Morgunblaðið - 29.12.1990, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990
Erlendur Arnason
Akureyri - Minning
Fæddur 26. maí 1972
Dáinn 22. desember 1990
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna iíka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið logaskæra
sem skamma stund oss gladdi
sem kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(Friðrik Guðni Þórleifsson)
Erlettdur Árnason várð aðeins
rúmra 18 ára. Það virðast okkur
mönnum hörð örlög að vera hrifinn
skyndilega burtu, án alls fyrirvara,
að hætta að vera ljós og lýsa, að
hætta að bera öðrum birtu, að vera
ekki lengur í lifenda tölu. Rétt, er
sól var að byija að hækka á lofti á
ný og aðeins tveir dagar voru til
jólanna, fæðingarhátíðar frelsar-
ans, féll dauðans dómur yfir ungum
manni. Þetta er staðreynd, sem
okkur er erfitt að skilja.
Erlendur Árnason var elsta barn
hjónanna Lovísu Erlendsdóttur
meinatæknis og Árna Magnússonar
viðskiptafræðings á Akureyri.
Erlendur hóf nám í Verkmennta-
skólanum á Akureyri haustið 1988
og hafði nú fyrir fáeinum dögum
lokið fimm önnum af átta til stúd-
entsprófs í viðskiptafræði.
Flest okkar kynntumst Erlendi
eða Ella eins og við kölluðum hann
gjarnan í fyrsta bekk VMA. Hann
var metnaðarfullur bæði í námi og
starfi og þótt ungur væri þá var
hann með það á hreinu hvað hann
ætlaði að gera í framtíðinni.
Svifflugið átti hug hans allan á
sumrin, en þegar snjór settist í fjöll
þá eyddi hann öllum stundum á
skíðum með vinum sínum. EIli hafði
boðið mörgum okkar í flugferð með
sér næsta sumar en þá ætlaði hann
að vera kominn með næga reynslu
til að fá að fljúga með farþega.
Það er ekki langt síðan hann var
með okkur í skólaferðalagi á Benid-
orm þar sem hann lék á alls oddi
og það eru ófáar minningarnar sem
Minning:
Pétur Gíslason
múrarameistari
við eigum um Ella frá þeirri ferð.
Nú er hann Elli okkar farinn en
við trúum því að hann sé ekki langt
frá okkur. Minningin lifir um
lífsglaðan og áreiðanlegan dreng
og það er sárt að hugsa til þess
að þegar við setjumst á skólabekk
að loknu jólafríi þá verður auður
stóll í stofunni okkar.
Foreldrum, bræðrum, ættingjum
og öðrum vinum Ella sendum við
okkar hjartanlegustu samúðar-
kveðjur og megi Guð ætíð fylgja
ykkur í komandi framtíð.
Fyrir hönd skólasystkina,
Auðjón, Gunni, Pétur, Katý,
Helgi, Þórarinn, Daði og Dóri.
Fæddur 3. aprí 1911
Dáinn 20. desember 1990
Kallið er komið,
komin er juí- stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Tengdafaðir okkar er nú allur.
Okkur langar að minnast hans með
nokkrum fátæklegum orðum, því
þó minningarnar streymi fram,
verða þær ekki allar festar á blað.
Pétur fæddist á Meðalnesi, Fella-
hreppi í N-Múlasýslu, sonur hjón-
anna Bergljótar Jónsdóttur og Gísla
Sigfússonar. Eftir andlát föður síns
fluttist hann ungur að árum með
móður sinni og systkinum til Isa-
fjarðar. Aðeins 17 ára gamall fór
Pétur til Reykjavíkur og fór þar að
læra múrverk hjá 'Sveini Óskari
Guðmundssyni múrarameistara,
tók hann sveinspróf árið 1933 og
vann hann óslitið við iðn sína til
73 ára aldurs.
I Reykjavík kynntist hann
tengdamóður okkar, Oddrúnu Elís-
dóttur (Doddu) frá Húsavík, Borg-
arfirði eystra og gengu þau í hjóna-
band 18. september 1937 en Dodda
lést þann 31. október 1981. Þau
hófu búskap sinn á Njálsgötu 110
í Reykjavík, en árið 1950 festu þau
kaup á Nökkvavogi 14 þar sem
heimili þeirra var síðan, en eftir
andlát Dottu bjó Pétur einn þar,
eða þar til heilsa hans fór að biia
og árið 1985 seldi hann í Nökkva-
voginum og flutti þá til dóttur
sinnar og tengdasonar.
Pétur og Dodda eignuðust 3
börn, en þau eru Hörður Gísli
kvæntur Gyðu Gunnlaugsdóttur,
Sigurður Þór kvæntur Árnínu Dúa-
dóttur og Bella Hrönn gift Brynj-
ólfi Sigurðssyni en öll eru þau bú-
sett í Reykjavík. Barnabörnin eru
8 og barnabarnabörnin 3.
Margs er að minnast og ekki síst
úr Nökkvavoginum þegar við öll
vorum þar saman komin og tengda-
móðir okkar lifði, en þau voru sér-
t
Ástkær faðir minn, sonur og bróðir,
SIGURÐUR J. BERGMANN,
Sólvallagötu 6,
Keflavík,
lést af slysförum 27. þ.m.
Helga Sigurðardóttir,
Sigriður Gísladóttir, Þorsteinn Bergmann
og bræður.
t
Móðir mín og amma okkar,
HELGA JENSEN,
Víðimel 23,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 27. desember sl.
Cecil Viðar Jensen,
Helga Jensen, Gunnar Þór Jensen,
Ingi Steinar Jensen.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför
GUÐVEIGAR MAGNÚSDÓTTUR,
Hringbraut 99,
Reykjavík.
Hulda Sergent, Artines Sergent,
Hrafnhildur Jakobsdóttir, Magnús Ólafsson,
Bragi Jakobsson, Sigurbjörg Nielsen.
t
Þökkum innilega fyrir auðsýnda vináttu og hlýhug vegna andláts
BJÖRNS JÓHANNESSONAR
verkfræðings.
Una Jóhannesdóttir,
Margrét Jóhannesdóttir, Ólafur Bjarnason,
Hólmfriður Jóhannesdóttir, Gísli Ólafsson,
Sigurður Jóhannesson, Þórhalla Gunnarsdóttir,
Einar Jóhannesson, Marianne Jóhannesson.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURJÓN MAGNÚS INGIBERGSSON,
andaðist á Landspítalanum 19. desember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum innilega auðsýnda samúð.
Ólöf P. Sigurðardóttir,
Ingibergur Sigurjónsson, Margrét P. Magnúsdóttir,
Særún Sigurjónsdóttir, Ólafur Sigmundsson,
Sigurður V. Magnússon, Erla H. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sveinn Jónasson,
Akranesi - Minning
Fæddur 8. ágúst 1914
Dáinn'21. desember 1990
Hann Svenni frændi er dáinn.
Við viljum með örfáum orðum
minnast hans ogþakka honum sam-
fylgdina og alla væntumþykjuna,
sem hann sýndi okkur alla tíð.
Svenni frændi eða Svenni á
Fögruvöllum, eins og hann var jafn-
an kallaður, fæddist 8. ágúst árið
1914, á Fögruvölium á Akranesi.
Foreldrar hans voru hjónin Ingirið-
ur Sigurðardóttir og Jónas Guð-
múndsson sjómaður.
Svenni ólst upp í föðurhúsum,
við þau kjör sem þá tíðkuðust við
sjávarsíðuna, þ.e. við vinnu frá
blautu barnsbeini.
Strax um fermingu fór hann til
sjós, og sjómennskan varð hans
ævistarf, þar með talin stríðsárin,
en þá var hann í millilandasigling-
um.
Föður sinn missti hann árið 1925,
er Halaveðrið svonefnda, hreif hann
ásamt mörgum öðrum mönnum, í
hina votu gröf Ægis. Eftir það bjó
Svenni ásamt móður sinni uns hún
lést þann 13. september árið 1972.
Eftir það hefur hann búið einn í
húsinu við Suðurgötu 70.
Þessi orð eru engin lýsing á
Sveini Jónassyni, enda ekki ætlun-
in. Eftirlifandi ástvinir og félagar
eiga sér sínar minningar um hann,
sem gat virst hrjúfur á yfirborðinu
en að baki bjó hlýtt hjartaþel.
í byrjun þessa árs, fór hann að
finna alvarlega fyrir þeim sjúkdómi
sem að lokum dró hann til dauða
nú á jólaföstu. Hann lést í Sjúkra-
húsi Ákraness 21. desember sl.
Við systkinin og fjölskyldur okk-
ar biðum elsku frænda góðrar ferð-
ar yfir móðuna miklu og góðrar
heimkomu til pabba og mömmu og
annarra ástvina sem á undan eru
gengnir.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Við viljum að lokum færa starfs-
fólki lyflækningadeildar á Sjúkra-
húsi Akraness, þakkir fyrir góða
umönnun í erfiðum veikindum
Svenna.
Einnig þökkum við öllum þeim
sem heimsóttu hann á sjúkrahúsið.
Guð blessi ykkur öll.
Lóa, Inga, Gaui
og fjölskyldur.
ÁgústH. Kristjáns
son - Kveðjuorð
Kveðja frá Glímusambandi
íslands
Ágúst H. Kristjánsson glímu-
kappi var tíl moldar borinn í fyrra-
dag, 27. desember. Hann var fædd-
ur 2. ágúst 1911 í Grísatungu í
Stafholtstungum og var því á áttug-
asta aldursári.
Ágúst var einn þeirra manna er
kjörnir hafa verið heiðursfélagar
Glímusambands Islands en sá heið-
ur er fáum veittur.
Ekki mun hér reynt að rekja
ævi- og starfsferil Ágústs í þessum
línum. Það munu aðrir gera og bet-
ur. Hinsvegar vill stjórn Glímusam-
bands íslands votta honum virðingu
sína að leiðarlokum með nokkrum
kveðjuorðum.
Ágúst var í hópi bestu glímu-
manna landsins á fjórða áratugnum
og varð m.a. sigurvegari tvívegis í
Skjaldarglímu Ármanns en slíkt er
aðeins á færi afburðamanna. Hann
þótti einnig skara fram úr í fagurri
glímu og drengilegri og hlaut marg-
oft fegurðarglímuverðlaun. Hann
vann til eignat' Stefnuhornið er fyrst
var gefið sem verðlaun fyrir fagra
og góða glímu á Íslandsglímu.
Eftir að Ágúst hætti sjálfur
keppni starfaði hann ötullega að
málefnum glímunnar og lét einkum
þjálfun og dómgæslu til sín taka.
Hann var til dæmis helsti þjálfari
glímudeildar KR á miklurn grósku-
tímum fljótlega eftir stofnun GLÍ.
Hann var mjög farsæll í starfi og
meðal nemenda hans voru bæði
glímukóngar Islands og skjaldar-
hafar Ármanns.
Nú er horfinn af sjónarsviðinu
einn frumheijanna er hófu merki
glímunnar hátt á loft á fyrra helm-
ingi aldarinnar og hélt tryggð við
hina göfugu íþrót,t alla tíð.
Fyrir það vill Glímusamband ís-
lands færa þakkir. Fjölskyldu hins
látna færum við samúðarkveðjur.
Sljórn Glímusambands
íslands.