Morgunblaðið - 19.04.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 19.04.1991, Síða 1
96 SIÐUR B/C/D 88. tbl. 79. árg. FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Asíuferð Gorbatsjovs: Lítill árangnr af Japansheimsókn Tókíó. Reuter. MÍKHAÍL S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi segir að Sovétríkin og Japan hafi stórbætt samskipti sín með viðræðum hans og Toshikis Kaifus, forsætisráðherra Japans, er lauk í gær. Stjórnmálaskýrendur telja þó að áþreifanlegur árangur ferðarinnar sé lítill en um hríð var búist við að ríkin næðu samkomulagi í áratuga langri deilu um fjór- ar smáeyjar sem Sovétmenn hernámu í stríðslok. Svo fór ekki og Japanir munu ekki veita Sovétmönnum stórfellda efnahagsaðstoð eins og Gorbatsjov er talinn hafa gert sér vonir um. Gorb- atsjov og Kaifu áttu maraþon- viðræður um eyjarn- ar í gær og| var um tíma talið að svo mik- ið bæri á Gorbatsjov og Kaifu milli að engin sameiginleg yfirlýs- ing yrði gefin út. Sovétleiðtoginn mun hafa tjáð Kaifu að hann gæti ekki látið undan í deilunni vegna þrýstings harðlínuafla heima fyrir er hafna öllu landaafsali. Sovétmenn heita því samkvæmt yfirlýsingunni að fækka í herliði sínu á eyjunum á næstu árum en þær nálægustu eru rétt við strönd Hokkaído. Japanar telja það nokk- urn sigur að deilan skuli vera nefnd í yfirlýsingunni en þar með viður- kenna Sovétmenn í reynd að til mála komi að semja um eyjarnar þótt þeir hafi ekki hvikað að þessu sinni. Einnig tókst Japönum að vekja aukna athygli á eyjadeilunni með því að gera hana að kjama viðræðnanna. Að sögn embættis- manna er í yfirlýsingunni minnst óbeint á samning frá 1956 þar sem Sovétmenn sættust á að yfirgefa tvær af eyjunum. Sovétmenn riftu þeim samningi síðar vegna varnar- sáttmála sem Japanir gerðu við Bandaríkjamenn. Ríkin tvö gerðu með sér 15 samn- inga um aukin samskipti á ýmsum sviðum en samband Japana og Sov- étmanna hefur verið afar stirt frá stríðslokum. Er þar m.a. um að ræða samvinnu á sviði efnahags- og menntamála auk tækni, einnig verða flugsamgöngur bættar. Sam- vinna í fiskveiðum verður aukin og var þar um verulegt hagsmunamál- fyrir Japana að ræða. Veiðikvótar japanskra laxveiðimanna við Kyrra- hafsströnd Sovétríkjanna hafa hraðminnkað undanfarin ár. Reuter íraskir Kúrdar flykkjast að bandarískri herþyrlu, sem flutti matvæli og ýmis hjálpargögn til flótta- mannabúða þeirra við landamæri Tyrklands og íraks í gær. Stofnun griðasvæðis fyrir Kúrda í norðurhluta Iraks: Viðræður milli íraskra og bandarískra herforingja Bagdad, Uamaskus, Nikosíu, Diyarbakir, YFIRMAÐUR bandaríska her- aflans, sem falið hefur verið að bjarga hundruðum þúsunda kúrdískra flóttamanna í norður- hluta íraks, fer í dag til fundar við íraska herforingja, að öllum líkindum til þess að tryggja að Irakar reyni ekki að hindra Reuter Hróp gerð að Mitterrand íBúkarest AUt að 3.000 Rúmenar gerðu hróp að Francois Mitterrand Frakk- landsforseta við franska sendiráðið í Búkarest í gær er hann kom í opinbera heimsókn til Rúmeníu. Þeir hrópuðu vígorð gegn sósíalisma og mótmæltu viðræðum Mitterrands við Ion Uiescu Rúmeníuforseta fyrr um daginn. Augljóst var að mótmælin fengu mjög á forsetann og fylgdarmenn hans, sem hröðuðu sér inn í sendiráðið. Óeirðalög- reglan kom síðar á vettvang og lokaði svæðinu. Þetta er fyrsta heim- sókn erlends þjóðhöfðingja til landsins frá rúmensku byltingunni í desember 1989. Salibiya. Reuter, The Daily Telegraph. stofnun griðasvæðis fyrir Kúrda. Irakar undirrituðu í gær samkomulag við Samcinuðu þjóðirnar til að tryggja kúrdísku flóttamönnunum „ör- yggi og lífsviðurværi“. Talsmaður Bandaríkjahers sagði í gær að bandaríski undirhershöfð- inginn John Shalikashvili myndi ræða við íraska herforingja skammt frá landamærunum að Tyrklandi. Shalikashvili á að hafa yfirumsjón með stofnun griða- svæðisins og ráðgert er að allt að 15.000 bandarískir, breskir og franskir hermenn taki þátt í að- gerðunum. Dick Cheney, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, sagði að stefnt yrði að því að Sam- einuðu þjóðirnar tækju sem fyrst við stjórn griðasvæðisins. George Bush Bandaríkjaforseti sagði að hann kynni að fallast á beiðni ír- aka um að fá að selja olíu ef þeir lofuðu að ráðast ekki á Kúrda. Samkvæmt samkomulagi íraka og Sameinuðu þjóðanna verða að- eins hjálparsveitir óbreyttra borg- ara sendar til flóttamannanna á fjöllum Norður-íraks. Talið er að um þúsund flóttamenn deyi þar daglega af hungri, vosbúð og sjúk- dómum. Akbar Hashemi Rafsanjani, for- seti Irans, sagði að íranir myndu ala önn fyrir um milljón íraka, sem flúið hafa til landsins, þar til þeir gætu snúið aftur til heimalands síns. Kúrdar í írak sögðu í gær að uppreisnarmenn og her Saddams Husseins íraksforseta hefðu hætt bardögum á þriðjudagskvöld þótt ekki hefði verið samið um vopna- hlé. Uppreisnarmennirnir væru að íhuga tillögur um hvemig binda mætti enda á blóðsúthellingarnar. Fregnir herma að Saddam Hussein hafi í vikunni boðið Kúrdum sjálf- stjórn, sæti á þingi íraks og lýð- ræðislegar kosningar í eigin fylki. írösk stjórnvöld framlengdu i gær frestinn, sem þau gáfu Kúrdum til að fallast á tilboð þeirra um sakar- uppgjöf. Tilboðið nær til allra Kúrda nema þeirra sem gerðust sekir um morð, nauðganir og grip- deildir í uppreisninni gegn Saddam Hussein. Heryfirvöld i Saudi-Arabíu sögðu í gær að hluti hersveita bandaríska landhersins yrði áfram í Saudi-Arabíu og Kúveit en ekki væri ráðgert að reisa herstöðvar fyrir þær. Sjá „Eymdarsvæði flótta- manna ...“ á bls. 36-37. Alvarlegt njósna- mál í Þýskalandi Berlín. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. UMFANGSMESTA njósnaniál, sem upp hefur koniið í Þýskalandi síðastliðin fimmtán ár, virðist nú í uppsiglingu. Wolf-Hcinrich Prellwitz, háttsettur embættismaður í þýska varnarmálaráðuneyt- inu, var handtekinn fyrr í vikunni vegna málsins og er reiknað með að fleiri handtökur fylgi í kjölfarið. Talið er að Prellwitz hafi starf- að fyrir austur-þýsku leyniþjón- ustuna frá lokum sjöunda áratug- arins og verið einn mikilvægast njósnari hennar á hernaðarsvið- inu. Hann var starfsmaður þeirrar deildar varnarmálaráðuneytisins sem fór með endurnýjun vopna- kerfa. Meðal verkefna Prellwitz var skrásetning allra skjala. Þær upp- lýsingar, sem hann lét Austur- Þjóðverjum í té, voru svo um- fangsmiklar að þeir höfðu ekki við að vinna úr þeim. Til að mynda leikur grunur á að hann hafi út- vegað Austur-Þjóðveijum upplýs- ingar um Tornado-herþotuna er hún var í hönnun, og herþotu sem Þjóðverjar, ásamt Bretum, Frökk- um og ítölum, hafa unnið að á undanförnum árum. Síðast er tal- ið að Prellwitz hafi látið Austur- Þjóðveijum leynilegar upplýsing- ar í té í árslok 1989. Munu laun- in sem hann þáði frá þeim nema 200.000 þýskum mörkum, eða sjö milljónum íslenskra króna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.