Morgunblaðið - 13.01.1991, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 13.01.1991, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM sunnudagur 1S. JANÚAR 1991 Sigríður Flygenring í miðið, en t.v. er Kjartan L. Pálsson formaður Einherjaklúbbsins og t.h. er Ólafur H. Ólafsson framkvæmdastjóri Vangs sem gefur nýjum Einhetjum verðlaun. gS Tilviljanir elta konuna á röndum Nýlega hélt félagsskapur sem heitir Einheijar árlega sam kundu. Einheijar eru þeir íslending- ar sem hafa leikið það sem heitir „holu í höggi" í golfi. Landsmenn eru miklir kylfingar margir hverjir og alls fóru 35 Islendingar holu í höggi á síðasta ári sem er afburðag- ott miðað við hina frægu og marg- umtöluðu hausatölu. Meðal hinna nýju Einheija var Sigriður Flygenr- ing sem fór sína „holu“ á 7. braut á Korpúlfsstaðavelli 6. júlí. Sú hola er par 3 sem þýðir að vallarmet er að menn eigi að slá umrædda hölu í 3 höggum. „Ég slæ nú svo stutt að ég hefði aldrei farið holu í höggi nema á par 3 holu,“ sagði Sigríður í samtali við Morgunblaðið. Annars eru það athyglisverðar tilviljanir sem urðu til þess að rætt var við Sigríði sérstaklega en ekki einhvern hinna Einheijanna. Dagurinn 6. júlí er í huga Sigríð- ar hinn merkilegasti. Ekki aðeins vegna þess að þá fór hún> holu í höggi í fyrra, heldur fæddi hún tvíbura, syni sína tvo, á þeim sama degi fyrir 41 ári. „Annars var það fleira skringilegt sem gerðist síðasta sumar og hlýtur að flokkast einnig undir tilviljanir. Þannig var, að í þessum sama mánuði, 20. júlí, var ég að leika golf á Nesvellinum. Ég tók þarna nokkur góð skot, en eitt sinn lenti kúlan í miðjum kríu- hóp sem sat á brautinni og ein þeirra lá eftir dauð. Kúlan bara skall í hausinn á henni og hún hreyfði sig ekki meir. Ég varð svona heldur vönkuð við þetta og vissi eiginlega ekki í fyrstu hvað ég átti að gera og kallaði til manns sem var á næstu braut, spurði hann ráða. Hann sagði að líklega væri best að ég færi með kríuna upp í skála. Ég tók því fuglinn, vafði hann í handklæði og labbaði af stað. Á leiðinni hugsaði ég með mér, til hvers að fara með kríun'a upp í skála. Auðvitað tæki ég hana með mér heim og léti stoppa hana upp. Þetta gerði ég. Það var kennari einn í Kópavogi sem ég hafði upp á og hann stoppaði hana mjög fallega upp. Nú prýðir hún heimili mitt með útþanda vængi, svona til minja um óvenjulegan atburð,“ segir Sigríður Einherji. Þakkarávarp Hjartansþakkir til barna minna ogallra þeirra, sem heiöruðu mig og glöddu á 90 ára afmœli mínu, 5. janúar sl., með samkomustund í Fé- lagsheimili Seltjarnarness, gjöfum ogskeytum. Guö blessi ykkur öll. Karett Guðjónsdóttir, Vatnsnesvegi 19, Keflavík. SÓLARKAFFI ÍSFIRÐINGA- FÉLAGSINS * ísfirðingafélagið í Reykjavík gengst fyrir sínu árlega SÓLARKAFFI föstudagskvöldið 25. JANÚAR nk., að veitingahúsinu BREIÐVANGI, Álfabakka 8, Reykjavík. Húsið opnar kl. 20.00, en kl. 20.30 hefst hefðbundin og vönduð dagskrá með kaffi og rjómapönnukökum. Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar leikur fyrir dansi þar til kl. 3 eftir miðnætti. AÐGANGSEYRIR kr. 1.600.- Forsala aðgöngumiða fer fram í anddyri Breiðvangs, laugardaginn 19. janúar kl. 13-16. Borð verða tekin frá á sama stað og tíma. Miðapantanir auk þess í síma 91-77500 dagana 21.—25. janúar milli kl. 16-18. Greiðslukortaþj ónusta. STJÓRNIN Roy Marsden sem Macbeths. SVIÐIÐ Marsden fór í gervi Macbeths Einhver bið hefur orðið á því að helja að nýju tökur á sjón varpskvikmyndum byggðum á sakamálasögum rithöfundarins P.D.James með leikarann Roy Marsden í hlutverki skáldsins og lögregluforingjans Adams Dalgli- esh. Roy hefur gert kempunni góð skil og á hlutverkið víst, en hann vill ekki sitja auðum höndum á milli þátta. Því var það að hann tók að sér hlutverk Macbeths sem gekk fram eftir desember í Riverside- leikhúsinu i Lundúnum. Marsden þótti ekki skila hlut- verki Macbeths síður en hlutverki Adams Dalgliesh, en það hefur kannski fyllt hann eldmóði að hina blóðþyrstu lafði Macbeth lék engin önnur en Polly Hemingway, eigin- kona Marsdens, sem hann er raun- ar skilinn við á borði og sæng. l&lKAFMABÆR KARNABÆR Bamafataverslun LAUGAVEGI 5 sími620042 Laugavegi 66 sími22950

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.