Morgunblaðið - 17.03.1991, Blaðsíða 1
6
HVAÐLÍÐUR
UMHVERFIS-
VERNDÁ
ALÞJÓÐA-
VETTVANGI
Skúli
Sverrisson
bassdeik-
ari er að
sláí gegn
sem með-
limur Full
Circle
14
TIL FRÆGÐAR & FRAMA
BOHEM A
BÍTLASKÓM
Þorsteinn
Eggertsson
10
SUNNUDAGUR
SUNNUDAGUR
17. MARZ 1991
BLAÐ
eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
Ást gerir alla hluti mögulega
Þetta bréf er sent þér til gæfu. Frumrit þess
er í Englandi. Það hefur farið níu sinnum í
kringum heiminn. Gæfan hefur nú borist þér.
Þú munt öðlast gæfu innan fjögurra daga frá
móttöku þessa bréfs, að því tilskildu að þú
sendir það áfram. Þetta er ekkert gamanmál.
Gæfan mun vitja þín bréfleiðis. Sendu ekki
peninga. Sendu afrit til fólks sem þú telur að
þarfnist góðs gengis. Sendu ekki peninga þar
sem hamingjan verður ekki verðlögð. Ekki
halda þessu bréfi, Þú verður að senda það frá
þér innan 96 klukkustunda. R.A.F officer fékk
470 þúsund dollara. Joe Elliot fékk 40 þúsund
en tapaði þeim aftur af því hann sendi ekki
afrit. A Filippseyjum missti Gene Welch konu
sína 51 degi eftir að hafa móttekið þetta bréf.
Áður en hún dó fékk hann þó 7.755 þúsund
dollara. Vertu svo góður að senda 20 afrit og
sjáðu svo til hvað gerist innan fjögurra daga.
Bréfið kemur frá Venuzela og var ritað af
Saul Anthony DeCaup, trúboða frá Suður-Afr-
íku. Síðan hefur afrit af því verið á ferð um
heiminn, gerðu 20 afrit og sendu þau til vina
og samverkamanna. Eftir fáa daga verður þér
komið á óvart. ÞETTA ER SATT. Jafnvel þó
þú sért ekki hjátrúarfullur. Athugaðu eftirfar-
andi: Constantine Dias fékk bréfið árið 1953.
Hann bað einkaritara sinn að gera 20 afrit og
senda þau út. Fáum dögum seinna vann hann
tvær milljónir dollara í happdrætti. Carlo
Dadditt, opinber starfsmaður, fékk bréfið og
gleymdi að það ætti að fara úr höndum hans
innan 96 klukkustunda. Hann missti starf sitt.
Seinna fann hann bréfið aftur og póstlagði 20
afrit og fékk fáum dögum seinna betri vinnu.
Donlon Fairchild fékk bréfið en trúði ekki á
það og fleygði því. Níu dögum seinna dó hann.
Árið 1987 barst ungri konu í Californíu bréf-
ið. Hún átti í erfiðleikum og var varla fær til
skrifta. Hún lagði bréfið til hliðar en lofaði
sjálfri sér að gera þetta seinna. Hún lenti í
alls kyns erfiðleikum, þurfti m.a. að greiða
dýra bílviðgerð. Hún sendi ekki bréfið innan
96 klukkustunda. Loks afritaði liún bréfið og
sendi það og fékk nýjan bíl. Munið að senda
ekki peninga. EKKILÁTA ÞETTA EIGA SIG.
ST. JUDE, Það hefur áhrif.