Morgunblaðið - 11.01.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.01.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991 21 Reuter Israelskir hermenn við eftirlit meðfram jórdönsku landamærunum skammt frá Jeríkó í gær. Israelski herinn hefur aukið viðbúnað meðfram landamærunum vegna stríðshættunnar á Persaflóasvæðinu. > * Irakar segjast munu ráðast á Israel komi til átaka við Persaflóa: Israelar segjast ekki ráðgera að verða fyrri til New York. Reuter. ÍSRAELAR neituðu því í gær að þeir hefðu uppi áform um að vera fyrri til og gera ásás á skotmörk í írak færi svo að stríð brytist út við Persaflóa. Ehud Olmert heilbrigðismálaráðherra sagði í samtali við bandaríska sjónvarpsstöð að Israelar væru undirbúnir undir stríð og myndu svara hugsanlegri árás íraka með afdrifaríkum hætti. Tals- maður Yitzhaks Shamirs forsætisráðherra sagði að líkur á átökum færu vaxandi með degi hveijum og almenningur byrgði sig upp af matvælum og öðrum nauðsynjum til að vera við öllu búinn. „Dirfist írökum að ráðast á ísrael munu þeir iðrast þess síðar, það er þeir sem á annað borð lifa af,“ sagði Olmert. Tareq Aziz utanríkisráðherra íraks sagði afdráttarlaust á blaða- mannafundi eftir fund þeirra James Bakers utanríkisráðherra Banda- ríkjanna í Genf í fyrradag að írakar myndu ráðast á ísrael kæmi til átaka við Persaflóa. Moshe Arens varnar- málaráðherra sagði ísraela vera til- búnir til átaka sem þeir þó hefðu engan áhuga á að brytust út. Banda- ríkjamenn eru sagðir hafa lagt að ísraelum að reyna ekki að verða fyrri til vegna hugsanlegra árása frá írak. í yfirlýsingu sem ísraelska sendi- ráðið í Washington sendi frá sér í gær sagði að fullyrðingar Aziz á blaðamannafundinum þess efnis að ísraelar hefðu ráðgert árásir á írak í fyrra væru uppspuni. Yitzhak Rabin fyrrum varnar- málaráðherra ísraels sagði í viðtali við franska blaðið Le Figaro í gær, að yrði fundin friðsamleg lausn á deilunni við íraka áður en frestur þeirra til að kalla innrásarher sinn frá Kúveit rennur út bæri að efla heri Irans til að vega upp herstyrk íraka. „Leysist deilan friðsamlega nú má allt eins búast við annari íraskri árás innan hálfs annars árs. Til að hindra það verður að koma á ný því hemaðarlega jafnvægi sem ríkti 1980. Þáverandi herstyrkur ír- ana hélt aftur af írökum því þeir höfðu ekki það svigrúm til athafna sem þeir hafa nú,“ sagði Rabin. Hann sagði ennfremur að þörf væri fyrir áframhaldandi veru 100-150 þúsund manna herliðs Bandaríkja- manna og bandamanna þeirra í Saudi-Arabíu eftir að deilan um Kúveit væri leyst. Ráðherraráð EB: Lúxemborgarar taka við forsæti Brussel. Frá Kristófer M. KnsUnssym, fréttaritara Morgunblaðsins. Lúxemborgarar tóku við forsæti í ráðherraráði Evrópubandalags- ins (EB) um áramótin af Itölum og gegna því fyrra misseri þessa árs. Það kemur því að öllum líkindum í hlut Lúxemborgar að leiða samn- ingaviðræðurnar við Fríverslunar- bandalag Evrópu (EFTA) til lykta og sömuleiðis að stjórna innanrík- isráðstefnum EB um endurskoðun sáttmála bandalagsins. Á tímabil- inu verða haldnir 39 ráðherrafund- ir auk leiðtogafundar EB sem verð- ur í Lúxemborg 28. og 29. júní. Innanríkisráðstefnumar sem fjalla annars vegar um nánara stjórnmálasamstarf aðildarríkj- anna og hins vegar um aukið sam- starf í efnahags- og gjaldeyrismál- um hefjast um miðjan mánuðinn í Brussel. Fastafulltrúar aðildarríkj- anna munu hittast viku- eða hálfs- mánaðarlega til að fjalla um þessi efni en einu sinni í mánuði verða ráðherrafundir. Ráðgert er að nið- urstöður ráðstefnanna liggi fyrir næsta haust. Ný samningalota á milli EFTA og EB hefst í vikunni með fundum í samninganefndum eitt og tvö en henni mun ljúka með sameiginleg- um fundi yfirsamninganefnda bandalaganna 22. og 23. janúar. Stefnt er að því að ljúka samninga- viðræðunum fyrir vorið. VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN UPPLÝSINGAR: SlMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.