Morgunblaðið - 20.01.1991, Qupperneq 29
leer ha jhal .02
' -MDKGUNBLADIÐ
ATVINNA/RAD/SMÁ
•hsmimíV' IM GiaAJavuoHOM
SUNNUDAtíUir 20: JA'NÚAR 1991 -
29
jgg , '
Hm ■í ''' 3
A UGL YSINGAR
t
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu
Til leigu á Smiðjuvegi 6, Kópavogi, 790 fm
verslunarhúsnæði. Um er að ræða helming
jarðhæðar í Skeifuhúsinu. Möguleikar á að
skrifta húsnæðinu í smærri einingar.
Upplýsingar gefur Magnús Jóhannsson, sími
31177.
Arkitektar - verkfræðingar
Höfum til leigu mjög heppilegt húsnæði fyrir
teiknistofur á góðum stað í borginni. Góð
bílastæði. Ýmsar stærðir í boði: 25 mz, 40
m2, 50 m2, 75 m2, 100 m2, 140 m2.
Áhugasamir sendi upplýsingar um sig til
auglýsingadeildar Mbl., merktar: „H - 6822“.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu er glæsilegt skrifstofuhúsnæði á 2.
hæð í Hafnarstræti 5, Reykjavík.
Upplýsingar í símum 10621 og 627050.
Iðnaðar- og skrifstofu-
húsnæði óskast keypt
Fjársterkur aðili óskar eftir 4-500 mz iðnað-
ar- og skrifstofuhúsnæði í Reykjavík.
Lysthafendur vinsamlegast sendið inn uppl.
á auglýsingadeild Mbl., merktar: „I - 6805“.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu, rúm-
lega 330 fm. Húsnæðið er í góðu ásigkomu-
lagi. Skipting möguleg.
Upplýsingar í símum 12350 og 35378.
Félagasamtök
óska eftir húsnæði til leigu miðsvæðis í
Reykjavík. Æskileg stærdum 100 fermetrar.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl., merkt:
„F - 6817“, fyrir sunnudaginn 27. janúar.
Iðnaðarhúsnæði til leigu
Til leigu nýlegt iðnaðarhúsnæði í Hafnar-
firði, 220 fm. Góð lofthæð og háar innkeyrslu-
dyr.
Upplýsingar í símum 54033 og 656490.
HÚSNÆÐI í BOÐI
Teiknistofa - aðstaða
Til leigu er aðstaða á teiknistofu fyrir hönn-
uð, arkitekt eða verkfræðing. Öll aðstaða
fyrir hendi, svo sem fundarherbergi, kaffi-
stofa, tölva með ritvinnslu, fax o.fl.
Farið verður með allar fyrirspurnir sem trún-
aðarmál.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „T - 12591“.
íbúð óskast
Asiaco hf. óskar eftir 3ja herb. íbúð til leigu
í Vesturborginni eða á Seltjarnarnesi frá 1.
febrúar fyrir starfsmann fyrirtækisins.
Upplýsingar í síma 26733 í vinnutíma, en
, 73969 utan vinnu. Öruggar mánaðargreiðslur.
Framhaldsskólakennarar
Styrkurtil sumarnáms
Fulbrightstofnunin mun styrkja framhalds-
skólakennara til að taka þátt í námskeiði í
bandarískum fræðum (American Studies) í
júlí og ágúst nk.
Um er að ræða fjögurra vikna námskeið við
háskóla í Bandaríkjunum, og síðan tveggja
vikna ferðalag um landið. Þátttakendur geta
ekki haft fjölskyldumeðlimi með sér.
Umsóknarfrestur er til 18. febrúar.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar
liggja frammi hjá Fulbrightstofnuninni,
Laugaveg 59, sími 10860.
Tilkynning
Vegagerð ríkisins fyrirhugar að halda ráð-
stefnu um vetrarþjónustu um miðjan mars nk.
Þeir sölu- og umboðsaðilar, sem áhuga hafa
á að kynna vélar og tæki til snjómoksturs
og hálkueyðingar og annan búnað, sem við
kemur snjóhreinsun, vinsamlegast hafi sam-
band við véladeild Vegagerðar ríkisins fyrir
29. janúar nk., sími 91-21000.
Vegamálastjóri.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Einbýlishús óskast
Óska eftir að taka á leigu einbýlishús eða
raðhús í Reykjavík. Traustur leigutaki.
Vinsamlegast hringið í síma 687063 eða
676056.
BÁTAR — SKIP
Þorskhrogn
Við viljum kaupa þorskhrogn alls staðar að
af landinu. Sækjum hrognin að skipshlið.
Hátt verð. Örugg greiðsla.
Vinsamlegast hafið samband við okkur í síma
91-679660.
BHM-félagar
Byggingarframkvæmdir á Snorrabraut 56 eru
hafnar. Félagar, sem eiga fráteknar íbúðir,
og þeir, sem áhuga hafa á kaupum, hafið
samband við undirritaða vegna frágangs á
kaupum.
BHM, Fasteignaþjónustan,
Lágmúia 7, Austurstræti 17,
108 Reykjavík, 101 Reykjavík,
Sigmundur Stefánsson, Þröstur Karlsson,
s. 91-82112 s. 26600,
h. 91-667242.
Símaþjónusta fyrir
tieyrnaskerta
Upplýsingadeild Tryggingastofnunar hefur
tekið í notkun textasíma.
Sfmanúmerið er 91-60 45 47.
Ötgerðarmenn - skipstjórar
Viljum taka báta í föst viðskipti. Við munum
greiða gott meðalverð fyrir eftirfarandi fisk-
tegundir:
Kola - þorsk - ýsu - ufsa.
Höfum áhuga á að taka báta í viðskipti alls-
staðar að af landinu.
Vinsamlegast hafið samband við okkur í síma
91-679660.
Til sölu
vélbáturinn Fiskines SU-65, sem er 8,68 brl.
fiskibátur, smíðaður á Skagaströnd 1978.
Báturinn selst með 15 tonna þorsksígildis-
kvóta. Verð tilboð.
Hraðfrystihús Breiðdæiinga hf.
Símar 97-56639 og 97-56689.
Fiskiskiptil sölu
271 rúmlesta fiskiskip, byggt 1982. Skipið
er með frystilest, rækjuvinnsluvélum og vel
útbúið til línuveiða.
Fiskiskip-skipásala,
Hafnarhvoli v/Tryggvagötu, 3. hæð,
sími 91-22475.
Skarphéðinn Bjarnason, söiustjóri,
Gunnar I. Hafsteinsson, hdl.,
Magnús Helgi Árnason, hdl.
TIIKYNNINGAR
áB% BESSASTAÐAHREPPUR
—■ n i SKRIFSTOFA, BJARNASTÖÐUM SÍMI: 51950
221 BESSASTAÐAHREPPUR
Félagslegar íbúðir
Umsóknareyðublöð um félagslegar íbúðir eru
fáanleg á skrifstofu Bessastaðahrepþs.
Sveitarstjóri Bessastaðahrepps.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINSq?
©
Frá Menntamáiaráðuneytinu
Styrkir til námsí
Hollandi, Noregi og
Sovétríkjunum
1. Hollensk stjórnvöld bjóða fram styrk
handa íslendingi til háskólanáms í Hol-
landi skólaárið 1991-92. Styrkurinn er
einkum ætlaður stúdent, sem kominn er
nokkuð áleiðis í háskólanámi eða kandíd-
at til framhaldsnáms. Nám í listaháskóla
eða tónlistarskóla er styrkhæft til jafns
við almennt háskólanám. Styrkfjárhæðin
er 1130 gyllini á mánuði í 10 mánuði.
2. Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau
bjóði fram í löndum, sem aðild eiga að
Evrópuráðinu, fimm styrki til framhalds-
_ náms við háskóla í Noregi skólaárið
1991-92. Ekki er vitað fyrirfram, hvort
einhver þessara styrkja muni koma í hlut
íslendinga.
3. Sovésk stjórnvöld munu væntanlega veita
einum íslendingi skólavist og styrk til
háskólanáms í Sovétríkjunum háskólaárið
1991-92.
Umsóknum um styrki til náms í Hollandi og
Sovétríkjunum skal komið til menntamála-
ráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, fyrir 15. febrúar nk. og fylgi stað-
fest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.
Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Umsóknir um styrki til náms í Noregi skulu
sendar til:‘ Norges allmennvitenskapelige
forskningsrád, Sandakerveien 99, N-0483
Oslo 4, fyrir 1. mars nk., og lætur sú stofnun
í té umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar.
Menntamálaráðuneytið,
18. janúar 1991.