Morgunblaðið - 13.01.1991, Side 15

Morgunblaðið - 13.01.1991, Side 15
MORGUNBIAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÁNÚAR 1091 15 Hannes Jónsson styrkt bókina að hún væri hlutlæg- ari úttekt á Evrópusamstarfinu, kostum þess óg göllum. Mér er hins vegar ljóst eftir að hafa nú ritað umsögn um þijár bækur eftir Hannes Jónsson, að hann sest við skriftir í því skyni að flytja ákveð- inn boðskap, hikar ekki við að nota sterka liti eða stóra drætti og líta fram hjá ýmsu, sem ekki fellur beint að niðurstöðu hans eða forskrift. Niðurstaða höfundar er þessi: „Mér virðist að mikið sé í húfi, að okkur íslendingum takist að taka fram fyrir hendur á þeim mönnum, sem fram að þessu hafa farið með mál okkar í Evrópuviðræðunum. Þeim þarf að beina frá aðild okkar að EES og að raunverulegri fríverslun í víðara, jafnvel hnatt- rænu samhengi, þar sem ríki Ameríku, Asíu, Austur-Evrópu og næstu nágrannar okkar skipuðu eðlilegan sess.“' Að minni hyggju þarf virk þátt- taka í evrópsku samstarfi ekki að stangast á við öfluga íslenska markaðsstarfsemi annars staðar. Sagan sýnir að það er frekar und- ir okkur sjálfum komið en væntan- legum kaupendum, hvort okkur tekst að selja framleiðslu okkar á nýjum mörkuðum. Greiður að- gangur að evrópskum markaði ætti að auðvelda okkur að beina kröftunum að rharkaðsöflun ann- ars staðar. Viðvörun Hannesar Jónssonar við vinnubrögðum ríkisstjórnarinn- ar kemur fram eftir að gengið hefur verið svo langt á samninga- brautinni um EES og ritað undir svo bindandi heitstrengingar um niðurstöður samninganna, að fyrir kúvendingu þarf að færa ákaflega sterk rök. Almenn andúð á Evrópu- bandalaginu eða evrópska samrun- anum er ekki nægilega sannfær- andi röksemd fyrir því að íslend- ingar segi skilið við Evrópuþjóðirn- ar á þessari sameiginlegu braut. í Kaupmannahöfn F/EST í BLAOASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGARÁOHÚSTORGI íþróttafélög athugið - nýtt á I slandi Fylgist með leikmönnum ykkar! Ungum sem gömlum. Þjálfið með sérfræðingsaðstoð og fáið niðurstöðurnar reglulega sendar. Tryggur árangur og mjög gott aðhald á undirbúningstímabilinu. Áætlunin byggist á réttu samspili æfinga og hvíldar. Eróbikk og tækjaþjálfun, góðar teygjuæfingar og slökun, einbeitingarþjálf- un og sálrænn undirbúningur. Sérhæfðar æfingar fyrir sérstakar íþróttagreinar sem miða að aukningu styrks, þreks, úthalds og snerpu. „Air machine“-tækin eru sérs- taklega hönnuð með hliðsjón af þörfum íþróttafólks. Hafið samband við Þorstein Geirsson, íþróttafræðing og knattspyrnu- mann, í síma 689868. • Fótbolti • handbolti • blak • körfubolti • skíði • badminton vaxtarrækt • sund • frjálsar. Allir velkomnir ýfciílu) S STÚDÍÓ JÓNÍNU & ÁGÚSTU Skeifan 7, 108 Reykjavík, S. 68 98 68 ÞAR SEM LÍKAMSRÆKT ER LÍFSSTÍLL Yfirumsjón með tækjasal hefur Þorsteinn Geirsson, íþróttafræðingur. Hann sér um ráðgjöf til al- mennings, byrjenda og svo „old boys“-karla- tímana á kvöldin. Þorsteinn hefur góða menntun frá South Alabama State University og hans sér- svið er íþróttaþjálfun og end- urhæfing. Hann býryfir góðri þekkingu á flestum þáttum líkams- og heilsuræktar. Sem sagt ekkert fúsk í stúdíóinu. Hvaó var þaó nú aftur sem menn vilja? Tilboó, i fælra Nýr tækjasalur hefur verið opnaður. Nýtt, „air machine" þrektæki sem slá í gegn um allan heim vegna gæða, fjölbreytni og árangurs. Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur segir um „air machine“-þrektækin: „AIR MACHINE“-lyftingatækin virka þannig, að álagið er breytilegt, þ.e. fer eftir aflþörf hreyfingarinnar, og tryggir þannig mestu spennu á vöðvann í gegnum alla hreyfivídd hans, bæði þegar hann dregst saman og lengist. „AIR MACHINE“-lyftingatækiríeru góð fyrir alla, þó sérstaklega fyrir íþróttafólk og þá, sem þurfa sérhæfða þjálfun, s.s. kraftþjálfun þar sem hraði og styrkurfara saman. „AIR MACHINE“-lyftingatækin eru frábær fyrir þá, sem þjálfa samkvæmt pýr- amída-áætlun vegna þess að handhægur mælingaútbúnaður er í hverju tæki og þannig hægt að fylgjast grannt með álaginu. „old boys“-leikfimi á kvöldin hjá Þorsteini. Við erum stolt af því að bjóða uppá stundaskrá fjölbreyttari og stærri en við höfum nokkursstaðar rekist á íheiminum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.