Morgunblaðið - 11.01.1991, Qupperneq 18
18
' ■ * • ■ • ■ g 11 y. u' ■> t (r j ts(h ma/ijmuomm
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991
■'T
i [ ÍÍ'TT' l TTr- r ':r"il T. jí ^ jl ' 1 i i i r i r !
f -i CO '1 -11 II ' ;i ~ r •. •» »
Utlitsmynd af hinni nýju byggingu á íþróttasvæðinu á Jarðarsbökkum á Akranesi. .
Akranes:
Framkvæmdasamningur um
íþróttamamiviiki undirrítaður
Akranesi.
UNDIRRITAÐ hefur verið sam-
komulag milli Akraneskaupstað-
ar og Iþróttabandalag Akraness
um, í fyrsta lagi að halda áfram
uppbyggingu íþróttamiðstöðvar-
innar á Jaðarsbökkum og í öðru
lagi alhliða rammasamning um
samskipti um íþróttamál á Akra-
nesi næstu árin.
Nú þegar hefur verið hafíst handa
Bering Seal áður en það hlaut nafnið E.T. við landféstar í
Flórída. ___
Bauð af rælni í
skipið á uppboði
Sigurður Þorsteinsson og 4 synir hans
eiga rannsóknarskip á Karíbahafi
Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Mbl.
SIGURÐUR Þorsteinsson sjómaður og skipstjóri um nær 50 ára
skeið, sem síðustu árin hefur búið í Suður-Flórída, er enn einu
sinni orðinn eigandi skips. Fyrir tæpu ári keypti hann flutninga-
og rannsóknarskipið Bering Seal á uppboði af bandaríska ríkinu,
en gerði nokkru síðar samning við bandaríska flotann um leigu
á skipinu og gengur útgerðin vel að sögn Sigurðar.
Sigurður varð á sínum tíma hans hafa stofnað fyrirtæki um
smum
landskunnur er hann keypti varð-
skipið Maríu Júlíu og sigldi á því
frá íslandi ásamt konu og stórum
barnahópi á vit ævintýra í fram-
andi löndum.
„Mér finnst ég á gamals aldri
hafa gert kraftaverk," sagði Sig-
urður í samtali við fréttamann
Mbl. „Ég á nú ekki nema tvö ár
í að hafa verið á sjónum í 50 ár
og á ýmsu hefur gengið. En þessi
síðustu skipakaup eru ævintýri
líkust og ég lít á þau sem einskon-
ar lottóvinning."
Hann kvaðst hafa séð auglýs-
ingu um sölu Bering Seal á upp-
boði er hann var við skipstjórn á
stóru flutningaskipi. Bering Seal
var þá komið í eigu bandaríska
ríkisins vegna vanskila fyrri eig-
anda á ríkistryggðum lánum. Af
rælni sendi hann inn lágt tilboð
og bjóst alls ekki við að fá skipið.
En viti menn, tilboði hans var
tekið.
Bering Seal hafði þá um fjög-
urra ára skeið verið við olíurann-
sóknir og flutninga til borpalla í
Norðursjó og á þeim tíma komið
tvívegis til Reykjavíkur sam-
kvæmt dagbók skipsins. Þremur
mánuðum eftir að Sigurður eign-
aðist skipið komu fulltrúar flotans
á hans fund og föluðust eftir skip-
inu til leigu. Flotinn hefur nú
haft skipið á leigu í 7 mánuði og
allt bendir til að svo verði út þetta
áp. Sigurður segir afkomu útgerð-
arinnar gulltryggða með leigu-
samningnum. Sigurður og synir
útgerðina. Heitir það AT; Atlantic
Trading Navigation & Commerce
Inc.
Skipið er að sögn Sigurður
tæplega 70 metra langt og nokk-
uð á annað þúsund tonn að stærð.
í því eru nokkrar rannsóknarstof-
ur auk vistavera fyrir áhöfn og
rannsóknarmenn sem líkja má við
hótelaðstöðu. Töluvert af tölvu-
búnaði fylgdi í kaupunum. Á skip-
inu er nú 10 manna áhöfn og 20
manna rannsóknarlið. Skipið tek-
ur þátt í tilraunum og rannsókn-
um bandaríska flotans varðandi
samvinnu flugvéla, skipa og kaf-
báta.
Fjórir synir Sigurðar eru nú á
skipinu, Olafur 1. stýrimaður,
Jens 1. vélstjóri, Bjarni Björn og
Þorsteinn. Bjarni Björn tók sér
frí frá kennslustörfum á háskóla-
stigi vegna betri launa um borð
og Þorsteinn sem er málverka-
fræðingur og deildarstjóri hjá
Boeing-flugvélaverksmiðjunnar
nýtir einnig frí frá vinnu sinni til
að vera með. Sigurður faðir þeirra
hyggst fara sjálfur á sjóinn aftur
nú á næstunni, en hann varð að
taka sér frí vegna kransæðasjúk-
dóms. ú
Nafni Bering Seal ver breytt í
E.T. við eigendaskiptin. Mörgum
fínnst það nýstárlegt nafn og telja
það í tengslum við kvikmyndina
E.T. Svo er þó ekki, heldur heitir
eiginkona Sigurðar Edda og þau
bera bæði nafnið Thorsteinsson.
Upphafsstafirnir eru E.T.
við byggingarframkvæmdir og er
þessa dagana verið að taka grunn
fyrir stækkun íþróttahúss ÍA sem
tekið var í notkun fyrir röskum tveim
árum. Það hús verður nú lengt um
tíu metra til austurs og verða þar
búningsklefar á fyrstu hæð, þrek-
þjálfunaraðstaða og skrifstofur á
annarri hæð og síðan gistiaðstaða á
þriðju hæð sem mun hýsa um 20
manns. .
Þá mun í beinu framhaldi verða
byggð anddyrisbygging fyrir
íþróttamiðstöðina og í þriðja lagi
kemur nýtt búningsklefahús fyrir
íþróttavöllinn í stað þess gamla sem
verður rifíð enda fyrir löngu búið
að skila hlutverki sínu. Það hús verð-
ur gert fokhelt á samningstímanum,
en að öðru leyti verða mannvirkin
fullgerð. Alls er grunnflötur þessara
bygginga röskir 500 m2 og mun
þessi framkvæmd breyta miklu fyrir
íþróttaunnendur á Akranesi.
Gert er ráð fyrir að þessar fram-
kvæmdir muni kosta 63 milljónir
króna og mun Akranesbær leggja
fram 35,7 milljónir króna á næstu
sex árum, eða tæpar sex milljónir
króna á ári. Að sögn Magnúsar
Oddssonar formanns Iþróttabanda-
lags Akraness er íþróttafbrystan á
Akranesi mjög ánægð með að þessi
samningur sé í höfn. „Við höfum
nýlokið við gerð íþróttahúss og jafn-
framt því unnið við stór verkefni við
byggingu grasvalla og félagsað-
stöðu. Við teljum þetta mjög góða
lausn að standa sjálfír fyrir fram-
kvæmdum með stuðningi bæjaiyfír-
valda. Þetta er samningur sem er
dæmi um það hvað hægt er að gera
þegar íþróttafélög og bæjaryfirvöld
snúa bökum saman til að skapa
æsku bæjarins skilyrði til að sinna
hollum og áhugaverðum verkefn-
um,“ sagði Magnús.
Én hvemig fer íþróttabandalagið
að því að fjármagna sinn hlut þess-
ara framkvæmda?
„Það verður gert á sama hátt og
þegar við byggðum íþróttahúsið,"
segir Magnús. „Við munum m.a.
vinna í sjálfboðavinnu í einhverjum
mæli og safna fjármagni með ýmsu
móti til að standa við okkar hlut.
Okkur tókst með ágætum að standa
að okkar hlut við byggingu íþrótta-
hússins og við erum bjartsýnir á það
sama nú. Við eram einnig að skoða
þann möguleika að stytta bygg-
ingartímann eitthvað," segir Magn-
ús að lokum.
Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akra-
nesi sagði í samtali við Morgunblað-
ið að hann væri mjög ánægður með
þann samning sem gerður hafði ver-
ið við íþróttabandalagið og sagðist
vænta góðs af samstarfí við það.
- J.G.
Friðar-
stundí
skólum
VEGNA yfirvofandi stríðsá-
taka við Persaflóa hafa kirkj-
an og ýmis samtök staðið að
friðarsamkomum og bæna-
stundum. I gær boðuðu
fræðslustjórar friðarstund i
grunnskólum landsins næst-
komandi mánudag.
í samþykkt sinni beina
fræðslustjórar þeim eindregnu
tilmælum til skólastjóra allra
grannskóla í landinu að mánu-
daginn 14. janúar næstkom-
andi verði haldin friðarstund í
hveijum skóla klukkan 11 ár-
degis.
Selfoss:
Félag eldri
borgara 10 ára
Selfossi.
FÉLAG eldri borgara á Selfossi
hélt nýlega upp á 10 ára afmæli
starfsemi sinnar. Boðið var til
kaffidryklq'u og starfsferillinn
rakinn ásamt því sem slegið var
á létta strengi.
Einar Siguijónsson formaður fé-
lagsins rakti sögu félagsins og í
máli hans kom glöggt fram að mik-
il þörf er fyrir starfsemi félags sem
þessa og greinilegt að það uppfyllir
félagsþörf eldra fólks. Það gengst
fyrir tómstundastarfi, ferðalögum,
Iíkamsrækt og öðru því sem hugur
eldra fólks leitar sér til afþreyingar.
Á afmælissamkomunni var mikið
sungið og brugðið á leik með því
að færa upp stutta leikþætti og
atburði frá liðnu sumri. Fjöldi
manns sótti samkomuna og átti
góða samverastund á aðventunni.
Sig. Jóns.
Gestir á kynningarfundi um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.
Morgunblaðið/Sverrir
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra:
Mikilvægur áfangi í rétt-
indamálum heyrnarlausra
- seg-ir Svavar Gestsson menntamálaráðherra
MIKILVÆGUR áfangi var stiginn í réttindamálum heyrnarlausra
og heyrnarskertra þegar lög um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra
og heyrnarskertra öðluðust gildi,“ sagði Svavar Gestsson menntmála-
ráðherra þegar Félag heynarlausra og aðrir er málið varðar fögn-
uðu þessum áfanga í gær.
Markmið laganna er að stuðla
að jafnrétti heyrnarlausra til þjón-
ustu sem víðast í þjóðfélaginu á
grundvelli táknmáls heymarlausra.
Hlutverk Samskiptamiðstöðvarinn-
ar er að annast rannsóknir á
íslensku táknmáli og sagði mennta-
málaráðherra að mikilvægt væri að
íslenskt táknmál verði þróað á
grundvelli rannsókna hér á landi.
Samskiptamiðstöðin á að annast
undirbúning kennslu táknmáls og
sinna henni sérstaklega og skipu-
leggja táknmálstúlkun.
1 lögunum segir að Samskipta-
miðstöðin skuli hafa samstarf við
svæðisstjórnir um málefni fatlaðra,
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkis-
ins, Heyrnleysingjaskólann, Heyrn-
ar- og talmeinastöð íslands, Náms-
gagnastofnun og aðra opinbera
aðila varðandi málefni er snerta
starfsemi þeirra. Sama gildir um
samstarf við félög áhugamanna.
Menntamálaráðherra skipar
stofnuninni fimm manna stjórn til
fjögurra ára og forstöðumann til
fimm ára í senn að fengnum tillög-
um stjórnar stofnunarinnar. Full-
trúi menntamálaráðherra í stjórn
stofnunarinnar sem jafnframt er
formaður stjórnar hennar hefur
verið skipaður Berglind Stefáns-
dóttir kennari.