Morgunblaðið - 29.12.1990, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1999
29
þar sem hún hefur hæla. Verður
Astrid líklega að teljast annar best-
ur rithöfundur í heiminum á þess-
ari öld, næst á eftir William Heine-
sen, en hann vill ekki Nóbelsverð-
launin og hefur þegar afþakkað þau
í laumi. Þvílíka snilld, sem Astrid
Lindgren hefur sýnt í persónusköp-
un, held ég, að fáir leiki eftir og
hræddur er ég um, að Ólafur sjálf-
ur Kárason verði heldur ósexí við
hliðina á Línu Langsokk (sérstak-
lega eftir að þeir sýndu á honum
tippið í Borgarleikhúsinu og héldu,
að sýningin bjargaðist ekki annars).
Nú hefur Astrid Lindgren tvennt
á mót sér: Hún er sænsk og hætt
er við, að Akademíunni finnist það
ekki nógu spennandi. Þeir vilja held-
ur draga að sér Spanjóla sunnan
úr löndunm, marga góða, en gleyma
að líta sér nær. Hitt er það, að
Astrid hefur skrifað barnabækur,
sem til þessa hafa verið haldnar
annars flokks, aftan við allt það
torf sem fullorðnum er sífellt ætlað
að lesa og fer vaxandi. Á komandi
árum mun barnabókum þó verða
hampað æ meira og er tímabært
að verðlauna drottningu þeirra hið
fyrsta.
Mér hefur dottið í hug, ásamt
einum rithöfundi á Skaga og frú
hans, að fara af stað með undir-
skriftarlista; skora á sænsku akade-
míuna að veita Astrid Lindgren
verðlaunin sem fyrst, því að ekki
er hún ódauðleg, býst ég við, frekar
en aðrir, þótt vonandi eigi hún góða
daga eftir. Þeim mörgu sem styðja
þetta mál og ekki munu komast á
listann okkar, ræð ég, að skrifa
akademíunni bréfa sama efnis
strax. Sænska sendiráðið á margt
í pússi sínu og býr þ. á m. yfir póst-
fangi akademíunnar.
Eg bytjaði á Matthíasi Viðari og
enda á sænska sendiráðinu og verð-
ur því ekki annað sagt, en ég hafi
haldið ansi góðu samhengi. Komi
pistillinn ekki fram í blaðinu fyrr
en árið 1991, þá læt ég þess getið,
að ég rita þetta í byrjun desember
1990, ef það kann að skýra eitt-
hvað af innihaldinu. Þakka gott
hljóð.
Höfundur er læknir í Dölum og
Austur-Bardastrandarsýslu.
Ný stjóm Norræna hússíns
RÁÐHERRANEFND mennta-
málaráðherra Norðurlanda
hefur skipað í nokkrar stjórnir
og ráð á sviði norrænnar menn-
ingarsamvinnu, þar á meðal í
stjórn Norræna hússins í
Reykjavík. Fulltrúar íslands
þar verða Eggert Briem, próf-
essor, Gylfi Þ. Gíslason, próf-
essor, og Guðrún Ágústsdóttir,
aðstoðarmaður menntamáía-
ráðherra.
Stjórn Norræna hússins í
Reykjavík er skipuð einum full-
trúa frá hverju Norðurlandanna,
skipuðum af viðkomandi ríkis-
stjórn, nema þremur frá íslandi
og er einn þeirra tilnefndur af
Háskóla íslands, einn af Norræna
félaginu á íslandi og einn af
menntamálaráðuneytinu.
Nú ganga úr stjórn Norræna
hússins þeir Þórir Kr. Þórðars'on,
prófessor og Guðlaugur Þorvalds-
son, ríkissáttasemjari. Guðlaugur
var tilnefndur af menntamála-
ráðuneytinu og var hann formað-
ur stjórnarinnar.
ATVINNUA UGL YSINGAR
Vesturbær
Morgunblaðið óskar eftir blaðbera í eftirtalin
hverfi:
Oddagötu og Aragötu.
Ennfremur vantar blaðbera í Skerjafjörð,
norðan flugvallar.
Austurbær
Austurgerði og Byggðarenda.
Breiðholt
Stekki.
Kópavogur
Kársnesbraut.
Hressandi morguntrimm sem borgar sig.
Upplýsingar eru gefnar í síma 691253.
fltagpuiiljljifrifr
Óskum eftir að ráða matreiðslunema, að-
stoðarfólk í eldhús og starfsstúlkur í sal.
Upplýsingar gefur Jóhannes Stefánsson á
staðnum.
Múlakaffi v/Hallarmúla.
Vélfræðingur
29 ára, óskar eftir vinnu á sjó.
Hefur góða reynslu sem yfirvélstjóri.
Upplýsingar í síma 91-41503.
Beitingamenn
Útgerðarfélagið Barðinn hf., Sandgerði,
óskar eftir beitingamönnum á Barðann GK,
sem rær frá Sandgerði.
Upplýsingar í síma 92-37864 eða 92-15102.
Sendill óskast
nú þegar á skrifstofu Morgunblaðsins.
Vinnutími frá kl. 9.00 og 17.00.
Upplýsingar veittar á staðnum.
Skrifstofustarf
Skrifstofumaður óskast til framtíðarstarfa hjá
ríkisstofnun í miðbænum.
Starfið felst einkum í afgreiðslu og upplýs-
ingagjöf.
Leitað er eftir áreiðanlegum og liprum starfs-
manni með framhaldsskólamenntun, sem
reykir ekki.
Æskilegur aldur er 20-40 ár.
Umsóknir, er tilgreini menntun, fyrri störf
og almennar persónuupplýsingar, þ.á m.
kennitölu, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
föstudaginn 4. janúar 1991 merktar: „Þ -
12582“.
RABA/ If^l Y^llKlf^AP
TILKYNNINGAR
FUNDIR ~ MANNFAGNAÐUR
FÉLAGSLÍF
Vinningsnúmer
íhappdrætti
Styrktarfélags
vangefinna
1. vinningur: Toyota Corolla 1600 GLi
nr. 17341.
2. vinningur: Mitsubishi Lancer 1500 GLx
nr. 39674
3. -12. vinningur: Bifreið að eigin vali, að
upphæð kr. 620.000 nr.
7025, 11213, 17059, 17574, 37178, 47573,
70048, 72321, 80827, 98420.
Þökkum veittan stuðning. Gleðilegt ár.
Styrktarfélag vangefinna.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Ártúnshöfði
Til leigu 150 fm verslunar- og iðnaðarhús-
næði á 1. hæð. Lofthæð 3.40 m. Stórar inn-
keyrsludyr. Bjart húsnæði og stórir gluggar.
Lóð malbikuð. Er laust. Leigist ekki undir
bílaverkstæði.
Upplýsingar í síma 671288.
Skipstjórafélag Islands
Aðalfundur félagsins verður haldinn laugar-
daginn 5. janúar 1991 kl. 14.00 í Borgartúni 18.
SJÁLFSTJEÐISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Hafnfirðingar
- jólatrésskemmtun
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði heldur jólatrésskemmtun fyrir börn
í Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu 30. desember kl. 15.00. Jólasvein-
ar koma i heimsókn. Veitingar.
Pabbar, mömmur, afar og ömmur, mætum öll með börnunum og
eigum ánægjulegan eftirmiðdag í Sjálfstæðishúsinu. Allir velkomnir.
Stjórnin.
Stofnfundur
sjálfstæðisfélags á Djúpavogi verður hald-
inn á Hótel Framtíð sunnudaginn 30. des-
ember kl. 15.00.
Á fundinn mætir Egill Jónsson, alþingis-
maður.
Allir sjálfstæðismenn velkomnir.
Undirbúningsnefnd.
Góðan daginn!
KFUK
KFUM
KFUMog KFUK
heldur jólahátíð fyrir alla fjöl-
skylduna i dag, laugardaginn 29.
desember, kl. 15.00 á Háaleitis-
braut 58. Gengið verður í kring
um jólatréð. Fjölbreytt dagskrá.
Verð kr. 200,- Fólk á öllum aldri
er velkomið.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá um áramót
Sunnudagur 30. des.: Safnaðar-
samkoma kl. 11.00. Ræðumað-
ur: Hafliði Kristinsson.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Vitnisburðir.
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
18.00.
Nýársdagur: Hátiðarsamkoma
kl. 16.30. Ræðumaður: Hafliði
Kristinsson.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3 S11798 19533
Sunnudagur 30. des.
Blysför um Elliðaárdalinn
Brottför kl. 16.30
frá Sprengisandi
Stutt og skemmtileg fjölskyldu-
ganga til að kveðja gott ferðaár.
Það vantar rétt innan við 100
upp á að fjöldi þátttakenda í
dagsferðum ársins nái 4000.
Mætið því vel í gönguna svo því
takmarki verði náð. Ekkert þátt-
tökugjald, en blys seld á kr.
150. Mæting við veitingastað- j
inn Sprengisand, Bústaðavegi
153, og genginn hringur um
dalinn. Áætlaður göngutími 1,5
til 2 klst. Ath. breytta tímasetn-
ingu frá því sem auglýst er i
nýútkomnu fréttabréfi Ferðafé-
lagsins. í fréttabréfinu eru kynnt-
ar fyrstu ferðir ársins. Það hefur
verið sent öllum félagsmönnum,
en þeir, sem ekki eru félags-
bundnir, geta fengið það pósts-
ent. Fyrsta ferð nýja ársins er
þrettándaganga á álfa- og huldu-
fólksslóðum sunnudaginn 6. jan-
úar. Ferðafélag íslands óskar
félagsmönnum, þátttakendum
í Ferðafélagsferðum og öðrum
vetunnurum farsæls komandi
árs og þakkar gott starf á árinu
sem er að líða.
Takið þátt f starfi Ferðafélags-
ins á nýju ári.
Velkomin í hópinn!
Ferðafélag íslands.
ESútivist
'Am\ 1 • *EY1UAVÍK • SUUAÍMSVARI UUk
Miðbæjargleði
Sunnud. 30. des.
Lagt verður af stað frá Árbæjar-
safni kl. 13.00 og gengið eftir
Elliðaárdal, Fossvogsdal, um
Öskjuhlíð og niður í Grófina. Frá
Víkurgarði verður gengið með
blys á lofti eins og venja hefur
verið í síðustu göngu ársins. Á
Grófartorgi verður efnt til mið-
bæjargleði (um kl. 17.00) fyrir
utan skrifstofu Útivistar. Þar
verður meðal annars dansað í
kringum jólatréð við dynjandi
harmónikumúsik og boðið upp á
léttar veitingar. Allir veHromnir.
Ekkert þátttökugjald. (Boöið upp
á rútuferð frá BSÍ-bensín að
Árbæjarsafni kl. 12.30).
Útivist óskar öllu útivistarfólki
svo og öðrum veiunnurum
sínum farsældar á komandi ári.
Þökkum samfylgdina á árinu,
sem er að líða.
Sjáumst!
Útivist.