Morgunblaðið - 13.01.1991, Page 10

Morgunblaðið - 13.01.1991, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR 13. JANUAR 1991' eftir Ómar Friðriksson Ljósmyndir Árni Sæberg „SIÐLEYSI í Sigló“, „Siglóleigan er skandall", „Háskaleg stefna“, „Hefur fjármálasiðferðið engin landamæri?" Þannig hljóðuðu fyrirsagn- ir fjölmiðla á vordögum 1989 þegar Sigló hf. á Siglufirði varð gjald- þrota með heildarskuldir upp á 300 milljónir kr. en þrotabúið var Ieigt nýstofnuðu fyrirtæki eigendanna, sem höfðu keypt Sigló á sínum tíma fyrir 18 milljónir af ríkinu en greiddu aldrei eyri upp í kaupsamning- inn. Pólitíkin tók kipp og vinstri menn sögðu þetta skólabókardæmi um hvernig einkavæðing Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks færi fram á kostnað ríkissjóðs. Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra sakaði fyrrverandi fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins um að hafagefið flokksgæðingum sínum fyrirtækið. Og aftur hafa pólitískir eldar kvikn- að á Siglufirði, sem teygja sig yfir gjörvalla landspólitíkina. Astæðan er sala Ólafs Ragnars á Þormóði ramma hf. til tveggja smáfyrirtækja á Siglufirði. Einkavæðing vinstri manna, „á kostnað ríkissjóðs er leik- ur að fjöreggi Siglfirðinga, sem var fært pólitískum samherjum ráð- herra á silfurfati," segja þeir sem gagnrýna hvað mest og koma að þessu sinni einkum af hægri væng stjórnmálanna. Siglfirðingar sjálfir virðast tvískiptir í afstöðu sinni, en þó fyrst og fremst óvissir, þar sem ekki eru öll kurl komin til grafar í þessu umdeilda máli. Það fundu blaðamenn Morgunblaðsins á ferð sinni til Siglufjarðar í vikunni. Deilurnar gefa dæmigerða mynd af Siglufirði. Jóhannes Egilsson eigandi Egilssíldar. Sað fer ævinlega allt í háa- loft hjá ykkur Siglfirð- ingum, er haft eftir starfsmanni Ríkisendur- skoðunar þegar heima menn skýrðu sín sjónarmið fyrir hon- um vegna sölunnar. Skýrslu Ríkis- endurskoðunar er að vænta eftir helgina. Vinna lá niðri hjá Þormóði ramma og togaramir nýfamir til veiða eftir óveðrið í síðustu viku. Það var þungt hljóð í viðmælendum okk- ar sem fæstir vildu þó tjá sig opinber- lega um söluna á Þormóði ramma, síðasta ríkisrekna sjávarútvegsfyrir- tækinu. Starfsmaður þess sagði að Siglfirðingar væm mjög uggandi um framtíðina og það væri hiti í mörg- um. Annar viðmælandi sagði að bæjarbúar vissu lítið hvað fælist í sameiningunni og margir óttuðust þá einkavæðingu sem átt hefur sér stað á skömmum tíma. Pólitísk upphlaup Flestar uppistöður atvinnulífsins í bænum á siðari tímum hafa verið í ríkiseign og allar meiriháttar breyt- ingar, rekstrarerfiðleikar og hug- myndir um eignasölu, hafa undan- tekningalítið orðið pólitískt bitbein jafnt fyrir norðan sem í stjórnkerf- inu. Nægir að benda á Siglósíld, Þormóð ramma og Sfldarverksmiðjur ríkisins sem dæmi um ríkisrekið at- vinnulíf bæjarins. Tvö þau fyrr- nefndu hafa farið í eigu einkaaðila og sjávarútvegsráðherra hefur lýst áhuga á að selja SR. Siglfirðingar hafa einnig bitra reynslu af einka- væðingu á síðustu árum og benda þá á gjaldþrot Sigló, Húseiningar hf., Bút hf., frystihúsið ísafold og Veiðarfæri hf. svo dæmi séu tekin. Hrakfarir Sigló í fersku minni Árið 1983 keyptu tíu aðilar Sigló- síld af ríkissjóði og hugðust stunda rækjuvinnslu auk þess sem gert var að skilyrði að gaffalbitaframleiðsl- unni yrði haldið áfram hjá hinu nýja fyrirtæki. Vegna taprekstrar var framleiðslulínan seld til Homafjarðar árið 1988 og misstu þá 25 Siglfirð- ingar atvinnuna. Rækjuvinnslunni lauk skömmu síðar og í apríl 1989 var svo komið að óskað var gjald- þrotaskipta. Eigendurnir stofnuðu þá annað fyrirtæki, Siglunes, sem tók verksmiðjuhúsið og tæki á leigu af skiptaráðanda til sjö mánaða. En hiti var í Siglfirðingum vegna máls- ins og sóttist hópur heimamanna eftir að taka reksturinn á leigu en því var hafnað. Ríkissjóður fékk aldrei krónu upp í kaupverð fyrirtæklsins og tapaði hátt í hundrað milljónum króna. Heildarskuldir Sigló voru á fjórða hundrað milljóna kr. og töpuðu ein- staklingar og fyrirtæki á Siglufirði tugum milljóna vegna gjaldþrotsins. Ríkisendurskoðun var 'fengin að kröfu þingmanna Sjálfstæðisflokks til að gera úttekt á sölunni á Sigló. Þrotabúið selt Þegar sjö mánaða leigutími Siglu- ness rann út var nauðungaruppboði ekki forðað. Heimamenn sýndu enn áhuga á kaupum en niðurstaðan varð sú að fjármálaráðuneytið keypti þrotabúið á uppboðinu í nóvember 1989. Það leigði síðan Þormóði ramma verksmiðjuhúsnæði þrota- búsins sem tók að sér rækjuvinnsl- una. í september á síðasta ári var svo gengið frá sölu allra eigna Sigló til Ingimundar hf. í Reykjavík. Sölu- samningurinn byggðist á makaskipt- Vona að fyrirtækið fái að dafna. Kristján Möller forseti bæjar- stjórnar. um við Ingimund þar sem eignirnar á Siglufírði voru metnar á móti hús- eign fyrirtækisins við Súðavog í Reykjavík og var milligréiðsla ríkis- sjóðs 67 milljónir kr. Þá létti Byggða- stofnun umtalsverðum skuldum af Ingimundi í þeim tilgangi að auð- velda fyrirtækinu að flytja alla starf- semi sína til Siglufjarðar, sem gert var að skilyrði við söluna. Rækjuvinnsla Ingimundar á Siglu- firði hefur gengið vel í vetur en enn bólar þó ekki á flutningi fyrirtækis- ins norður og aflaskipin Helga RE og Ögmundur RE eru enn skráð fyr- ir sunnan. Benda viðmælendur á Siglufirði á að skv. nýju kvótalögun- um þurfí heimild sveitarstjórnar til að flytja bæði skip og kvóta á milli byggðarlaga. Á síðasta ári var kvóti skipanna 600 tonn af rækju og 1.600 tonna botnfískkvóti. Ilöðin kemur að Þormóði ramma Saga Þormóðs ramma er um margt sérkennileg. Fyrirtækið hefur frá upphafí verið í meirihlutaríkis- eign en Siglufjarðarbær var einnig stór hluthafi framanaf auk fjölda einstaklinga í bænum, allir þó með lítinn hlut. Þróunin varð sú, að eign- arhlutur ríkisins fór vaxandi og var orðinn 98% þegar fyrirtækið var selt 19. desember sl. Fyrir réttu ári voru skuldir Þor- móðs ramma komnar nokkuð yfir einn milljarð króna. Hlutafé nam 25. milljónum en ríkissjóður var þá eig- andi að 71% hlutafjár á móti 23% hlut Siglufjarðarbæjar. Ákveðið var að auka hlutafé um 300 milljónir kr. og með því var verulegum hluta skulda fyrirtækisins við ríkið breytt í hlutafé. Salan gagnrýnd Þegar Þormóður rammi var seldur til Drafnars hf. og Egilssfldar hf. 19. desember sl. var miðað við fjárhags- stöðuna eftir uppgjör fyrir fyrstu fimm mánuði ársins en þá var 50 milljóna kr. hagnaður á fyrirtækinu. Hefur það sætt verulegri gagnrýni að ekki skuli hafa verið lagt fram rekstraruppgjör fyrir síðari mánuði. Þess var einnig krafíst á hluthafa- fundi Þormóðs ramma 27. desember þar sem gengið var frá sameiningu að eignastaða fyrirtækjanna yrði metin miðað við söludag. Engar upplýsingar er enn að fá um afkomu og endanlegt eignamat Þormóðs ramma á árinu. Á árinu 1989 nam rekstrartap Þormóðs ramma 23,3 milljónum kr. en það var 136,7 milljónir 1988. Bókfært eigið fé fyrirtækisins var þá nei- kvætt um 280 milljónir og skammtímaskuldir 626 milljónir kr. en miðað við tryggingaverðmæti skipa, véla og tækja og brunabóta- mat fasteigna voru fastafjármunir metnir á rúmar 500 milljónir. Aftur tókust samningar um skuldbreyting- ar skammtímaskulda í íslandsbanka sl. sumar og er viðurkennt að staðan hafi færst til betri vegar á síðari hluta ársins. 611 milljóna kr. langtímaskuldir fyrirtækisins eru freistandi kostur fyrir fyrirtæki sem með kaupum geta nýtt sér þær sem ónýttan tapafslátt. Heimildir herma að kaupverð á slíku frádráttarbæru tapi sé á bilinu 11-15%.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.