Morgunblaðið - 20.01.1991, Síða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
ff’tíí ÍLA.ÚMAI. ,0S ÍIUOAQUHMU8 QIGAJaMUOHOM
M Ö RG ÚNB LAÐIÐ ~SÚ NN UDÁG U R~ 2ÖJÁNÚÁK '1991"
ERLENT
■ ■—.. i
INIMLENT
Gos hófst
1 Heklu
Gos hófst í Heklu síðdegis á
fimmtudag og kom það sérfræð-
ingum mjög á óvart enda eru
aðeins liðin tíu ár síðan hún gaus
síðast. Eldgosið í Heklu er á fimm
stöðum í fjallinu. stöðumEngin
mannvirki né fólk er talið vera í
hættu, en aska frá gosinu hefur
meðal annars borist norður til
Akureyrar og Mývatnssveitar.
Bjarminn sást víða og meðal ann-
ars í Stykkishólmi. Að sögn sér-
fræðinga var aðdragand gossins
svipaður og árið 1980.
CNN og SKY í íslensku
sjónvarpi
Stöð 2 hóf beinar útsendingar
frá gervihnattastöðinni CNN, en
fréttir stöðvarinnar fjalla um
þessar mundir að mestu um stríðið
fyrir botni Persaflóa. Ríkissjón-
varpið hóf sendingar frá bresku
sjónvarpsstöðinni SKY eftir að
reglugerð um sjónvarpsútsend-
ingar hér á landi hafði verið
breytt.
Jón Baldvin Hannibalsson til
Eystrasaltsríkjanna
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, þáði heimboð
ráðamanna í Eystrasaltsríkjunum
og hélt þangað í vikunni. Erfið-
lega gekk þó að fá vegabréfsárit-
un frá sovéskum yfirvöldum, en
um síðir fékk utanríkisráðherrra
vegabréfsáritun og hélt til Lett-
Bandarískir hermenn á orr-
ustuskipinu Wisconsin horfa á
eftir Tomahawk-eldflaug, er
skotið var á skotmark í Irak.
Stríð fjöl-
þjóðahers-
ins gegn
írökum hafið
Frelsun Kúveits hófst á mið-
nætti á miðvikudagskvöld þegar
sprengjuþotur fjölþjóðahers Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ) undir for-
ystu Bandaríkjamanna hófu loft-
árásir á Bagdad, höfuðborg íraks,
og írösk skotmörk í Kúveit. Fjöi-
margir reyndu fram á síðustu
stundu að telja íraka á að kalla-
heri sfna heim frá Kúveit, en án
árangurs.
Fjölþjóðaher hæfir-vel valin
skotmörk
Tilgangurinn með fyrstu loft-
árásunum var tvíþættur; að
tryggja algjöra yfirburði í lofti
strax á fyrstu klukkustundunum
og koma í veg fyrir að írökum
tækist að skjóta sovéskum Scud-
eldflaugum með eiturefnahleðsl-
um á ísrael. í samræmi við þetta
voru helstu skotmörkin því loft-
varnar- og ratsjárkerfi íraka, mið-
stöðvar heraflans og fjarskipta-
stöðvar, eldflaugaskotpallar,
efnavopnaverksmiðjur, kjamork-
utilraunastöðvar, flugvellir, brýr
og orkuver. Margir stuðnings-
manna Saddams Husseins íraks-
forseta í arabalöndunum voru
furðu Iostnir, fannst sem þeir
hefðu verið sviknir er fréttist um
lands ásamt sex íslenskum blaða-
mönnum.
Flautur Almannavarna fóru
ígang
Aðvörunarflautur Almanna-
varna fóru þrívegis í gang án til-
efnis. Það voru þrjár flautur sem
fóru í gang og þrátt fýrir mikla
leit hefur skýring ekki fundist.
/ Aðstoðarlæknar segja upp
Aðstoðarlæknar á sjúkrahúsum
hafa ákveðið að segja upp störfum
frá 1. febrúar og taka uppsagnir
þeirra gildi 1. apríl. Uppsagnir
þeirra ná til 110 lækna á sjúkra-
stofnunum.
Birgir ísleifur Gunnarsson
skipaður Seðlabankastjóri
Viðskiptaráðherrra skipaði
Birgi ísleif Gunnarsson alþingis-
mann seðlabankastjóra til sex ára.
Þetta er í fyrsta sinn sem banka-
stjóri Seðlabanka er skipaður til
ákveðins tíma.
Aukið eftirlit á
Keflavíkurflugvelli
Vegna stríðsástandsins við
Persafóla var eftirlit með umferð
fólks um Keflavíkurvöll mjög hert.
Aukið eftirlit er á Keflavíkur-
flugvelli.
hrakfarir íraka í loftárásunum.
Viðbrögð á Vesturlöndum vom
flest á sama veg, stríðið var harm-
að en írakar voru sagðir eiga sök-
ina á að það væri skollið á, árás
hefði verið óumflýjanleg vegna
þess að þeir hefðu ekki farið eftir
samþykktum SÞ.
írakar standa við hótanir
Áður en átök brutust út höfðu
Saddam og undirsátar hans marg-
oft lýst yflr því að írakar myndu
ráðast á ísrael létu hersveitir fjöl-
þjóðahersins við Persaflóa til
skarar skríða. Þeir stóðu við þær
yfirlýsingar því á fimmtudags-
kvöld skutu Irakar eldflaugum á
Tel Aviv, stærstu borg ísraels, og
fleiri staði í landinu. Útvarps-
stöðvar fluttu tilkynningar þar
sem fólki var fyrirskipað að setja
á sig gasgrímur og halda sig í
lokuðum herbergjum til vamar
eiturefnavopnum. Margir þjóðar-
leiðtogar hvöttu ísraela til að
hefna ekki árása íraka.
Ofbeldisaðgerðir í Litháen
Sovéskir hermenn réðust með
skriðdrekum á sjónvarpsstöðina í
Vilnius, höfuðborg Litháens, að-
faranótt sunnudagsins og lögðu
hana undir sig. 14 óbreyttir borg-
arar féllu í átökunum og a.m.k.
130 særðust. Sovétstjórnin sætti
strax harðri gagnrýni á Vestur-
löndum fyrir blóðsúthellingarnar.
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi
sagðist fyrst hafa frétt af atburð-
unum eftir á en sagðist engu að
síður styðja styðja aðgerðir hers-
ins. Hann lagði síðan til á mið-
vikudag að ritfrelsi yrði afnumið
í Sovétríkjunum.
Noregskonungur látinn
Ólafur V
Noregskon-
ungur lést úr
hjartaslagi á
fimmtudag á
88. aldursári.
Við völdum
tekur Haraldur
krónprins. Ól-
afur tók við
völdum af föður sínum Hákoni
VII árið 1957 erhann var54 ára.
Torséðu
flugvélarnar
Bandaríkjamenn hafa beitt torséðum flugvélum (Stealth) sinum með góðum árangri
slríðinu gegn írak. Vélar þessar eru þeirri náttúru gæddar, að þær sjást ekki á ratsjám.
Sérfræðingur nokkur sagði að þær væru svar flughersins við kafbátum: enginn vissi
hvar eða hvenær þær kæmu og gerðu usla. Orrusluvélin F-117A, sem þó er vel búin til
sprengjuárása, hefur átal fleti með gleiðum hornum, en enginn þessara flata er nágu
stár til þess að ratsjárgeisli hrökkvi af honum og veki þannig athygli á vélinni.
Sprengjuflugvélin B-2 treystir hins vegar frekar á ávöl horn. Báðar eru vélarnar úr
sérstöku efni, sem gleypir ratsjárgeisla.
Vélin er svo að segja flöt. Eldsneyti er í
iprengjurými er bak við
loftinntak annars
hreyfilsins.
vélina enn „ásýnilogri" er
1 vopnabúnaður hennar loknður iim i vélinni
1 /A öBu jöfnu, en i bardaga opnast lúga á
vélinni og byssur ag flugskeyti koma i Ijós.
Persaflóadeilan:
Styijöldin og nýju
„Stealth“-þotumar
SÍÐLA árs 1988 var leyndin sem hafði hvílt yfir hönnun
og smíði á torséðu sprengjuflugvélunum, „Stealth“, rofin
þegar sprengjuflugvélin B-2 var dregin út úr hergagna-
smiðjum Northrop. Samtímis því sýndu Lockheed-verk-
smiðjurnar fyrstu myndina af orrustuflugvélinni F-117A,
en hún mun hafa komið mikið við sögu í upphafi Persa-
flóastríðsins.
Nafn þessara flugvéla er dregið
af enska orðtakinu „by stealth“,
sem þýðir að gera eitthvað í laumi
eða án þess að það sjáist. Þær eru
hannaðar þannig að þær verða ekki
greindar í ratsjá. Ratsjáin sendir
frá sér útvarpsgeisla og þegar þeir
lenda á hlutum (t.d. flugvélum)
endurkasta þeir geislunum til rat-
sjárstöðvarinnar og koma fram sem
ljósir punktar á radarskjánum.
Stefna geislanna og staðsetning
ratsjárstöðvarinnar er síðan notað-
til þess að ákvarða fjarlægð flugvél-
arinnar af mikilli nákvæmni með
því að mæla tímann sem það tekur
geislann að fara fram og til baka.
Engin flugvél kemst hjá því að rad-
argeislinn lendi á henni en aðeins
„stealth“-flugvélarnar geta sleppt
því að senda hann til baka til rat-
sjárstöðvarinnar þannig að þær eru
algjörlega ósýnilegar í myrkri.
Það er lögun flugvélarinnar sem
ræður því hve miklu hún endurkast-
ar af radargeislum. Þegar radar-
geislinn lendir á réttu horni (t.d. á
samskeytum vængs og bols) kast-
ast hann til baka sömu leið og hann
kom og flugvélin kemur greinilega
í ljós á radarskjánum. Stærð flug-
vélarinnar skiptir engu í því sam-
bandi. Mjúkar línur í skrokki og
vængjum flugvélarinnar „drekka í
sig radargeislana", sem lenda á
þeim en endurkasta þeim ekki eða
þá svo dauft að flugvélin verður
„ósýnileg". B-2-flugvélin frá North-
rop er einmitt hönnuð á þennan
hátt. Hún hefur enga lóðrétta fleti
(ekkert stél) og lögun hennar
minnir helst á bjúgverpil, Vængir
og skrokkur renna saman í eitt og
eins og sjá má á meðfylgjandi mynd
eru loftinntök hreyflanna og stjórn-
klefi einna líkust ávölum ójöfnum
á efra borði vængsins.
Þegar B-2-sprengjuflugvélin var
sýnd í fyrsta sinn seint á árinu
1988 hafí henni ekki verið flogið.
Það kom síðar í ljós við reynsluflug
að hún var mjög óstöðug í loftinu
en úr því hefur verið bætt með sér-
stökum flötum í aftari brún vængj-
anna sem koma í stað hæðar- og
hallastýris. Sérstakur, flókinn
tölvubúnaður er tengdur þessu stýri
og fínstillir það í samræmi við loft-
strauminn sem leikur um vænginn.
Þessi búnaður gerir flugvélina stöð-
uga. Auk þess er flugvélinni stýrt
með því að breyta stefnu útblásturs
frá hreyflunum þannig að hægt er
að hækka eða lækka flugið og
fljúga út á hlið. Sennilega hafa
B-2-flugvélamar ekki verið mjög
áberandi í árásum fjölþjóðlega hers-
ins þar sem fjöldaframleiðsla þeirra
hófst fyrir svo skömmu en þeir sem
fylgdust með útsendingum CNN-
sjónvarpsins 15. janúar sáu þessa
vél ásamt flestum þeirra flugvéla-
tegunda sem ætlað var að taka
þátt í hemaðaraðgerðunum.
Orrustuflugvél Lockheeds
F-117A var löngum umlukin leynd-
arhjúpi. Einu opinberu upplýsing-
arnar um hana til skamms tíma var
mjög óskýr mynd sem birtist af
henni þegar bandarísk yfirvöld lyftu
slæðunni af „stealth“-áætluninni í
nóvember 1988. Hönnun hennar og
smíði fór fram löngu áður en B-2
komst á teikniborðið. Eins og sjá
má á myndinni er allt annarri tækni
beitt til þess að gera F-117A ósýni-
lega radarstöðvum en við hönnun
B-2. Hún minnir einna helst á
kúbískt málverk fremur en flugvél.
Skrokkur vélarinnar er samsettur
úr fjölda smárra flata sem mynda
gleið hom sín í milli. Þetta hefur
það í för með sér að hvergi á flug-
vélinni finnst nógu stór flötur til
þess að endurkasta rafbylgjúnum
frá radarstöðinni með nægjanjegpm
styrk auk þess sem líkumar eru
miklar á því að radarmerkið sem
fellur á tvo eða fleiri fleti dreifist
og dofni þannig að endurkastið
komi ekki fram í viðkomandi rat-
sjárstöð.
Stýri flugvélarinnar er V-laga
eins og á ýmsum hefðbundnum
flugvélum en það gerir hana stöð-
ugri en B-2 var í fyrstu. Þrátt fyr-
ir það fórust a.m.k. 3 F-117A flug-
vélar á reynslutímanum.
F-117A hefur verið í reynslu-
flugi, einkum að næturlagi, í her-
stöðinni Nellis í Nevada síðan í
október 1983.
Flest bendir til að þessari flug-
vélategund hafi verið beitt við eyði-
leggingu eldflaugaskotpallanna í
vesturhluta íraks í upphafi loft-
árásanna í Persaflóastríðinu.
AðalheimildÍR Ulustreret Videnskab.
Bandaríkin:
• •
Oryggisreglur á
fhigvöllum hertar
Flórida. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Öryggiseftirlit hefur verið hert að mun á öllum flugvöllum Banda-
ríkjanna af ótta við hermdarverk af hálfu stuðningsmanna íraka.
Getur þetta valdið nokkrum töfum og hafa flugfélög því mælst til
þess við farþega sína að þeir mæti klukkustund fyrr til brottfarar
en undir venjulegum kringumstæðum.
til þessa hefur hver sem er getað
Engum öðrum en flugfarþegum
er lengur hleypt fram fyrir vopna-
leitartæki flugstöðvanna, en fram
Albanir fresta
kosningum
Tirana. Reuter.
RÍKISSTJÓRN kommúnista í Alb-
aníu hefur samþykkt að verða við
kröfum stjórnarandstööunnar og
fresta kosningum.
Eftir fund með nýstofnuðum
stjómarandstöðuflokkum samþykkti
Ramiz Alia forseti að fresta kosning-
unum um sjö vikur til 31. mars.
Stjómarandstaðan hafði hótað að
sniðganga kosningarnar, sem halda
átti 10. febrúar.
farið að sérstökum mótttökudyrum
á nokkrum flugvöllum til að fagna
farþegum úr millilandaflugi og að
rana-hliðum til að kveðja eða fagna
farþegum í innanlandsflugi.
Hætt er móttöku farangurs í inn-
anlandsflugi á gangstéttum við dyr
allra flugstöðva og enginn má skilja
þar eftir mannlausan bíl. Hann er
þá umsvifalaust dreginn á brott.
Það er þekkt bragð skæruliða að
hlaða bíla af sprengiefni og skilja
þá eftir á fjölförnum stöðum.
Leit að sprengjum í farangri hef-
ur mjög verið hert og eru við það
verk ýmist notaðir sérþjálfaðir
hundar og/eða gegnumlýsingar-
tæki. Öll afgreiðsla flugvéla tekur
því lengri tíma en áður.