Morgunblaðið - 11.01.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.01.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991 17 Gróa á Leiti eftir Svein Hjört Hjartarson í Mbl. þann 25. janúar sl. birtist athyglisverð grein um Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Þar voru reifaðir kostir þess og gallar að. hafa slík sölusamtök. Slík umræða er nauð- synleg og eykur skilning manna á því hvað okkur er fyrir bestu í mark- aðs- og sölumálum. Væntanlega verður þessi grein öðrum til hvatn- ingar um að tjá sig um fleiri hliðar þessa mikilvæga máls. Niðurlag umræddrar greinar veld- ur þó miklum vonbrigðum og rýrir gildi þessarar blaðagreinar. En í nið- urlagi greinarinnar segir blaðamað- urinn m.a. að ýmsir velti því fyrir sér hver sé ástæða þess að meiri- hluti frystitogara standi fyrir utan sölusamtökin og skýringin sem gefin er er ekki fögur. Því er haldið fram, eins og áður hefur komið fram hér í Mbl., að frystitogararnir fái yfir- vikt úti — sem sölusamtökin geti ekki keppt við hér — slík svik séu ekki möguleg. 10% yfirvigtin sé nán- ast regla, og þannig eigi sér stað stórkostlegt kvótasvindl. í þessum vangaveltum, sem blaðamaðurinn getur um er tvennt, sem ekki er satt. í fyrsta lagi lætur mikill meirihluti þeirra 22 flaka- frystitogara, sem hér er flallað um, sölusamtökin sjá um sölu aflans og er í þeim. Að vísu eru þeir ekki allir félagar í viðkomandi samtökum. Þess eru dæmi að „óháðir" aðilar kjósi frekar viðskipti við íslenskar sjávarafurðir hf. (Sjávarafurðadeild Sambandsins sem var). Þetta á við um Venus og Ými frá Hafnarfirði. Fjögur fyrirtæki sem eiga 6 flaka- frystitogara hafa aftur á móti kosið að selja aflann með öðrum hætti. Tvö fyrirtæki hafa umboðsaðila hér á landi, sem eru Asiaco og Ne_s. Hin tvö fyrirtækin skipta beint við Isberg Ltd., sem er í eigu Péturs Björnsson- ar í Hull. Af 22 skipum um síðustu áramót eru því 6 skip, sem ekki selja í gegnum sölusamtökin. Það væri vissulega efni í aðra grein að kynna sér af hveiju þessi fyrirtæki velji aðrar leiðir í sölumálum, en viðskipti við sölusamtökin. Af framansögðu má ljóst vera að mikill meirihluti • flakafrystitogara kýs að vera ekki utan sölusamta- kanna og ætti þá samkvæmt ofan- greindum vangaveltum ekki að geta svindlað á kvóta. Sveinn Hjörtur Hjartarson „Þær kannanir sem hingað til hafa verið gerðar af ábyrgum op- inberum aðilum eða sölusamtökum benda ekki til neins óeðlilegs innihalds í pakkningum frystitogara.“ Þær kannanir sem hingað til hafa verið gerðar af ábyrgum opinberum aðilum eða sölusamtökum benda ekki til neins óeðlilegs innihalds í pakkningum frystitogara. Það kann hins vegar að valda misskilningi hjá ókunnugum að gerð er krafa um vatnsúðun í umbúðum. Fyrir heil- frystan karfa eru þetta um 8%, grá- lúðu 3%. Þessi ís og umbúðir að auki þyngja að sjálfsögðu brúttóvigt einstakra pakkninga. Því er ekki að leyna að umræða um frystitogara hefur verið nejkvæð á undanförnum misserum. Ýmsar sögur og vangaveltur, sem hæfa Gróu á Leiti hafa verið í loftinu, en þrátt fyrir stóraukið eftirlit með nýtingu og vigtun afla úr frystitog- urum hafa þessar sögusagnir ekki átt við rök að styðjast. Með fyrirfram þakklæti fyrir birt- ingu. Höfundur er hagfræðingur LÍÚ. Launamiðum ber að skila í síðasta Iagi21. janúar Allir sem greitt hafa laun á árinu 1990 eiga nú að skila launamiðum á þartil gerðum eyðublöðum til skattstjóra. Skilafrestur rennur út 21. janúar. REYKJAVÍK OG NÁGRENNI: AÐALUMBOÐ Suðurgötu 10, sími 23130 VERSLUNIN GRETTISGÖTU 26 sími 13665 SJÓBÚÐIN Grandagarði 7,sími 16814 HAPPAHÚSIÐ Kringlunni, sími 689780 BENSfNSALA HREYFILS Fellsmúla 24, sími 685632 BÓKABÚÐIN HUGBORG Grímsbæ, sími 686145 BÓKABÚÐ JÓNSAR EGGERTSSONAR Hraunbæ 102, sími 83355 VERSLUNIN STRAUMNES Vesturbergi 76, sími 72800 SfBS-DEILDIN REYKJALUNDI, sími 666200 BÓKABÚÐIN ÁSFELL Háholti 14, Mosfellsbæ, sími 666620 Vilborg Sigurjónsdóttir BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS Hafnarfirði, sími 50045 BÓKABÚÐIN GRfMA Garðatorgi 3, Garðabæ, sími 656020 SIBS-DEILDIN VfFILSSTÖÐUM sími 602800 BORGARBÚÐIN Hófgerði 30, Kópavogi, sími 4263 VfDEÓMARKAÐURINN Hamraborg 20A, Kópavogi, sími 46777 SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS Engihjalla 8, sími 44155 REYKJANES: GRINDAVIK: Ása Lóa Einarsdóttir, Borgarhrauni 7, slmi 92-68080 SANDGERÐI: Sigurður Bjarnason, Norðurtúni 4, .sími 92-37483 GARÐUR: Jóhann Jónsson, Sunnubraut 9, sími 92-27125 KEFLAVÍK: Umboðsskrifstofa Helga Hólm, Hafnargötu 79, sími 92-15660 VATNSLEYSUSTRÖND: Þórdís Símonardóttir, Borg, sími 92-46630 Láttu það eftír þér að vera með - þú átt það skilið. - með mestu vinningslíkumar HÉR&NÚ AUGIÝSINGASTOFA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.