Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 18
MOEGUÍjBIjÍÐlb ÞlÓbjÚ'DÍdÚk' ^2.'ÍÍáMúM i'áó'í ’'í 18 Svavar og Guðrún í efstu sætum Alþýðubandalagsins: Staðfest bil milli verka- lýðshreyfingar og flokks - segir Guðmundur Þ. Jónsson sem ekki er ákveðinn 1 að taka fjórða sæti listans í Reykjavík SVAVAR Gestsson menntamálaráðherra varð í fyrsta sæti í for- vali Alþýðubandalagsins í Reykjavík vegna næstu alþingiskosninga með 66% atkvæða í það sæti og 87% alls. Guðrún Helgadóttir for- seti Sameinaðs þings varð í öðru sæti með 40% atkvæða í efstu tvö sætin og 56% alls. Þau skipuðu þessi sæti við síðustu alþingis- kosningar en nýtt fólk varð í næstu sætum. Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt varð í 3. sæti með 41% atkvæða og 66% alls, Guðmundur Þ. Jónsson formaður Iðju í fjórða með 46% í 1.-4. sæti og 53% alls og Már Guðmundsson, hagfræðingur og efnahags- ráðgjafi fjármálaráðherra, í fimmta sæti með 51% atkvæða. Guð- mundur segir að niðurstaðan staðfesti bil sem verið hafi að mynd- ast á milli verkalýðshreyfingarinnar og Alþýðubandalagsins. Um 1.190 félagar í Alþýðu- bandalaginu áttu rétt á að taka þátt í forvalinu sem fram fór um helgina. 456 greiddu atkvæði, og var þátttaka því 38%, þar af voru 439 atkvæði gild. Niðurstöður forvalsins eru ekki bindandi við skipan framboðsiista flokksins en aukinn meirihluta þarf á félags- fundi ef breyta á niðurstöðunum. Bima í 6. sæti Formaður kjömefndar, Hallur Páll Jónsson, veitti ofangreindar upplýsingar en neitaði að gefa upplýsingar um hvernig atkvæði féllu á efstu menn og hver röð annara þátttakenda varð. Hér á síðunni er birt tafla með tölulegum niðurstöðum forvalsins og eru upplýsingar í hana fengnar annars staðar en hjá kjörnefnd. Þar kemur í Ijós að Birna Þórð- ardóttir blaðamaður varð í 6. sæti í forvalinu. Hún fékk næst flest atkvæði í fyrsta sætið, eða 55 (13%), og fékk alls 177 atkvæði eða 40%. Guðrún Helgadóttir fékk 49 atkvæði í fyrsta sætið. Guð- mundur Þ. Jónsson fékk næst flest atkvæði í annað sætið, 109 sem er 68 atkvæðum færra en Guðrún fékk. Bima varð næst honum að atkvæðum í annað sætið. „Ánægður með niðurstöðuna“ „Ég er ánægður með niðurstöð- una. Ég held að það geti orðið góður listi sem skipaður verði í grófum dráttum samkvæmt for- valinu. Sérstak- lega er ég þakk- látur fyrir þá góðu niðurstöu sem ég fæ,“ sagði Svavar Gestsson þegar leitað var álits hans á niðurstöð- um forvalsins. Varðandi óánægju Guðmundar Þ. og Más sem höfnuði í 4. og 5. sæti sagði Svavar: „Ég vona að þeir gefi kost á sér á listann og ’ hef lagt áherslu á það við þá. Ég skoraði á þá að taka þessum niður- stöðum vel og drengilega, eins og ég veit að þeir hugleiða alvar- lega.“ Svavar sagði að það væri misskilningur að útkoma Guð- mundar sýndi að fulltrúar verka- lýðshreyfíngarinnar ættu ekki lengur upp á pallborðið í Alþýðu- bandalaginu. „Staðreyndin er sú að munurinn á þessum mönnum var svo lítill að það er nánast til- Svavar viljun hvar hver lendir. Það er ein- faldlega gallinn og kosturinn við að velja á lista með svona aðferð- um að því fylgir alltaf einhver óvissa,“ sagði Svavar. „Flokkurinn hefur talað“ „Það er aldrei svo að forval skili nákvæmlega þeim lista sem maður hefði kosið en flokkurinn hefur talað og við því er auðvit- að ekkert að segja. Framund- an er svo vinna við að samhæfa starfskrafta í komandi kosn- ingabaráttu og er lykilatriði hvemig það tekst," sagði Guðrún Helgadóttir. Aðspurð um útkomu fulltrúa verkalýðsforystunnar sagði Guð- rún: „Alþýðubandalagið hefur allt- af leitast við að vera í góðum sam- skiptum við verkalýðshreyfínguna í víðustu merkingu. En það sýnist ekki vera að félagar í verkalýðs- hreyfingunni telji að forystumenn hennar eigi að sitja á alþingi og ég get að sumu leyti tekið undir það sjónarmið." „Fólk vill breytingu“ „Ég er mjög ánægð með niður- stöðuna. Mér finnst hún vera merki um að fólk vilji leggja aukna áherslu á. þau mál og þau við- horf sem ég hef verið að reynaað halda á lofti. Fólk vill breyt- ingu, er orðið þreytt á þessu eilífa stagli um aðrar áherslur í þjóðfélaginu," sagði Auður Sveinsdóttir. Auður sagðist hafa lagt megin- Auður Guðrún Atkvæði: í viðk. sæti Röð: 1. 2. 3. 4. 5. Alls 1. Svavar Gestsson 289 43 32 7 13 289 66% 384 87% 2. Guðrún Heigadóttir 49 128 26 22 20 177 40% 245 56% 3. Auður Sveinsdóttir 9 59 113 60 48 181 41% 289 66% 4. GuðmundurÞ. Jónsson 8 101 41 52 30 202 46% 232 53% 5. MárGuðmundsson 22 32 111 28 29 222 51% 222 51% 6. Birna Þórðardóttir 55 43 22 32 25 177 40% 7. Margrét Ríkharðsdóttir - 1 4 23 68 53 149 34% 8. SteinarHarðarson - - 3 22 43 68 136 31% 9. Ámi Þór Sigurðsson - 7 17 45 38 107 24% 10. Amór Þórir Sigfússon 2 6 10 27 23 68 15% 11. Sigurrós Siguijónsdóttir - 7 7 16 28 58 13% 12. Haraldur Jóhannesson 1 1 6 21 25 54 12% 13. Þorvaldur Þorvaldsson 3 3 4 11 25 46 10% 14. Matthías Matthíasson 2 5 7 14 28 6% Atkvæði greitt í forvali Alýðubandalagsins. áherslu á umhverfismálin, hún vildi að lögð yrði áhersla á að halda ímynd landsins sem hreinu og lítið menguðu. Sagðist hún vera alfarið á móti álveri. Einnig sagðist hún vera á móti aðild ís- lands að Evrópubandalaginu. „Ég skýri árangur minn í forvalinu með því að þessi viðhorf eigi upp á pallborðið hjá fólki," sagði Auð- ur. „Biiið staðfestist" „Ég sóttist eftir hlaut það ekki og andi ekki ánægður una,“ sagði Guð- mundur Þ. Jóns- son. „Það hefur verið að myndast bil á milli verka- lýðshreyfingar- innar og Alþýðu- bandalagsins. Það staðfestist. Mitt framboð gekk út á að treysta þetta sambánd og tryggja að það væri maður frá verkalýðshreyfingunni í þingflokknum eins og lengst af var fram til ársins 1987 og skip- aði hann gjarnan annað sæti list- ans. Það er mjög slæmt mál að ekki virðist lengur vera pláss fyrir okkar fulltrúa," sagði Guðmundur. Guðmundur sagðist ekki vera búinn að gera það upp við sig hvert yrði framhald málsins af hans hálfu. Varðandi það hvort hann myndi hafna fjórða sæti list- ans sagði Guðmundur að hann væri að hugsa málið. Hann myndi svara kjömefndinni þegar þar að kæmi. „Jafntefli armanna“ „Ég stefndi á þriðja sætið og það munaði ekki miklu að það hefðist og enn minnu munaði að ég næði fjórða sætinu. Það er því ekki hægt að segja annað en að ég hafí fengið sæmilegt brautar- gengi. Að vísu er þetta ekki það sæti sem ég stefndi að og mun ég taka mér nokkra daga í að íhuga hvert framhaldið verður," sagði Már Guðmundsson. Varð- andi það hvort hann væri að íhuga að hafna fimmta sætinu sagði hann að málið væri enn opið og ítrekaði það sem hann sagði hér að ofan. Aðspurður hvemig hann túlkaði niðurstöðuna í ljósi valdabaráttu fólks sem tengist Birtingu annars vegar og fyrri forystu flokksins hins vegar sagði Már að það væri ekki hægt að selja málið upp á svo einfaldan hátt, fleiri armar væru í flokknum eins og til dæm- is fólk sem tengist Fylkingunni og síðan almennir flokksmenn sem ekki tækju afstöðu til slíkra deilna. „Mér sýnist úrslitin vera þannig að ekki sé hægt að túlka þau með neinum einhlítum hætti hvað varð- ar einhveija arma. Það er helst að hægt sé að tala um ein- hverskonar jafn- tefli,“ sagði hann. Már er efna- hagsráðgjafi Ól- afs Ragnars Grímssonar fjár- málaráðherra og formanns Al- þýðubandalags- ins. Már taldi ekki hægt að tala um að árangur hans í forvalinu sýndi veika stöðu formannsins. „Ég fæ tiltölulega góða kosningu þegar á heildina er litið. Það mun- ar mjög litlu að ég nái þriðja sæt- inu. Ég tók ekki ákvörðun um framboð fyrr en viku fyrir forvalið og miðað við það held ég að þessi árangur sé nokkuð þokkalegur. Og þó að ég sé efnahagsráðgjafi fjármálaráðherra og við oft sam- mála í pólitík held ég að ég hafi fengið fylgi nokkuð víða að og að ekki sé hægt að túlka þetta sem neinn ósigur fyrir hann,“ sagði Már. Kjartan Valgarðsson, formaður Birtingar, vildi ekki Ijá sig neitt um úrslit forvals Alþýðubanda- lagsins. Gaf hann þá skýringu að Birting hefði slitið stjómmálasam- bandi við ABR og ekki tekið þátt í vali frambjóðenda og því væri ekki eðlilegt að hann léti hafa eitt- hvað eftir sér um niðurstöðuna. öðru sætinu en er þar af leið- með niðurstöð- Guðmundur Már A Listasafn Islands: Myndir í eign Lista- safnsins á sýningn UM ÞESSAR mundir stendur yfir í Listasafni íslands sýning á verkum í eigum safnsins. í sölum 1, 2 og 4 eru sýnd málverk eftir íslenska listamenn m.a. Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Scheving, Jóhannes S. Kjarval, Jón Engilberts, Þórarin B. Þor- láksson, Þorvald Skúlason og marga fleiri. í sal 3 eru sýnd grafíkverk eft- ir eftirtalda listamenn: Björgu Þorsteinsdóttur, Eddu Jónsdóttur, Jón Reykdal, Jóhönnu Bogadóttur, Jónínu Láru Einarsdóttur, Ragn- heiði Jónsdóttur, Sigrid Valtingoj- er, Valgerði Bergsdóttur, Valgerði Hauksdóttur og Þórð Hall. Þar er einnig sýndur nýlegur skúlptúr Kristins E. Hrafnssonar. Listasafn íslands er opið alla daga nema mánudaga kl. 12.00- 18.00 og er aðgangur ókeypis. Veitingastöfa safnsins er opin á sama tíma. Listasafn íslands Hofsós: TriIIa eyði- lagðist í óveðri Hofósi. TRILLA eyðilagðist í miklu óveðri sem hér geysaði í fyrri- nótt og fram undir hádegi i gær. Björgunarsveitin var kölluð út um klukkan 07.30 í gærmorgun til að aðstoða smábátaeigendur í höfn- inni. Þriggja tonna trilla hafði slitnað frá bryggju og borist upp í giýtta fjöru þar sem hún gjör- eyðilagðist. Tveimur öðrum bátum tókst að bjarga. Skömmu fyrir hádegi var björg- unarsveitin aftur kölluð út og að þessu sinni til að aðstoða bóndann á Narfastöðum. Jámplötur höfðu fokið af húsi því sem hann notár _yndir kanínurækt. Einar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.