Morgunblaðið - 29.12.1990, Side 43

Morgunblaðið - 29.12.1990, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LÁÖGÁRDAGUR 29. DESEMBER 1990 43 HANDKNATTLEIKUR / FLUGLEIÐAMOTIÐ MorgunblaðiS/Július Patrekur Jóhannesson var sem klettur í vörninni sem fyrr og Guðmundur Hrafnkelsson var öryggið uppmálað í markinu. Vamarleikurinn hefur samt oft verið betri. „Neistann vantaði“ - sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðs- þjálfari, eftir nauman sigurgegn Norðmönnum Íslendingar áttu í mestu erfiðleik- um með Norðmenn í gærkvöldi. Eins og reyndar í síðustu fjórum viðureignum þjóðanna, en síðast ^■■■■i vannst sigur á sama Steinþór degi fyrir ári. Sókn- Guðbjartsson arleikurinn var oft á skrífar tíðum ráðleysisleg- ur, sérstaklega þeg- ar Sigurður Bjarnason var tekinn úr umferð, en engu að síður nær óaðfínnanlegur síðustu mínútumar, og vamarleikurinn hefur verið betri, þó góður væri á köflum. Mark- varsla Guðmundar Hrafnkelssonar var hins vegar mjög góð, Sigurður var nær óstöðvandi í sókninni, Konráð Olavson öruggur í vítaköst- unum og liðið samstillt síðustu mínútumar — þegar mest á reið. Island vann 23:21 „og sigurinn skiptir öllu máli, ekki síst vegna þess að við erum með Norðmönnum í riðli í B-keppninni,“ sagðiÞorberg- ur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, við Morgunblaðið. Leikurinn var í járnum lengst af. Norðmenn byijuðu betur, en Islend- ingar réttu úr kútnum eftir klaufa- leg sóknarmistök. Þeir virtust vera á góðri leið með að hrissta mólherj- ana af sér fyrir hlé, en gestirnir gáfu hvergi eftir — fyrr en í lok seinni hálfieiks. Vendipunkturinn var, þegar sex mínútur voru til leiksloka og Norðmenn marki yfir, 19:18. Þá var Lundeberg vikið af velli í tvær mínútur, Sigurður gerði tvö mörk í röð og ekki var aftur snúið. „Miðað við aðstæður er ég mjög ánægður með leikinn. Við höfum leikið sex leiki á níu dögum og því eðlilegt að þreytumerki væm á lið- inu,“ sagði Þorbergur. „Við vomm enn með nýja menn saman í sókn- inni og þeir þurfa meiri tíma sam- an. Viljinn var fyrir hendi í vörn- inni, en það er annað að fram- kvæma — neistann vantaði.“ Ísland-Noregur 23:21 Laugardalshöll, Flugleiðamótið í handknattleik, fostudaginn 28. desember 1990. Gangur leiksins: 0:1, k3, 2:6, 4:6, 8:8, 9:9, 11:9, 12:10, 12:12, 13:13, 13:15, 15:15, 19:19, 20:20, 23:20, 23:21. ísland: Sigurður Bjamason 8, Konráð Olavson 6/4, Gunnar Gunnarsson 3, Stefán Kristjánsson 3, Bjarki Sigurðsson 2, Jakob Sigurðsson 1, Birgir Sigurðsson, Valdi- mar Grimsson, Geir Sveinsson, Patrekur Jóhannesson, Einar Sigurðsson. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 12/1 (þar af 3/1, er boltinn fór aftur til mótheija), Hrafn Margeirsson. Utan vallar: 10 mínútur. Mörk Noregs: Rune Erland 6/3, Ole Gustav Gjehstad 5, Öystein Havang 3, Roger Kjenndalen 2, Morten Sehönfeldt 1, John Petter Sando 1, Karl Erik Böhn 1, Kjetil Lundeberg 1, Olav Henning Vatne 1. Varin skot: Finn Ove Smith 3/1 (þar af 0/1, er boltinn fór aftur til mótheija), Gunnar Fosseng 2 (þar af annað, er boltinn fór aftur til mótheija). Utan vallar: 6 mínútur. Áhorfendur: Um 1.000. Dómarar: Horst og Petersen frá Danmörku. Svíþjóð-Japan 35:24 Laugardalshöliin, Flugleiðamótið í handknattleik, föstudaginn 28. desember 1990. Mörk Svíþjóðar: Erik Hajas 7, Daniel Rooth 6, Mágnus Wislander 5,Jonas Persson 4, Ola Lindgren 3, Mikael Schjölin 3, Per Carlén 2, Robert Anderson 2, Axel Sjöblad 1, Anders Eliasson 1. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Japans: Shinichi Shudo 8, Toshhiyuki Yamamura 6, Kenji Tamamura 5, Tsuy- oshi Nakayama 3, Takashi Taguchi 1. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Gunnar Kjartansson og Óli Ólsen. FOLK KORFUKNATTLEIKUR „Nú þekki ég mína menn“ - sagðiTorfi Magnússon eftir sigur á Dönum ÍNjarðvík ■ MARADONA er óvinsælasti maðurinn á Ítalíu ef marka má skoðanakönnun sem ítalska blaðið La Repubblica gekkst fyrir. Hann skaut ýmsum frægum mönnum ref fyrir rass, þ.á.m. Saddam Hussein og George Bush. Rúmlega 34% sögðu Maradona algjörlega óþol- andi en Saddam fékk sama vitnis- burð hjá flórðungi aðspurðra. Bush var nætur og svo kom söngkonan Madonna sem gekk fram af Itölum með djarfri sviðsframkomu. ■ SKOTAR hafa ákveðið að leika gegn Sovétmönnum í vináttu- landsleik í knattspyrnu 6. febrúar. Það verður fyrsti leikurinn á Ibrox, heimavelli Glasgow Rangers, í rúm 50 ár. Landsliðið hefur leikið á Hampden Park, heimavelli Celtic, en völlurinn uppfyllir ekki öryggisreglur FIFA. ÚRSLIT Fimmtudagur: Portland Trail Blazers—Charlotte ...105: 96 Seattle SuperSonics—Washington ..125:120 Chicago Bulls—Golden State.128:113 Miami Heat—Denver Nuggets..124:114 Utah Jazz—Dallas Mavericks.110:102 „NÚ þekki ég mína menn. Það var allt annar bragur á liðinu en í Stykkishólmi á fimmtu- dagskvöldið og uppskeran var líka eftir því,“ sagði Torfi Magnússon landsliðsþjálfari eftir glæsilegan sigur gegn Dönum í Njarðvík f gærkvöldi. ÆT Islesnka liðið fór á kostum í síðari hálfleik og áttu Danir, sem tefldu fram sjö tveggja metra mönnum, ekkert svar við góðum leik okkar manna. Björn Jafnræði var með Blöndal liðunum í fyrri hálf- skrifarfrá leik. íslenska liðið Ke,lavlk náði í nokkur skipti nokkra stiga forskoti, en tókst ekki að halda fengnum hlut og danska liðið náði ávallt að jafna aftur. í síðari hálfleik réðu Danir hins vegar ekkert við íslenska liðið sem náði að sýna stórskemmtilegan leik og þegar nokkra mínútur voru til leiksloka var munurinn orðinn 23 stig - og sigurinn í höfn. Islenska liðið var ákaflega jafnt og fáa veika hlekki að finna, Pétur Guðmundsson, Magnús Matthías- son, Teitur Öriygsson, Guðjón Skúlason, Pálmar Sigurðsson, Sig- urður Ingimundarson, Guðmundur Bragson, Jón Arnar Ingvarsson og Jón Kr. Gíslason voru burðarásar íslenska liðsins. Hjá Dönunum voru þeir Henrik Norre Nielsen og Steffen Reinholt bestir. Teitur Örlygsson átti góðan léíc gegn Dönum í gær. Ísland-Danmörk 102:88 íþróttahúsið i Njarðvík, landsleikur í körfuknattleik, fostudaginn 28. desember 1990. Gangur leiksins: 2:0, 4:5, 12:11, 18:17, 24:17, 32:24, 32:31, 36:36, 40:42, 45:42, 48:47, 56:54, 65:54, 70:63, 78:63, 80:69, 85:69, 91:72, 100:76, 102:88. Stig íslands: Teitur Örlygsson 19, Magnús Matthíasson 16, Jón Arnar Ingvars- son' 15, Pétur Guðmundsson 10, Guðjón Skúlason 10, Sigurður Ingimundarson 10, Guðmundur Bragason 8, Jón Kr. Gíslason 6, Pálmar Sigurðsson 6, Jóhann- es Sveinsson 2. Stig Danmerkur: Henrik Norre Nielsen 26, Steffen Reinholt 19,-Sten Sörens- en 8, Flemming Danielsen 8, Peter Damm 6, Ole Stampé 6, Lars Bekke Jensen 6, Joakim Jerchow 5, Larse Meisöe 2, Trœls Schönemann 2. Dómarar:Bergur Steingrímsson og Leifur Garðarsson. Þeir dæmdu vel, en hefðu mátt láta landsleikinn hefjast á réttum tíma, en hann hófst 10 mínútum of seint. Einnig var það Ijóður á leiknum að þjóðfána íslands og Danmerkur vantaði í húsið. Áhorfendur:Um 250.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.