Morgunblaðið - 13.01.1991, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991
19
Grænhöfðaeyjar:
Missa marx-
istar völdin?
Praia, Grænhöfðaeyjum. Reuter.
KJÓSENDUR á Grænhöfðaeyj-
um ganga að kjörborði á sunnu-
dag og kjósa til þings en kosning-
arnar koma til með að marka
upphafið að endalokum 15 ára
alræðis marxista á eyjunum.
Að sögn erlendra stjórnarerind-
reka er talið að nýstofnaður flokkur
stjórnarandstæðinga, Lýðræðis-
hreyfingin (MPD), hafi góða mögu-
leika á að fara með sigur af hólmi
í þingkosningunum og ennfremur í
forsetakosningunum sem ráðgerðar
eru 17. febrúar.
Frá því Grænhöfðaeyjar öðluðust
sjálfstæði frá Portúgal 1975 hefur
flokkur marxista farið með völd á
eyjunum. í öndverðu boðaði flokk-
urinn hreinan marxisma én hefur
smám saman fjarlægst upphaflega
stefnu sína og er núverandi stefna
flokksins meira í ætt við jafnaðar-
mennsku.
Erlendir stjórnarerindrekar full-
yrða að mikill stuðningur sé við
breytingar, einkum meðal yngra
fólks og muni MPD njóta þess í
kosningunum að helmingur hinna
350.000 eyjaskeggja eru undir 30
ára aldri.
Flugfarþeg-
um bættar
yfirbókanir
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
Samgönguráðherrar Evrópu-
bandalagsins (EB) samþykktu ný-
lega reglur um bótaskyldu flugfé-
laga gagnvart farþegum sem hafa
bókaða miða en komast ekki með
vegna yfirbókana. Farþeganum
verður i sjálfsvald sett hvort hann
fær miðann endurgreiddan eða
tekur næstu vél eftir eigin hent-
ugleikum.
Samkvæmtreglunum eiga farþeg-
ar sem skildir eru eftir vegna þess
að flugfélagið hefur yfirbókað í til-
tekna ferð rétt á að velja á milli
þess hvort þeir fá miðann endur-
greiddan án áfalla á staðnum, taka
næstu vél sem býðst á áfangastaðinn
eða fara ferðina við næsta hentug-
leika. Auk þessa er flugfélaginu skylt
að greiða farþeganum bætur án til-
lits til framhaldsins. Vegna flugs sem
er innan við 3.500 kílómetrar ber
að greiða farþeganum 11.000 krónur
en vegna ferða sem eru lengri en
þetta 22.000 krónur auk þess sem
flugfélaginu er gert að greiða síma-
kostnað, mat og gistingu ef þörf
krefur. Geti flugfélagið boðið ferð
innan tveggja stunda á skemmri leið-
um og fjögurra á lengri leiðum lækka
bætur til farþega um helming.
tJTSALA
SR 8900 FUMAI ferSatœki (m.geislaspilara)
19.440,-
CD 4904 FUNAI geislaspilari 13.515,-
Öll verð miðast
við staðgreiðslu
HEINIIUSTÆKJADEILÚ FALKANS
Suðurlandsbraut 8 - sími 84670
& i éfí- cz & 4.
HOOVER ryksuga
10.730r
<3 d /
Alpha I 6RUNDIG rakvél
3.100r
MO 6T FUNAI örbylgjuofn 19.990r
RE 5515 m QQá%
EMERSON klukkuútvarp I. jfjrU,
VCR 7700FUNA! video 29.999,-
U 5096
Lokaé mánudag!
Útsalan hefst þridjudag
(Nýtt greiðslukortatimabil)
■ V 3 Kringlunni 8-12
** V/ W SJ • sími 689150