Morgunblaðið - 11.01.1991, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.01.1991, Qupperneq 7
Laxveiðin 1991: Eftirspum eftir lax- veiðileyfum stóreykst MIKIL eftirspurn er eftir laxveiðileyfum fyrir komandi veiðivertíð, miklu meiri heldur en verið hefur síðustu árin. Guðlaugur Bergmann, stjórnarmaður hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, SVFR, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að aukningin væri mikil og það væri bókstaflega „allt vitlaust að gera“, en sljórn og árnefndir SVFR hafa unnið sleitu- laust frá síðasta laugardagskvöldi við að vinna úr umsóknum um hin ýihsu vatnasvæði félagsins. Samkvæmt upplýsingum Guð- laugs er eftirspurnin eftir einstökum svæðum mismikil eins og venjulega, en alls staðar væri hún góð og sums staðar gífurleg. „Við erum til dæmis í vandræðum með að úthluta öllum til hæfis í Norðurá sem er heldur betur breyting til hins betra frá síðustu sumrum er illa hefur gengið að selja veiðileyfí í ána. Sama er að segja um Fjaliið í Langá, það hefur selst heldur hægt síðustu sumur, en nú er allt uppselt. Annað dæmi er Tungufljót, sjóbirtingsáin sem við höfum nú á leigu ásamt Stakki í Vík. Það er meira og minna að verða uppselt á svæðið. Fyrir þessu eru eflaust ýmsar ástæður. í Tungufljóti og á Fjallinu er til dæmis boðin úr- valsgóð aðstaða auk góðrar veiðivon- ar á hóflegu verði. í Norðurá hefur netaupptakan úr Hvítá eflaust sín áhrif. Menn fá mikla tiltrú á svæðið, enda allt önnur og betri vara sem í boði er. Svo má ekki gleyma því að víðast hvar er óbreytt eða lægra verð en áður. í versta falli litlar hækkanir," sagði Guðlaugur Berg- mann. Svipaða sögu er að segja úr flest- um herbúðum. Sala gengur vel. Helst að stöku útlendingahópar heltist úr lestinni eftir tvö mögur veiðisumur. í Laxá í Kjós er til að mynda nánast allt uppselt og heyrst hefur að biðlist- ar séu langir að komast að í Laxá í Dölum. Veðrið árið 1990: Lægsti loftþrýstingur frá því mælingar hófust VEÐURFAR ársins 1990 var um margt óvenjulegt samkvæmt mæling- um Veðurstofunnar. Loftþrýstingur var óvenju lágur og sérstaklega fyrstu fjóra mánuði ársins. Meðalloftþrýstingur í febrúar, var hinn lægsti í nokkrum mánuði hérlendis allt frá því samfelldar loftþrýstings- mælingar hófust árið 1822 eða í nærri 170 ár. Janúar var þriðji lægst máðurinn frá upphafi. Hiti og úrkoma voru þó nærri meðallagi á árinu í heild. Síðastliðinn vetur einkenndist af óvenju miklum snjóalögum um meg- inhluta landsins. Þarf að leita langt aftur í tímann til að finna viðlíka aprílmánuð hvað snjóalög snertir um allt norðanvert landið. 9. janúargerði svo stórviðri af útsuðri á landinu og fylgdi því eitt mesta sjávarflóð aldar- innar við suðvesturströndina. Sumarið þótti nokkuð hagstætt víðast hvar, einkum þó framan af um sunnanvert landið. Júlí varð einn hinn þurrasti um áratuga skeið norð- anlands en ágúst var fremur sólarlít- ill og vætusamur en hlýr. Óvenju mikil úrkoma var í september um sunnanvert landið og slæm norðaná- hlaup gerði um austanvert landið um mi miðjan mánuðinn. Meðlahiti ársins 1990 reyndist vera 4,4°C og er það 0,2°C undir meðallagi áranna 1951 til 1980. Á Akureyri var meðalhitinn 3,7°C eða 0,3°C yfir meðallagi sömu ára. í Stykkishólmi var meðalhitinn 3°C. Úrkoma var um 6% umfram með- allag í Reykjavík og hafði þann 28. desember mælst 826 mm, á Akur- eyri höfðu þá mælst 544 mm og er það 14% umfram meðallag. Sólskins- stundir í Reykjavík urðu 1.140 og er það um 148 stundum fæn-a en í meðalári en 993 á Akureyri sem er 36 stundum minna en í meðalári. Flugtak: Ný o g fullkom- in skrúfuþota NÝ tveggja hreyfla skrúfuþota bættist í flota Flugtaks skömmu fyrir jól. Vélin er af gerðinni Beechcraft Super Kingair 200 og hentar ákaflega vel íslenskum aðstæðum. Hún er búin fullkomn- um siglingatækjum og getur m.a. notast við gervitungl. Vélin var keypt frá Banda- Þetta mun vera eina vélin hér ríkjunum þar sem hún var í eigu á landi sem nýtir gervitungl til símafyrirtækis. Innréttingar í vél- inni eru íburðarmiklar, leðursæti og fleira sem gerir flugferðina þægilega. Hægt er að koma tíu farþegum fyrir en með smávægi- legum breytingum má flytja þrett- án farþega. Að sögn Baldvins Birgissonar, flugmanns vélarinnar, er vélin bæði lágvær og hraðfleyg. „Hún nær 540 kílómetra hraða og við erum því 35 mínútur til Akur- eyrar. Vélin hefur 3700 kílómetra flugþol og það er því hægt að fljúga til Miðjarðarhafsins án millilendingar. staðsetningar, en hún er að auki búin hefðbundnum tækjum. Jafn- þrýstiklefinn gerir okkur kleift að fljúga í 20.000 feta hæð með þrýsting í farþegarými eins og við sjávarmál. Annars getur vélin flogið í 35 þúsund feta hæð, en það eru um ellefu og hálfur kíló- metri. Hún er með stór dekk og hentar því mjög vel á malarvöllun- um hér á landi“, segir Baldvin Flugtak á nú fimm kennsluvél- ar auk ijögurra stærri véla, en þeir seldu sex farþega vél þegar þeir keyptu þessa. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.