Morgunblaðið - 11.01.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.01.1991, Blaðsíða 4
 4' MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991 r Verðmæti útflutnings SH iókst um fjórðung SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús- anna flutti út liðlega 94 þúsund tonn af fiski á síðasta ári fyrir tæplega 19 milljarða króna. Ut- flutningurinn var um 2% minna í magni en árið 1989 en hins vegar var verðmæti hans um fjórðungi meiri. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Lagmeti: Rússar greiða skuldir STAÐFEST hefur verið að Sovétmenn hafa greitt skuld sína við íslendinga vegna útflutnings lagmetis og þess er vænst að greiðsla skuldar vegna útflutnings á ullarvörum berist fljótlega. Þetta kemur fram í frétt frá utanríkisráðuneytinu í gær. í frétt ráðuneytisins segir að undanfarnar vikur hafí sleitulaust verið unnið að því af hálfu utanrík- isráðuneytisins, sendiráðs Islands í Moskvu og .útflytjenda, að finna lausn á þeim vanda sem skapast hefur vegna greiðsludráttar fyrir vörur sem fluttar hafa verið út til Sovétríkjanna. Nú hafí verið stað- fest að lagmetisskuld sé greidd og ullarvörugreiðslur berist fljótlega. Þá hefur verið ákveðið að fram- hald samningaviðræðna um nýja viðskiptabókun fari fram í Moskvu 14. janúar næstkomandi. Sölumiðstöðin flytur : út nærri fjórðung af öllum sjávarafurðum landsmanna og árið í fyrra er eitt hið besta í sögu félagsins hvað varð- ar verðmæti útflutnings. Yfir 50% af útflutningi SH fór til Vestur-Evr- ópu en stærsta einstaka viðskipta- landið var Bandaríkin. í fyrra varð samdráttur í sölu til Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og Asíulanda. Mesta söluaukningin varð á mörkuðum Icelandic Freezing Plant, dótturfyrirtækis SH í Bret- landi, eða 33,7%, fór úr 9;5 þúsund tonnum í 13 þúsund tonn. Sölutekj- ur á þessum markaði jukust um 100,8%. Þá jók SH verulega útflutning á ferskum íslenskum laxi á síðasta ári og seldi alls um 1.200 tonn fyr- ir 350 milljónir kr. á fob-verði. Árið áður seldu samtökin 225 tonn fyrir tæplega 80 milljónir króna. Megnið af laxinum fór á Frakk- landsmarkað. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 11. JANUAR Austur við Noreg er 975 mb lægð og minnkandi lægðardrag- milli Færeyja og Skotlands en 1018 mb hæð yfir Grænlandi. SPÁ: Minnkandi norðan- og norðvestanátt, fyrst vestantil. Éljagang- ur um landið norðanvert en bjart veður syðra. Síðdegis fer einnig að létta til norðvestanlands. Frost 2-7 stig. r VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg átt. Sums staðar él við- ströndina, en annars léttskýjað. Fremur kalt í veðri. HORFUR Á SUNNUDAG: Vaxandi suðaustanátt með snjókomu eða slyddu um suðvestanvert landið en léttskýjað norðaustantil. Hlýn- andi veður, fyrst suðvestanlands. TAKN: Heiðskírt y, Norftan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. -JO' Hitastig: 10 gráður á Celsíus M Léttskýjað Skúrir * V E1 r f r / / / / Rigning / r r * / * / * / * Slydda r * r Þoka Þokumóða Súld OO Mistur ? 5 5 * * * * * * * Snjókoma * * * Skafrenningur |T Þrumuveður ■A' T'h VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 f gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +3 snjókoma Reykjavik +2 léttskýjað Bergen 0 skýjaft Helsinkl 0 skýjaft Kaupmannahöfn 9 skúrásfft.klst. Narssarssuaq +12 léttskýjað Nuuk +11 skýjað Osló +1 snjókoma Stokkhólmur 1 slydda Þórshöfn 3 snjóél Algarve 18 féttskýjað Amsterdam 10 skýjað Barcelona 18 léttskýjað Berlin 13 skýjað Chicago +6 þokumóða Feneyjtr þokumóða Frankfurt 15 skýjað Glasgow 4 skúr á sfð. klst. Hamborg 9 rlgn. á sfft. klst. Las Palmas 20 léttskýjað London 8 skýjað LosAngeles 8 heiðskírt Lúxemborg 11 rigning Madrfd 12 skýjað Maiaga 17 léttskýjað Mallorca 16 skýjað Montreat +11 léttskýjað NewYork 3 léttskýjað Orlando vantar Parfs 8 rigning Róm 17 þokumóða Vín vantar Washington vantar Winnipeg +27 skýjað Prentuð þingskjöl eru nú orðin 481. Morgunblaðið/Einar Falur Alþingi kemur til starfa á mánudag ALÞINGI Islendinga 113.1öggjafarþing tekur aftur til starfa á mánudaginn að afloknu jólaleyfi þingmanna. Þinghaldið mun að þessu sinni verða óvenju stutt. Samkvæmt starsfáætlun Alþingis verða þinglausnir 15. mars en venjulega er þinghald fram í maí. Á haustþinginu voru 270 mál lögð fram. 31. frumvarp var af- greitt sem lög frá Alþingi. Fyrsta lagafrumvarpið var samþykkt 4. desember, frumvarp til íjárauka- laga fyrir 1990. 17 lagafrumvörp voru samþykkt síðustu tvo dag- anna fyrir jólaleyfi þingmanna. Á haustþinginu voru 48 þingsálykt- unartillögur lagðar fram, af þeim hafa 9 verið samþykktar. 95 fyrir- spurnir voru lagðar fram, af þeim hefur 66 verið svarað. Fjöldi mála segir þó ekki alla sögu, við frumvörp bætast nefnd- arálit og oft breytingartillögur; fjöldi prentaðra þingskjala er nú 481. Ljóst er að mikil málafjöldi á eftir að bætast við og fjöltli þingskjala enn að aukast þegar mál koma frá nefndum. Þess má geta að á 112. löggjafarþingi 1989-90 voru 582 mál til með- ferðar Alþingi og tala prentaðra þingskjala var 1330. Framfærsluvísitalan: Hækkunin samsvar- ar 7,6% verðbólgu VÍSITALA framfærslukostnaðar samkvæmt verðlagi í byijun janúar er 0,6% hærri en desembervísitalan. Samsvarar það 7,6% verðbólgu á tólf mánaða tímabili. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði sam- svarar 6,4% árshækkun og hækkun hennar síðustu sex mánuði samsvar- ar 4,3% hækkun á ári. Vísitalan hefur hækkað um 7,3% undanfarna tólf mánuði. Árið 1990 var vísitalan að meðaltali 14,8% hærri en árið áður. Sambærileg meðalhækkun frá 1988 til 1989 var 21,1% og 25,5% frá 1987 til 1988. Þriðjungur af hækkun fram- færsluvísitölunnar, eða 0,2%, stafar af 1,2% hækkun matvæla á þessu ' tímabili. Mest munar þar um hækk- un á grænmeti, ávöxtum.og beijum (6,7%) annars vegar og mjólk, ijóma, osta og eggja (3%) hinsvegdf. Föt og skófatnaður hækkaði í verði um 0,9% og leiddi til 0,1% hækkunar vísitölunnar, rafmagns- og húshitun- arkostnaður hækkaði um 1,8% og hækkaði vísitöluna um 0,1%, ferðir og flutningar (aðallega notkun al- mennra flutningatækja) hækkaði vísitöluna um 0,1% og tómstundaiðk- un og menntun, sem hækkaði að meðaltali um 0,6%, hækkaði vísi- töluna sömuleiðis um 0,1%. Ef litið er á hækkanir eftir eðíi þeirra og uppruna sést að búvörur sem háðar eru verðlagsgrundvelli hafa Iækkað um 0,1% á milli mán- aða en aðrar innlendar mat bg drykkjarvörur hafa hækkað um 2%. Innfluttar mat- og drykkjarvörur hafa hækkað um 1,4%. Opinber þjón- usta hefur hækkað um 1,6% en önn- ur þjónusta um 0,4%. Ef vörum er skipt upp eftir því hvort þær eru innlendar eða innfluttar sést að inn- lendar vörur hafa hækkað meira en innfluttar, eða um 1,1% á meðan þær innfluttu hafa hækkað um 0,4%. Samningafundi um orkuverð lokið: Skilaði þeim árangri sem vonast var eftir -segir Jóhannes Nordal stjórnar- formaður Landsvirkjunar JÓHANNES Nordal stjórnarformaður Landsvirkjunar segir að fundur samninganefndar Landsvirkjunar og Atlantsálshópsins hafi skilað þeim árangri sem vonast var eftir. Fundinum lauk í gær. samning. „Ef málið er skoðað í heild, held ég að engin breyting orðið hvað varðar okkar samningsaðila. Hins vegar má segja að umhverfið í heim- „Það miðaði áfram við að koma frá ýmsum atriðum sem þurfti að leysa, en það er ekki komið að lokaá- fanga. Við vonum samt að á næstu fundum, sem verða um mánaðamót- in, muni þessi mál klárast sem rætt var um í dag,“ sagði Jóhannes. Hann sagði að mest hefði verið rætt við íjárhagslega hlið raforku- samninga og endurskoðunarákvæði, en eingögnu var rætt um orkusölu- inum þessa dagana sé ekki sérstak- lega vingjarnlegt," sagði Jóhannes. Iðnaðarráðherra mun hitta aðal- samninga samninganefnd Atlantsáls um næstu helgi, þar sem verður farið yfir þá þætti málsins sem snúa að ríkinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.