Morgunblaðið - 22.01.1991, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 22.01.1991, Qupperneq 23
MQRGUNBLAÐIÐ 1>HI1XIU1)A(ÍUH 22. JAXUAH 199:1 28 Almenniiigiir snýst á sveif með Bush og styður notkun hervalds - Úthellum ekki blóði fyrir olíu“ Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. Á TORGI fyrir utan byggingu ríkisstjórnar Massachu- setts standa nokkur þúsund Bostonbúar, steyta hnefa hveijir framan í aðra og láta rigna ókvæðisorðum. Þeir skiptast í tvær fylkingar. Öðrum megin standa þeir sem styðja þá ákvörðun George Bush forseta að láta til skar- ar skríða gegn írökum, hinum megin eru andstæðingar stríðsins við Persaflóa. Slíkur hiti er í viðstöddum að lögreglan þarf að ganga í milli til þess að þeir gangi ekki í skrokk hverjir á öðrum ... í sjónvarpinu situr frétta- maður í einangruðu herbergi með gasgrímu fyrir vitum sér og talar frá Israel um yfirvofandi sprengjuárás ... Stúlka í strætisvagni: „Aldrei hélt ég að ég myndi upp- lifa stríð.“ ... Á tröppum háskólabókasafnsins í Harvard standa um hundrað stúdentar. Þeir fordæma Saddam Hussein og syngja bandaríska þjóðsönginn .. . - Friðarsinnar mótmæla Reuter Frá útifundi stuðningsmanna fjölþjóðahersins og ísraela í Persa- flóastyrjöldinni í New York um helgina. Bandaríkjamenn eiga í stríði og daglega er sá, sem hér dvelur um þessar mundir, minntur ræki- lega á það. Þegar sovéskir her- menn beittu vopnavaldi í Litháen stóð í dagblaðinu New York Tim- es að Míkhaíl Gorbatsjov Sovét- leiðtogi skyldi ekki láta sig dreyma um að geta beitt valdi í skjóli deilunnar við Persaflóa; bandarískir fjölmiðlar færu létt með að fylgjast með tveimur styij- öldum og gætu að auki tuggið tyggigúmmi um leið. Þetta á ef til vill við um áðurnefnt dagblað, en hjá flestum fjölmiðlum kemst ekki annað að en Persaflóinn. Og meðal almennings er um fátt ann- að talað> Áður en bandarískir ráðamenn ákváðu að láta til skarar skríða gegn írökum bentu skoðanakann- anir til þess að Bandaríkjamenn skiptust nokkurn veginn í tvær jafnar fylkingar í afstöðu sinni til þess hvernig þeir ættu að bregð- ast við í Persaflóa. Nu er yfir- gnæfandi meirihluti manna fylgj- andi hernaðaraðgerðum Banda- ríkjahers í Mið-Austurlöndum. Á fimmtudag og föstudag sendu stóru sjónvarpsstöðvarnar þijár, ABC, CBS og NBC, út fréttir all- an sólarhringinn og komu margir til vinnu að morgni með dökka bauga undir augum eftir að hafa fylgst næturlangt með framvindu mála. Á veitingahúsum og knæp- um var slökkt á tónlist til að við- skiptavinir gætu fylgst með sjón- varpinu. Fréttastofur á borð við Associated Press skrifa vart um annað en stríðið og hafá þó aðeins rétt svo við eftirspurn dagblaða og annarra viðskiptavina sinna eftir fréttum. Stríðinu mótmælt Um helgina kom víða til mót- mæla gegn stríðinu við Persaflóa. Á laugardag söfnuðust tugir þús- unda manna saman í Lafayette- garði fyrir utan Hvíta húsið með slagorð á vörum. „Úthellum ekki blóði fyrir olíu“ og „beijumst gegn AIDS, ekki írak“, var meðal ann- ars hrópað. Lögreglan sagði ýmist að 25 eða 75 þúsund manns hefðu tekið þátt í mótmælunum. Ein þeirra samtaka, sem skipulögðu mótmælin, héldu þvi fram að 100 þúsund manns hefðu tekið þátt í þeim. Sama dag gengu um 20 þúsund mótmælendur í Boston, Baton Rouge og San Francisco. Smærri hópar fólks, sem er hlynnt stríðjnu, létu einnig að sér kveða. Áður en Bandaríkjamenn létu til skarar skríða virtust tilfinningar manna blendnar, en nú virðist afstaða manna hafa skýrst. Mót- mæli eru sýnu kröftugri nú en fyrir árásina, en á hinn bóginn virðist þorri Bandaríkjamanna hafa snúist á sveif með forseta sínum. Mest er andófið í háskólum. Sú kynslóð sem nú fyllir kennslu- stofur háskólanna lifir í skugga hinna róttæku stúdenta sjötta áratugarins, kynslóðar, sem lagði sitt af mörkum til að binda enda á styijöldina í Víetnam með stöð- ugum mótmælum. En stúdentarn- ir í bandarískum háskólum óttast einnig að komið verði á herskyldu dragist átökin við írak á langinn. Aður en loftárásirnar á írak hófust var lítið um mótmæli. Efnt var til umræðna og málþinga við háskóla víða um landið, en aðsókn var yfirleitt lítil og allt fór vel fram. Því næst kom jólafrí og þar sem stúdentar sneru fíestir ekki aftur til skóla sinna fyrr en fyrir rúmri viku var lítið um aðgerðir. í síðustu viku bar hins vegar svo við að stúdentar gengu úr tímum, lögðu undir sig stjórnarskrifstofur skóla og margir hafa verið hand- teknir. Vandi friðarhreyfingarinnar Friðarhreyfingin á hins vegar við ýmis vandamál að stríða. Því er haldið fram að velgengni Bandaríkjamanna til þessa geri að verkum að fólk taki ekki mark á orðum andstæðinga stríðsins. En friðarsinnar hafa meiri áhyggjur af því að klofningur inn- an hreyfingarinnar fæli frá það fólk, sem er í miðju stjórnmál- anna. Sá hópur samtaka, sem stóð fyrir mótmælunum í Washington á laugardag, telst hinn róttæki armur friðarhreyfingarinnar. Fulltrúar þeirra kreljast þess að bandarískir hermenn verði tafar- laust kvaddir heim frá Mið- Austurlöndum, bandarískar her- stöðvar á svæðinu verði lagðar niður og arabar ákveði sjálfir hvernig taka skuli á innrás Iraka í Kúvæt. Þeir hafá ekki fordæmt Saddam Hussein fyrir innrásina í Kúveit. Af ótta við að þessi samtök hallist of langt til vinstri hefur verið stofnuð Þjóðarhreyfing til friðar. Þar er hvatt til vopnahlés og samningaviðræðna eða að efnahagsþvinganir verði reyndar að nýju. Almenningsálitið snýst Þótt nokkuð hafi borið á andófi og daglega sé efnt til aðgerða er óhætt að segja að andstæðingar stríðsins séu í miklum minnihluta. Eftir að Bandaríkjamenn blésu til orrustu hefur fylgi' George Bush forsetá aukist til muna. í skoðanakönnun sjónvarpsstöðvar- innar ABC og dagblaðsins New York Times, sem birt var á laugar- dag, kváðust 86 prósent að- spurðra telja að forsetinn stæði sig vel í starfi. Þetta er mesti stuðningur sem nokkru sinni hef- ur komið fram við forseta í Banda- ríkjunum. John F. Kennedy kemur næstur. Samkvæmt Gallup-skoð- anakönnun sem gerð var í maí 1961, rétt eftir hina hrapalegu tilraun til að steypa kommúnista- stjórn Fidels Castros úr stóli með innrásinni í Svínaflóa, studdu þá 83 prósent aðspurðra Kennedy. Skoðanakönnunin, sem hér um ræðir, var gerð að kvöldi fimmtu- dagsins 17. janúar, daginn eftir að Bandarfkjamenn réðust á írak, og sýnir mikla sveiflu meðal al- mennings frá annarri könnun, sem gerð var fyrir ABC/New York Times 11. til 13. janúar. Þá kváðust 66 prósent þeirra, sem fyrir svörum urðu, ánægð með störf forseta. Einnig hefur almenningur kú- vent í afstöðu sinni til styijaldar fyrir botni Persaflóa eftir að átök- in hófust. í könnuninni, sem fyrr var gerð, töldu 47 prósent að Bandaríkjamenn ættu „að hefja hernaðaraðgerðir gegn írökum“ ef þeir hefðu ekki kvatt herlið sitt brott frá Kúveit er frestur Sameinuðu þjóðanna rynni út. Þá vildu hins vegaV 46 prósent að- spurðra láta reyna á efnahagsað- gerðir á hendur írökum enn um sinn. Eftir árásina sögðu 79 prósent þeirra, sem könnunin náði til, að Bandaríkjamenn hefðu gert „rétt í því _að helja hernaðaraðgerðir gegn írökum“, en aðeins 16 pró- sent voru þeirrar hyggju að Bandaríkjamenn hefðu átt að bíða átekta eftir 15. janúar. Umskipti á Bandaríkjaþingi Svipuð umskipti hafa orðið á Bandaríkjaþingi. Laugardaginn 12. janúar gekk þingheimur til atkvæða um það hvort heimila ætti Bush að beita herafli til að hrekja íraka brott frá Kúveit. í öldungadeildinni var heimildin samþykkt með naumindum. 52 öldungadeildarþingmenn vildu heimila valdbeitingu, en 47 greiddu atkvæði gegn því. í full- trúadeildinni var meiri stuðningur við tillöguna, en bar því þó síður en svo vitni að þar stæðu þing- menn sameinaðir að baki forset- anum. 250 voru hlynntir henni, en 183 andvígir. 17. janúar lýsti öldungadeildin hins vegar yfir einróma stuðningi við forsetann og Bandaríkjaher. Degi síðar greiddu 399 fulltrúa- deildarþingmenn atkvæði með svipaðri stuðningsyfirlýsingu. Að- eins sex voru henni andvígir og sex sátu hjá. Þingmenn, sem mæltu gegn hernaðaraðgerðum, höfðu margir lýst því yfir að þegar á hólminn væri komið myndu þeir styðja forsetann og standa að baki hern- um. Hins vegar hafa vaknað upp raddir efasemda um að þeir þing- menn, sem voru andvígir því að beita hervaldi áður en átökin hóf- ust, beiti sér nú af heilindum. Þetta kom til dæmis í ljós þeg- ar Edward M. Kennedy, öldunga- deildarþingmaður frá Massachu- setts, heimsótti hermenn í kjör- dæmi sínu til að sýna þeim sam- stöðu. Ýmist virtu hermennirnir Kennedy vart viðlits eða heilsuðu honum fálega. „Ég held að það sé tímasóun að hann skuli koma hingað," sagði hermaður einn. „Við gætum verið að gera æfíng- ar og annað, sem kemur okkur að gagni þegar við komum á vígstöðvarnar." Almenningsálitið kann enn að breytast Eins og stendur eru flestir Bandaríkjamenn á því að Bush hafi gert rétt þegar hann ákvað að beita hei-valdi. En ýmsir telja að það geti breyst ef styijöldin dregst á langinn. Ýmsir dálkahöf- undar halda því fram að Banda- ríkjamenn hafi ekki þolinmæði til að heyja langt stríð. Mike Barnic- le, sem skrifar fyrir dagblaðið Boston Globe, hélt því fram á sunnudag að Bush hefði að einu leyti gert reginmistök. Hann hefði greint þjóðinni frá því hvenær stríðið ætti að hefjast, en hann hefði gleymt að taka fram hvenær því ætti að ljúka. Peter Lemieuz, stjórnmála- fræðiprófessor við Massachusetts Institute of Technology, er þeirrar hyggju að mannfall í Persaflóa muni ráða úrslitum um afstöðu Bandaríkjamanna til stríðsins. Sú hafi verið raunin í Víetnam. Eftir því sem fleiri bandarískir hermenn féllu í valinn jókst andstaða þjóð- arinnar við stríðið. Hingað til hef- ur Bandaríkjaher neytt yfirburða sinna í lofti og enn er ekki farið að- beijast á jörðu niðri. Komi til þess er viðbúið að háðar verði mannskæðar orrustur og þá gæti almenningsálitið snúist við að nýju- BÓKAMARKAÐUR V Ö K U H E L G A F E L L S Ú'Tsn^t0* (Áítfrf Verö jra (_ 95 X krónum r Мnú um nokkur sértUboð: Heim til þín ísland - eftir Tómas Guðmundsson. Hagleiksverk Hjálmars í Bólu - eftir Kristján Eldjá Stóra ævintvrabókin - Ólafur Bjami Guðnason þýd Launráö í Lundúnum - eftir Ken Follett.......... 1.344,- 295,- Paskval Dvarte og hyski hans - í þýðingu Kristins R. Ólafssonar.............. 1.829,- 295,- Venjulegt Tilboðs- Af- verð verð sláttur 789,- 295,- 63% 1.349,- 295,- 78% 3.088,- 595,- 81% 1.344,- 295,- 78% 1.829,- 295,- 84% Markaðurínn stendurtil 20. febrúar. VAKáí m s HELGAFELL Siðumúla 6 * sími 688300

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.