Morgunblaðið - 19.04.1991, Page 14

Morgunblaðið - 19.04.1991, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991 Sjálfstæðisstefnan í heilbrígðismálum Alþingis- KOSNINGAR Davíð Oddsson um nýtt álver: Skráning gengis ekki löguð að framkvæmdum DAVÍÐ Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði á fjölmennum fundi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi í fyrrakvöld að hann væri ekki þeirrar skoðunar að stjórnvöld ættu að hafa hönd í bagga með skrán- ingu gengisins, vegna fyrirsjáanlegrar þenslu í efnahagslífinu, þegar og ef til þess kemur að nýtt álver verði reist á Keilisnesi. „Við getum ekki lagað skráningu gengisins að því hvað hentar byggingu álvers- ins,“ sagði Davið. - fyrir þá fáu sem ekki þekkja til eftir Láru Margréti Ragnarsdóttur ^Davíð sagði að þetta væri vissu- lega athyglisverð spurning. Eins og menn vissu hefðu samningar um nýtt álver verið töluvert lengi í gangi og í grundvallaratriðum hefði verið byggt á tilteknu orkuverði, sem bundið hefði verið sem ákveðið hlut- fall af álverði. „Við hins vegar sáum það þegar gengið fór að breytast, hversu gríðarleg áhrif gengið getur haft. Dollarinn hríðféli á tímabili og miðað við þá stöðu sem var, þegar dollarinn var hvað lægstur, þá ieit dæmið þannig út að samningamir væru óraunhæfir. Dollarinn hækkaði sem betur fer aftur, en þetta sýnir okkur hvað samningarriir eru við- kvæmir gagnvart gengisþróun," sagði Davíð. „Það er enginn vafi á því að vegna eðlis þessara framkvæmda, þá kem- ur gríðarleg innspýting fjármuna inn í efnahagslifið, 60 milljarðar íslenskra króna, á um tveimur og hálfu ári. Af því hlýtur að skapast ákveðin þensla og því verða stjórn- völd á sama tíma að gæta aðhalds, svo allt fari hér ekki úr böndum," sagði formaður Sjálfstæðisflokksins. í síðastliðinni viku birtist í Morg- unblaðinu grein eftir aðstoðarmann núverandi heilbrigðisráðherra, Finn Ingólfsson, en Finnur er efsti mað- ur á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Ótrúleg vanþekking aðstoðarmannsins Grein aðstoðarmannsins er aðal- lega útúrsnúningur á grein Ólafs F. Magnússonar læknis frá því í mars. Hirði ég ekki um að ræða þær aðferð- ir sem Finnur viðhefur í þeim útúr- snúningi. Hitt er þó öilu alvarlegra, að í þriggja ára setu sinni í heilbrigð- isráðuneytinu hefur Finnur Ingólfs- son eftir greininni að dæma ekki gert sér far um að kynna sér stefnu annarra flokka í heilbrigðismálum. Finnur gerir sig beran að því að nánast fullyrða að hann hafi ekki lesið neina af þeim fjölmörgu grein- um um stefnu og samþykktir Sjálf- stæðisflokksins sem birst hafa hér í Morgunblaðinu á síðustu vikum og mánuðum. Að kasta úr glerhúsi Hér er líklegast komin skýringin Kosningavaka Sjáffstæóisflokksins Kosningavaka sjálfstæðismanna verður í Súlnasal Hótel Sögu á morgun, kjördag, frá kl. 22:00 til 3:00 eftir miðnætti. „Einsdæmi" leikur fyrir dansi. Stór sjónvarpsskjár verður í hliðarsal, þar sem hægt verður að fýlgjast með kosningasjónvarpi. Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík. xf!) FRELSI OG MANNÚÐ á þeim stjórnunaraðferðum sem að- stoðarmaður heilbrigðisráðherra hef- ur beitt á undanförnum árum. Þær ákvarðanir sem teknar hafa verið bera nefnilega keim af vanþekkingu á þeirri þróun heilbrigðismála sið- menntaðrá þjóða sem átt hefur sér stað undanfarinn áratug og 'líkjast helst misheppnaðri tilraun Svía í heilbrigðisþjónustunni fyrir rúmlega tuttugu árum. Því kastar Finnur Ing- ólfsson úr glerhúsi þegar hann nefn- ir grein sína „Að standa vörð um það gamla og úrelta". „Pólitísk stefnumörkun“ - eða hvað? „Stefna" Framsóknarforystunnar í heilbrigðisþjónustunni undanfarið, ef stefnu skyldi kalla, hefur fyrst og fremst birst sem örþrifaráð þess sem ekki veit hvað til bragðs skal taka, „Pólitískri stefnumörkun" sinni lýsfr Finnur í átta liðum í grein sinni og fyrir utan fyrsta og síðasta lið, (sem reyndar er annars vegar runninn undan rifjum Ragnhildar Helgadótt- ur fyrrv. heilbrigðisráðherra og hins vegar samningum við ftjáls félaga- samtök) felst stefnan fyrst og fremst í formi nefndaskipana. Þessar nefnd- ir hafa tækifæri til að miðstýra og kæfa frjálst framtak í heilbrigðis- þjónustu, innan sjúkrahúsa sem ut- an. Finnur státar af miðstýringar- nefndum og ráðum sem hann telur færa stjómsýsluna nær vettvangi en er í raun enn eitt stjómsýslustigið sem lengir og þyngir upplýsingafer- lið í heilbrigðisþjónustunni - og er nú nógu erfitt fyrir. Áhrifin af svokallaðri stefnumörkun Afleiðingar þessarar „pólitísku stefnu" eru m.a. ienging biðlista, lokanir bráðadeilda og öldrunar- deilda sjúkrahúsa. Þetta kemur að sjálfsögðu niður á þeim sem síst skyldi. Sem betur fer höfum við átt aðgang að þjónustu utan sjúkrahúsa, bæði aðgerðum og annarri þjónustu. Þetta kalla stjórnarherrarnir „opinn krana" og næsta skrefið, að þeirra mati, er að ákveða fyrir okkur hin hvenær skrúfa á fyrir. Þá megum við líklegast deyja drottni okkar, með þeirra leyfi. Sjá framsóknarmenn betur í dag? Það er kannski að bera í bakkafull- an lækinn að bæta við enn einni lýs- ingu á meginstefnu sjálfstæðis- manna í heilbrigðismálum. En ef svo kann að fara að framsóknarmenn hafi betri sjón í dag en aðra daga og lesi lýsinguna er það tilraunarinn- ar virði. Tryggja á rétt fólks til heilbrigðisþjónustu Megininntak stefnu sjálfstæðis- manna í heilbrigðisþjónustu er að tryggja eigi sjálfsagðan rétt fólks til heilbrigðisþjónustu þegar á þarfað halda. Réttur til þjónustu verður ekki tryggður með miðstýringu og sveiflukenndri afkomu ríkisins. Því vilja sjálfstæðismenn endurvekja sjúkratryggingar en í stærra formi en var á tímum gömlu sjúkrasamlag- anna. Tryggingar eru nefnilega hugsaðar til að grípa inn í þegar óvænt áföll dynja yfir og bæta tjónið strax. Sama lögmál á að ríkja í sjúkr- atryggingum og öðrum tryggingum. Réttindin eiga einnig að vera vel skilgreind. Iðgjald sjúkratrygging- anna á að vera tekjutengt en nllir eiga sama rétt til þjónustu. Leiðir að marki Þess skal einnig gætt að tryggja gæði heilbrigðisþjónustunnar, hag- kvæmni trygginganna og að iðgjöld hækki ekki óeðlilega. Sjálfstæðis- menn leggja því áherslu á aukna þátttöku almennings og starfsfólks í heilbrigðisþjónustu til að hafa áhrif Lára Margrét Ragnarsdóttir „Afleiðingar þessarar „pólitísku stefnu“ eru m.a. lenging biðlista, lokanir bráðadeilda og öldrunardeilda sjúkra- húsa. Þetta kemur að sjálfsögðu niður á þeim sem síst skyldi.“ á þróun heilbrigðismála. Slíkt viljum við gera með ýmsum samræmdum ráðum svo sem með: • bættri rekstrarhagkvæmni sjúkrahúsa með auknu sjálfstæði þeirra í rekstri. • valfrelsi fólks, bæði hvað snertir þjónustu innan og utan sjúkra- húsa • að ná fram eins mikilli sam- keppni um verð og þjónustu í lyfsölu og hagkvæmt er • að koma til móts við fjölbreyttar þarfir aldraðra og tryggja þannig gæði og hagkvæmni í öldrunar- þjónustunni, og að vilji þeirra sjálfra sé virtur • að efla þjónustu og styrki til fatl- aðra og tryggja að þeir njóti hæfileika sinna eins og kostur er • að stuðla að aukinni vitund um ábyrgð á eigin heilsu og auka fræðslu um skaðsemi reykinga, áfengis og annarra vímuefna • að auðvelda ftjálsum félagasam- tökum að hafa frumkvæði í heilsuvernd og annarri heilbrigð- isþjónustu • að tryggja kostnaðarvitund og aðhald af hálfu fólksins sjálfs á margvíslegan hátt. Fullt tillit sé tekið til þeirra sem minna mega sín, þ.á m. öryrkja, aldraðra, barna og sjúklinga með lang- vinna sjúkdóma. > Stefna frelsis og mannúðar Sjálfstæðismenn vilja framfylgja hugsjónum sínum jafnt í rekstri heil- brigðisþjónustu sem í öðrum rekstri. Þær hugsjónir treysta á frumkvæði og dómgreind einstaklingsins í lausn verkefna. Miðstýringarbákn það sem framsóknarmennskan boðar mun hugsanlega með skömmtun geta haldið niðri útgjöldum til heilbrigðis- mála. Reynslan sýnir hins vegar að slíkt bákn mun aldrei ná raunveru- legum árangri þar sem saman fer mesta hagkvæmni, afköst og gæði. Slíkt bákn mun þaðan af síður taka tillit til þeirra mannúðarsjónarmiða að tryggja rétt til heilbrigðisþjónustu þegar á þarf að halda. Því skulum vfð taka höndum sam- an og tryggja jákvæða þróun heil- brigðisþjónustu í skjóli stefnu Sjálf- stæðisflokksins með frelsi og mann- úð ( fyrirrúmi. Höfundur er hngfrœðingur, formuður heilbrigðis- og tryggingnnefndar Sjálfstæðisflokksins og skipnr 8. sæti framboðslista flokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.