Morgunblaðið - 13.01.1991, Page 12

Morgunblaðið - 13.01.1991, Page 12
Sh Í-!‘M HAUMAl .gí HJOAaUWMIia QIOiLiaMJQHOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANUAR 1991 4 rSTAKKASKIPTI A SIGIUFIRÐIi Gagnrýnum sðl- unn hnrðlega Ríkið vnr trygg- ur vinnuveitnndi - segja Runólfur Birg- isson og Sigurður Hilm- orsson, sem buðuí Þormóð ramma ósamt hópi Siglfirðinga „KAUPIN á hlutafé ríkisins í Þor- móði ramma eru eitt mál og sam- eining Drafnars hf. og Egilssíldar hf. í þetta fyrirtæki er annað mál. Við höfum sérstaklega gagn- rýnt sameininguna. Við teljum að þessar eignir séu verulega of- metnar við sameininguna í saman- burði við matið á Þormóði ramma. Við gagnrýnum líka harðlega vinnubrögðin við söluna," segja Runólfur Birgisson, skrifstofu- stjóri Þormóðs ramma, og Sigurð- ur Hilmarsson, eigandi Siglufjarð- arleiða, en þeir hafa verið i for- svari fyrir samstarfshóp Siglfirð- inga sem gerðu tilboð í fyrirtækið en urðu að láta í minni pokann fyrir Drafnari og Egilssíld. Lögðu þeir fram lista með nöfnum 175 Siglfirðinga og segja næsta víst að þeim hefði tekist að safna umtalsverðum hlutafjárloforðum ef ráðherra hefði sýnt tilboði þeirra áhuga. Ef reikningar til söludags eru lagð- ir fram hljóta þeir að sýna að staðan er önnur en hún var um mitt ár eins og miðað var við í söl- unni. Matið á eigin fé fyrirtækjanna getur ekki verið rétt. Á Siglufirði ganga eignir á hálfu brunabótamati og það er réttara að miða við það,“ sagði Runólfur. Þeir hafa gagnrýnt söluaðferðir ráðherra harðlega eins og fram hefur komið í fréttum. „Vinnubrögðin eru forkastanleg. Drafnar og Egilssíld lögðu áreiðanlega aldrei fram tilboð á undan okkur. Það er mjög einkenni- legt að þeirra tilboð skuli vera nán- ast eftirlíking af okkar tilboði. Við fengum aldrei að sitja við sama borð og þeir gagnvart ráðherra. Okkur var aðeins sagt að skila inn tilboði með örskömmum fyrirvara en var ekki boðið upp á að sýna tryggingar og svo var ekkert talað við okkur Sameiningin er stórpólitískt mál. Sigurður Hilmarsson og Runólfur Birgisson. meira,“ segir Sigurður. „Ráðherra ber það mikið fyrir sig að Drafnar og Egilssíld hafi haft baktryggingu Jökla hf., dótturfyrirtækis Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna. Það væri fróðlegt að fá svör SH við því hvort Jöklar hefðu viljað veita okkur slíka tryggingu,“ segja þeir og benda á að Róbert Guðfinnsson, fram- kvæmdastjóri Þormóðs ramma og annar eigandi Egilssíldar, er stjóm- armaður í Jöklum. Þeir segja að sú ofuráhersla sem kaupendur ög ráðherra hafa lagt á að ganga frá sölunni í desember sé einkennileg. „Af hveiju var ekki beð- ið til áramóta og reikninga fyrir árið allt. Það hlýtur að vera óeðlilegt þegar um svona stórar tölur er að ræða að fá ekki nýtt uppgjör. Ætla kaupendumir kannski að nýta tapið á Þormóði ramma sem em engir smáaurar, uppsafnað og frádráttar- bært, eða 611 milljónir?" spyija þeir. „Þetta er stórpólitískt mál. Það er ljóst að hluti bæjarstjómar og bæjarstjóri standa á bak við Drafnar og Egilssíld. F-listinn sem er í meiri- hluta _er studdur af Alþýðubandalag- inu. Ólafur Marteinsson er fulltrúi hans. Róbert Guðfinnsson er stuðn- ingsmaður, nýráðinn bæjarstjóri er 5. maður á listanum. Óttar Proppé stjórnarformaður er alþýðubanda- lagsmaður, Svanfríður Jónasdóttir sem einnig _ annaðist söluna ásamt Óttari og Ólafí Ragnari er einnig alþýðubandalagsmaður. Formaður verkalýðsfélagsins er stuðningsmað- ur listans. Og svo mætti áfram telja. Þessi sala hefur verið undirbúin Iengi og er stórpólitísk," segir Runólfur en þess má geta að hann hefur einn- ig haft afskipti af bæjarpólitíkinni og er varafulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins í bæjarstjórn. „Það eina sem við fengum í hend- ur þegar við undirbjuggum okkar tilboð var fimm mánaða uppgjör og að sjálfsögðu buðum við í fyrirtækið á grundvelli þess. Við töldum okkur vera að vinna samkvæmt yfirlýsing- um ráðherra og samþykktum bæjar- stjómarinnar og stóðum heiðarlega að þessu að öllu leyti. Við töldum að það ætti að efla fyrirtækið meðal Siglfirðinga en ekki koma því í hend- ur tveggja fjölskyldna." Þeir segja einnig að fróðlegt væri að fá úr því skorið hvort Ólafur Nílsson, endurskoðandi, sem ráð- herra kallað til, hafi borið tilboðin saman og gert samanburð á stöðu fyrirtækjanna. „Þessi sameining er eingöngu til góða fyrir smáfyrirtæk- in tvö. Þormóður rammi þarf ekkert á þeim að halda. Drafnar og Eg- ilssíld eru með rekstur sem kemur Þormóði ramma Iítið við. „Allir sem skrifuðu undir okkar lista þegar við gerðum tilboðið voru tilbúnir til að kaupa hlut í Þormóði ramma eins og hann var fyrir sam- einingu. Nú er hlutafjárútboð að fara af stað. Það eru verulega minni líkur á að þeir geti selt þetta sameinaða fyrirtæki en hlutafé í Þormóði ramma eins og hann var,“ segir Runólfur. - segir Hafþór Rós- mundsson, formaður verkalýðsfélagsins Vöku „VIÐ mótmæltum sölunni af þeirri ástæðu einni að við kærðum okkur ekki um að ríkið seldi sinn hlut. Við töldum okkur vera með trygg- an atvinnurekanda. Horfur eru nokkuð góðar i sjávarútvegi og ríkið hefði því hugsanlega geta hagnast á fyrirtækinu á næst- unni,“ segir Hafþór Rósmundsson, formaður verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði. Við erum ennþá svekktir eftir reynsluna af því þegar Albert Guðmundsson þáverandi íjár- málaráðherra seldi lagmetisiðjuna Siglósíld. Fjárhagslega veikir ein- staklingar eiga ekki sömu möguleika á að halda rekstri gangandi þegar tímabundnir erfiðleikar steðja að eins og vinnuveitandi á borð við ríkið,“ sagði Hafþór. Hann segir að gjald- þrot Sigló hafi komið illilega niður á bæjarfélaginu og verkafólki. „Við óttumst að sama sagan geti endur- tekið sig við sölu Þormóðs ramrna," sagði Hafþór. I ályktun stjórnar Vöku 16. des- ember sl. þar sem sölunni á Þormóði ramma var mótmælt var bent á að 50-60% alls verkafólks á Siglufirði starfaði hjá fyrirtækinu. „Meirihluta- eign fjárhagslegra veikra aðila að fyrirtækinu getur stefnt atvinnu- öryggi alls þessa fólks í voða og jafn- vel ógnað tilveru byggðarlagsins," sagði í ályktuninni. — Á ríkið þá að standa undir at- vinnulífinu út á landsbyggðinni? „Nei, ekki endilega en við sjáum ekkert athugavert við að ríkið eigi atvinnufyrirtæki, sérstaklega út á landsbyggðinni til að tryggja at- vinnugrundvöllinn." — Var ekki reynslan af Þormóði ramma samt sú að fyrirtækið safn- aði gríðarmiklum skuldum? „Jú, en tilfellið er að ef Þormóður rammi hefði verið stofnaður sem hlutafélag í eigu einstaklinga væri hann löngu kominn á hausinn og þá væru Siglfirðingar flestir farnir á brott. Það fylgir þessu fyrirtæki mik- il óhappasaga frá upphafi. Það var stofnað félag um reksturinn og veitt ákveðnu fjármagni í fyrirtækið. Voru það stórhuga menn sem ákváðu að byggja eitt alstærsta frystihús í Evr- ópu með allt að 150 tonna afkasta- getu á dag. Frystiklefinn kostaði miklu meira en nam öllu hlutafé fyr- irtækisins og fyrir vikið var ekki gert neitt meira í frystihúsmálum í tíu ár eða fram yfir 1980. Steinkum- baldinn, 10-12 metra hár, stóð sem minnismerki og hefur aldrei komist allur í notkun. Svo náðust samningar við íslenska skipasmíðastöð og var ákveðið að smíða fyrsta skuttogarann á íslandi, Stálvíkina, en hún var ekki frágeng- in þegar hún var afhent, og fór ekki að ganga fyrr en að tveimur árum liðnum. Þar tala ég af reynslu, því ég var stýrimaður á skipinu í fjögur ár. Sömu raunasögu má segja af hinu skipi fyrirtækisins, Sigluvíkinni, sem var einn af fimm togurum sem ákveðið var að láta smíða á Spáni. Fjórir þeirra voru smíðaðir í stórri skipasmíðastöð en sá fimmti var sett- ur í einhverskonar atvinnubótaverk- efni i lítilli skipasmíðastöð — það var togari Þormóðs ramma. Endaði mál- ið þannig að togarinn var hirtur hálf- kláraður úr skipasmíðastöðinni og tók svipaðan tíma að gera skipið fullklárt hér heima eins og Stálvík- ina. Þetta gerði fyrirtækinu mjög erfitt fyrir í byijun og reksturinn gekk illa. Þetta er hörmungarsaga sem hefur háð fyrirtækinu fram á þennan dag þótt rekstur þess hafi snúist til hins betra á síðari árum með tilliti til þess að aflinn hefur verið unnin hér að nær öllu Ieyti,“ sagði Hafþór. Hann kvaðst efast um að Siglfirð- ingar gætu tekið stóran þátt í þeirri hlutafjáraukningu sem nú stendur fyrir dyrum, þrátt fyrir vilja margra til þess. „Það er ekkert lausafé hér á flakki. Verkalýðsfélagið er ekki í stakk búið til að leggja háar upphæð- ir í þetta, bæjarfélagið ekki heldur,“ sagði hann. Verkalýðsfélagið á lítinn hlut í fyrirtækinu og getur því fylgst með gangi þess. Fulltrúar Vöku sátu ekki hluthafa- Höf um tryggt kaup- endur aö hlutafénu — segir Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Drafnars hf. og Þormóðs rgmma hf. „ÞAÐ verða engar breytingar á rekstri Drafnars hf. við sameining- una. Við höfum unnið um 1.000 tonn af rækju á ári og reiknum með að framleiðslan verði svipuð,“ segir Ólafur Marteinsson, framkvæmda- stjóri Drafnars hf. Rækjuverksmiðjan er í eigu feðganna Marteins Haraldssonar og Ólafs, Rúnars og Haraldar Marteinssona. Marteinn hefur stundað saltfiskvinnslu á Siglufirði í tuttugu ár en Ólafur hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins síðustu árin eftir að rækju- vinnsla hófst þar. Fyrirtækið hefur nýlega skipt um nafn, hét áður Hafnarfell. Við sameininguna í Þormóði ramma hf. um áramótin tekur Marteinn sæti í stjórn Þormóðs ramma en Ólafur verður framkvæmda- stjóri við hlið Róberts Guðfinnsonar. Rúnar og Haraldur starfa báðir hjá Drafnari. Fjárfesting til framtíðar. Eigendur Drafnars hf., feðgamir Haraldur, Ólafur og Rúnar Marteinssynir,ásamt Marteini Haraldssyni. Olafur sagði að hugmyndin að kaupunum á hlut ríkisins í Þormóði ramma hefði kvikn- að í haust þegar fjármálaráðherra var á Siglufirði vegna sölunnar á Sigló til Ingimundar hf. í Reykjavík. Þá lýsti hann yfir möguleika 'a að selja heimaaðilum Þormóð ramma. „Við fréttum að nokkur fyrirtæki utan Siglufjarðar væru að kanna möguleika á að kaupa,“ sagði Ólaf- ur. Vildi hann ekki nafngreina þá en þar mun hafa verið um að ræða útgerðaraðila á Akureyri og Suður- nesjum. „Sennilega hefur það ráðið mestu um að ríkið fór að íhuga sölu á fyrirtækinu," sagði hann. Kaupverðið á hlut ríkissjóðs í Þor- móði ramma var rúmar 87 milljónir. Drafnar keypti 65% en hlutur Egils- sfldar er 35%. Fjárhagsmat fyrir- tækjanna hefur verið harðlega gagn- rýnt en Ólafur svarar því til að Drafn- ar sé steVkt fyrirtæki og velti 160 milljónum á ári. „Það er búið að skoða þetta mál frá öllum hliðum. Ríkið fékk óháða endurskoðendur til að fara ofaní saumana á ijárhags- stöðu fyrirtækjanna og þess má geta að Þormóður rammi hefur nýverið farið í gegnum Skuldbreytingu hjá Islandsbanka en hann er viðskipta- banki allra þessara fyrirtækja og bankinn hefði aldrei liðið það að sam- einingin hefði á einhvern hátt veikt stöðu Þormóðs ramma," sagði Ólaf- ur. „Nú er unnið að því að bjóða út hlutafé á Siglufirði til að styrkja fyr- irtækið og gefa fleirum kost á að taka þátt í þessum rekstri. í fram- haldi af því ætlum við að gefa okkur tíma til að keyra fyrirtækin saman og bjóða því næst út meira hlutafé. Við verðum því orðnir minnihlutaeig- endur að fyrirtækinu eftir eitt eða tvö ár,“ sagði hann. „Ef ríkið hefði haldið hlut sínum í Þormóði ramma hefði áreiðanlega aldrei komið til greina að það setti meira fé í fyrirtækið til að styrkja eiginijárstöðu þess. Skip fyrirtækis- ins eru að verða tuttugu ára og þar þarf að endurnýja. Eina leiðin til að efla útgerðarþáttinn er að koma rekstrinum í betra horf á tveimur árum og bjóða síðan út nýtt hlutafé með það fyrir augum að endumýja skipastólinn. Fljótlega ætlum við líka að kaupa bát sem getur stundað línu- veiðar á haustmánuðum og rækju í annan tíma,“ sagði Ólafur. Að sögn Ólafs eru nettóskuldir Þormóðs ramma í dag um 600 millj- ónir. „Nettóskuldir Drafnars og Eg- ilssíldar eru engar í dag. En þau velta sameiginlega á þriðja hundrað milljónum árlega á sama tíma og velta Þormóðs ramma er 800 milljón- ir. Afkoma Drafnars og Egilssíldar hefur verið góð,“ sagði hann. Ólafur segir að sú pólitík sem hlaupið hafi í málið vegna sölunnar og valdið miklu moldviðri sé þeim með öllu óviðkomandi. „Við erum að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.