Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 2
fððr ;íaom/.i a,u&Aauutia<i -jiaí.uuíUQflo: MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991 Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavík: Formaður og varafor- maður í 1. og 2. sæti FRESTUR til þess að tilkynna framboð í prófkjöri Alþýðu- , flokksins vegna alþingiskosninga í vor rann út á miðnætti síðast- liðnu, en þá höfðu 13 frambjóð- endur skilað inn framboðstil- kynningu. Jón Baldvin Hanni- balsson, formaður Alþýðuflokks- ins, býður sig fram í 1. sætið og Jóhanna Sigurðardóttir, vara- formaður Alþýðuflokksins, býð- ur sig fram í 2. sætið. Jóhanna skilaði ekki tilkynning- unni um framboð sitt fyiT en sjö mínútum fyrir miðnætti í gær- kveldi. Þess hafði verið beðið af eftirvæntingu, þar sem ekki lá fyrir hvort Jóhanna hygðist bjóða sig fram í 1.-2. sætið, eða einungis 2. sætið, fyiT en hún hefði skilað inn framboði sínu. Prófkjörið fer fram 2. og 3. fe- brúar næstkomandi og verður kosið á fjórum stöðum í Reykjavfk. Samkvæmt upplýsingum skrif- stofu Alþýðuflokksins í Reykjavík hafa eftirtaldir tilkynnt framboð sitt: Birgir Ámason í 3.-6. sæti, Guðmundur Haraldsson í 3.-6. sæti, Gunnar Ingi Gunnarsson í 3.-6. sæti, Helgi Daníelsson í 3.-6.sæti, •Jóhanna Sigurðardóttir í 2. sæti, Jón Baldvin Hannibalsson í 1. sæti, Jón Ármann Héðinsson í 1.-4. sæti, Magnús Jónsson í 1.-6. sæti, Ragn- heiður Davíðsdóttir í 3.-5. sæti, Valgerður Gunnarsdóttir í 3.-6. sæti, Þorlákur Helgason í 1.-3. sæti, Þröstur Ólafsson í 3.-4. sæti og Össur Skarphéðinsson í 3.-6. sæti. Landsbanki og Islandsbanki: Hækkun á inn- lánsvöxtum LANDSBANKI íslands og ís- landsbanki hækkuðu í gær nafn- vexti af innlánum. Þannig hækk- uðu vextir af sértékkareikning- um og almennum sparisjóðsbók- um hjá Landsbanka úr 3,5% í 5%. Islandsbanki hækkaði vexti af sömu reikningum úr 3% i 3,5%. Nafnvextir af Kjörbók Lands- bankans hækkuðu úr 9% í 10,5%. Þá hækkuðu vextir Sparileiða ís- landsbanka um 2-3% og em nú á bilinu 9,5-13%. Með þessum vaxta- breytingum er leitast við að ná jafn- vægi milli óverðtryggðra og verð- tryggðra kjara af innlánum bank- anna. Alþýðubandalagið: Staðfest bil milli flokks o g verkalýðs- hreyfingarinnar — segir Guðmundur Þ. Jónsson Guðmundur Þ. Jónsson for- mundsson efnahagsráðgjafí maður Iðju segir að bil hafi stað- fests milli verkalýðshreyfingar- innar og Alþýðubandalagsins í forvali flokksins í Reykjavík um helgina. Guðmundur hafnaði í 4. sæti en sóttist eftir 2. sætinu. Guðmundur sagði að framboð hans hefði gengið út á að treysta samband verkalýðshreyfíngar og Alþýðubandalagsins og tryggja að maður úr verkalýðshreyfíngunni væri í þingflokknum, eins og lengst af var fram til ársins 1987 og sem sat þá gjaman í 2. sæti listans í Reykjavík. „Það er mjög slæmt mál að ekki virðist lengur ver'a pláss ríkis- stjómarinnar varð í 5. sæti. Sjá nánar um forvalið á bls. 18. Morgunblaðið/Þorkell Samningamenn lækna og hins opinbera fá sér vínarbrauð og kleinur í upphafi samningafundar í gær. Sérfræðingar sinna aðeins bráðaþjónustu: Biðlistar eftir læknis- meðferð munu lengjast Samningafundur í gær, en lítil bjartsýni SÉRFRÆÐINGAR á sjúkrahús- unum í Reykjavík hafa ákveðið að hætta að ganga í störf aðstoð- arlækna nema I bráðatilfellum. Þetta mun valda því að biðlistar eftir aðgerðum, sem ekki teljast til bráðatilfella, geta lengzt til muna á næstu vikum, náist ekki samningar í kjaradeilu læknafé- laganna og opinberra aðila um greiðslu fyrir yfirvinnu aðstoð- arlækna. Samninganefnd læknafélaganna og samninganefnd ríkisins og Reykjavíkurborgar hittust í gær í fyrsta sinn í fjóra daga. Nefndimar skiptust á tilboðum, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru samningamenn ekki bjartsýnir á skjótan árangur, enda hefur deilan hjakkað í sama farinu svo mánuð- um skiptir. Sverrir Bergmann, fórmaður samninganefndar lækna, sagði í samtali við Morgunblaðið að grunn- atriðin í kröfum lækna hefðu ekki breytzt, en þeir hefðu viljað ræða mismunandi útfærslur á þeim. Sverrir sagði að ekki yrði hjá því komizt að áfram yrðu gengnar langar vaktir á borð við þær, sem aðstoðarlæknar hafa gengið, slíkt væri einfaldlega óhjákvæmilegt til þess að hægt væri að tryggja sam- fellt eftirlit með veiku fólki. Hins vegar væru læknar tilbúnir að sam- þykkja að þessar vaktir yrðu fáar, og að yngstu sérfræðingarnir kæmu inn á þessar vaktir ásamt aðstoðarlæknum. Ekki yrði undan því vikizt að greiða meira fyrir þessar vaktir, en nú væri gert. Aftur á móti væru læknar alveg tilbúnir að taka þær greiðslur út í lengri fríum, þannig að tekjur þeirra myndu kannski hækka sáral- ítið eða ekkert. Sverrir sagði að verið væri að ræða margvíslegar útfærslur á veikinda- og orlofsrétti lækna. „Ef þessi hnútur leysist, erum við komin með samning," sagði hann. Guðríður Þorsteinsdóttir, for- maður samninganefndar ríkisins, var fáorð um tilboð ríkisins, en sagði að boðað hefði verið til fund- ar til að reyna að velta upp nýjum flötum á málinu. Um 110 aðstoðárlæknar hafa nú sagt upp störfum á spítulunum. Flestir munu vinna þar til uppsagn- arfrestur þeirra rennur út, þannig að uppsagnimar munu að öllum líkindum fara að hafa áhrif í byijun aprfl, að sögn Sverris Bergmann. Aðstoðariæknar vinna nú aðeins 14 tíma á sólarhring og hafa sér- fræðingar gengið í störf þeirra utan dagvinnutíma, en nú eru sérmennt- aðir læknar, einum þeir eldri, tekn- ir að lýjast á þessari miklu vinnu, segir Sverrir Bergmann. Jóhannes Pálmason, fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans, sagði að ákvörðun sérfræðinga um að takmarka vinnu sína við bráða- tilfelli myndi lengja mjög lista þeirra, sem bíða eftir'ýmiss konar aðgerðum, sem þola bið. Hann sagði að ekki yrði hins vegar um það að ræða að mikið veikt fólk yrði að þjást vegna skorts á læknis- þjónustu. Aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands fundar með sendiherrum Norðurlanda: Lýst yfir áhuga á frekara samráði við Norðurlöndin fyrir okkar fulltrúa," sagði Guð- mundur. Svavar Gestsson menntamála- ráðherra hlaut 1. sætið og Guðrún Helgadóttir forseti sameinaðs þings hlaut 2. sætið í forvalinu eins og fyrir síðustu alþingiskosningar. I 3. sæti varð Áuður Sveinsdóttir landslagsarkítekt, Guðmundur Þ. Jónsson varð í 4. sæti og Már Guð- SENDIHERRAR Norðurlandanna í Moskvu voru boðaðir á fund A. Fedorovs, aðstoðarutanríkisráð- herra rússneska lýðveldisins, í gær. Fedorov gaf þar upplýsingar um það, sem rússneska lýðveldið hefði síðast gert í málefnum Eystrasaltslandanna en hann fer sérstaklega með samræmingu þeirra mála í ráðuneytinu. Fed- orov lýsti jafnframt áhuga á frek- ara samráði við Norðurlöndin, sem honum virtist að hefðu mjög svipaða afstöðu í málefnum Eystrasaltslandanna og rússneska lýðveldið, að sögn Ólafs Egilsson- ar sendiherra í Moskvu en Ólafur og Stefán L. Stefánsson sendiráðs- ritari sátu fundinn af hálfu íslend- inga. Jón Sveinsson fréttamað- ur CNN í Saudi Arabíu FRÉTTAMAÐUR bandarisku sjónvarpsstöðvarinnar CNN hefur komið nokkrum Islendingum kunnuglega fyrir sjónir þegar hann sést á skerminum með fréttir frá loftárásunum á Saudi Arabíu. Þar er kominn Jón Sveinsson, öðru nafni Sweeney Jones, sem var vetrarmaður hjá Gísla og Vigdísi á Hofi í Vatnsdal 1958. Og seinna var hann m.a. á vertíðarbáti frá Vestmannaeyjum og hef- ur oftar komið hingað. Gísli kenndi honum íslensku og er málið eitt af þeim fjölmörgum tungumálum; sem hann hefur á valdi sínu. Syni sína tvo hefur hann skírt islenskum nöfnum. Þeir heita Magnús og Finnur. Sweertey Jones er mikill ævin- týramaður, sem hefur farið um allan heim, oft þar sem eitthvað mikið er um að vera. Hann hefur kennt ensku og numið tungumál. Síðast þegar hann skrifaði þeim Gisla og Vigdísi kenndi hann í skóla í Saudi Arabíu, þar sem vorú börn auðugra Araba. Hann er duglegur að halda sambandi við vini sína gegn um bréf og skrifaði mikið af bréfum út um allan heim þegar hann var hér, m.a. til þekkts fólks. Annars gekk hann í öll verk á bænum eins og hver annar, var í gegningum með Gísla bónda og Iá m.a. á greni. Að Hofí kom hann fyrir milli- göngu Hermanns Pálssonar í Ed- inborg, bróður Gísla, en honum hafði hann kynnst er hann var við tungumálanám á Irlandi hjá Delargy íslandsvini og kennara þar. Tilgangurinn með íslands- dvölinni var að læra íslensku, sem Sweeney Jones talaði ágætlega eftir veturinn norður í Vatnsdal. „Eg býst við að þegar Fedorov talar um frekara samráð við Norður- löndin geri hann sér grein fyrir að það er einnig hagsmunamál nær- liggjandi landa að góður friður hald- ist í Eystrasaltslöndunum og ágrein- ingsmál séu leyst með samninga- gerð,“ segir Ólafur Egilsson í sam- tali við Morgunblaðið. Fedorov lagði á þessum fundi með sendiherrum Norðurlandanna höf- uðáherslu á að gera þyrfti allt, sem hægt væri til að hindra að frekari valdbeiting ætti sér stað í Eystra- saltsríkjunum, því ella væri hætta á að átök gætu breiðst út til fleiri lýð- velda og slíkar aðgerðir stefndu lýð- ræðinu sjálfu í hættu. „Það er álit Fedorovs að heimsókn- ir, af sama tagi og heimsókn Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkis- ráðherra Islands, til Eystrasaltsland-. anna, séu mjög gagnlegar til þess að sýna stuðning við friðsamlega úrlausn þeirra ágreiningsmála, sem þama er við að etja,“ segir Olafur Egilsson. Ólafur Egilsson óskaði í gær eftir fundi í sovéska utanríkisráðuneytinu og flutti þar mótmæli íslensku ríkis- stjórnarinnar gegn ofbeldisverkum sovésks herliðs í Riga í Lettlandi um helgina. Staðgengill yfírmanns 2. Evrópuskrifstofu utanríkisráðuneyt- isins tók við mótmælunum en þessi skrifstofa hefur meðal annars með samskipti við ísland að gera. „Sá, sem tók við mótmælunum, lofaði að koma þeim áfram. Við móttöku mótmælanna var lögð áhersla á að höfuðmarkmið sovésku ríkisstjómarinnar væri að reyna að leysa úr ágreiningnum friðsamlega á grundvelli sovésku stjórnarskrár- innar og þeim þætti leitt það mann- fall, sem þama hefði orðið,“ upplýsir Ólafur.Egilsson sendiherra. Flutningabíll fauk í Gilsfirði Miöhúsum, Reykhólasveil. STÓR flutningabíll með tólf metra dráttarvagni aftan í fauk á hliðina I\já Lindarholti í Saurbæ á sunnudagskvöldið. Bifreiðin var á leið í Reykhóla en þegar bílstjórinn, Gunnbjörn Óli Jóhannsson, ætlaði að halda í Gils- fjörðinn sá hann að ófært mundi vera fyrir svo stóran bíl. Gunnbjörn Óli skyldi því bílinn eftir hjá Lindar- holti. Þegar hann ætlaði að sækja bílinn á mánudagsmorgun hafði hann fokið á hliðina í óveðrinu sem geisaði um nóttina. Eftir er að kanna skemmdir á bílnum. Bíllinn fíytur þang og þaramjöl fyrir Þör- ungaverksmiðjuna á Reykhólum. Sveinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.