Morgunblaðið - 20.01.1991, Blaðsíða 18
18
MoMjNBLAÐÍÐ SÚNNUDÁGÚR :20. JÁÍifÖÁR 1991'
*
40 Irakar felldir
í átökum í Kúveit
Khafji. Reuter.
TALIÐ er að 40 íraskir hermenn í Kúveit hafi verið felldir
í árás á þá úr bandarískum flugvélum og þyrlum á föstu-
dag, að sögn yfirmanna landgöngusveita bandaríska flot-
ans á Persaflóasvæðinu.
Að sögn yfirmanns landgöngu-
sveitanna særðust fjórir Banda-
ríkjamenn eftir að hafa orðið fyrir
sprengjubrotum þegar íraskt stór-
skotalið skaut á bandaríska land-
gönguliða nálægt saudi-arabíska
landamærabænum Khafji. Áður
höfðu þrír Bandaríkjamenn særst
í skotbardögum við landamærin.
Tvær A-10 flugvélar bandaríska
flughersins réðust á skotmörk
íraska liðsins í Kúveit á föstudags-
morgun. Landgönguliðar sögðu að
u.þ.b. 30 írakar hefðu fallið og
byssur þeirra verið stórskemmdar.
írakar hefðu svarað skotárásum
en ekki hæft.
í annarri árás hæfðu bandarísk
Cobra-þyrluvirki íraskar sprengju-
vörpur í Kúveit með Tow-flug-
skeytum. Tvær sprengjuvörpur
voru eyðilagðar og u.þ.b. 10 írak-
ar felldir, að sögn landgönguliða.
Engum skotum var skotið að þyrl-
unum.
íraskir hermenn skutu á land-
gönguliða sem voru á eftirlitsferð
nálægt landamærum Kúveit. Þeir
hörfuðu án þess að skjóta til baka
og enginn særðist. Irakar eyði-
lögðu olíutanka og vatnshreinsun-
arstöð nálægt Khafji í stór-
skotahríð.
Franskar Jagúar-þotur gerðu
sprengjuárás á hergagnageymslur
íraka um 30 km fyrir sunnan
Kúveitborg snemma í gærmorgun,
annan daginn í röð. Franska varn-
armálaráðuneytið tilkynnti að 12
Jagúar-þotur hefðu varpað
Palest-
ínumenn
hvattir
til
Nikósíu. Reuter.
FORINGI palestínskrar hryðju-
verkahreyfingar, sem stóð fyrir
árás á ítalskt farþegaskip árið
1985, skoraði í gær á Palestínu-
menn á hernumdu svæðunum í
Israel að ráðast gegn öllu, sem
tengdist hagsmunum Banda-
ríkjamanna og bandamanna
þeirra.
Áskorun Abus Abbas, foringja
PLF-hreyfingarinnar, sem írakar
styðja, var flutt í Bagdadútvarpinu
en þar voru Palestínumenn í Israel
hvattir til að grípa til vopna gegn
bandamönnum.
„Iraskar eldflaugar lentu á Tel
Aviv í dag og á morgun mun fylk-
ing hinna trúuðu ná til Jerúsalem,
höfuðborgar Palestínu, og frelsa
hana úr klóm zíonismans. Þá mun
aftur ríkja friður um allan heim,“
ságði í ásköfúninniT” ‘
árása
sprengjum á geymsluna og
þvínæst snúið heilu og höldnu til
bækistöðva sinna.
Bagdad illa leikin
Reuter
Loftárásir fjölþjóðahersins á skotmörk í Bagdad
hafa einkennst af því að nákvæmni flugmannanna
er með ólíkindum. Einstakar byggingar sem gegna
mikilvægu hernaðarhlutverki hafa verið lagðar í
rúst en íbúðarhverfi hafa að mestu leyti sloppið við
skemmdir. Taugaálag á íbúana er þó mikið, raf-
magnsleysi veldur óþægindum og verslanir hafa
verið lokaðar frá því stríðið hófst. Þetta hús í mið-
borginni stórskemmdist fyrstu árásarnóttina en ekki
er vitað hvaða starfsemi fór þar fram.
Stanslausar næt-
urárásir á Bagdad
Iraksstjórn biður erlenda fréttamenn að yfirgefa landið
London. Reuter, Daily 'lelegraph.
FJOLDA Tomahawk-stýriflauga var skotið á hernaðarlega
mikilvæg skotmörk íraka í gær auk þess sem fylkingar
flugvéla fjölþjóðlega herliðsins gerðu stanslausar árásir.
Að sögn breskra fréttamanna var gerð hröð hríð að höfuð-
borg Iraks, Bagdad, sl. nótt. Líklegt er að B-52 sprengju-
flugvélum hafi verið beitt í
,Ég sé líka að verið er að gera
mikla eldflaugaárás á það sem fjöl-
þjóðaherliðið kallar mikilvæg hern-
aðarskotmörk," sagði Brent Sadler,
fréttamaður bresku sjónvarpsstöðv-
arinnar ITN. Hann sagðist telja að
eínhverjar árásanna hefðu verið
gerðar af B-52 sprengjuflugvélum
en skýrði ekki frá því hvaða tjóni
árásirnar hefðu valdið í borginni.
Þess skal getið að írösk stjórnvöld
sumum arasunum.
hófu fljótlega að ritskoða allar frétt-
ir af atburðunum og einnig hefur
eftirlit með fréttaflutningi verið
hert af hálfu andstæðinga þeirra.
John Simpson, fréttamaður breska
útvarpsins BBC í Bagdad, skýrði
svo frá því í gærmorgun að þarlend
stjórnvöld hefðu beðið alla erlenda
fréttamenn að yfirgefa landið um
hríð en þeir mættu skilja eftir bún-
að sinn. Sagt hefði verið að aðeins
TILRAUNASTOÐVAR
LÍFEFNAVOPNA
SÝRLAND SAMARRA ÍRAN
ÍRAK MLMAN PAK
SAUDj- *
ARABIA x.
0 300 KÚVEITV
km
SPERÐILSYKI
Orverueitur
Bróðsmilondi matoreitrun, sem
veldur uppköstum, niöurgangi,
sjóntruflunum og lömun.
Til eru 43 lífefnavopn í fimm flokkum:
veirur, dreifkjörnungar, sveppir, aerlar, og
örverueitur. Njójn hefur borist afþví til
Vesturlanda ao Irakar vinni að framleiðslu
miltisbrands, taugaveiki, kóleru,
sperðilsýkils og sveppaeifur.
SVEPPAEITRUN
Sveppir
fómorlöm smitosl við oó ondo
TAUGAVEIKI oó sér gróom, en s(úkdóms-
DMjmuw einkenni eru öndunorerfið-
Sýking i meltingorvegi ósomt Ll'litMÍIgM-
sótthita, bólgu í eitlum og milta,
þarmasórum og dílum ó húð.
MILTISBRANDUR
Cerlar
Gró myndost í HóS, lungum og þörmum og
smltost menn í gegh um sór, rofnö húð eðo
, meó þvi oð ondo oó sér sýklu ryki.
KOLERA
Veirur
Sýking í meltingorvegi og hrott og mikið
vökvotoþ leggjo fórnorlömb of veUl.
yrðu nokkra daga að ræða og gætu
fréttamennirnir farið til Amman í
Jórdaníu. Talsmaður yfirvalda hefði
tekið fram að ástæðan væri ekki
óánægja með störf fréttamannanna
heldur væru „aðstæður ekki nógu
góðar.“
Stýriflaugum var skotið frá
bandarískum orrustuskipum á norð-
urhluta Persaflóa snemma dags í
gær að sögn fréttamanns ITN, Mic-
haels Nicholsons, sem er um borð
í breska tundurspillinum Gloucest-
er. Hann sagði að orrustu- og
sprengjuþotur með bækistöðvar í
Saudi-Arabíu og frá bandarískum
flugvélamóðurskipum hefðu gert
fjölmargar árásir á skotmörk í Irak
og Kúveit. „Ratsjárskjáirnir í
stjórnstöð skipsins eru þaktar depl-
um þegar flugsveitrnar fara yfir
okkur á leið til íraks,“ sagði hann.
Hann taldi þó að árásirnar hefðu
ekki verið jafn ákafar og fyrstu
styijaldarnóttina. „Þetta er ekki
eins og múrbrjótur, árásirnar munu
fremur beinast að nákvæmlega skil-
greindum skotmörkum," hafði Nic-
holson eftir háttsettum foringja á
skipinu. Hann sagði að eitt af skot-
mörkunum yrði með vissu herflug-
völlurinn við Shuaiba í norð-austur-
hluta Iraks en þar er talið að stjórn
Saddams Husseins eigi enn all-
margar MiG- og Mirageþotur.
Blaðið Daily Telegraph skýrir frá
því að breskar Tornado-F3 orrustu-
þotur hafi á föstudag hrakið á brott
íraskar orrustuþotur yfir Kúveit
sem ráðist höfðu gegn bandarískum
A-10 þotum. Þær eru sérhannaðar
til árása á skriðdreka en seinfærar
og geta lítt varið sig í loftbardög-
um. Bresku þoturnar urðu að snúa
við vegna eldsneytisskorts áður en
þær náðu að granda írösku þotun-
um. Ekki er vitað hvaðan írösku
þoturnar komu en atburðurinn sýn-
ir glöggt að írakar hafa enn ein-
hveijar flugvélar til taks þrátt fyrir
gífurlegar árásir á stöðvar þeirra.
Tekist hefur að gera flesta herflug-
velli Iraka ónothæfa en vitað var
að hluti flugflotans var geymdur í
traustum neðanjarðarbyrgjum.
Mjög langan tíma tekur að eyði-
leggja flugbrautir írösku herflug-
vallanna vegna þess hve langar og
breiðar þær eru. Aul þess geta her-
þotur notað breiða þjóðvegi sem
flugbrautir.
Tundurdufl íraka, sem sum hafa
losnað frá festingum sínum við
strendur Kúveits, ógna herskipum
á flóanum. Nichoison sagði að ár-
vökull skipveiji hefði á síðustu
stundu komið í veg fyrir að Glouc-
ester yrði fyrir dufli sem minnstu
munaði að lenti á bakborðssíðu
skipsins. Bandarísk sprengjusveit
sá síðan um að eyða duflinu.
Irakar loka flótta-
leiðinni til Irans
Nikosíu. Reuter.
ÍRÖNSK stjórnvöld skýrðu frá því í gær, laugardag, að írakar væru
farnir að meina fólki að flýja yfir landamærin til Irans.
íranska fréttastofan IRNA sagði
að íraskir borgarar væru hættir að
koma til íranska landamærabæjar-
ins Khosravi, um 160 km norðaust-
ur af Bagdad. „Embættismenn í
Khosravi telja að íraskir landa-
mæraverðir leggi nú áherslu á að
írakar flýi ekki landið,“ sagði
IRNA.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna í Genf skýrðu frá því á föstu-
dag að 8.000 írakar hefðu farið
yfir landamærin til írans. Jafn
margir Egyptar hefðu komið til
Jórdaníu, en miklu færri flúið stríðið
en búist hefði verið við.