Morgunblaðið - 22.01.1991, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.01.1991, Qupperneq 16
(l!(t HU0A(1 JU115 JUflOM 16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1991 Minning: Stefán Hilmars- son bankastjóri Fæddur 23. maí 1925 Dáinn 10. janúar 1991 Við áramót hefur sá siður tíðkazt um nokkurt árabil, að starfsmenn Búnaðarbanka íslands hafa komið saman eina kvöldstund til eins kon- ar uppskei-uhátíðar að loknu starfs- árí. Sá fagnaður, með eitt ár enn gott og gjöfult að baki, var í vænd- um, þear þau sorgartíðindi bárust, að Stefán Hilmarsson bankastjóri hefði orðið bráðkvaddur. á heimili sínu. Enn einu sinni vorum við minnt á, hversu skammt er milli gleði og harms. Nákvæmlega ár er liðið, síðan Stefán lét af störfum sem banka- stjóri. Samstarfsmenn hans kvöddu hann á uppskeruhátíðinni þá. Hann hélt þar ræðu, sem ég veit, að márgir munu lengi minnast. Bæði var það, að hún var vel og sköru- lega flutt eins og Stefáni var lagið, en einnig hitt, hve efnið skilaði sér vel á því móðurmáli, sem hann hafði tileinkað sér með fágætum. I minn- ingunni er mér það ofarlega í huga, Hve mál hans bar einmitt sérstök einkenni mikillar þekkingar og næmrar tilfínningar. Hann las mik- ið fornbókmenntir og hafði tíðum á hraðbergi tilvitnanir í þær, en hann var gæddur einstakri frásagnar- gleði, sem unun var á að hlýða. Stefán Hilmarsson var banka- stjóri við Búnaðarbanka íslands samfellt í 28 ár. Hann var mjög mikilhæfur stjórnandi, lagði sig allan fram um að gera stöðu bankans sem bezta. Það_ fullyrði ég, að hann hefði ekki betur gert, þó bankinn hefði verið í einkaeign eða með öðru félags- formi. Var það honum því nokkur raun að heyra því haldið fram, að banki, sem væri í eigu ríkisins, ætti ekki tilverurétt, enda veit ég ekki um nokkum einstakling, sem afsannað hefur þá kenningu betur með starfí sínu en Stefán Hilmars- son. Hann mat mikils samstarfs- menn sína. Stefán hafði oft á orði í seinni tíð, hve mikils væri um vert gott samstarf og samvinna stjórnenda. Lengst starfaði hann með Magnúsi Jónssyni frá Mel og síðar jafnframt Þórhalli Tryggva- syni. Þeir áttu það gjarnan til félag- amir að hittast stutta stund að morgni, áður en alvara dagsins tók við, og var þá slegið á léttari strengi. Stefán var fundvís á um- ræðuefni, sem oft var sótt á síður dagblaðanna þann daginn eða í heim stjórnmála og dægurmála. Er það mjög eftirminnilegt að verða vitni að þeim orðræðum, sem þar áttu sér stað. Starfið sjálft var mjög krefjandi og úrlausnarefni margvísleg og flókin. Lengst af þeim tíma, sem Stefán gegndi bankastjórastarfí, var allt rekstrarumhverfi bönkum erfitt. Reyndi því mjög á hæfni manna og styrk. Stefán var fljótur til að mynda sér skoðanir á hinum ýmsu málefnum, og þegar þær lágu fyrir, vantaði ekki röksemdafærsl- una, beinskeytta og hnitmiðaða á hreinræktaðri íslenzku, sem enginn gat misskilið. Hann var mjög hreinn og heiðarlegur í samstarfí og sam- skiptum, en að sama skapi hafði hann óbeit á ailri skinhelgi og hálf- sannleik. Viðskiptamönnum bank- ans var hann sannur og heill stuðn- ingsmaður og þegar sækja þurfti til annarra, eru mörg dæmi til um einarða framgöngu hans í þeirra þágu. Hins vegar voru aðstæður þannig, "áð ekki var hægt að full- nægja óskum og þörfum allra þeirra að fuilu, sem til bankastjóra leituðu og færðu full rök fyrir sínu máli. Er ég sannfærður um, að það var honum á stundum þungbær stað- reynd. Hygg ég því, að honum hafi þótt nauðugur sá kostur að hjúpa sig harðri skel og allt að því ein- angrun frá fjöldanum. Allt um það er þeim það ljóst, er hann þekktu bezt, að undir niðri var hann mjög tilfinninganæmur. Stefán var listrænn að eðlisfari og sérstakur fagurkeri. Auk hins mikla áhuga á máli og stfl, sem áður er getið, var hann unnandi lita og forms. Málverkasafn bankans, sem hann hafði veg og vanda af að safna síðustu áratugina, ber list- skyni hans fagurt vitni. Bankinn hafði reyndar samið um það við hann, þegar hann hætti starfí bankastjóra, að fá að njóta hæfi- leika hans á þessu sviði enn um sinn, svo og taka þátt í að móta auglýsingar bankans fyrst og fremst í sjónvarpi. Auglýsingamar hafa notið verðskuldaðrar athygli, en að baki þeim liggur mikil hugsun og fáguð vinnubrögð. Gildir þar einu, hvort verið var að lýsa hrika- leik fossaflsins eða tilveru smá- blóms á sendinni strönd. Allt virtist þaulhugsað, mynd, mál og tónn. Stefán hafði hin síðari ár búið sér og sínum mjög góða aðstöðu á ströndinni við Stokkseyri. Þar hafði hann ungur tekið þátt í sveitastörf- um á sumrum og sýnt mikinn dugn- að og atorku. Það fór ekki milli mála, að hugurinn var oft þar eystra, og eftir að sumarhúsið var risið, dvaldi hann þar svo oft sem hann gat. Var það von ok'kar, sem með honum höfðum starfað, að nú loksins fengi hann nægan tíma og frið til þess að njóta dvalarinnar þar eystra. Þó að margt væri honum þar hugleikið, hygg ég, að ijaran og það margvíslega líf, sem þar leyndist, hafí verið efst á blaði, reyndar var það orðið honum hreint rannsóknarefni. En ógleymanlegar eru hástemmdar lýsingar hans á fjallahringnum og fegurð morguns- ins á ströndinni, þar sem himinn og haf renna saman í eitt í óraljar- lægð. Að leiðarlokum eru okkur félög- um hans í Búnaðarbanka Islands þakkir í huga, en jafnframt skörp hvatning um að halda uppi merk- inu, sem hann bar með glæstum brag lengur en nokkur annar. Við sendum frú Sigríði og dætrunum svo og íjölskyldum þeirra og Mar- gréti móður hans innilegar samúð- arkveðjur. Jón Adólf Guðjónsson Það kom mér sannarlega á óvart þegar mér var tilkynnt um lát Stef- áns Hilmarssonar. Við höfðum rætt saman fyrir fáeinum dögum um væntanlega ferð okkar til London, til þess að taka þátt í ráðstefnu bankastjóramanna, sem áætlað var að sækja í byrjun febrúar. Ekki man ég hvenær kynni okkar Stefáns hófust fyrst en eins og oft- ast byijaði þetta með kunningsskap sem þróaðist í innilega vináttu. Ég starfaði í bytjun seinni heims- styijaldar hjá Búnaðarbankanum en þá var bankastjóri þar Hilmar Stefánsson faðir Stefáns. Eftir nokkurra ára starf þar hvarf ég tii almennra lögmannsstarfa en fyrir um 6 árum hringdi Stefán til mín og spurði mig hvort ég gæti tekið að mér að ákveða verkefni fyrir Búnaðarbankann og þá hófst sam- starf okkar sem var ávallt með ágætum. Stefán fæddist í Reykjavík 23. maí 1925, sönur hjónanna Margrét- ar Jónsdóttur og Hilmars Stefáns- sonar bankastjóra Búnaðarbank- ans. Að loknu námi í Menntaskólan- um í Reykjavík lagði hann stund á laganám í Háskóla íslands og lauk þaðan prófi 1951. Blaðamaður á Morgunblaðinu var hann um árs- skeið en 1952 var hann ráðinn full- trúi í utanríkisráðuneytinu. Hann var skipaður sendiráðsritari í Wash- ington 1956 og gegndi því starfí í 6 ár er hann var ráðinn bankastjóri í Búnaðarbanka íslands. Á menntaskólaárum sínum var Stefán vinstrisinnaður í stjórnmál- um en hann vildi ekki láta kenna sig við ákveðinn stjómmálaflokk enda hefði hann rekist illa í flokks- viðjum. Stefán hafði mjög ákveðnar skoðanir á málefnum og mönnum. Hann hlífði engum en hrósaði þeim sem honum fannst eiga það skilið. Hann hafði ávallt sterk rök fyrir þeim málefnum sem hann hafði áhuga á, en hann var einnig tilbú- inn að taka þeim rökum sem honum fundust skynsamleg frá andmæl- endum sínum. Ég átti þess kost að dveljast með Stefáni í nokkur skipti í London og bjuggum við þá saman í íbúð, það eru mér ógleymanlegir dagar, bæði var það að Stefán var gjörkunnugur þeirri borg. Sýndi hann mér ýmsa staði, uppruna þeirra og sögu. Stefán Hilmarsson var frábær bankastjóri. Þótti hann stundum nokkuð harður og óvæginn, en það var í þeim tilvikum þegar hann var að meta hagsmuni bankans fram yfir önnur sjónarmið. Faðir Stefáns tók við Búnaðar- bankanum nánast sem litlum spari- sjóði, en gerði hann að velstæðum banka.'Stefán kom og bætti um betur og gerði ásamt samstarfs- mönnum sínum bankann að stór- veldi í íslenskum bankaheimi. Fyrir tæpum tveimur árum sagði Stefán mér að hann væri að hugsa um að hætta sem bankastjóri. Að- spurður um ástæðu þess svaraði hann að faðir sinn hefði starfað sem bankastjóri í 26 ár og nú væri að nálgast sami starfsaidur hjá sér. Hins vegar hafði hann ekki hug á að skiija alveg við bankánn því það væru ýmis hugðarefni í sambandi við hann sem hann hefði löngun til að vinna að, auk þess sem hann væri ávallt reiðubúinn til ráðgjafar eftir langa reynslu í bankanum. Öllum er kunnug smekkvísi Stef- áns á listaverk og ber þess merki hið fallega málverkasafn Búnaðar- bankans. Menn hafa einnig veitt athygli hinum snjöllu auglýsingum Búnaðarbankans, sem fléttað er inn í fallegt. íslenskt landslag, eða íslenskt dýralíf og hygg ég að Stef- án hafí átt dijúgan þátt í að skapa þær. Ég vil færa eftirlifandi eiginkonu Stefáns, Sigríði Kjartansdóttur Thors, mínar innilegustu samúðar- kveðjur óg dætrum þeirra hjóna, en huggun í harmi er minningin um góðan dreng. Baldvin Jónsson Með Stefáni Hilmarssyni er genginn merkur bankamaður, sem hafði mikil áhrif á þeim aldarfjórð- ungi, sem hann var bankastjóri. Undir forystu hans óx Búnaðar- banki íslands og dafnaði, útibúum fjölgaði, starfsemin varð fjölþættari og nankinn varð með sanni traustur banki. Þetta einkunnarorð Búnað- arbankans, sem notað er í auglýs- ingum, traustur banki, var frá Stef- áni runnið. Þetta eru orð að sönnu, því að allur rekstur bankans er traustur og þar með eiginfjárstaða hans. Stefán var öflugur málsvari Búnaðarbanka Islands, ríkisbanka, og taldi hann, að það rekstrarform, sem á bankanum er, hefði sannað gildi sitt. Hann taldi það henta bet- ur við íslenzkar aðstæður en hluta- félagsformið. Varði Stefán Búnað- arbankann með sterkum rökum, þegar tillögur komu fram um breyt- ingar á bankanum í hlutafélag. Stefán áleit það mikinn kost, að Alþingi kysi bankaráð Búnaðar- bankans, og taldi það tryggingu gegn því, að sterkir hagsmunahópar næðu tökum á bankanum, sem ella kynni að vera hætta á. Stefán sagði stundum, að hann ætti eitt áhuga- mál og það væri Búnaðarbankinn. Hann var því vakinn og sofínn yfír velgengni hans. Stefán var meðalmaður á hæð og rómað snyrtimenni í hvívetna. Hann var kvikur á fæti og bar sig vel, hvar sem hann fór. Hann var fylginn sér, þegar því var að skipta, en alla tíð vinsæll í hópi samstarfs- manna. Stefán var sanngjarn og þægilegur yfírmaður, sem öllum þótti gott að skipta við. Hann gegndi ýmsum ábyrgðarstörfum fyrir bankann bæði innan lands og utan og var hvarvetna skeleggur fulltrúi, sem hélt vel á málum og vakti athygli. í samstarfí var hann málefnalegur og þægiiegur og gjarnan mjög skemmtilegur, og var hans því einatt saknað, eftir að hann hætti að sitja daglega banka- stjórafundi fyrir ári. Ég kynntist Stefáni, áður en hann gerðist bankastjóri 1962, því að faðir hans, Hilmar Stefánsson, gegndi bankastjórastarfi á þriðja áratug á undan honum, og var ég vel kunnugur Hilmari og heimili hans. Þegar Stefán varð banka- stjóri, varð ég útibússtjóri í Austur- bæjarútibúi bankans, og leiddi það af sjálfu sér til náinnar samvinnu. Útibúið var þá tii húsa í húsi Trygg- ingastofnunar ríkisins. Þó að hús- næðið væri gott og innréttað fyrir útibúið eftir teikningu Gunnlaugs Halldórssonar arkitekts, kallaði hinn öri vöxtur þess á aukið hús- næði. Ég minnist áhuga Stefáns á að koma upp veglegu húsnæði fyrir starfsemi útibúsins og ágætrar samvinnu okkar við að sannfæra borgaryfirvöld og aðra um nauðsyn þess, að bankinn byggði yfír útibú við Hlemm. Búnaðarbankahúsið við Hlemm og umhverfi þess sómir sér vel og er sönn borgarprýði. Eitt af áhugamálum Stefáns var myndlist. Þekkti hann vel til íslenzkrar málaralistar, sótti sýn- ingar og málverkauppboð og var kunningi margra íslenzkra málara. Stefán reyndi jafnvel sjálfur fyrir sér á því sviði, þó að hann vildi ekki gera mikið úr því. Heimili þeirra hjónanna Sigríðar og Stefáns er sannkallað menning- arheimili, þar sem verk beztu mál- ara okkar prýða veggi. Það hefur alla tíð verið stefna Búnaðarbankans að prýða hús sín með verkum listamanna, og má í því sambandi minna á afgreiðslusal bankans í Austurstræti, sem Sigur- jón Ólafsson og Jón Engilberts voru fengnir til að myndskreyta. Svavar Guðnason skreytti sal Austurbæjar- útibús. Það hefur ævinlega verið stefna Búnaðarbankans að kaupa íslenzk málverk, og féll það eðlilega í hlut Stefáns að sjá um það. Örugg- ur smekkur Stefáns í málverkavali bankans kom vel í ljós á stórri málverkasýningu, sem efnt var til að Kjarvalsstöðum í tilefni 60 ára afmælis bankans. Þetta þróaða myndskyn leyndi sér ekki í auglýs- ingum Búnaðarbankans. Þær þóttu bera af öðrum sjónvarpsauglýsing- um, bæði hvað myndvai, texta og smekk áhrærði. Um langt skeið sátum við saman í stjórn Eftirlaunasjóðs Búnaðar- bankans. Á þeim árum fórum við saman á laxveiðar með þriðja stjórnarmanninum, Baldri i Ödda. Lágu leiðir okkar víða, en oftast fórum við í veiðikofa, sem Baldur átti við Brúará. í veiðiferðum kynn- ast menn vel, tengjast vináttubönd- um, sem ei rofna. Stefán var góður veiðifélagi, fiskinn vel og lék á als oddi í þessum ferðum. Upplifðum við síðan ferðirnar margsinnis yfir saltfiski og skötu eða öðrum þjóð- legum réttum að vetrinum. Stefán hafði góða frásagnarhæfíleika, var vel lesinn og hafði tilvitnanir í Is- lendingasögur á hraðbergi. Stefán féil frá langt um aldur fram, og er hans sárt saknað, ekki sízt af okkur, sem með honum unn- um. Hans verður minnzt um ókom- in ár fyrir ötult og óeigingjarnt starf í þágu bankans, því Búnaðarbanki Islands er traustur banki. Ég sendi Margréti móður hans, Sigríði og dætrunum og fjölskyldum þeirra kveðjur og bið Guð að blessa þau. Hannes Pálsson Árið 1976 kom ég heim frá námi og hugðist hefja kvikmyndagerð á eigin spýtur. Flestir sem ég ræddi við töldu slíka útgerð óðs manns æði eða brostu vorkunnsamlega. Bankafyrirgreiðslu var hvergi að fá. Þá benti góður maður mér á að til væri bankastjóri sem væri svo sér á báti að hann væri vís með að hafa trú á kvikmyndaævintýrum. Ég hafði ekki heyrt þennan mann nefndan, en gekk á hans fund. Þessi maður var Stefán Hilmarsson. Þessi fundur réð miklu um það að ég gerði mínar fyrstu kvikmynd- ir. Upp frá því gerðist Stefán eins konar „bankastjóri íslenskrar kvik- myndagerðar“ og reyndist mér og mörgum kollegum mínum vel. Ég kynntist honum ekki náið persónu- lega en þau viðskipti sem ég átti við hann voru einstök og á ögur- stund reyndist hann mér öðrum betur. Fyrir það vil ég þakka, núna þegar hann hefur kvatt okkur. Konu hans og fjölskyldu færi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Hrafn Gunnlaugsson Alltaf bregður manni jafn mikið, þegar kallið kemur, enda þótt ekk- ert sé jafn víst og að kallið komi. Það er bara ekki vitað hvenær. Mér brá við andlátsfregn Stefáns Hilm- arssonar. Hann hafði fyrir nokkru lokið langri og merkri starfsævi og ég vissi, að hann hlakkaði til að líta birtu dagsins án þess að þurfa að standa í þessu erilsama og krefj- andi stússi, sem hafði verið raunver- an í lífi hans sem bankastjóra Bún- aðarbanka íslands. En þá er honum ailt í einu kippt burt. Við Stefán hittumst í Mennta- skólanum í Reykjavík og vorum þar í sama bekk. Hann var að vísu í máladeild og ég í stærðfræðideild. Þeir, sem fengu latínukennslu upp á hvem dag, litu niður á okkur aumingjana, sem vorum að reyna að skilja Pyþagoras. Þótt nokkur spenna ríkti af gömlum vana milli deildanna, vom menn sæmilega sáttir, einnig þegar þeir tóku skóla- töskurnar, yfirhafnirnar og jafnvel skóna og földu hver fyrir öðmm. Stefán var æringi eins og við fieiri, en í félagslífinu var hann umfram allt skemmtilegur og kátur, og skólafélagarnir hópuðust að honum af þeim sökum. Stefán hafði mjög létta lund og bjó yfír mikilli kirnni- gáfu, en var ansi stríðinn. Við þurft- um endilega alltaf að vera skotnir í sömu stelpunni samtímis, og auð- vitað hafði hann betur, og stríddi mér ógurlega. Stefán var samt á menntaskóla- árunum alvarlega hugsandi ungur maður, ráðagóður og hjálpsamur, og við, skólafélagar hans, vissum, að við gátum ævinlega og í einu og öllu treyst á hann. Óumdeilan- legur leiðtogi bekkjarins var Einar Pálsson, inspector scholae, og var Stefán ötull liðsmaður Einars í öll- um uppátækjum þeirra til skemmt- unar og fróðleiks í félagslífinu, hvort sem það var á dansæfingum, í selsferðum, á sal eða í ferða^jgum bekkjarins. Þegar litið er til baka, streyma bjartar minningarnár upp í hugann frá þessum góðu dögum. Á þessum skólaárum kom fljót- lega í ljós hin mikla vöggugjöf Stef- áns: góðar gáfur og greind. Hann var góður námsmaður og honum var einkar lagið að ná yfirsýn yfír hlutina, koma auga á kjarna hvers máls og flækjast ekki í smáatriðum. Hinar skörpu gáfur hans, sem hon- um tókst að þroska á skólaárunum urðu honum dýrmætt veganesti út í iífíð, og ekki hvað síst_ í starfi hans fyrir Búnaðarbanka íslands. Stefán innritaðist í lögfræðideild Háskóla íslands að loknu stúdents- prófi og lauk þaðan kandídatsprófi árið 1951. Við vorum stutt saman í deildinni, því ég byrjaði í læknis- fræði og iauk ekki lögfræðiprófi fyrr en 1953. Hann tók nokkurn þátt í háskólapólitíkinni á þessum árum en var ekki hávaðasamur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.