Morgunblaðið - 18.04.1991, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ" FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991
Helmingur stuðnings-
manna V- og G-lista hef-
ur íhugað að kjósa aðra
MIKIL hreyfing virðist vera á
kjósendum vikurnar fyrir kosn-
ingar, ef marka má svör í skoð-
anakönnun, sem Félagsvísinda-
stofnun Háskóla íslands hefur
gert fyrir Morgunblaðið. Tæpur
þriðjungur þeirra, sem segist
styðja einhvern flokk, svarar ját-
andi þeirri spurningu, hvort til
greina hafi komið á síðastliðnum
fjórum vikum að kjósa einhvem
annan flokk.
Um 53% stuðningsmanna
Kvennalistans og um 46% þeirra,
sem segjast ætla að kjósa Alþýðu-
bandalagið, segja að til greina hafí
komið undanfarið að kjósa einhvern
annan flokk. Hlutfallið hjá Fram-
sóknarflokki og Alþýðuflokki er um
Flugmannadeilan:
Arangurs-
laus sátta-
fundur
SÁTTAFUNDUR flugmanna
og Flugleiða með ríkissátta-
semjara í gær varð árangurs-
laus. Forsvarsmenn flug-
manna segjast bíða eftir til-
boði frá Flugleiðum.
Fundurinn með ríkissátta-
semjara stóð í tæpar þrjár
klukkustundir áður en slitnaði
upp úr. „Það kom ekkert út úr
þessum fundi. Það var ekki
samkomulag um peningamálin
og því er allt strand í bili en
við hittumst aftur eftir helg-
ina,“ sagði Guðlaugur Þor-
valdsson ríkissáttasemjari eftir
fundinn í gærkvöldi.
„Við erum að bíða eftir til-
boði frá Flugleiðum. Við höfum
unnið sameiginlega í tíu daga
að róttækum breytingum á
vinnutíma okkar. Þeir virðast
ekki hafa áhuga á að borga
neitt fyrir það og við bíðum
bara eftir tilboði,“ sagði Geir
Garðarsson formaður Félags
íslenskra atvinnuflugmanna í
gær.
35%, en 20% hjá Sjálfstæðisflokkn-
um.
Félagsvísindastofnun telur að
þessar niðurstöður sýni að stór hluti
kjósenda sé enn, í síðustu viku fyrir
kosningar, að einhveiju leyti
óráðinn. „Er því jafnlíklegt að fylgi
flokka verði að breytast fram á
síðasta dag. Kosningabaráttan mun
því væntanlega skipta afar miklu
máli,“ segir í skýrslu stofnunarinnar
um niðurstöðurnar.
Könnun Félagsvísindastofnunar
var gerð 13.-15. apríl. Hlutfall óráð-
inna svarenda var 4,8%, en Félags-
vísindastofnun spyr þriggja spurn-
inga til þess að fækka óráðnum svar-
endum. Þeir, sem ekki segjast vita
hvernig þeir ætla að kjósa, eru
spurðir áfram hvaða flokk sé líkleg-
ast að þeir kjósi. Ef þeir segjast enn
ekki vita svarið, er spurt hvort
líklegra sé að þeir kjósi Sjálfstæðis-
flokkinn eða einhvern annan flokk.
Þannig er dregið úr kerfisbundinni
skekkju, sem kemur fram í því, að
fylgi Sjálfstæðisflokksins er veru-
lega ýkt ef ein spurning er látin
nægja. sjá bls. 36.
Ökumaður bifhjóls beið bana
OKUMAÐUR bifhjóls lést í
hörðum árekstri á Laugavegi
síðdegis í gær.
Slysið varð með þeim hætti að
jeppabifreið var ekið vestur
Laugaveg og sveigt yfir götuna,
að innkeyrslu við Hekluhúsið. Bif-
hjólið var á leið austur Laugaveg-
-inn og skall það af miklu afli á
hlið bífreiðarinnar.
Ekki er unnt að birta nafn hins
látna að svo stöddu.
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra;
Allir ráðherramir sagt veiði-
heimildir fyrir veiðiheimildir
Aldrei komið til greina að samþykkja aðgang skipa EB að fiskimiðum okk-
ar, segir Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra
„ÞETTA er nú svo fáránlegt,
að ég hef varla heyrt annað
eins,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson formaður Framsókn-
arflokksins og forsætisráðherra
í samtali við Morgunblaðið í
gær, þegar hann var spurður
álits á þeirri staðhæfingu Jóns
Baldvins Hannibalssonar ut-
anríkisráðherra í blaðinu, að
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra hefði í tvígang léð
máls á gagnkvæmum veiðiheim-
ildum í viðræðum við EB. „Við
í ríkisstjórninni höfum allir sagt
og talið það vera klókt: Við skul-
um ræða um veiðiheimildir fyrir
veiðiheimildir. Með því höfum
við allir talið okkur stinga upp
í Evrópubandalagið," sagði for-
sætisráðherra.
-Steingrímur sagði að í meira en
áratug hefði verið bent á kolmunn-
ann sem vannýttan stofn hér við
land. „Við höfum alltaf sagt að
það væri einn fiskistofn hér við
landið, sem við viðurkenndum að
væri ekki fullnýttur og það er kol-
munninn. En enginn hefur haft
áhuga á því að nýta hann,“ sagði
Steingrímur og bætti því við að
hann skildi ekkert í utanríkisráð-
herra að bjóða upp á slíkan mál-
flutning sem hann hefði gert í sinni
fáránlegu grein í gær.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
Ihuga að yfírtaka stjómun
á nýtingu sjávarspendýra
Vaxandi óánægja þjóðanna við Norður-Atlantshaf með Alþjóða hvalveiðiráðið
vegsráðherra og varaformaður
Framsóknarflokksins segir í grein
í Morgunblaðinu í dag að Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráð-
herra hafí í Morgunblaðinu í gær
ráðist að sér með ómaklegum hætti
fyrir tilraunir hans til að afla mál-
stað íslands í fískveiðimálum skiln-
ings meðal aðildarríkja Evrópu-
bandalagsins og innan fram-
kvæmdastjómar þess.
„Krafa Evrópubandalagsins hef-
ur eins og kunnugt er jafnan verið
sú að gegn aðgangi fyrir sjávaraf-
urðir að markaði bandalagsins
þurfi að koma aðgangur skipa
bandalagsins að fískimiðum. Að
sjálfsögðu hefur aldrei af hálfu
okkar Islendinga komið til greina
að ljá máls á þeirri kröfu og höfum
við utanríkisráðherra verið sam-
mála um að hafna öllu slíku af
fullri einurð,“ segir sjávarútvegs-
ráðherra í grein sinni.
Sjá grein Halldórs Ásgríms-
sonar á bls. 34.
ENGIN ákvörðun var um það tek-
in á fjórðu alþjóðlegu ráðstefn-
unni um skynsamalega nýtingu
sjávarspendýra, hvort þátttöku-
þjóðirnar segðu sig úr Alþjóða
hvalveiðiráðinu, fallist það ekki á
fundi sínum í vor að leyfa tak-
markaðar veiðar á hval á ný. {lins
vegar eru þjóðirnar ákveðnar í
áframhaldandi samstarfi og
kanna möguleika á stofnun sér-
stakrar svæðisbundinnar alþjóða-
stofnunar til að stjórna nýtingu
samciginlegra sela- og hvala-
stofna í Norður-Atlantshafi.
Þjóðimar, sem að þessari ráð-
stefnu standa, eru íslendingar, Norð-
menn, Grænlendingar, Færeyingar,
Japanir og Sovétmenn. Á fundinum
voru áheymarfulltmar frá Kanada
og Alaska. Halldór Ásgrímsson, sjáv-
arútvegsráðherra, segir að engin
ákvörðun hafí verið tekin um mögu-
lega úrsögn úr Hvalveiðiráðinu, enda
sé það ekki í verkahring þessarar
ráðstefnu, heldur ríkisstjórnar hverr-
ar þjóðar fyrir sig. Á hinn bóginn
sé því ekki að leyna, að mikil óán-
ægja ríki með störf vísindanefndar
ráðsins og ráðsins sjálfs og því sé
komin fram sú hugmynd, að stofna
Morgunblaðið/KGA
Niðurstöður ráðstefunnar kynntar. Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, Karsten Kleppsvig, ráðuneytissljóri norska sjávarút-
vegsráðuneytisins, John Petersen, sjávarútvegsráðherra Færeyja,
Einar Lemche frá grænlensku heimastjórninni og Kaj Egede, sjávar-
útvegsráðherra Grænlands.
svæðisbundna nefnd til nýtingar
sjávarspendýra á þessum slóðum.
Steinar Bastesen, formaður félags
norskra hvalfangara, segir vaxandi
óánægju með störf Hvalveiðiráðsins
og að sínu mati hljóti að fara að
koma að því, að þessar fyrrum hval-
veiðiþjóðir segi sig úr ráðinu, „fari
það ekki að vinna af skynsemi".
Ráðstefnan ítrekaði í samþykkt
sinni í gær, að stórauknar rannsókn-
ir á ástandi hvalastofna hafa verið
framkvæmdar frá þeim tíma, sem
Alþjóða hvalveiðiráðið ákvað tíma-
bundna stöðvun hvalveiða í atvinnu-
skyni. Niðurstöður þessara rann-
sókna sýni mjög greinilega að sumir
hvalastofnar séu sterkir og gætu vel
þolað varanlega nýtingu. Þannig
hafi vísindanefnd Hvalveiðiráðsins til
dæmis komist að þeirri niðurstöðu
að stærð hrefnustofnsins á hafsvæð-
inu við Suðurheimskautið sé um
760.000 dýr. Á sama hátt sýni niður-
stöður á mati stofnstærðar langreyð-
ar og hrefnu í Norður-Atlantshafí,
að stærð og ástand þessara stofna
skapi ótvírætt grundvöll fyrir trygga
og sjálfbæra nýtingu.
Ráðstefnan fjallaði einnig um og
lýsti yfír áhyggjum yfír að vísinda-
nefnd Halveiðiráðsins hefði hvað eft-
ir annað brugðist skyldu sinni varð-
andi framsetningu hagnýtra stjórn-
unarreglna á grundvelli nýrrar þekk-
ingar. Þá var vakin sérstök athygli
á nauðsyn þess að ákvæðum Alþjóða-
sáttmálans um stjórn hvalveiða frá
1946 sé réttilega framfylgt, sérstak-
lega varðandi stjórn og umsjón hval-
veiða.
Á ráðstefnunni var ákveðið að
aðilar fundarins haldi áfram sam-
vinnu á þessum vettvangi og að boð-
að skuli til fímmtu alþjóðlegu ráð-
stefnunnar um skynsamlega nýtingu
sjávarspendýra á Grænlandi í apríl á
næsta ári.
Sjálfstæðis-
flokkurinn:
Útifundur á
Lækjartorgi
Útifundur á vegum Sjálf-
stæðisflokks verður haldinn á
Lækjartorgi í dag og hefst
hann kl. 17.30. Framsögu-
menn á fundinum verða Davíð
Oddsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins og Þuríður Páls-
dóttir, sem skipar 10. sæti á
framboðslista flokksins í
Reykjavík. Fundarsljóri verð-
ur Friðrik Sophusson vara-
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins.
Björgvin Halldórsgon, Egill
Olafsson og Rut Reginalds
ásamt hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar munu flytja
íslenska tónlist frá kl. 17.00 og
aftur þegar ræðumenn hafa lok-
ið máli sínii.