Morgunblaðið - 20.01.1991, Page 23
ATVINNURAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
Prentsmiður
Óskum að ráða til starfa, sem fyrst, prent-
smið með góða reynslu.
Upplýsingar í síma 622100 og á kvöldin í
síma 39892 (Sveinn).
Prentsmiðjan Rún hf.,
Brautarholti 6.
Forstjóri
Eitt stærsta og öflugasta byggingafyrirtæki
á landinu óskar eftir að ráða forStjóra.
Fyrirtækið starfar á höfuðborgarsvæðinu og
veltir yfir hálfum milljarði á ári.
Leitað er eftir metnaðarfullum manni með
staðgóða þekkingu á fjármálum og stjórnun.
Æskilegt er að viðkomandi gerist eignaraðili
að fyrirtækinu og geti hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir aðilar leggi inn umsókn á auglýs-
ingadeild Mbl., merkta: „Forstjóri - 91 “, fyr-
ir fimmtudaginn 24/1 '91.
Fullum trúnaði heitið.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast
til starfa á barnadeild Landakotsspítala.
Deildin er blönduð lyflækninga- og hand-
lækningadeild með 26 legurými. Hjúkrunin
er hóp- og einstaklingsmiðuð. Boðið er uppá
3ja mánaða starfsaðlögun! Lögð er áhersla
á símenntun með skipulagðri fræðslustarf-
semi á vegum deildarinnar.
Nánari upplýsingar veittar hjá hjúkrunarde-
ildarstjóra í síma 604326.
Skurðhjúkrunarfræðinga eða hjúkrunarfræð-
inga, sem hafa áhuga á skurðhjúkrun, vantar
á augnskurðdeild og á almenna skurðdeild.
Staða aðstoðardeildarstjóra á augnskurð-
deild er einnig laus til umsóknar, en á þeirri
deild er unnið eftir „peri operativu" ferli.
Boðið er upp á þriggja mánaða aðlögun-
artíma, sem felur í sér kennslu og þjálfun.
Nánari upplýsingar gefur Edda Hjaltested,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 604300.
Fóstrur óskast á dagheimilið Öldukot á 1-3
ára deild nú þegár eða eftir nánara sam-
komulagi.
Aðstoðarmenn óskast einnig á Öldukot nú
þegar í 60% stöður í eldhús og til afleysinga.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Steinunn
Bragadóttir, forstöðumaður, í síma 604365
milli kl. 10.00-14.00.
St. Jósefsspítali, Landakoti,
21. janúar 1991.
Kennarar
íslenskukennara vantar við Gagnfræðaskól-
ann á Selfossi vegna forfalla. Ennfremur
vantar kennara í stuðningskennslu.
Upplýsingar veitir skólastjóri í símum
98-21256 og 98-21273. og yfirkennari í
símum 98-21970 og 98-21765.
Skótastjóri.
Sölumaður
- rafvirki
Effco - heildverslun óskar eftir sölumanni í
rafbúnaðardeild. Um er að ræða sölu og
ráðgjöf, meðal annars vegna tengingarefnis
(herpiefnis) fyrir háspennu- og lágspennu-
strengi. Þekking á notkun herpiefnis og teng-
ingar á strengjum æskileg. Enskukunnátta
nauðsynleg. Framtíðarstarf.
Reyklaus vinnustaður.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
22. janúar 1991 merktar: „N - 8636“.
Skólastjóri
Skákskóli íslands er að hefja starfsemi sína,
en skólinn mun starfa á vegum Skáksam-
bands íslands með styrk frá menntamála-
ráðuneytinu sbr. nýsett lög þar um.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um stöðu
skólastjóra nefnds skóla. Tekið skal fram að
í fyrstu verður um hlutastarf að ræða.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1991.
Umsóknum skal skila til Skáksambands ís-
lands, pósthólf 8354, 128 Reykjavík.
Stjórn Skákskóla íslands.
Frá menntamálaráðuneytinu
Laus staða
Við Raunvísindastofnun Háskólans er laus
til umsóknar rannsóknastaða við reiknifræði-
stofu sem veitt er til 1-3ja ára.
Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1.
mars nk. Fastráðning kemur til greina.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi
eða tilsvarandi háskólanámi og starfa minnst
eitt ár við rannsóknir.
Starfsmaðurinn verður ráðinn til rannsókna-
starfa, en kennsla hans við Háskóla íslands
er háð samkomulagi milli deildarráðs raun-
vísindadeildar og stjórnar Raunvísindastofn-
unar Háskólans og skal þá m.a. ákveðið
hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu
viðkomandi starfsmanns.
Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og
skilríkjum um menntun og vísindaleg störf,
auk ítarlegrar lýsingar á fyrirhuguðum rann-
sóknum, skulu hafa borist menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
15. febrúar nk.
Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnir frá
1-3 dómbærum mönnum á vísindasviði um-
sækjanda um menntun hans og vísindaleg
störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu
umslagi sem trúnaðarmál og má senda þær
beint til menntamálaráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið,
18. janúar 1991.
BORGARSPÍmiNN
Slysa- og sjúkravakt - gæsludeild
Á slysa- og sjúkravakt - gæsludeild eru nú
lausar stöður:
a) Aðstoðardeildarstjóra.
b) Hjúkrunarfræðinga.
í boði er m.a. 6 vikna einstaklingshæfð aðlög-
un, sem byggist á tilsögn, sýnikennslu, um-
ræðum, skipulögðu lesefni, lestíma og vinnu
á deild.
Starfsemi deildarinnar einkennist af því að
veita öllu landinu bráðaþjónustu 24 klst. á
sólarhring allt árið um kring. Hjúkrunarfræð-
ingar deildarinnar þurfa því að búa yfir þekk-
ingu og hæfni til að tryggja sem besta þjón-
ustu.
Til að gefa nýráðnum hjúkrunarfærðingum
möguleika á að auka þekkingu sína og hæfni,
er fyrirhugað 70 stunda námskeið í hjúkrun
bráðveikra og slasaðra sjúklinga. Á nám-
skeiðinu, sem fyrirhugað er næsta haust,
verður m.a. lögð áhersla á:
- Hlutverk hjúkrunarfræðinga á slysa- og
sjúkravakt.
- Mat á ástandi sjúklinga.
- Fyrstu meðferð og hjúkrun bráðveikra og
slasaðra sjúklinga.
- Sárameðferð.
Æskilegt er að þeir, sem sækja námskeiðið
hafi a.m.k. 3ja mánaða starfsreynslu á deild-
inni.
Upplýsingar veita: Svanlaug Inga Skúladótt-
ir, deildarstjóri, í síma 696650, og Erna Ein-
arsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
696356.
Gjörgæsludeild
Starfsmann í 50% starf vantar í ræstingu
og býtibúr. Vinnutími kl. 7.30-15.30 og
11.00-19.00.
Sjúkraliða vantar til starfa frá 1. febrúar.
Starfsemin á gjörgæsludeild mótast af því
hlutverki spítalans að vera aðal slysa- og
bráðasjúkrahús landsins.
Upplýsingar gefur Margrét Björnsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 696354.
Röntgendeild
Starfsmaður óskast í frágang hjá læknariturum.
Upplýsingar gefur Steinunn Anna í síma
696434.