Morgunblaðið - 13.01.1991, Page 8

Morgunblaðið - 13.01.1991, Page 8
ge i eei a^tMMj^éMjaé^PAQtflMOÍ^yy^ÍVIHIWAaigMa^uoHOM 1T\ \ /^ersunnudagur 13.janúar, fyrsti sunnudag- -L'-ÉvVJT ur eftir þrettánda. 13. dagur ársins 1991. Geisladagur. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 5.04 og síðdegisflóð kl. 17.19. Fjarakl. 11.23 ogkl. 23. 27. Sólarupprás í Rvík kl. 11.00 og sólarlagkl. 16.13. Myrkur kl. 17.22.. Sólin er í hádegisstað í Rvíkkl. 13.36 ogtunglið í suðri kl. 11.37. (Almanak Háskóla íslands.) Þeim sem vinnur verða launin ekki reiknuð af náð, held- ur eftir verðleika. (Róm. 4,4.) ARNAÐ HEILLA fT/\ára afmæli. Næstkom- f V/ andi þriðjudag, 15. þ.m., er sjötugur Egill Guð- jónsson vörubílstjóri, Rauð- holti 11, Selfossi. Hann og börn hans ætla að taka á móti gestum í Mjölnishúsinu þar í bænum kl. 20-22 á af- mælisdaginn. FRÉTTIR/ MANNAMÓT í DAG er geisladagur. „Geisladagur", 13. janúar, réttri viku eftir þrettánda. — Nafnið vísar til sögunnar um Betlehemstjörnuna, og er sennilegt, að það hafí upphaf- lega átt við þrettándann sjálf- an, sem á latínu var kallaður „festum luminarium“, segir um geisladag í Stjömu- fræði/Rímfræði. HOLLUSTUVERND ríkis- ins. í Lögbirtingablaðinu tilk. heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytið að það hafi framlengt setningu Friðriks Georgssonar, gerlafræðings til að gegna störfum forstöðu- manns rannsóknarstofu Holl- ustuvemdar ríkisins, til næstu áramóta, í leyfi Guðlaugs Hannessonar, sem á sama tíma gegnir starfi fræðslufull- trúa stofnunarinnar. VESTURGATA 7. Þjónustu- miðstöð aldraðra. Á mánu- dagsmorgun hefst leikfimi á ný eftir jólafrí. Verður hún mánudaga og fimmtudaga kl. 11. Þá er danskennsla kl. 13.30, frímerkjaklúbbur kl. 14.30 og kl. 15. skákklúbbur. Kaffistofan er opin kl. 14.30-16. BIÐSKYLDA. í síðustu viku tók gildi, samkv. ákvörðun borgaryfirvalda, biðskylda á mörgum götum í eldri hverf- um Reykjavíkur svo sem: Laufásvegi við Skálholtsstíg, Miðstræti við Bókhlöðustíg, Hellusund við Bergstaða- stræti, Bragagötu við Laufás- veg, Fjólugötu við Bragagötu, Hallveigarstíg við Bergstaða- stræti. Þessar götur við Garðastræti: Öldugötu, Bám- götu, Ránargötu og Hávalla- götu. Á þessum götum við Framnesveg: Holtsgötu, Öldugötu, Brekkustíg, Ránar- götu og Sólvallagötu. Þá er komin til framkvæmda bið- skylda á Skipasund og Efsta- sund við Drekavog og á þess- um götum við Hraunás: Deildarás, Eyktarás, Fjarðar- ás, Heiðarás, Grandarás og Dísarás. SAFNAÐARFÉL. Áskirkju. Skemmtifundur verður hald- inn mánudagskvöldið í Holi- day Inn-hótelinu. Er það sam- eiginlegur skemmtifundur með kvenfélögunum í Lang- holts- og Laugarnessóknum. Hann hefst kl. 20.30. Þorra- fagnaður safnaðarfélagsins verður 25. þ.m., á bóndadag- inn, í safnaðarheimili kirkj- unnar. Þátttöku þarf að tilk. fyrir 16. þ.m. til Guðrúnar í s. 37788. - SKIPSNAFN. í tilk. frá skrifstofu siglingamálastjóra í Lögbirtingi segir að hlutafé- lagið Sæfaxi í Vestmannaeyj- um, sem á skipið Sæfaxa, eigi einkarétt á því nafnai. KVENFÉL. Kópavogs efnir til spilakvölds á þriðjudags- KROSSGATAN ■ 9 JTj 12 13 22 • 23 U —■—ZjBlZ. LÁRÉTT: - 1 kviðvöðva, 5 handsamar, 8 tunglum, 9 ilmur, 11 nurla, 14 þrif, 15 kerru, 16 snögum, 17 sting- ur, 19 spilið, 21 fyrir stuttu, 22 drap, 25 rödd, 26 veinar, 27 sefi. LÓÐRÉTT: - 2 elska, 3 tunna, 4 heppnast, 5 guðs- þakkarverk, 6 hljóma, 7 beita, 9 jólafasta, 10 koma að not- um, 12 baðst um, 13 vesaling- ur, 18 smáalda, 20 komast, 21 hvílt, 23 kusk, 24 rykkorn. LAUSN SIÐUSTU KROSSGATU: LÁRÉTT: - 1 hygla, 5 mátar, 8 endar, 9 barms, 11 nag- ar, 14 agg, 15 lánið, 16 apann, 17 inn, 19 illa, 21 angi, 22 andliti, 25 nýr, 26 Oli, 27 Rán. LÓÐRÉTT: - 2 yla, 3 lem, 4 ansaði, 5 margan, 6 ára, 7 aka, 9 bellinn, 10 ranglar, 12 grannir, 13 runninn, 18 núll, 20 an, 21 at, 23 dó, 24 II. Rafmagii að mestu komið á aftur á Norðurlandi: Nærri 500 staurar í raflín- um brotnuðu í óveðrinu Menn ársins kvöldið í félagsheimili bæjar- ins kl. 20.30. Spilakvöldið er öllum opið. KENNARAHÁSKÓLI ísT lands. í tilk. frá menntamála- ráðuneytinu í Lögbirtingi seg- ir að dr. Ólafur Proppé hafi í sumar er leið verið skipaður dósent í uppeldisgreinum við Kennaraháskóla Islands. FÉL. austfiskra kvenna heldur þorrablót í Templara- höllinni 23. þ.m. og hefst kl. 19. Sigrún í s. 34789 tekur við þátttökutilk. félags- kvenna. GRENSÁSSÓKN. Kvenfél. Grensássóknar heldur spila- fund, félagsvist, í safnaðar- heimili kirkjunnar mánudags- kvöldið kl. 20.30. Kaffiveit- ingar. LEIKLIST. Hinn 20. þ.m. rennur út umsóknarfrestur sem menntamálaráðuneytið setti til að sækja um styrk til leiklistarstarfsemi atvinnu- leikhópa, sem ekki hafa sér- greinda fjárveitingu. Tilk. er um þetta í Lögbirtingablað- inu. FÉL. eldri borgara. í dag er opið hús í Goðheimum við Sigtún kl. 14. Fíjáls spila- mennska og tafl. Dansað kl. 20. Næstkomandi miðviku- dag fer fram í Risinu kynning á heilsurúmum kl. 15.30. KÓPAVOGUR. Félagsstarf aldraðra. Starfið á nýju ári hefst á mánudag. Biblíulestur verður í matsalnum í Fann- borg 1 kl. 14. Leikfimi í fé- lagsheimilinu kl. 11.20 og söngæfing kl. 16.30. Innritun á margvísleg námskeið á veg- um starfsins kl. 10-12 s. 43400. HÁSKÓLI Akureyrar aug- lýsir í Lögbirtingi lausar stöð- ur forstöðumanns heilbrigð- isdeildar og forstöðumanns við rekstrardeild. Úr hópi umsækjenda, en umsóknar- frestur er settur til 15. febrú- ar nk., er kosinn forstöðu- maður hvorrar deildar. Síðan staðfestir háskólanefnd til- nefningu forstöðumanna deildanna. Þeir verða ráðnir til þriggja ára, segir í tilk. BREIÐFIRÐINGAFEL. heldur spilafund í dag kl. 14.30 í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. JC-SUÐURNESJUM heldur fund á mánudagskvöldið kl. 20.30 í Flughótelinu, Kefla- vík. Gestur fundarins verður Ólafur Ragnar Grímsson fj ár málaráðherra. KVENFEL. Laugarnes- sóknar ætlar ásamt safnað- arfélögunum í Ásprestakalli og Langholtssókn að halda sameiginlegan skemmti- og kynningarfund fyrir félags- menn sína og maka þeirra annað kvöld á Hótel Holiday Inn kl. 20.30. KVENFELOGIN í Breið- holti ætla að halda sameigin- legan skemmtifund, hatta- fund, nk. þriðjudagskvöld, 15. þ.m., í Hreyfilshúsinu kl. 20.30. SKIPIN REYKJAVIKURHÖFNi I dag eru væntanlegir inn togararnir Jón Baldvinsson og Viðey. Á morgun er Kyndill væntanlegur af ströndinni. HAFNARFJARÐAR- HÖFN: í dag fer Hofsjök- ull á ströndina. KIRKJA ARBÆJARKIRKJA: Æsku- lýðsfélagsfundur í kvöld kl. 20v Félagsstarf altjraðra: Fótsnyrting á mánudögum, tímapantanir hjá Halldóru Steinsdóttur. Leikfimi þriðju- daga kl. 14. Hárgreiðsla alla þriðjudaga. Opið hús í Safn- aðarheimilinu miðvikudaga kl. 13.30. Fyrirbænastund í Árbæjarkirkju kl. 16.30. Opið hús fyrir mæður og feður ungra barna í safnaðarheimili Árbæjarkirkju þriðjudag kl. 10-12. FELLA- og Hólakirkja: Fundur í Æskulýðsfélaginu mánudagskvöld kl. 20.30. Fyrirbænir í kirkjunni þriðju- dag kl. 14. NESKIRKJA: Æskulýðs- starf unglinga mánudags- kvöld kl. 20. Þriðjudag: Mömmumorgun. Opið hús fyrir mæður og börn þeirra kl. 10-12. Æskulýðsstarf 12 ára og yngri kl. 17. SELTJARNARNES- KIRKJA: Æskulýðsfundur í kvöld kl. 20.30. Opið hús fyr- ir 10-12 ára mánudag kl. 17. Opið hús fyrir foreldra ungra barna þriðjudag kl. 15-17. SELJAKIRKJA: Mánudag: Fundur KFUK, yngri deild kl. 17.30, eldri deild kl. 18. Æskulýðsfundur kl. 20. LANGHOLTSSÓKN: Kven- og bræðrafélag Langholts- sóknar ásamt Safnaðarfélagi Ásprestakalls og Kvenfélags Laugarnessóknar halda sain- eiginlegan fund fyrir félags- menn og gesti þeirra í Holiday Inn mánudagskvöld kl. 20.30. MINNINGARKORT MINNINGARKORT Flug- björgunarsveitarinnar fást hjá eftirtöldum: Flugmála- stjórn s. 69100, Bókabúðinni Borg s. 15597, Bókabúðinni Grímu s. 656020, Amatör- versl. s. 12630, Bókabúðinni Ásfell s. 666620, og hjá þeim Ástu s. 32068, Maríu s. 82056, Sigurði s. 34527, Ste- fáni s. 37392 og Magnúsi s. 37407. ORÐABOKIN Neytandi - notandi Svo virðist sem ýmsir geri sér ekki lengur grein fyrir þeim mun, sem hefur ver- ið og er raunar enn hjá mörgum á notkun þessara tveggja nafnorða. Þannig talaði alþm. um orku/ieyí- endur í umræðum um ál- verið á liðnu hausti. Sama gerðist einnig á dögunum, þegar heldur tók að rofa til í rafmagnsmálum norð- an lands eftir óveðrið. Þá mátti bæði heyra og sjá talað um, að rafmagn færi að komast á til neyt- anda. í þessum dæmum er sjálfsagt að tala Um notanda, en ekki neyt- enda. Margir álíta, að þessi þróun hafi gerzt fyr- ir ensk áhrif. Fróðir menn segja, að no. consumer á ensku megi bæði hafa um neytanda og notanda. Al- mennt er talað um not- anda síma, rafmagns eða útvarps eða þá símnot- anda og útvarpsnotanda, en hins vegar um neyt- anda matvæla, t.d. ávaxta, kjöts eða smjörs. Þá er talað um not þau, sem hafa má af síma og rafmagni og eins um notkun síma og rafmagns, en aldrei um neyzlu síma eða rafmagns. Ekki hef ég heldur enn heyrt talað um sfmneytanda. Þá á no. neyzla við um kjöt og smjör og aðrar matvörur, enda neytum við þeirra, látum þær í okkur. Þess- um merkingarmun ber að sjálfsögðu að halda, á sama hátt og gerður er munur á so. að nota í máli okkar. - JAJ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.