Morgunblaðið - 11.01.1991, Síða 36
36
MORGU'NBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÖAR 1991
Pennavinir
Sænsk 31 árs kona með áhuga
á blómum og forngripum:
Yvonne Svensson,
Jungmansgatan 447,
62152 Visby,
Gotland,
Sweden.
Fimmtán ára þýskur strákur með
tnörg áhugamál:
Felix Bubenheimer,
In den Etzmatten 7,
7813 Staufen,
Germany.
Japönsk stúlka, 21 árs, með
áhuga á ferðalögum og íþróttum:
Mika Iwadate,
6-20-4 chome,
Iehinoe Edogawa-ku,
Tokyo 132,
Japan.
Austurrískur póstkortasafnari
sem langar að eignast íslensk kort:
Rudolf Húber,
A-4801 Traunkirchen-1,
Austria.
Þýsk 28 ára kona með áhuga á
hestum, dansi, ljósmyndun og
íþróttum:
Ines Ambos,
Talweg 44,
6604 Saarbriicken-Fechingen,
Germany.
Frá Þýskalandi skrifa hjón, 28
og 29 ára, sem eiga þtjú börn eins,
þriggja og fjögurra ár. Langar að
komast í samband við íslenska fjöl-
skyldu:
Siegfried Schneider,
Adallert-Stiffer Strasse 10,
5450 Nelwied 12,
Germany.
Tvær austur-þýskar stúlkur,
Angelika og Ulrike, sem eru 20 og
22 ára læknanemar, hafa mikinn
áhuga fyrir öllu íslensku. Skrifa
má báðum hjá:
Angelika Mager,
Schenkendorfstrasse 11B,
Leipzig,
7030 Germany.
Frá Sovétríkjunum skrifar 45 ára
kona, sögukennari, sem vill eignast
pennavini á svipuðu reki. Hún safn-
ar póstkortum, frímerkjum og
límmiðum:
Natasha Fedjaeva,
164170 Mirnyi,
Archangelsk Region,
Sovetskaja 4-23,
U.S.S.R.
Ensk stúlka, 21 árs, sem hefur
áhuga á því að læra íslensku:
Nadine Melissa Hamil,
25 Daley Road,
Litherland,
Sefton,
Liverpool L21 7Qg,
England.
Hirðulausa kynslóðin
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Skólabylgjan („Pump Up the
Volume“). Sýnd í Regnbogan-
um. Leikstjóri og handritshöf-
undur: Alan Moyle. Aðalhlut-
verk: Christian Slater, Scott
Paulin, Ellen Green.
í unglingamyndinni Skóla-
bylgjanJeikur hinn ungi og efni-
legi Christian Slater menntskæl-
ing sem tekur að útvarpa tals-
vert byltingarkenndu efni til
jafnaldra sinna frá nk. sjóræn-
ingjastöð heima í kjallaranum
hjá sér. Hann er nýr í hverfinu,
hlédrægur mjög og uppburðar-
lítill í skólanum þar sem hann
þekkir engan og talar ekki við
neinn en þegar hann kveikir á
hljóðnemanum á kvöldin um-
turnast hann í mælskuhrólf og
ræðir af kappi ýmis áhyggjuefni
unglingsins, kvíða og örvænt-
ingu, skólann, sjálfsmorð, sam-
kynhneigð og hvaðeina annað
sem unglingurinn getur haft
áhyggjur af.
Hann. æsir mjög lýðinn sem
tekur að hlusta á þennan ungl-
ingamessías í andakt og hann
verður málpípa hins kúgaða og
örvæntingarfulla fjölda í
menntaskóla staðarins en heldur
því alltaf leyndu hver hann er.
Slater er mjög öflugur í hlut-
verki hins uppreisnargjarna
predikara og myndin er einlæg
og metnaðarfull skoðun á
áhyggjuefnum kynslóðar sem
hefur allt til alls en fínnur fyrir
ákveðnu tilgangsleysi. Skóla-
bylgjan er mynd sem fjallar um
böm ’68-kynslóðarinnar, böm
fijálslyndu foreldranna og hipp-
anna. Hún er um „hirðulausu
kynslóðina“, eins og útvarpsp-
redikarinn ungi kallar hana, sem
engan málstað hefur að veija eða
hjartans baráttumál. Foreldrarir
átu öll skemmtilegu baráttumál-
in; ’68-kynslóðin tæmdi gersam-
lega umræðuna um kynlíf, pólitík
og dóp svo nú er ekkert eftir
lengur. Það er búið að gera allt
áður, kvartar unglingurinn í út-
varpið.
Myndin er ágætlega skrifuð
af leikstjóranum Alan Moyle,
sem nær sér best upp í útvarps-
sendingum stráksins, en það sem
helst háir henni er að unglinga-
bölið sem hún skapar er lítið
undirbyggt, ástæðurnar fyrir
vandamálunum, sem hún gefur
sér að hijái unglingana, koma
ekki mjög ljóslega fram svo heila
málið lítur ekki mjög sannfær-
andi út. Myndin talar eflaust
máli margra unglinga af „hirðu-
lausu kynslóðinni“ og hún tekur
á mörgu af því sem unglingar
eiga við að glíma en gefur sér
fullfrekt sem sjálfsagðan hlut að
þeim líði almennt mjög illa og
þeir kveljist í tilvistarkreppu og
tilgangsleysi.
En hér er engu að síður á
ferðinni mun vitrænni unglinga-
mynd en gengur og gerist, mynd
sem virðir tilfinningar og hugs-
anir unglingsins og fer með hann
eins og hann sé af holdi og blóði
ólíkt svo mörgum ódýrum og
slökum unglingamyndum sem
höfða eiginlega ekki til eins eða
neins.
RUNAR ÞOR
skemmtir oestum
RAIIÐA
UÓNSINS
f kvöld og annað kvöld.
Snyrtilegur klæðnuóur.
ÞÓRSCAFÉ
HLJÓMSVEITIN
SMELLIR
RAGRIAR BJARNASON
HÚSID OPNAR KL. 22:00
BORGARUNNENDUR!
Alþjóðlegt kveðjuhóf og ball í kvöld
„ÍSLANDSVINIR“
stjórna lokahófinu
og leika fyrir dansi
dansamir
íÁrtúni íkvöld
frá kl. 21.30-03.00.
. Hljómsveit
Jóns Sigurðssonar
skemmtir ásamt söngkonunni
Hjördísi Geirs.
Höfum ávallt sali fyrir minni og stærri
árshátíðir og hverskonar mannfagnað.
Dansstuðið er í Ártúni
VEITINGAHÚS
Vagnhöfða 11, Reykjavík, sími 685090.
&
DA\SHISID
HLJÓMSVEIT
FIIUIUS EYDAL
OG
HELEIUA
EYJÓLFSDÓTTIR
HÚSIÐ OPNAR KL. 22:00