Morgunblaðið - 19.04.1991, Side 2
i vlJMÁ Gí HIJOAGUTP.Cyí QIG/u.IíI/UOílOl'/;
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍE 1991
i
Borgarstjórn um neyðarnúmerið 000:
Borgin ætlar ekki
að fara í samkeppni
við einkafyrirtæki
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti í gær tillögu borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, þar sem fram kemur, að borgin muni und-
ir engum kringumstæðum fara í samkeppni við einkafyrirtæki þeg-
ar tekið verður upp neyðarnúmerið 000.
á sviði viðbragðsþjónustu við boðum
frá viðvörunarkerfum.
Borgaryfirvöld vinna nú að und-
irbúningi þess, að komið verði upp
einu neyðarnúmeri, 000, fyrir neyð-
arþjónustu í borginni. Á fundi borg-
arstjómar í gær flutti Júlíus Haf-
stein tillögu frá bórgarfulltrúum
sjálfstæðismanna, þar sem lagt var
til að borgarstjórn samþykkti, að
við uppsetningu tækjabúnaðar og
rekstur neyðarnúmersins miðaðist
þátttaka borgarinnar við sambæri-
lega þjónustu, og rekin væri í dag.
Jafnframt tæki borgarstjóm fram,
að ekki yrði undir neinum kringum-
stæðum farið í samkeppni við þau
einkafyrirtæki, sem þegar hefðu og
myndu í framtíðinni hasla sér völl
Seyðisfjörður:
Júlíus sagði, að í þessu sambandi
væri einkum átt við að borgin færi
ekki að reka starfsemi í samkeppni
við þjónustu einkafyrirtækja, sem
fylgdust með innbrotaviðvörunar-
kerfum, eldviðvömnarkerfum,
neyðarhnöppum og þess háttar.
Eðlilegra væri að kanna, hvort
einkafyrirtæki gætu tekið að sér
þá öryggisþjónustu, sem borgin
sinnti í dag.
Tillaga sjálfstæðismanna var
samþykkt með 10 atkvæðum gegn
einu atkvæði borgarfulltrúa
Kvennalistatis. Aðrir borgarfulltrú-
ar minnihlutans sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Morgunblaðið/KGA
Utifundur sjálfstæðismanna
Talsverður fjöldi kom til útifundar Sjálfstæðis-
flokksins á Lækjartorgi í blíðviðrinu síðdegis í
gær. Friðrik Sophusson, fyrsti þingmaður Reyk-
víkinga, flutti stutt ávarp og stýrði samkom-
unni. Þuríður Pálsdóttir, söngkona, sem skipar
10. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík í alþingiskosningunum á morgun flutti
ræðu og Davíð Oddsson borgarstjóri, formaður
Sjálfstæðisflokksins og væntanlegur fyrsti þing-
maður Reykvíkinga, sömuleiðis.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðheiTa um stöðuveitingar í Byggðastofnun:
Af jafngóðum mönnum vel
ég framsóknarmanninn
Starfsmannafélagið mótmælir pólitískum mannaráðningum
GUÐMUNDUR G. Þórarinsson er einn umsækjenda um stöðu aðstoðar-
framkvæmdastjóra Framkvæmdasjóðs, en hver verður ráðinn í stöðuna
liggur ekki fyrir fyrr en í maímánuði að sögn Þórðar Friðjónssonar
formanns stjórnar Framkvæmdasjóðs. Starfsmannafélag Byggðastofn-
unar og Framkvæmdasjóðs mótmælir pólitískum stöðuveitingum við
opinberar stofnanir og óttast að ófagleg vinnubrögð verði viðhöfð við
ráðningu aðstoðarforstjórans.
Ottó Wathne
landar heima
SKUTTOGARINN Ottó Wathne
NS 90 landaði í gær í heima-
höfn sinni, Seyðisfirði, í fyrsta
sinn í rúmlega tvö og hálft ár,
eða frá því í september árið
1988. Eigendur segjast hafa
verið beittir þrýstingi til að
landa heima.
Togarinn hefur ekki landað afla
sínum á Seyðisfírði frá því í sept-
ember 1988 en í gær var landað
úr honum 48 tonnum, mest ýsu.
Trausti Magnússon, annar eigenda
skipsins og skipstjóri, sagði að
ástæðan fyrir því að þeir lönduðu
á Seyðisfírði væri að þeir hefðu
verið beittir þrýstingi „frá afla-
miðlun og ýmsum öðrum aðilum,“
eins og hann orðaði það. Einnig
hefði mikil gagnrýni komið frá
Seyðfírðingum.
Trausti sagðist ekki sáttur
við það verð sem þeir fengju fyrir
aflann á Seyðisfírði og að það
væri lægra en á fískmörkuðum
syðra. Fiskiðjan Dvergasteinn
greiðir 75 krónur fyrir kílóið af
þorski og ýsu, 45 krónur fyrir
ufsa og 40 krónur fyrir karfa.
Hann kvaðst ekki vita hvort þeir
ætluðu að landa á Seyðisfirði í
framtíðinni. Nú ætti að físka í sigl-
ingu á Þýskaland.
Pressan hélt því fram í gær að
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra hefði gert samkomulag við
Guðmund fyrr í vetur um að hann
fengi þessa stöðu og að það sam-
komulag hafi verið gert til lausnar
á framboðsvanda Framsóknar í
Reykjavík. „Þetta er tóm vitleysa.
Framkvæmdasjóður hefur sjálfstæða
stjóm sem tekur ákvörðun um það
hver hlýtur stöðuna," sagði
Steingrímur í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Steingrímur sagði að sér væri
kunnugt um að Guðmundur hefði
sótt um stöðuna, en að öðm leyti
vissi hann ekkert um málið. Hann
sagðist í þessu sambandi geta tekið
undir orð Bjama heitins Benedikts-
sonar, sem hefði eitt sinn sagt að
menn ættu ekki að gjalda þess að
vera sjálfstæðismenn. „Ég segi að
menn eigi ekki að gjalda þess að
vera framsóknarmenn. Ég get líka
sagt að af jafngóðum mönnum, þá
vel ég framsóknarmanninn," sagði
Steingrímur Hermannsson.
Guðmundur G. Þórarinsson sagði
í samtali við Morgunblaðið - eða
spurði öllu heldur - hvort menn héldu
að hann væri svo djúpt sokkinn, að
hann þyrfti að gera einhver pólitísk
samkomulög um að fá stöðu aðstoð-
armanns. Hann neitaði því þó ekki
að hann ætlaði að sækja um stöðuna.
Starfsmannafélagið mótmælir
pólitískum ráðningum
Á fundi starfsmannafélags
Byggðastofnunar og Framkvæmda-
sjóðs á miðvikudag var mótmælt
vinnubrögðum vegna væntanlegrar
ráðningar í stöðu aðstoðarforstjóra
Framkvæmdasjóðs, en einnig
ákvörðun Guðmundar Malmquist,
forstjóra Byggðastofnunar, að mæla
með Gunnari Hilmarssyni, fyrrver-
andi stjórnarformanni Atvinnutrygg-
ingasjóðs útflutningsgreina, í stöðu
deildarstjóra hlutafjárdeildar. Sú
staða var auglýst fyrir skömmu og
sóttu fjórir um; þrír starfsmenn
stofnunarinnar og Gunnar Hilmars-
son. Guðmundur Malmquist skýrði
starfsmönnunum þremur frá því á
miðvikudag að hann hygðist leggja
til að Gunnar yrði ráðinn.
Starfsmannafélagið telur að engin
þörf sé á þessari stöðu, starfssviðið
sé óljóst og ófrágengið hvar starfs-
vettvangur verði. Hins vegar séu
boðin betri kjör en almennt gerist í
stofnuninni. Émil Bóasson, formaður
félagsins, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að starfsmenn teldu að skipan-
ir hefðu komið úr forsætisráðuneyt-
inu um að niðurstaðan yrði sú, sem
hún væri orðin.
Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, sendi frá sér yfir-
lýsingu í gær, þar sem hann segist
harma að málið hafi verið opinberað
áður en hann gat rætt það við stjóm
Byggðastofnunar. „Starf það, sem
um er að ræða, telst til helztu starfa
hjá Byggðastofnun. Því skal stjóm
stofnunarinnar lögum samkvæmt
staðfesta ráðningu í starfið og fyrr
en hún hefur gert það er ekki um
ráðningu að ræða,“ segir hann.
Matthías Bjamason, stjómarfor-
maður Byggðastofnununar, sagði að
ekki væri ákveðið hvenær næsti
stjómarfundur yrði haldinn. Hann
sagðist ekki telja brýna þörf á nýjum
deildarstjóra og að hann ætti alveg
eftir að heyra rök fyrir því að ráðið
yrði í stöðuna. Hann sagðist telja
viðbrögð starfsmanna eðlileg og ekk-
ert athugavert við mótmæli þeirra.
ÁTVR opnar
í Austurstræti
RÍKIÐ á nú í samningaviðræðum
um kaup á eigninni Austurstræti
10 og ef samningar takast mun
ÁTVR opna þar áfengisútsölu.
Þór Oddgeirsson, aðstoðarforstjóri
ÁTVR, sagði að ekki væri búið að
ganga frá samningum en allar líkur
væru á að samið yrði fljótlega eftir
helgina.
„Ef samningar takast verður opn-
uð þarna áfengisútsala. Hvenær það
yrði veit ég ekki en útsölunni við
Lindargötu verður lokað þegar þessi
nýja útsala opnar,“ sagði Þór.
Húseignin að Austurstræti 10 er
þar sem Torgið var til húsa og nú
síðast Penninn.
*
Istak býður lægst
í Vestfjarðagöngin
ÍSTAK sf. bauð best í gerð jarðganga um Breiðadals- og Botns-
heiði á Vestfjörðum. Tilboð í gerð ganganna voru opnuð í gær
og kom þá í ljós að ístak átti lægsta tilboðið, eða 82% af áætl-
uðum kostnaði.
Tilboð ístaks hljóðaði uppá
tæpar 2.475 milljónir króna. ístak
býður í verkið í samvinnu við þrjú
erlend fyrirtæki. Það eru sænska
fyrirtækið Skanska Intemational,
norska fyrirtækið Selmer-Furu-
holmen og Phil & Sön frá Dan-
mörku.
Fimmtán fyrirtækjum voru
send útboðsgögn en átta skiluðu
inn tilboðum. Þessi fyrirtæki em
frá íslandi, Búlgaríu, Danmörku,
Ítalíu, Noregi, Svíþjóð og Þýska-
landi.
Tilboðin voru mjög svipuð.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinn-
ar var rúmar 3.000 milljónir,
3.013.247.000 kr., en tilboð ís-
taks var 82% þeirrar fjárhæðar.
Búlgarska fyrirtækið Avtomag-
istrali-Hemus bauð rúmlega 2.496
milljónir, eða 83% kostnaðaráætl-
unar og Krafttak sf., í samvinnu
við Aker Entreprenör A/S frá
Noregi, bauð rúmar 2.502 milljón-
ir.
Jarðgöng um Breiðadals- og
Botnsheiði verða lengstu jarðgöng
sem hér hafa verið gerð, alls 8,7
kílómetrar að lengd. Göngin verða
þriggja arma með gatnamótum
inni í miðju fjalli og verður tvíbreið
akbraut í hluta ganganna.
Vegagerð ríkisins og sam-
gönguráðuneytið munu á næst-
unni fara gaumgæfilega yfir til-
boðin, meta þau og bera saman
og síðan verður gengið frá samn-
ingum. Áætlað er að hefjast
handa í sumar og á verkinu að
ljúka í árslok 1995.