Morgunblaðið - 29.12.1990, Side 35

Morgunblaðið - 29.12.1990, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990 35 Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórhallur Guðmundsson vaxtarræktarmáður sýnir hvernig nota á tækin. Heimamenn fylgjast anda- gtugir með. / ÞORSHOFN Heilsuræktin endumýjuð Heil$uræktin á Þórshöfn var opnuð formlega fyrir nokkru. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsi félagsins og auk þess keypt vaxtarræktartæki, bekkir og þrekhjól frá Weider. Þórhallur Guðmundsson vaxtar- ræktarmaður kom með tækin og mun hann kenna rétta notkun þeirra. Þórhallur varð í 3. sæti í vaxtarrækt í fyrra, svo hann er Þórshafnarkarlmönnum ágæt fyr- irmynd! Heilsuræktarfélagið var upp- haflega stofnað árið 1973 og voru aðalhvatamenn að þvýhjónin Ásta Guðvarðardóttir og Úlfur Rágn- arsson læknir, sem þá starfaði hér. Bytja þurfti á því að útvega starfseminni samastað og varð lausnin sú, að byggt var við líkhúsið, sem stendur á lóð gömlu heilsugæslustöðvarinnar. Þróunin í þorpinu var hvort sem er sú, að meiri þörf var fyrir heilsuræktar- starfsemi heldur en líkhús. Öll byggingarvinna var unnin í sjálf- boðavinnu og áttu konur í þorpinu þar stóran hlut að máli. Nuverandi formaður heilsu- ræktarfélagsins er Sæmundur Jóhannesson og er það í fyrsta sinn í sögu félagsins, sem karl- maður hlýtur formannstitilinn og mun það vera spor í jafnréttisátt fyrir karlmenn! - L.S. SLYSFARIR Ron Wood brotnaði á báðum Ron Wood, gítarleikari Rolling Stones, mun ekki geysast um sviðið á næstu vikum og mánuðum. Ekki svo að skilja að hann sé beinlín- is frægur fyrir fjörbrot á hljómleik- um. En Woody, eins og vinir hans sumir kaila hann og skírskota þá til svips sem hann og Villi Spæta deila, er nú fótbrotinn á báðum eftir að hafa lent í umferðarslysi ásamt konu sinni, Jo, og börnunum tveim, Leu og Tyronne. Kona og börn sluppu með skrámur, en óvenjuleg atburða- rás olli því að Wood slapp ekki með skrámur eins og hin, heldur slasaðist sýnu meira. Jo var við stýrið og þau voru á talsverðum hraða á hraðbraut skammt utan Lundúna, er bifreið á sömu leið rann til og skall utan í BMW-inn hans Wood. Runnu bílarn- ir talsverðan spotta og beygluðust töluvert, en engan sakaði alvarlega. En það var myrkur og slæmt skyggni og Wood óttaðist að aðvífandi bifreið- ir myndu ekki sjá óhappið og aka á Wood var hinn hressasti er fréttamenn fengu að líta til hans, sötraði bjór og reitti af sér brandara. Eiginkonan Jo situr andspænis honum á myndinni. fullri ferð í kösina með ófyrirsjáan- legum afleiðingum. Hann vippaði sér því.út úr bílnum og hóf að beina untferð frá slysstaðnum með handap- ati. Ekki gekk það dæmi upp hjá honum, því ökumaður einn sem kom aðvífandi sá ekki manninn með handapatið og ók hann niður. Þeytt- ist Woody marga metra og er hann skall loks til jarðar utan vegar dtjúg- an spotta í burtu, höfðu tveir brotnir fætur bæst við nokkrar rispur sem hann hlaut í fyrra óhappinu. Lög- regluvarðstjóri einn sem kom á slys- stað sagði tiltæki Woods hafa verið sambland af hugprýði og heimsku, en vel rnegi ímynda sér að hann hafi bjargað íjölskyldu sinni frá verra óhappi með tiltækinu. COSPER tuit. Ég er ekki með ryksuguna í hvert sinn sem ég kem inn í stofu. RITSTÖRF Carly Simon skrifar barnabækur Söngkonan kunna Carly Simon lætur sér ekki nségja að syngja vinsæl popplög , fyrir skömmu sendi hún frá sér barnabókina „The boy of the bell“. Þetta er önnur bók henn- ar og er falleg jólasaga. Fyrri bókin heitir „Amy, the dancing bear“. Bækur hennar hafa hlotið náð fyrir augum bókmenntagagnrýnenda fyrir vestan haf og sjálf segist hún vera bytjuð á þriðju bókinni. Simon segir að sér sé nákvæmlega sama hvað gagnrýnendur segi yfir- leitt og engu breytti þótt þeir brytj- uðu bækur sínar í spað. „Það sem mestu skiptir ér, að ég fæ þúsundir bréfa frá glöðum litlum börnum sem segja að bækurnar séu frábærar. Það er stóridómur," segir söngkonan Carly Simon. Ungfrúin segir að bækurnar séu tileinkaðar börnum sínum tveimur, Ben og Sally, sem eru nú táningar. Simon segir að sjálf hafi hún aldrei verið sem fullorðin í uppeldi þeirra, fremur verið þriðja barnið og með þeim hætti hafi verið með þeim sér- stök vinátta. Er þau uxu úr grasi, uxu þau einnig frá móður sinni sem algengt er, en söknuðurinn um gömlu góðu dagana rekur Carly áfram við skriftirnar. Þau eru börn Carly og söngvarans James Taylor, en þau skildu árið 1982. „Ég gæti setið og skrifað daglangt allt árið um kring. Ég fæ rniklu meira út úr því að skrifa heldur en að syngja þótt söng- urinn gefi meiri veraldlegan auð í aðra hönd. Sem stendur er ég sátt að vera á báðunt vígstöðvum," segir Catiy Simon. UMTAL Madonna hneykslar enn viðkvæmar sálir Söng- og leikkonan Madonna er búin að ger'a allt hífandi vit laust á nýjan leik og eitt af nýjustu myndböndum hennar, með laginú „Justify my love“, hefur verið sett á bannlista hjá fjölmörgum sjón- varpsstöðvum fyrir vestan haf. Eitt þeirra er MTV og talsmaður þess segir: „Madonna er frábær lista- maður og hún gerir frábær myndbönd. Þetta mynd- band er einnig frábært. En við getum ekki sýnt það, því miður. Það er svo djarft að við myndum missa þúsundir áskrifenda. Fólk hér um slóðir vill ekki fá svona hispurlaust kynlíf inn í stofu til sín.“ Myndbandið sem um ræðir hefur ekki verið bann- að í Evrópu, enda ekki sama siðgæðismatið fyrir vestan haf eða fyrir austan það. Á bandinu syngur Madonna auðvitað lag sitt, en gerir það itman um iðandi kös af hálfnöktum karl- og kvenkroppum. Þar kennir ýmissa grasa, m.a. er þar að finna klæða- skiptinga í kvenmannsnærfötum og karlmenn og konur í samkynja faðmlögum og kossafansi. í öllum æsingnum eru hendur að stijúka Madonnu út og suður. Madonna segir sjálf að það sé ekkert á myndband- inu sem ekki sé að finna í hugarfylgsnum flestra hvort sem þeir viðurkenni það eður ei. Hvað varði bann MTV og fleiri sjónvarpsstöðva segir Madonna að samstarf sitt við þessar stöðvar hafi alltaf verið hið ágætasta, en forráðamenn þessara stöðva þekki best sjálfir sína kúnna og verði að breyta eftir því. Hún skilji það mætavel og muni ekki erfa eitt eða neitt. „Ánnars eykur svona umræða áhugann og söluna miklu meira en nokkuð annað,“ segir söng- sálunt. konanogveitþvínákvæmlegahvaðhúneraðgera. Madonna enn að ganga fram af viðkvæmum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.