Morgunblaðið - 11.01.1991, Side 35

Morgunblaðið - 11.01.1991, Side 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991 fc>IK í fréttum KGB Fegurðardrottning valin eftir áfloga- og hraðaksturshæfni Færeysku fimmmenningarnir, f.v.: James, Búi, Rógvi, Eiríkur og Arnold, sem liggur á hnjám félaga sinna. ss Færeyskir strákar í íslenska tónlistarskóla Það er kannski ofsögum sagt að um innrás sé að ræða, en óhætt að segja að talsverður straumur færeyskra hljómlistarmanna hafi legið í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Þetta þykir frændum okkar og ná- grönnum hið merkilegasta mál og fyrir skömmu birti dagblaðið Dimm- aletting stóra mynd og viðtal við fimm færeyska sveina sem sestir ei-u á skólabekk í Reykjavík. Fimmmenningarnir heita James Olsen, Búi Petersen, Rógvi á Rógvi, Eiríkur Skála og Arnold Ludvig. Þeir segjast hafa það fyrir satt, að tónlistarskólar á íslandi séu að minnsta kosti jafn góðir og í Dan- mörku og trúlega meira að segja mun betri og þegar að er gáð hversu erfitt það reynist Færeyingum að komast t.d. í „Konservatoríið" danska þá sé með ólíkindum hversu lítið Færeyingar hafa nýtt sér mögu- leikana á íslandi. Tungumálavandi sé ekki fyrir hendi og nemar fái gráðu frá íslenskum skólum á skemmri tima heldur en t.d. frá dönskum skólum. Það hangir alltaf eitthvað á spýtunni, helsti gallinn við að læra og búa á íslandi er sá, að það sé „ógvulega dýrt“ og þar sem námslánakerfið í Færeyjum sé þungt í vöfum neyðist strákarnir til að vinna með, en það sé tvíeggjað þar sem allar tekjur dragi úr láns- gildi hvers og eins. LEIKLIST Enn einn Hollywood- „sonur“ slær í gegn Mikið hefur borið á nýrri kynslóð Hollywoodleikara með sömu gömlu nöfnin. Sumsé sonum og dætrum gömlu brýnanna sem gert hafa garðinn frægan síðustu 20 til 30 árin. Nýr leikari af ungu kynslóð- inni með gömlu nöfnin hefur nú rutt sér til rúms með stórt hlutverk í nýjustu kvikmynd Bernardos Bert- olucci, „The Sheltering Sky“. Það er Campbell Scott, sonur George C. Scott, sem er kvikmyndaáhuga- mönnum að sjálfsögðu að góðu kunn- ur, ekki síst fyrir túlkun á ýmsum herforingjum og öðrum harðjöxlum. Campbell Ieikur eitt af þremur stærstu hlutverkunum í mynd ítalans fræga, á móti honum leika Debra Winger og John Malkovich. Winger og Malkovich leika bandarísk hjón sem ferðast til Marokkó í von um að endurlífga kulnað hjónaband. Hinn ungi Scott leikur landa þeirra sem slæst í för með þeim. Scott, sem er 28 ára gamall, hefur árum saman leikið ýmiss konar smáhlutverk í leik- húsum. Nokkur kvikmyndahlutverk hafa boðist, en öll lítilfjörleg í ómerki- legum kvikmyndum. Tilviljun réð því að Scott var valinn í mynd Bertoluc- cis og hann viðurkennir að hann hafi stirðnað af hræðslu við tilhugs- unina eina saman að vinna með jafn frægu fólki og Bertolucci og félögum. Það hafi hins vegar bráð af sér fljótt og vel. Um dvölina og tökurnar í Marokkó segir Scott: „Við höfðum fæst komið þangað áður og vorum eiginlega hálf utangátta. En það kom sér reyndar vel, því við áttum ein- mitt að vera utangátta í hlutverkum okkar." F.v.: Winger, Malkovich og Scott. Segja má með fullum þunga, að fyrirbærin Glasnost og Per estrojka hafí ger- breytt andliti Sov- étríkjanna þó svo að með all miklum þunga megi einnig segja að þau eigi verulega undir högg að sækja vegna bágs ástands í Sov- étríkjunum ogtog- streitu valdhafa um hvert stefna skuli. En eitt af andlitum hins aukna frelsis og opnunar sýndi sig fyrir skömmu, er hið alræmda fyrir- bæri KGB, sjálf leynilögreglan og njósnabatteríið, gekkst fyrir feg- urðarsamkeppni. Kjörin var „ungfrú Öryggi 1990“ og voru keppendur úr röðum kvenna sem starfa innan vé- banda KGB. Ungfrú Öryggi 1990 var kjörin 23 Ungfrú Öryggi þeirra hjá KGB, Katya, á gangi í Moskvu. ára gömul snót að nafni Ekaterina Matorova, eða Katya eins og hún kýs að kalla sig. Hún er öryggis- vörður við Lubyanka. Þetta var „annars konar“ fegurðarsam- keppni. Engir kvöldkjólar. Engin baðföt. Þvert á móti hin stífustu hæfnispróf. Keppendur voru til að mynda prófaðir í hæfni í hraðakstri uin götur Moskvu, áflogum við vopnaða karlmenn, skotfimi og hversu skjótar þær væru að draga á sig skotheld vesti. Auk þess í minni háttar málum eins og mat- seld og dansi. Katya segir þetta eðlilegt, öryggisverðir þurfí að hafa meiri áhyggjur af því að glæpa- menn skjóti sig á færi heldur en að þeir dáist að fögrum kvenmanns- línum. Ungfrú Öryggi segir einnig að titillinn hafi verið sér mikill heið- ur og hún hafí í sigurvímunni boðið öllum vinum sínum heim til koníaks- drykkju. Þessari frásögn fylgir að trúlega séu öryggisverðir á borð við Katyu vel launaðir, því hún eigi 3 her- bergja íbúð í Moskvu og slíkt þyki almúganum jaðra við höll. COSPER 'C PIB IIU4 COSPCR Manninum þínum batnar strax og ég hef aurað saman í pels handa konunni minni. HUGSUM HIUATTRÆIUT NOTUM EIUDURUMHIAR PAPPÍRSVÖRUR í SÉRFLOKKI # UÓSRITUNARPAPPÍR m TÖLVUPAPPÍR m PRENTPAPPÍR UMSLÖG m BRÉFSEFNI ISKAUPHF. FLÓKAGÖTU 65 SÍMI 62 79 50 FAX 62 79 70

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.