Morgunblaðið - 11.01.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.01.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C/D 8. tbl. 79. árg. FOSTUDAGUR 11. JANUAR 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hörð átök í Aþenu Aþenu. Reuter. ÓEIRÐALÖGREGLA í Grikk- landi skaut mörg þúsund tára- gashylkjum að nemendum úr framhaldsskólum í Aþenu í gær er hinir síðarnefndu gengu ber-- serksgang um miðborgina að lokinni mótmælagöngu. Efnt var til hennar í mótmælaskyni við dráp óþekktra árásarmanna á kennara og fyrirhugaðar breyt- ingar í menntamálum. Sjónarvottar segja að mótmæl- endur hafi kastað gijóthnullungum á lögi'eglumennina, beitt kylfum og lokað götum með brennandi bílum. Þeir kveiktu einnig í stór- verslun í borginni og ungur maður fannst látinn í henni í gærkvöldi. Á ánnað hundrað manns slösuðust eða urðu fyrir reykeitrunum. Um 60.000 nemendur, kennarar og verkamenn tóku þátt í kröfu- göngunni í Aþenu og kennarasam- bandið lýsti yfir tveggja sólar- hringa verkfalli vegna drápsins á kennaranum, Nokos Temponeras. Hann týndi lífi á miðvikudag er 25 menn, sem ekki voru borin kennsl á og vopnast höfðu járn- stöngum, reyndu að reka á brott nemendur sem lagt höfðu undir sig skóla í borginni Patras. Nemendur hafa lagt undir sig eða lokað um 1.000 af 2.500 framhaldsskólum landsins frá því um miðbik desem- ber til að mótmæla tillögum stjórn- valda um nýja tilhögun í skólunum. Reuter Slökkviliðsmenn reyna að ráða niðurlögum elds i verslunarbygg- ingu í Aþenu, sem nemendur úr menntaskólum kveiktu í er þeir gengu berserksgang um götur borgarinnar í gær. Gorbatsjov hótar að færa Litháen und- ir beina stjórn sína Moskvu, Vilnius. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, krafðist þess í gær að stjórnvöld í Litháen færu að sovéskum lögum og varaði við því að ella yrði landið fært undir beina stjórn Sovétforsetans. „Alþýðan krefst þess að komið verði á lögum og reglu, að tryggt verði að hún geti lifað við öryggi. Hún krefst þess að forsetinn taki völdin í sínar hendur," sagði Gorb- atsjov í viðtali við sovésku fréttastof- una TASS. Hann bætti við að ófremdarástand hefði skapast í Lit- háen vegna þess að leiðtogar þess hefðu ítrekað brotið stjórnarskrá landsins gróflega. Áður höfðu lithá- ískir kommúnistar krafist þess að forsetinn færði lýðveldið undir beina stjórn sína og sögðust ætla að efna til allsherjarverkfalls uns géngið yrði að kröfu þeirra. Um þúsund fallhlífahermenn hafa verið sendir til Litháens og talsmað- ur sovéska hersins hefur vísað því á bug að valdarán sé á. döfinni. Audr- ius Butkevicius, varnarmálaráðherra Litháens, sagði þó í gær að kommún- istar og Rauði herinn væru að reyna að skapa spennu í Litháen til að réttlæta hernaðaraðgerðir. Andstæðingar sjálfstæðisbaráttu Litháa hertóku stjórnstöð lestastöðv- ar í Vilnius í tvær klukkustundir í gærkvöldi og boðuðu verkföll í dag. Albertas Simenas, fertugur hag- fræðingur, var kjörinn forsætisráð- herra lýðveldisins í stað Kazimiera Prunskiene, er sagði af sér vegna verðhækkana sem hún studdi. Sim- enas, sem er talinn til miðjumanna á litháiska þinginu, lofaði að grípa til aðgerða sem miðuðu að því að bæta almenningi upp verðhækkan- irnar. • Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra boðaði Igor N. Krasavin, sendiherra Sovétríkjanna, á sinn fund í gær og lýsti áhyggjum íslensku ríkisstjórnarinnar vegna þróunar mála í Litháen undanfarið. Utanríkisráðherra lagði áherslu á að hervaldi yrði ekki beitt í deilum stjórnvalda í Sovétríkjunum og Eystrasaltsríkjunum og að fundin yrði friðsamleg lausn á þeim með samningaviðræðum. Sjá „Eystrasaltsþjóðirnar taki tillit...“ á bls. 20. Perez de Cuellar reynir að miðla málum í Persaflóadeilunni í Bagdad: Hlutlausíir friðargæslusveit- ir SÞ verði sendar til Kúveits Róm, París, Washington. Reuter. JAVIER Perez de Cuellar, framkvæmdasljóri Sameinuðu þjóðanna (SÞ), hyggst bjóða Irökum að sendar verði hlutlausar friðargæslusveit- ir, án bandarískra hermanna, til Kúveits að því tilskildu að þeir köll- uðu hersveitir sínar í landinu heim, að sögn Gianni De Michelis, ut- anríkisráðherra Ítalíu, í gær. Ráðherrann sagði að þetta væri það helsta sem de Cuellar hefði fram að færa á fundi sinum með íröskum sljórnvöldum í Bagdad um helgina. „Sameinuðu þjóðirnar eru reiðu- búnar að stofna hersveitir,_ sem sendar yrðu til Kúveits ef írakar færu þaðan og yrðu ekki skipaðar hermönnum frá óvinalöndum Iraka, svo sem Bandaríkjunum, Saudi- Arabíu eða Egyptalandi,“ sagði ítalski utanríkisráðherrann. Tals- maður Sameinuðu þjóðanna vísaði þó ummælum ráðherrans á bug í gærkvöldi, þótt hann segði að slíkar hugmyndir kynni að bera á góma. Utanríkisráðherrar Evrópubanda- lagsins (EB) ræða við Perez de Cuell- ar í Genf í dag um friðarumleitanir hans í Bagdad. De Michelis sagði að bandalagið væri reiðubúið að senda fulltrúa til viðræðna við Tareq Aziz, utanríkisráðherra íraks, fyrir mánudag, eða daginn áður en frest- urinn sem írakar hafa til að fara úr Kúveit rennur út. Evrópubanda- lagið hefur boðið Aziz til viðræðna í Alsír en hann hafnaði því. ítalskir embættismenn eru þó vongóðir um að að írakar fallist á viðræðurnar ef stjórnvöld í Alsír hafa milli- göngu um þær. Jean-Pierre . Chevenement, varnarmálaráð- herra Frakk- lands, hvatti Bandaríkja- menn til að fall- ast á kröfu ír- aka um alþjóð- lega ráðstefnu um málefni Mið-Austúr- landa og sagði að slíkt ætti ekki að vera of stór biti að kyngja. Banda- ríkjamenn segja að ekki komi til greina að verðlauna yfirgang íraka með slíkri eftirgjöf. Þingmenn úr báðum flokkunum á fulltrúaþingi Bandaríkjanna mæltu í gær fyrir ályktun sem heimilar George Bush Bandaríkjaforseta að beita hervaldi til að leiða Persaflóa- deiluna til lykta. Talið er að gengið Perez de Cuellar verði til atkvæða um hana í deild- inni á morgun, laugardag, bg flutn- ingsmennirnir spáðu því að hún yrði samþykkt. Verið er að undirbúa svip- aða ályktun fyrir öldungadeildina. Stjórnvöld í Bagdad lýstu því yfir að íraski herinn væri „áfjáður í lokauppgjör og reiðubúinn að færa fórnir“ vegna deilunnar um Kúveit. Sjá fréttir um Persaflóadeiluna á bls. 2 og 20-21, svo og grein um mannréttindabrot Iraka í Kúveit á miðopnu. Noregur: Öngluðu pen- ingaúrbanka Ósló. Reuter. TVEIR ungir Norðmenn hafa verið staðnir að ólög- legum veiðum - við nætur- hólf stærsta banka Nor- egs, Den norske Bank. Mennirnir, báðir tvítugir, beittu venjulegum öngli til að krækjæ-í peningabúnt úr næt- urhólfí útibús bankans í Sanda- firði, þar sem kaupmenn höfðu lagt inn veltu dagsins. Þeim tókst að öngla upp alls 150.000 norskum krónum (hálfri annarri milljón ÍSK) áður en lögreglan stóð þá að verki, að sögn norska blaðsins Dagbladet í gær. Fjárlög kynnt í Svíþjóð: Lækkun útgjalda og verð- bólgu auðveldi EB-aðild Stokkhólmi. Reuter. ALLAN Larsson, fjármálaráðlierra Svíþjóðar, lagði í gær fram fjárlög fyrir næsta fjárhagsár er hefst 1. júlí nk. og er gert ráð fyrir veruleg- um niðurskurði ríkisútgjalda. Stefnt er að því að lækka verðbólgu, sem nú mælist 11,5%, svo að landið eigi auðveldara með að ganga í Evrópubandalagið (EB) en búist er við aðildarumsókn Svía á þessu ári. „Verðbólgan er of mikil, hagvöxt- ur hefur minnkað og það er halli á utanríkisviðskiptum okkar,“ sagði Larsson. Hann taldi þessi vandamál stafa af of mikilli kostnaðaraukn- ingu að undanförnu en hagfræðing- ar hafa varað ákaft við kauphækk- unum. Ráðherrann sagði að tækist stjórnvöldum ekki að koma, í veg fyrir kauphækkanir yrðu landsmenn að horfast í augu við æ lélegri sam- keppnisaðstöðu á alþjóðamörkuðum og aukið atvinnuleysi. Larsson sagði að verið væri að undirbúa umsókn um inngöngu í EB en lét ekkeil uppi um væntanlega tímasetningu hennar. Niðurstöðutölur fjárlaganna eru um 455 milljarðar sænskra króna eða um 4.500 milljarðar ÍSK. Sam- kvæmt lögunum verða sparaðir 15 milijarðar SKR (um 150 milljarðar ÍSK) með því að lækka m.a. útgjöld til varnarmála, atvinnumála, stjórn- sýslu ríkisins og greiðslu til launþega fyrir veikindadaga. Álíka fjárhæð næst í ríkiskassann-með nýjUm álög- um á ríkisfyfþ'tæki og sveitarstjórn- ir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.