Morgunblaðið - 11.01.1991, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 11.01.1991, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991 9 hefst mánudaginn 14.janúar. Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir konur á öllum aldri. Byrjenda- og framhaldstímar. Kennsla fer fram í íþróttahúsi Melaskóla. Kennari Gígja Hermannsdóttir. Upplýsingar og innritun í síma 13022 um helgar og virka daga í sama síma eftir kl. 16. Alþingi er orðið eins og leiksvið Leiksviðið kvatt . Reyndasti og áreiðanlega virtasti þing- maður Alþýðubandalagsins, Geir Gunn- arsson, lætur af rúmlega þrjátíu ára þing- setu eftir kosningar í vor. í viðtali, sem birtist fyrir skömmu í málgagni flokksins í Hafnarfirði, Vegamótum, segir m.a., að það hafi aldrei verið jafnmikið bil á milli ráðherra flokksins og þingflokksins og í þessari ríkisstjórn. Mikilvæg mál, eins og t.d BHMR-málið, séu einfaldlega ekki borin undir þingflokkinn. Mannréttindi Viðtalið i Vegamótum er eins konar kveðjuvið- tal við Geir, þar sem hann lítur yfir farinn veg og kemur inn á margs konar mál. Viðtalið nefn- ist „Alþingi er orðið eins og leiksvið“ og í upphafi þess er Geir spurður um afstöðuna til bráða- birgðalaga ríkisstjómar- innar á samninga BHMR, en hann greiddi atkvæði gegn staðfestingu þeirra í neðri deild. I upphafi viðtalsins segir m.a.: „Þú sagðir á þingi að þessi lög snémst um grundvallarmannréttindi en ekki um þjóðarsátt „Já. Þetta snerist um spuminguna hvort virða eigi niannréttindi eða ekki. Fyrst em gerðir samningar, svo er reynt að fara eftir þeim en þegar dómur er felldur þá er skellt á bráða- birgðalögum." Þetta em mjög svipuð rök og þjá Þorsteini Páls- syni. „Eg held því fram að þetta sé brot á öllum mannréttindum því það er ekki einungis ráðist á samningsréttinn heldur einnig á dómsvaldið." Nú hefur þú setið á þingi í rúmlega 30 ár. Finnst þér viðhorf stjóm- málamanna hafa breyst gagnvart svona málum? „Mér finnst menn vera famir að teygja sig lengra. Það hafa áður verið gerðar svona ráð- stafanir sem varða verkidýðshreyfinguna al- mennt. En hér er um að ræða einn sérstakan samning sem ríkisstjórn- in stendur sjálf að. Síðan gerir hún aiman samning þar sem það er handsalað að gera þennan samning að engu. Seinni samning- urinn byggist m.a. á því að stigið verði yfir þann samning sem er í gildi I staðinn fyrir að segja honum löglega upp, en það var ekkert athuga- vert við það að mínum dómi. Samningamir við BHMR hefðu þá verið lausir í haust og þar með hefðu víxláhrifin verið úr sögunni. Þá hefði BHMR fengið sin 4,5% og hinir áttu von á 2,5% um svipað leyti. Þannig að víxláhrifin hefðu orðið lítil sem engin.““ Ráðherrar í fflabeinstumi Undir lok viðtalsins kemur Geir inn á fram- komu núverandi ráð- herra Alþýðubandalags- ins við þingflokkinn og er hann ómyrkur í máli. Þar segir m.a.: „Sú gagnrýni hefur heyrst að ráðherramir sitji í sinum filabeinstumi og ráðgist ekki við fólk sitt. „Það er undir hverjum og einum komið hvermg þeir vinna sín verk. Ég hef kvartað yfir því í þingflokknum varðandi þessa rikisstjórn að það virðist aldrei hafa verið eins mikið bil á milli þing- flokksins og ríkisstjóm- arinnar eins og í þessari ríkisstjóm. Við fréttum t.d. um ákvörðun mála í fjölmiðlum áður en þau hafa verið rædd í þing- flokknum. Sú ákvörðun, sem er grundvöllurinn að þeim deilum sem núna standa, að borga ekki BHMR mömium sam- kvæmt samningi 4,5% 1. júlí, hún var aldrei borin undir þingflokkinn. Mér finnst bera meira á því í þessari ríkisstjóm en áður, að ráðherrar em að afgreiða mál án þess að þingflokkurinn komi þar nærri.“ Það sem vantar Geir Gunnarsson lýkur viðtalinu á þökkum til flokksmanna sinna í Hafnarfirði, og annars staðar í kjördæminu, sveitarstjómarmanna og þingmanna í kjördæm- inu, sem hann hefur ver- ið samtiða, og þá einkum og sérstaklega nefnir hann Matthías Á. Mathie- sen. Það er margt athyglis- vert i þessu viðtali en athyglisverðast er þó, að Geir minnist ekki einu aukateknu orði á vænt- anlegan eftirmann siim í 1. sæti listans í Reykja- neskjördæmi. En hann er enginn amiar en sjálf- ur flokksformaðurinn, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra. Hann er ekki boðinn velkominn til þingsetu fyrir Alþýðu- bandalagið. Enda á hann ekki upp á pallborðið ineðal flokksmaima í heimabæ Geirs, Hafnar- firði, sem hafa mótmælt aðfömm við tilnefningu hans í 1. sætið. Ennfrem- ur má miima á, að það var sjálfur flokksformað- urimi sem gerði samn- ingimi fræga við BHMR, skaut ágreiningi um haim til Félagsdóms og setti síðan bráðabirgða- lög á niðurstöðu dómsins og eigin samning. Eins og Geir minntist á þá var Ólafur Ragnar ekkert að hafa fyrir þvi að bera bráðabirgðalögin undir þingflokkinn. Ólafur hafði ekki einu shmi fyr- ir því að bera málið und- ir þingmami Alþýðu- bandalagsms í Reykja- neskjördæmi, en svo vill til að Ólafur Ragnar er einmitt varamaður hans. Það er ekki að furða að Geir Gunnarsson sé búinn að fá sig fullsadd- an. SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI FOSTUDAGUR TIL FJAR STARTKAFLAR í DAG Á KOSTNAÐARVERÐI BYGGTÖBÖltí I KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.