíð. Síldaraflinn verður um 88 þúsund tonn, en hann var 97 þúsund tonn í fyrra. Heimilt að geyma úr afla- kvóta síldarinnar fram í janúar á næsta ári, og er talið að útgerðir síldarskipanna hafi nýtt sér það sem nemur 12 þúsund tonnum. A Abendingar frá lögreglunni: Meðferð flug- elda og blysa Skotelda má einungis selja á stöðum, sem staðbundin leyfi lög- reglustjóra segja til um að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum. Þannig er óheimilt að bera út og selja skotelda í heimahús og á vinnustaði. í reglugerð um sölu og meðferð skotelda segir m.a. að bannað sé að selja eða afhenda þá barni eða unglingi innan 16 ára, ef slíks er getið í leiðbeiningunum. Öll sala á skoteldum til barna yngri en 12 ára sé óheimil. Þá segir í sömu reglum að óheimilt sé að flytja inn og selja svokallaða „kínverja", reyk- og lyktarsprengjur ýmiss konar og sprengikúlur. Óheimilt sé að breyta á nokkurn hatt skot- eldi, þannig að hann hljóti aðra eiginleika en framleiðandi hans ætlast til. Innflytjandi skotelda skuli sjá um að allar tegundir skot- elda, sem hann flytur inn og hefur leyfi fyrir, séu með álímdum eða áprentuðum leiðbeiningum á íslensku. Lögreglustjóri getur þó heimilað að minnstu og einföldustu tegund skotelda verði ekki merkt- ar, enda verði dreift vönduðum og skýrum leiðbeiningarbæklingf til kaupenda. Með skoteldum er átt við flugelda, reyk- og hvellsprengj- ur og ýmiss konar skrautelda. Lögreglan vekur athygli fólks á að fara varlega í meðferð flugelda og blysa um áramótin. Börnin eru stundum áköf og vilja gleyma sér við spennandi aðstæður og vilja þá stundum ganga lengra, en æskilegt er. Fullorðnir þurfa að hafa vit fyrir bömunum og gæta þess að þeim stafí ekki hætta af flugeldum og blysum. Allflest slys er hægt að koma í veg fyrir með aðgæslu. Lesið leiðbeiningarnar, sem fylgja flugeldum og blysum og umfram allt; farið eftir leiðbein- ingunum. Lögreglan óskar öllum gleði, farsældar og friðar á nýju ári. Samtök spari- fjáreigenda: Hækkun óverð- tryggðra vaxta nauðsynleg SAMTÖK sparifjáreigenda hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að samtökin fagni því frum- kvæði íslandsbanka á sínum tíma til að samræma óverðtryggð og verðtryggð útlán, sem síðan muni endurspeglast í bættum kjörum innlána. Sú vaxtabreyt- ing sem gerð var hafi verið gerð vegna vaxandi verðbólgu, þó vonandi sé um tímabundna hækkun hennar að ræða. í yfírlýsingunni segir að Samtök sparifjáreigenda virði siðferðilegt þrek stjórnenda ríkisbankanna með hliðsjón af hótunum stjórnmála- manna, og þau hvetji allar peninga- stofnanir til að standa ávallt vörð um hagsmuni sparifjáreigenda. Þá segir að samtökin vænti þess að stjórnrrlálamenn láti af þeim hrá- skinnaleik að reyna að stýra vöxtum með handafli þegar ljóst sé að þeir eigi sjálfír stóran þátt í vaxtahækk- unum vegna stórfellds hallareksturs ríkissjóðs. Magnús Hreggviðsson afhendir Pálma Jónssyni skjal til staðfest- ingar á vali hans sem „maður ársins í viðskiptalífinu" í ár. „Maður ársins í viðskiptalífinu“: Pálmi 1 Hagkaup varð fyrir valinu STÖÐ 2 og Frjáls verslun völdu Pálma Jónsson í Hagkaup „mann ársins í viðskiptalífinu" á árinu þessir aðilar velja mann ársins. Nefnd sex manna annast val á manni ársins í viðskiptalífínu. í rökstuðningi nefndarinnar, sem birt er í nýútkominni Fijálsri verslun, segir meðal annars að undir forystu Pálma hafi Hagkaup innleitt nýja verslunarhætti hér á landi, meðal annars með rekstri stórmarkaða. Hann sé maður sem láti verkin tala og hafí haft for- ystu um lækkun neysluvöruverðs 1990. Er þetta í þriðja sinn sem í landinu. „Framsýni og frum- kvæði Pálma Jónssonar kom glöggt í ljós þegar hann réðist í að byggja Kringluna, stærstu verslunarmiðstöð landsins, fyrir nokkrum árum.“ Ennfremur segir í greinargerðinni: Árið 1988 voru stjórnendur Brimborgar hf. valdir menn ársins og á síðasta ári urðu „Samherjafrændur" á Akureyri fyrir valinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.