Morgunblaðið - 13.01.1991, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991
ATVINNUA UGL YSINGAR
IRIKISSPITALAK
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Geðdeild
Landspítalans
Hjúkrunarfræðingar - aðstoðardeildar-
stjóri óskast á barna- og unglingageðdeild
Landspítalans. Um er að ræða fullt starf,
sem felur í sér hjúkrun barna með geðrænar
truflanir. Vaktavinna. Einnig óskast fóstra í
fullt starf. Um er ræða umönnun barna með
geðrænar truflanir. Vaktavinna.
Nánari upplýsingar veitir Anna Ásmunds-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
602500.
Iðjuþjálfun
Eftirtaldar stöður eru lausar við Iðjuþjálfun
geðdeildar Landspi'talans:
Staða deildariðjuþjálfa og stöður aðstoðar-
manna iðjuþjálfa (í keramik, saumastofu,
smíðum, leðurvinnu o.fl. Við óskum eftir
starfsfólki, sem er jákvætt, sjálfstætt, áreið-
anlegt og á auðvelt með samskipti.
Nánari upplýsingar gefur yfiriðjuþjálfi í síma
601795.
RIKISSPITALAR -
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Kópavogshæli
Lausar eru tvær stöður deildarþroskaþjálfa
á vinnustofum: 1. 100% starf í hæfingu.
Stárfið felst aðallega í markvissri þjálfun og
skipulagningu.
2. 100% starf í vinnusala. Um er að ræða
stjórnunar- og skipulagsstarf ásamt starfs-
þjálfun.
Allar nánari upplýsingar veitir yfirþroska-
þjálfi á vinnustofum Kópavogshælis í síma
602735 eða yfirþroskaþjálfi Kópavogshælis
í síma 602700.
íþróttafræðingur -
íþróttakennari
íþróttafræðingur eða íþróttakennari óskast
til að sjá uæm sundþjálfun og íþróttir þroska-
heftra á Kópavogshæli. Starfshlutfall sam-
komulag.
Aðstoðarmaður
Ennfremur óskast aðstoðarmaður til starfa
við sundlaug Kópavogshælis. Kjörið fyrir
konur og karla sem eru að fara út á vinnu-
markaðinn á ný. Starfshlutfall samkomulag.
Upplýsingar gefur Guðný Jónsdóttir, yfir-
sjúkraþjálfari, í síma 602726.
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóri óskast á 150 lesta togskip. Góð
laun í boði fyrir vanan mann.
Tilboðum óskast skilað inn á auglýsingadeild
Mbl. fyrir 16. janúar merktum:
„Vélstjóri - 12053“.
Skipstjóri - bátur
Vanur skipstjóri óskar eftir skipstjóraplássi
á bát frá Suðvesturlandi.
Allt kemur til greina.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „B - 6731 “.
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Hjúkrunarfræðingar
athugið!
í byrjun árs eru lausar stöður á nokkrum
deildum á lyflækningasviði:
Á taugadeild 32-A verður farið af stað með
fræðslunámskeið um miðjan janúar. Farið
verður yfir hjúkrun og meðferð sjúklinga með
ýmsa taugasjúkdóma, sem og önnur atriði,
sem eiga að bæta þá meðferð sem veitt er.
Vinnuaðstaða er mjög góð og deildin vel
þúin hjálpartækjum.
Á lyflækningadeild 11-A er laus staða hjúkr-
unarfræðings. Deildin er með 19 rúm og
aðaláherslan er á meltingar- og innkirtlasjúk-
dóma, smit- og lungnasjúkdóma. Næturvakt-
ir eingöngu koma vel til greina.
Á lyflækningadeild 11-B vantar hjúkrunar-
fræðing í 100% starf frá 6. janúar 1991.
Deildin er nú rekin sem 5 daga deild fyrir
lyflæknissjúklinga.
Á lyflækningadeild 14-G er 22 rúma deild,
með aðaláherslu á gigtar- og nýrnasjúk-
dóma. Ýmis konar vaktafyrirkomulag kemur
til greina, t.d. næturvaktir eingöngu.
Gjörið svo vel að koma og skoða deildirnar
og leitið upplýsinga hjá deildarstjórum við-
komandi deilda og hjá Hrund Sch. Thor-
steinsson, hjúkrunarframkvæmdastjóra, í
símum 601290 og 601300.
Sjúkraliðar athugið!
Nokkrar stöður sjúkraliða á lyflækningasviði
losna eða eru lausar í byrjun ársins. Gjörið
svo vel að koma og leita upplýsinga og.skoða
deildirnar. Um margs konar vaktafyrirkomu-
lag er að ræða.
Upplýsingar gefur Hrund Sch. Thorsteins-
son, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í símum
601290 og 601300.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðinga vantar á allar vaktir á
krabbameinslækningadeild 11-E, Landspít-
ala. Einnig vantar sjúkraliða á sömu deild
(einkum næturvaktir).
Deildin þjónar bæði einstaklingum með
krabbamein og einstaklingum með illkynja
blóðsjúkdóma. Unnið er 4ðu hverja helgi og
einstaklingshæfð aðlögun er í boði. Um er
að ræða fjölbreytt og gefandi starf. Sérverk-
efni fyrir hjúkrunarfræðinga, sem unnið er í
samráði við fleiri meðferðaraðila er í boði.
Upplýsingar gefa Kristín Sóphusdóttir, hjúkr-
unardeildarstjóri, í síma 601225, og Birna
G. Flygenring, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í
síma 601290 eða 601300.
Skrifstofustarf
á auglýsingastofu
Traust auglýsingastofa, með góða starfstað-
stöðu, óskar eftir startfskrafti til að sjá um
símavörslu, umsjón auglýsingabirtinga og
fleira þess háttar. Viðkomandi verður að
hafa tölvukunnáttu og reynslu í ritvinnslu.
Við leitum að áhugasömum starfskrafti, sem
hefur reynslu í almennum skrifstofustörfum
og getur starfað sjálfstætt. Æskilegt er að
viðkomandi reyki ekki og geti hafið störf eigi
síðar en 1. mars.
Hér er um framtíðarstarf að ræða.
Skrifleg umsókn, með upplýsingum um ald-
ur, menntun og fyrri störf, sendist til auglýs-
ingadeildar Mbl. fyrir 18. janúar merkt: „Aug-
lýsingastofa - 7802".
Prentari
Óskum eftir að ráða prentara eða mann van-
an prentun. Mötuneyti á staðnum.
Upplýsingar í síma 671900 milli kl. 13.00 og
15.00.
PDaisdd®s3
KRÓKHÁLSI 6
Starf
félagsmálastjóra
Laust er til umsóknar starf félagsmálastjóra
á ísafirði. Um er að ræða fullt starf sem er
laust nú þegar eða eftir samkomulagi. Undir
félagsmálastjóra heyra m.a. dagvistarmál,
öldrunarmál, fjölskyldumálefni, fjárhagsað-
stoð o.fl. Skilyrði er að umsækjandi sé fé-
lágsráðgjafi eða hafi aðra menntun og starfs-
reynslu á sviði félags- eða sálarfræða sem
nýst gætu í starfi sem þessu. Félagsmála-
stjóri hefur aðsetur í nýju Stjórnsýsluhúsi
kaupstaðarins og gert er ráð fyrir að hann
muni ráða sér til aðstoðar starfsmann í 50%
starf.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1991.
Nánari upplýsingar gefur félagsmálastjóri
eða undirritaður í síma 94-3722.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUREYRI
Fóstra
og starfsmaður
óskast á Stekk, barnaheimili Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri.
Barnaheimilið er reyklaus vinnustaður og því
kjörinn fyrir þá sem ekki. reykja. Vinnutími
er frá kl. 7.10-19.00.
Umsóknarfrestur er til 26. janúar 1991.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
hjúkrunarstjórnar F.S.Á. og hjá forstöðu-
manni Stekkjar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður, Sigurjóna
Jóhannsdóttir, á staðnum, ekki í síma, á
milli kl. 13.00 og 14.00 virka daga.
Hjúkrunarfræðingar
Óskum að ráða hjúkrunarfræðinga á Barna-
deild nú þegar eða eftir samkomulagi.
Boðið er upp á einstaklingshæfða þjálfun þar
til viðkomandi hefur náð fullri færni í starfi.
Á deildinni eru 10 rúm fyrir börn á aldrinum
4-14 ára. Innan hennar er gjörgæsla fyrir-
bura og mikið veikra ungbarna. Hjúkrun á
deildinni er í sífelldri þróun og unnið er sam-
kvæmt hjúkrunarferlinu.
Nánari upplýsingar gefa Valgerður Valgarðs-
dóttir, deildarstjóri, og Sonja Sveinsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdarstjóri, í síma 22100 á
milli kl. 13.00 og 14.00 virka daga.
Óskum að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa
á lyflækningadeild II.
Deildin er 5 daga deild, opin frá mánudegi
til föstudags. Skjólstæðingar hennar eru ein-
staklingar, sem þurfa skamma innlögn,
vegna rannsókna eða skammtíma meðferð-
ar. Nú vantar okkur hjúkrunarfræðing í 60%
starf, en alveg sérstaklega á 2 næturvaktir
íviku, aðfaranótt þriðjudags og miðvikudags.
Nánari upplýsingar gefa Elín Hallgrímsdóttir,
deildarstjóri, og Sonja Sveinsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, á milli kl. 13.00 og
14.00 virka daga.