Morgunblaðið - 22.01.1991, Side 31

Morgunblaðið - 22.01.1991, Side 31
Mé'KtíuMÉÁÖÍB ■-MÍÐáUDÁÖÖK2á2í,JX&fJÖi' TSOT’V 3* Gjögurtá: Leitað að sjómanni frá því á sunnudag LEIT hefur staðið yfír að rúmlega þrítugum sjómanni frá Grenivík frá því á sunnudag, en farið var að grennslast fyrir um manninn er hann hafði ekki haft samband við tilkynningarskyldu kl. 13.30 á sunnudag. Maðurinn fór tU sjós laust fyrir kl. 5 þá um morguninn á fimm tonna plastbáti, Eyfelli EA. Menn um borð í Kópi EA frá Grenivík komu auga á bátinn þar sem hann hafði strandað rétt inn- an við Gjögurtáarvita og voru björgunarsveitir frá Ólafsfirði, Hrísey og Grenivík þá strax kallaðar út. Illa viðraði til leitar í gær og voru 12 vindstig á leitarsvæðinu þegar veðrið var verst, þannig að þyrla Landhelgisgæslunnar sem var á Akureyri komst ekki til leitar né heldur björgunarsveitir frá Grenivík og Hrísey. Björgiinarsveitir frá Ólafsvík, með landinu. Björgunarbátur Hrísey og Grenivík voru kallaðar fannst í Keflavík, sem er næsta vík út eftir að báturinn hafði fundist mannlaus í ijörunni við Gjögur- táarvita kl. 16.35 á sunnudag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var í sjúkra- flugi yfir Eyjafirði á þessum tíma, en hún var einnig kölluð út vegna leitarinnar. Læknir þyrlunnar seig niður að bátnum, sem var mikið brotinn, en engin ummerki sáust um mannaferðir. Leitað var á svæð- inu og norður fyrir vitann og austur Kópur EA finnur trilluna mannlausa viö Gjögurtá kl. 16.35 á sunnudag. austan við vitann, í um eins kíló- metra fjarlægð frá honum. Þá var einnig leitað með landinu inn með Eyjafirði _að austanverðu, en það bar engan árangur.' Björgunarsveitum gekk illa að athafna sig á sjó og ekki var hægt að fara í land vegna brims undir kvöldið. Leit var hætt um miðnætti á sunnudag. Þyrlan fór til Akur- eyrar, en ákveðið var að senda kunnuga menn frá Grenivík með henni til Keflavíkur og leita betur á því svæði. Fjórir félagar úr björg- unarsveitinni Ægi á Grenivík voru um nóttina -í Keflavík, en þeir fóru aftur yfir svæðið frá Keflavík og að vitanum. Þá var einnig farið yfir svæðið í birtu i gærmorgun. Mjög slæmt veður var á leitar- svæðinu í gærmorgun, þannig að ekki var talið ráðlegt að senda björgunarsveitir frá Hrísey og Grenivík af stað til leitar, en 200 tonna bátur frá Ólafsfirði fór með menn þaðan, en þeir leituðu á svæð- inu í allan gærdag. Farið var inn að Þorgeirsfirði og einnig fyrir Gjögurtána og inn með landi Eyja- fjarðarmegin. Vegna veðurofsans komst þyrian ekki til leitar í gær. Glerárdalur: Tveir menn slösuðust 1 árekstri tveggja vélsleða TVEIR ungir menn slösuðust er vélsleðar sem þeir óku skullu saman á Glerárdal á sunnudag. Þeir voru fluttir í Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, en meiðsli þeirra reyndust minni en á horfðist í fyrstu. Piltamir voru á vélsleðum ásamt fleirum skammt ofan við Lambaskála Ferðafélags Akur- eyrar er slysið varð. Sá er á undan ók hægði ferðina og hinn seinni ók aftan á sleðann. Mennirnir þeyttust af sleðunum og missti annar þeirra meðvitund. Hjálparsveit skákta var kölluð út og fóru félagar úr sveitinni strax af stað ásamt lækni. Þyria Landhelgisgæslunnar var kölluð út, en í fyrstu leit illa út varðandi meiðsl piltanna. Þeir voru fluttir í Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri, þar sem gert var að sárum þeirra, en þeir reyndust minna slasaðir en talið var í fyrstu. Þrír menn á sjúkrahús eftir bílveltu ÞRÍR voru fluttir í Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri eftir bílveltu aðfaranótt sunnudags. Tilkynnt var um slysið til lög- reglu skömmu eftir miðnætti að- faranótt sunnudags, en fólksbíll hafði oltið skammt frá bænum Hofí í Arnarneshreppi. Þrír voru í bílnum og voru allir fluttir í sjúkra- hús, en meiðsl þeirra voru ekki telj- andi, að sögn lögreglu. Mikil hálka var á veginum. Bifreiðin skemmdist mikið. Morgunblaðið/Rúnar Þór Pollurinn var hvítfyssandi og gekk sjórinn yfir Hjaiteyrina EA-310 sem lá við Eimskipafélagsbryggj- una. Gerð var tiiraun til að færa skipið en það reyndist ófært vegna veðurofsans. Nokkurt tjón varð í ofsaveðri á Akureyri NOKKURT tjón varð á Akureyri i gær í kjölfar hvassviðris en vindhraðinn mældist 68 hnútar eða 12 vindstig á mælum við lög- reglustöðina við Þórunnarstræti. A Akureyrarflugvelli mældist vindhraðinn enn meiri eða 105 hnútar í verstu hrinunum. Bílar fuku og skullu saman, þakplötur fuku af húsum og skorsteirm féll af þaki niður á bíl við Hafnar- stræti með þeim afleiðingum að bíllinn skemmdist töluvert. Einn- ig var tilkynnt um vatnsskemmd- ir í einu húsi. Veðrið var verst snemma í gær- morgun, en byijað var að kalla út lögreglu skömmu fyrir kl. 8. Skor- steinn sem hlaðinn var úr múrstein- um féll niður af húsinu númer 88 við Hafnarstræti og lenti á bifreið sem lagt hafði verið við húsið. Bíllinn skemmdist töluvert. Þak- plötur í fjölbýlishúss við Skarðshlíð 14-18 fuku í hvassviðrinu og var götum í nágrenninu lokað tíma- bundið fyrir umfl;rð. Plötur fuku einnig af húsum í Innbænum, við Hafnarstræti og Aðalstræti. Við Furulund fauk plata af svöl- um niður á bíl og skemmdi hann nokkuð, en alls var tilkynnt tjón á fímm bifreiðum þar sem lausamun- ir höfðu fokið á þær og ollið skemmdum. Einnig var tilkynnt að bílar hefðu ýmist fokið út af vegi eða skollið saman á bílastæðum. Vatnskemmdir urðu í kjallarann húss númer 18 Hafnarstræti, en þar komst vatn inn í kjallara og var um 25 sentimetra hátt. Þarna er trésmíðaverkstæði og urðu nokkrar skemmdir á vélum. Lögregla á Akureyri aðstoðaði gangandi vegfarendur, en fólki gekk afar erfiðlega að fóta sig í hvassviðrinu. Skólum var víða af- lýst á Akureyri og í Eyjafirði, en Járn var byrjað að fjúka af þaki þessa húss við Hafnarstræti. þar sem svo var ekki voru foreldrar beðnir að sækja börn sín í skólana. Að sögn lögreglu á Dalvík fauk bíll út af við Hrísmóa, en engin slys urðu á fólki né skemmdir á bifreið. Þá fauk hluti af hesthúshlöðuþaki við bæinn Kálfskinn í Árskógs- hreppi. Hávaða rok var í Ólafsfirði að sögn lögreglu og fjörðurinn hvít- fyssandi. Þar var veðrið verst á tímabilinu frá kl. 10 til 12, en hafði gengið niður síðdegis. Þakplötur fuku af fjölbýlishúsi við Skarðshlíð og varð að loka götum í nágrenninu t.ímabundið í gærmorgun á meðan plöturegnið stóð yfir. Menri voru fljótlega komnir á vettvang til að hemja plöturnar. SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL... LOM Söluskrifstofur Flugleiöa: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir í sima 6 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugíeiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum HELGARFERÐ FÖSTUDAGUR TIL MÁWUDAGS ROYAL WESTMINSTER TVEIRÍHERB. KR. 37.140 ÁMANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alia leið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.