Morgunblaðið - 13.01.1991, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991
36
Ungur Rússi á sigurbraut
á skákmótinu í Hastings
Skák
Margeir Pétursson
UNGUR Rússi, Evgeny Bareev,
24 ára gamall, hefur tveggja
vinninga forystu á hinu forn-
fræga alþjóðaskákmóti í Hast-
ings í Englandi þegar þrjár
umferðir eru til loka mótsins,
en því lýkur nú um helgina. Það
kom talsvert á óvart að Bareev
reyndist kominn upp í fimmta
sætið á stigalista FIDE, sem birt-
ur var nú um áramótin, en það
virðist engin tilviljun ef marka
má árangur hans í Hastings.
Atta stórmeistarar tefla tvöfalda
umferð, alls fjórtán skákir hver
og er Helgi Olafsson í 6.-7. sæti
með fjóran og hálfan vinning af
ellefu mögulegum. Brezka fyrir-
tækið Foreign & Colonial hefur
haldið mótið undanfarin fimm
ár, en skipuleggjandi þess er
hinn kunni rithöfundur og stór-
meistari, Raymond Keene.
Einungis Kasparov, Karpov,
Gelfand og Ivantsjuk eru stiga-
hærri en Bareev sem stendur. Vel-
gengni hans upp á síðkastið hefur
líka verið mikil. Hann var t.d. eini
Rússinn sem vann skák gegn ís-
lendingum í síðasta Ólympíumóti
og kostaði sá ósigur okkur sjötta
sætið á mótinu. Það sem hefur
gert gæfumuninn fyrir Bareev á
Hastingsmótinu er velgengni hans
með Leningradafbrigðinu gegn
Nimzoindverskri vöm, 1. d4 — Rf6
2. c4 - e6 3. Rc3 - Bb4 4. Bg5!?
Það hefur dugað honum til sigurs
gegn þeim Chandler, Helga og
Sax. Þótt ekki hafi hann fengið
vænlegar stöður úr byijuninni, hef-
ur hann tefit þeim mun betur í
miðtafli.
Staðan eftir 12 umferðir
1. BareevS'Av.
2-3. Chandler og Larsen 6'Av.
4.-5. Sax og Speelman 6 v.
6.-7. Helgi Ólafsson og King 5
v.
8. Kosten 4 'A v.
Riddaraparið leikur í
höndum Helga
Svo sem sjá má af stöðunni í
mótinu hefur Helgi Ólafsson ekki
náð að blanda sér í toppbaráttuna
og eftir skákunum að dæma er
hann nokkuð frá sínu bezta. Hann
byijaði að vísu vel með því að
leggja Chandler að velli, eftir af
hafa náð að rugla Englendinginn
í ríminu með mannsfórn í tíma-
hraki. En næsta vinningsskák kom
ekki fyrr en í níundu umferð er
Helgi náði að leggja Kosten að
velli á nokkuð dæmigerðan hátt.
Honum tókst snemma að komast
út í ívið betra endatafl þar sem
hann hafði biskupaparið og gat
teflt áhættulaust til vinnings. í
nokkrum jafnteflisskáka hans hef-
ur Helgi lent í erfiðri vöm, og
tvívegis náð að bjarga sér skemmti-
lega með riddarapar gegn bisku-
papari.
Svo virðist sem Helgi tefli yfir-
leitt of hratt auk þess sem hann
teflir ekki nægilega hvasst með
hvítu. í fyrri hluta mótsins fór
frumkvæði hvítu mannanna þannig
fyrir lítið með stuttum jafnteflum
við Speelman og Sax og róleg byij-
un gegn King gaf ekki raunhæfa
vinningsmöguleika. Rétt eins og í
heimsmeistaraeinvíginu um daginn
hafa hvítu mennirnir reynst mun
betri en þeir svörtu í Hastings. í
tíundu og elleftu umferðunum unn-
ust t.d. sex skákir af átta á hvítt,
en hinum tveimur lauk með jafn-
tefli,
I síðustu umferðunum þremur
mætir Helgi þeim Larsen, King og
Bareev.
Við skulum líta á áðurnefndar
skákir Helga þar sem jiann hefur
riddarapar gegn biskupaparinu:
Hvítt: Tony Kosten
Svart: Helgi Ólafsson
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5 2. f4 - g6 3. d4!
Afbrigðið 2. f4 gegn Sikileyjar-
vörn hefur verið vinsælt á meðal
enskra skákmanna um árabil, sér-
staklega á helgarmótum. Að hag-
stætt sé að svara 2. — g6 með 3.
d4! er ein nýjasta uppfinning þeirra.
Ætlunin er auðvitað að svara 3. —
cxd4 4. Dxd4 — Rf6 með 5. e5 og
hrekja riddarann til baka. Svartur
ætti þó að hafa vel teflandi stöðu,
en Helgi ákveður samt að fara út
í fremur óhagstætt afbrigði af
Pirc-vöm
3. - Bg7 4. d5 - d6 5. Rc3 - e6
6. dxe6 — Bxc3+?! 7. bxc3 —
Bxe6 8. Rf3 - Rc6 9. Bd3 - Dd7
10. f5! - gxf5 11. exf5 - Bd5
Hvítur hefur fengið mjög sterkt
frumkvæði út úr byijuninni. 11. —
Bxf5 12. Bxf5 — Dxf5 13. 0-0 lítur
t.d. hrikalega illa út fyrir svart
vegna hótunarinnar 14. Rg5
12. 0-0 - 0-0-0 13. Bb5 - a6! 14.
Be2 - Bxf3 15. Bxf3 - Re5 16.
f6! - Rxf6 17. Bg5 - Rfg4
18. Be4!
Eftir hvassa og markvissa tafl-
mennsku hvíts virðist svarta staðan
hrunin vegna hótunarinnar 19.
Bf5. Svar Helga er eina leiðin til
að veita mótspymu, hann fórnar
sjálfri drottningunni fyrir tvo fram-
sækna riddara: 18. — Hhg8! 19.
Bf5 - Hxg5 20. Bxd7+ - Hxd7
21. Dd2 - h6 22. De2
Nú fer Kosten að gera sjálfum
sér erfítt fyrir. Hann hefur e.t.v.
ætlað að leika 22. h3 en séð að
því má svara með 22. — Rc4 23.
De2 — Rge5. Einfaldast virðist
hins vegar 22. Hf4!, sem hótar 23.
h3 og eftir 22. — f5 23. Hafl fell-
ur f-peðið.
22. - f5 23. Hadl - Kc7 24.
Hd5?! - He7! 25. h4??
Hræðilega ljótur leikur, sem
eyðileggur vinningsmöguleika
hvíts alveg, því hann getur ekki
lengur stuggað við riddaranum á
g4-
25. - Hgg7 26. Hd2
* Nú sér hvítur að 26. Hxf5 má
svara með' 26. — Rf3+!!, en það
er um seinan, h-peðið er komið of
langt.
26. - Hgf7 27. g3 - h5 28. Hddl
- Hf6 og samið jafntefli, því þrátt
fyrir liðsmuninn kemst hvítur ekki
í gegnum svarta varnarmúrinn.
Gamla kempan Bent Larsen átti
nokkuð góðu gengi að fagna á
síðasta ári, vann tvö mót, annað í
London og hitt í New York og
gætti sín- á því að tefla ekkert á
Norðurlöndum. Hann virðist vera
í góðu formi í Hastings, vann Bare-
ev t.d. örugglega í níundu umferð.
En djörfum stíl Danans virðast
ávallt fylgja ljót töp og strax á
eftir tapaði hann mjög illa fyrir
Chandler, missti drottninguna eftir
aðeins 20 leiki og Rússinn jók aft-
ur forystuna. Gegn Larsen gerði
Helgi athyglisverða tilraun til að
endurlífga afbrigði lítið hefur sézt
frá því Ivantsjuk koltapaði fyrir
heimsmeistaranum með því:
Hvítt: Bent Larsen
Svart: Helgi Ólafsson
Enski Ieikurinn
1. c4 - Rf6 2. Rc3 - e5 3. Rf3
- Rc6 4. g3 - Bb4 5. Bg2 - 0-0
6. 0-0 - e4 7. Rg5 - Bxc3 8.
bxc3 — He8 9. f3 — exf3 10.
Rxf3 d5 11. d4! - Re4 12. Dc2
- Bf5!
Vert er að rifja upp hina frægu
skák Kasparovs og Ivantsjuks á
Sovétmeistaramótinu 1988: 12. —
dxc4 13. Hbl - f5 14. g4 - De7
15. gxf5 — Rd6 16. Rg5 — Dxe2
17. Bd5+ - Kh8 18. Dxe2 -
Hxe2'.19. Bf4 - Rd8 20. Bxd6 -
cxd6 21. Hbel — Hxel 22. Hxel
- Bd7 23. He7 - Bc6 24. f6 og
svartur gaf. Eftir þessa hrikalegu
útreið hefur svarta staðan átt sér
formælendur fáa.
13. Rh4 - Bg6 14. Rxg6 - hxg6
15. Hbl — Ra5 16. cxd5 — Dxd5
17. Bf4 - Rc4?!
Eftir þetta virðist svartur hart-
nær þvingaður til að fórna peði
fyrir óljósar bætur. 17. — Hac8
virðist nákvæmara og svara síðan
18. Dd3 með 18. — a6 og svartur
er þá reiðubúinn til að leika c7-c5
sem ætti að færa honum mótspil.
18. Dd3 - f5
Eftir 18. - Hac8 eða 18. - He7
á svartur erfítt með að svara 19.
Hb4, því 19. — b5 gengur tæplega
vegna 20. Bxe4 — Hxe4 21. Hxb5.
En nú missir svartur peð og finnur
ekki mótspil í framhaldinu.
19. Bxc7 - Hac8 20. Bf4 - He6
21. Hb4 - b6 22. a4 - a6 23. g4
- Hec6 24. Bg3 - He8 25. h4 -
b5 26. axb5 — axb5
Eftir peðsfórnina hefur svartur
ekki fundið neina virka áætlun, en
eytt einum óþörfum leik í b-peð
sitt og tveimur í hrókana. Sézt
ekki betur en 20. — b5 og síðan
21. — Hc6 hefði sparað honum
heila þijá leiki miðað við þá stöðu
sem nú er komin upp. Það er því
ekki nema von að Larsen nái nú
öruggu frumkvæði.
27. h5 - Dd7 28. gxf5 - gxf5
29. Hxb5 - Rcd2 30. Hcl - Hh6
31. Bf4 - Hxh5 32. c4 - Dd8
33. Bxd2?
Larsen uggir ekki að sér og hirð-
ir manninn strax, en millileikurinn
33. Hb8! virðist tryggja honum
auðunnið tafl. Munurinn er auðvit-
að sá að eftir 33. — De7 34. Hxe8+
— Dxe8 35. Bxd2 á svarta drottn-
ingin ekki aðgang að h4 reitnum
og 35. — Db8 má svara með 36.
Bxe4 — fxe4 37. Dxe4 — Dh2+
38. Kfl, því svarta sóknin er ekki
nægilega hættuleg, t.d. 38. — Hh4
39. Da8+ - Kh7 40. Hc3! Að auki
á hvítur hinn ágæta varnarleik 36.
Hc3! (í staðinn fyrir 36. Bxe4) sem
dugir ekki síður.
Það er líka ólíklegt að drottning-
arfómin 33. — Dxb8 34. Bxb8 —
Hxb8 geti bjargað svarti, eftir 35.
c5 má svara 35. — Hb3 með 36.
Bxe4!
33. - Dh4 34. Be3 - Dh2+ 35.
Kfl - Rg3+ 36. Kf2 - Re4+ 37.
Kfl — Rg3+ 38. Kf2 og jafntefli
með þráskák.
KENNSLA
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskóiinn, s. 28040.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 10 = 1721148'/2 =
I.O.O.F. 3 = 1721148 = Fl.
□ MÍMIR 599114017 - 1 ATK
FRL.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan í
Keflavík
Sunnudagaskóli ki. 14. Almenn
samkoma kl. 16.
Allir hjartanlega velkomnir.
Heilsuverndarstöðin Máttur,
Faxafeni 14.
Byrjendanámskeið Hatha-jóga
hefst 15. janúar. Lögð verður
áhersla á djupöndun, slökun og
teygjur. Upplýsingar í síma
689915.
Fimirfætur
Dansæfing verður í Templara-
höllinni við Eiríksgötu í kvöld,
13. janúar, kl. 21.00.
Upplýsingar í síma 54366.
Skipholti 50b
Samkoma í dag kl. 11.00.
Sunnudagaskóli á sama tima.
Allir velkomnir.
M't VEGURINN
V Krístið samfélag ■
Smiðjuvegi 5
Kl. 11.00, samfélagssstund.
Fræðsla, lofgjörð og barnakirkja.
Kl. 20.30, stórsamkoma.
Fögnuður í heilögum anda.
Prédikun orðsins.
Verið velkomin.
Sunnudagaskóli kl. 14.00.
Almenn samkoma kl. 20.30.
Ræðumaður: Sigmund Dale-
haug. Mánudag kl. 16.00: Heim-
ilasamband.
Auðbrekka 2 . Kópavogur
Sunnudagur: Samkoma í dag
kl. 16.30.
Þriðjudagur: Biblíulestur kl.
20.30.
Laugardagur: Unglingasam-
koma kl. 20.30.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Safnaðarsamkoma i dag kl. 11.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Barnagæsla.
Almenn samkoma í dag kl.
16.30. Gideonfélagar taka þátt.
Einsöngur Laufey Geirlaugs-
dóttir. Sunnudagaskóli á sama
tíma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Munið bænastundina annað
kvöld. Biðjum fyrir ástartdi
heimsmála.
Hvrtasunnukirkjan Völvufelli
Sunnudagaskóli í dag kl. 11.
¥kfuk
KFUM
KFUMog KFUK
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30 í kristniboðssalnum Háa-
leitisbraut 58. „Ég mun breyta
sorg þeirra í gleði“ - Jer.
31,10-13. Upphafsorð: Elísabet
Magnúsdóttir.
Kristniboðsþáttur: Sigurjón
Gunnarsson. Ræðumaður: Har-
aldur Jóhannsson.
Allir velkomnir.
flunhjóip
Almenn samkoma verður í
Þríbúðum í dag kl. 16.00. Sam-
hjálparkórinn syngur. Ræðu-
menn Bryniólfur Ólason og
Gunnbjörg Oladóttir.
Barnagæsla og kaffi eftir sam-
komu.
Allir velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLnUGÖTU 3 S 11798 19533
Sunnudagur 13. jan. kl. 11.00
Þingvellirað vetri
Fyrsta ferð af fjórum árstíðar-
ferðum til Þingvalla. Gengið
verður með strönd Þingvalla-
vatns frá Vellankötlu um Vatns-
kot og Lambhaga að Þingvalla-
kirkju. Gönguferð við allra hæfi.
í Þingvallakirkju mun Heimir
Steinsson, þjóðgarðsvörður
taka á móti hópnum og flytja
stutta helgistund og segja frá
sögu staðarins.
Skíðaganga á Mosfellsheiði
Önnur skíöaganga ársins er um
austurhluta Mosfellsheiðar.
Gengið í um 3 klst. og síðan
ekið til Þingvalla og þar hittast
hóparnir og hlýða á helgistund
í Þingvallakirkju.
Brottför í ferðirnar er frá Umferð-
armiðstöðinni, austanmegin.
Heimkoma um kl. 16.30. Verð kr.
1.100,- frítt f. börn m/fullorðnum.
Ferðirnar eru bæði líkamleg og
andleg uppörvun fyrir alla og
raunar góð undirstaða fyrir ferð-
ir komandi árs.
Byrjíð nýtt ár og nýjan áratug í
ferð með Ferðafélaginu.
Velkomin í hópinn.
Ath. brottför kl. 11.00.
Ferðafélag íslands.
H ÚTIVIST
'ÓflHK11 • REYKJAVÍK • StMJAÍMSVAKI HMU
Póstgangan
Ný og spennandi raðganga f
samvinnu við Póst og sfma.
Fyrsti áfanginn verður genginn
núna á sunnudaginn 13/1. Ár-
degisgangan leggur af stað kl.
10.30 frá skrifstofu Útivistar,
Vesturgötu 4. Þaðan verður
gengið um Miöbæinn með við-
komu á pósthúsinu en þarverða
göngukortin stimpluð. Þá verður
haldið suður Skildinganesmela
að Skildinganesi og niður í Aust-
urvör þar sem göngufólk fær
tækifæri til þess að láta ferja sig
yfir Skerjafjörð með aðstoö
Björgunarsveitarinnar Ingólfs.
Þeim sem ekki láta ferja sig verð-
ur boðiö í rútuferð suður á
Bessastaðanes. Frá Bessastöð-
um liggur svo leiðin að Görðum
og þaðan að Póst- og síma-
minjasafninu í Hafnarfirði þar
sem göngunni lýkur eftir að
göngukortin hafa verið stimpluð.
Eftir hádegi veröur boðið upp á
styttri ferð og er brottför kl.
13.00 frá BSl-bensínsölu. Ekið
að Bessastööum þarsem slegist
verður I för með árdegishópn-
um. Að göngu lokinni verður fólki
ekið til baka á brottfararstaöi.
Ekkert þátttökugjald verður í
þessum fyrsta áfanga póst-
göngunnar.
Vikan 14.-20. janúar
18/1 kl. 20.00:
Stjörnuskoðunarferð. Athugið
breytta dagsetningu.
20/1 kl. 10.30: Reykjavíkur-
gangan: Gengið frá Þjórsárós-
um meðfram ströndinni að
Stokkseyri.
Kl. 13.00 ‘Dagsferð: Hraun í
Ölfusi - Óseyrarbrú.
Pantið tfmanlega í hina vinsælu
þorrablótsferð sem farin verð-
ur helgina 25.-27. janúar. Að
þessu sinni er ferðinni heitið í
Þjórsárdal. Tilvalið að taka
gönguskíöin með. Fararstjóri
verður Lovísa Christiansen.
Sjáumstl
Útivist.