Morgunblaðið - 19.04.1991, Qupperneq 18
01
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRIL 1991
Megin verkefnið er að efla
lieilbrigði landsmanna
eftir Skúla G.
Johnsen
í stefnuskrá Alþýðuflokksins,
sem lögð hefur verið fram fyrir
þessar kosningar er ítarlegur kafli
um heilbrigðismál. Þar og í inn-
gangskafla Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, formanns Alþýðu-
flokksins, um jafnaðarstefnuna
kemur fram að umbætur í heilsu-
farsmálum eru undirstaða annarra
framfara og atvinnulífið dafnar
því aðeins ef að því stendur heil-
brigð og menntuð þjóð. Öflugt
atvinnulíf er á sama hátt undir-
staða velferðarkerfisins, sem er
iykillinn að því að auka jöfnuð
meðal fólksins. Misjöfn staða
heilsufarsmála og mismunandi
tíðni sjúkdóma eftir þjóð'félags-
hópum endurspeglar ekki síður
ójöfnuð í þjóðfélaginu heldur en
mismunandi afkoma enda fer það
saman.
Ég er þeirrar skoðunar, að öll
jákvæð og uppbyggjandi viðleitni
mannsins, hveiju nafni sem nefn-
ist, beinist að því að auka velferð
mannsins í félagslegum, andlegum
og líkamlegum skilningi.
Grunnundirstaða allra slíkra
aðgerða er að tryggja menntun
og heilbrigði. Með framförum á
þeim sviðum eru aðrar framfarir
í rauninni tryggðar án mikillar
annarra aðgerða. Sá einstaklingur
sem lifír á háu stigi félagslegrar,
andlegrar og líkamlegrar velferðar
og hefur öðlast góða menntun er
undirstöðueining atvinnulífsins.
Frá honum koma hugmyndimar,
dáðin og viljinn fremur en frá
þeim sem býr við lágt stig velferð-
ar og litla menntun.
Samkvæmt stefnuskrá Alþýðu-
flokksins er það meginverkefni
næstu ára í heilbrigðismálum áð
efla heilbrigði landsmanna. Hvem-
ig skal standa að slíku? Ég greini
gjaman þær aðgerðir þjóðfélags-
ins sem fást við að draga úr sjúk-
dómum og efla heilbrigði í þrennt.
í fyrsta lagi er starfið við að
lækna og líkna sjúkum í öðm iagi
er heilsuvemdarstarfíð sem beinist
að einstaklingnum svo sem bólu-
setningar, sjúkdómaleit og heil-
brigðisfræðsla og í þriðja lagi em
aðgerðir til eflingar heilbrigðinni.
Tvennt hið síðamefnda táknar
að auka þarf starfíð meðal hinna
heilbrigðu. Þetta hefur okkur ekki
lærst ennþá nógu vel að því er
varðar okkur sjálf. Þeir sem reka
flugvélar og annan flókinn vélbún-
að og tæki hafa fyrir löngu gert
sér grein fyrir gildi fyrirbyggjandi
viðhalds. Það miðar að því að halda
bilunum frá vélinni eða tækinu.
Sama er um starf við að efla heil-
brigði, það miðar að því, að styrkja
vamir til líkama og sálar og bæta
félagslegan aðbúnað í hvívetna,
ekki síst í fjölskyldunni, á vinnu-
staðnum og í frístundastarfí. Efl-
ing heilsunnar er spuming um að
vemda umhverfíð, draga úr meng-
un og hávaða. Efling heilsunnar
snýst um framfarir í skipulagsmál-
um, bæjarskipulagi, sem styður
„Ég er þeirrar skoðun-
ar, að öll jákvæð og
uppbyggjandi viðleitni
mannsins, hverju nafni
sem nefnist, beinist að
því að auka velferð
mannsins í félagsleg-
um, andlegum og lík-
amlegum skilningi.“
hollustusamlega lífshætti og tekur
tillit til þarfa fjölskyldunnar allrar.
Efling heilbrigðinnar snýst um
nýja hugmyndamótun innan
stjómmálanna sem hefur þau sjón-
armið í öndvegi, að velflestar
ákvarðanir og velflest umsvif okk-
ar hafa áhrif á aðbúnað og velferð
til hins verra eða til hins betra.
Ný hugmyndamótun í þjóðmálun-
Skúli G. Johnsen
um verður að gæta að þessu með
því að taka ávallt tillit til heilbrigð-
isfræðilegra sjónarmiða.
Nýtt Suðurland
eftir Lúðvík
Gizurarson
í kosningunum um helgina eru
mörg sjónarmið á lofti t.d. staða
okkar í samstarfí Evrópu. Þessari
grein er þó ætlað að ræða málið út
frá einu kjördæmi þ.e. Suðurlandi.
Mér virðast hagsmunir manna á því
svæði stundum gleymast og vil ég
geta nokkurra mála.
A-listinn
Mér er engin launung á því, _að í
þessum kosningum styð ég Árna
Gunnarsson, alþingismann, en hann
skipar nú efsta sætið á A-listanum
á Suðurlandi. Hann hefur verið al-
þingismaður fyrir Norðurland
eystra, en flytur sig nú um set og
leitar fýlgist á Suðurlandi.
Gleymt svæði
Suðurland hefur orðið eftir í öllu
kapphlaupinu um peninga og fram-
farir. Úr röðum þingmanna þess
hafa þó komið ráðherrar og það fleiri
en einn. Það hefur ekki dugað.
Þetta kjördæmi framleiðir t.d.
mest allt rafmagn landsins, en það
er notað af öðrum. Það hefði verið
lágmark, að allur þessi auður væri
skattlagður örlítið til hjálpar Suðurl-
andi. Það má gera með beinu fram-
leiðslugjaldi, sem Suðurland fengi
eitt. Næg eru verkefnin. Auka þarf
atvinnu og hjálpa þarf bændum,
þegar framleiðsla þeirra dregst sam-
an. Það er ekki hægt að bjóða upp
á það og myndi hvergi líðast, að
allt þetta rafmagn væri framleitt í
einu héraði, en notað í öðrum lands-
hlutum, þar sem það er skattlagt,
beint og óbeint. Nefna má álfram-
leiðslu, sem Suðurland fær ekki hlut
í eða hagnað af. Það gera þeir ein-
ir, sem nota rafmagnið. Þetta er
ekki hægt að samþykkja lengur.
Stóru flokkarnir
Það hefur lengi verið siður á Suð-
„Við þurfum að byggja
nýtt Suðurland. Þetta
er fallegasta og besta
hérað landsins. Það á
skilið betri hlut, en það
hefur í dag.“
urlandi að kjósa stóru flokkana,
Sjálfstæðisflokk eða Framsóknar-
flokk. Þó kjördæmið sé ekki stórt,
þá telja þeir atkvæði sín í þúsundum.
Þeir eiga þetta svæði, ef svo má að
orði komast. Við vitum, hvernig fer
í viðskiptum, ef samkeppni vantar.
Þá sofna allir og nenna engu. Það
hefur gerst á Suðurlandi. Þess vegna
er þar atvinnuleysi og gengið er fram
hjá kjördæminu, þegar ákvarðanir
eru teknar á Alþingi um staðsetn-
ingu iðnaðar. í Þorlákshöfn gæti
verið mikill atvinnurekstur og raun-
ar víða annars staðar á Suðurlandi.
Peningarnir eru framleiddir með öllu
Einkavæðing og þráhyggja
eftir Ragnar S.
Halldórsson
Nú þegar lýðum má vera ljóst,
að kommúnisminn, marxisminn,
sósíalisminn og félagshyggjan (eða
hvað það nú heitir annað sem svo-
nefndum vinstri mönnurn þóknast
á hveijum tíma að kalla hugmynda-
fræði sína) er hrunið, má undrum
sæta að boðskapur og málflutning-
ur forystumanna Alþýðubandalags-
ins hefur í engu breytzt. Þar sem
þessi staðreynd á af augljósum
ástæðum ekkert skylt við heilbrigða
skynsemi, hlýtur að verða að flokka
hana undir þráhyggju. I ljósi henn-
ar verður þá að skoða hatrammar
og margendurteknar ásásir núver-
andi fjármálaráðherra á lækna,
annars vegar og núverandi heil-
brigðisráðherra á lyfsaia, hinsveg-
ar. Báðir þessir ráðherrar virðast
sannfærðir um að ríkisrekin lækna-
starfsemi og ríkisrekin lyfsala muni
draga stórlega úr kostnaði við þessa
þjónustu. Hvorugum ráðherranum
virðist kunnugt um, að það var ein-
rpitt ríkisreksturinn, þ.e, þjóðnýt-
ingin.'öðríf fremúr sérn slípiðt auif ~
„Hvorugum ráðherran-
um virðist kunnugl um,
að það var einmitt ríkis-
reksturinn, þ.e. þjóð-
nýtingin, öðru fremur
sem sligaði austan-
tjaldsþjóðirnar og gerði
þær í reynd gjald-
þrota.“
antjaldsþjóðirnar og gerði þær í
reynd gjaldþrota. Um þessa menn
má segja með sanni með orðalagi
helgrar bókar: Sjáandi sjá þeir ekki
og heyrandi heyra þeir ekki.
Á vestrænum löndum hefur sem
kunnugt er einkavæðing margvís-
legs opinbers reksturs, bæði í fram-
leiðslu og þjónustu, átt vaxandi
fylgi að fagna. Frakkland og Bret:
land eru góð dæmi um þetta. í
Frakklandi hefur t.d. ríkisbönkum
og í Bretlandi t.d. bílaverksmiðjum,
rafveitum og vatnsveitum verið
breytt í hlutafélög og þau síðan
s§ra—aTmenningi. Aíidvifðr'líTnná
Ragnar S. Halldórsson
seldu eigna hefur verið notað t.d.
til að greiða niður ríkisskuldir. Hef-
ur þannig tekist að læka árlega
greíðslúbyrðr 've;gná vakta og af-
borgana af þeim. Helsta von Aust-
ur-Evrópuþjóðanna er, að þeim ta-
kist að feta sömu braut. Er vissu-
lega óskandi að svo fari.
Hér á íslandi eru til dæmi um
sömu þróun, svo sem sala á hluta-
bréfum í Flugleiðum, Eimskip og
Útvegsbanka, en hér má ekki láta
staðar numið. Verkefnin blasa við
í m.a. heilbrigðis- og fræðslugeiran-
um, ef vinda á að því bráðan bug,
að stöðva hina árvissu, sjálfvirku
raunaukningu útgjalda (þ.e. um-
fram aukningu þjóðartekna á
mann) á þessum sviðum ríkisgeir-
ans.
Brýna nauðsyn ber til að taka
hér í taumana, því að ella munu
allar tekjur ríkissjóðs fara í þessa
tvo málaflokka eftir 10-20 ár. I ljósi
þess að ofangreindir ráðherrar, svo
og núverandi menntamálaráðherra
og sennilega fleiri ráðherrar ríkis-
stjórnarinnar, vilja stefna í þveröf-
uga átt (þ.e. þeir vilja auka ríkisum-
svifin), er hér með skorað á kjósend-
ur að gefa þeim reisupassann á
laugardag.
'HSrúndur cr VérRTræöingur.
Fyrir allmörgum árum reis ný
bylgja meðal heilbrigðisfræðinga
í Kanada, sem síðan hefur breiðst
út um hinn vestræna heim. Þetta
er krafan um „Public Policy for
Health" eða í lauslegri þýðingu
„Þjóðfélagsstefna í þágu heilbrigð-
innar“. Heilbrigðisfræðiskólar
vestan hafs og austan eru nú að
snúa sig í auknum mæli að rann-
sóknum á almennum áhrifum þjóð-
málastefnunnar á velferð fólksins.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefur tekið þessa nýju heilbrigðis-
stefnu upp á sína arma og á henn-
ar vegum hafa verið þróuð ýmis
ný verkefni á þessu sviði. Þar á
meðal er samstarf margra borga
í Evrópu, sem gerst hafa aðilar
að sérstöku verkefni á þessu sviði.
Þær borgir einar geta fengið að-
gang að þessu verkefni, sem vilja
skuldbinda sig til þess að haga
stefnu sinni og stjóm í málefnum
íbúanna í samræmi við hin nýju
heilbrigðisfræðilegu sjónarmið.
Það er verkefni jafnaðarmanna
bæði í landsstjórninni og í sveitar-
stjómarmálum að ryðja braut fyr-
ir nýjar áherslur í' samræmi við
það sem lýst er hér að ofan. .
Höfundur er héraðslæknir í
Reykjnvík og er í 20. sæti á listn
Alþýðuflokksins.
Lúðvík Gizurarson
rafmagninu. Þeir eru bara allir not-
aðir við Faxaflóann, en eðlilegur
hluti þeirra hefur ekki verið fjárfest-
ur á Suðurlandi. Til þess hafa stóru
flokkarnir verið of ömggir með sig.
Nýr þingmaður
Ég byijaði þessa grein með áskor-
un til kjósenda á Suðurlandi um að
kjósa A-listann í þessum kosningum.
Bæði trúi ég Áma Gunnarssyni al-
þingismanni vel til að hlusta á mig
og aðra kjósendur á Suðurlandi,
þegar ný framfaramál í því kjördæmi
ber á góma. Svo þarf að refsa stóru
flokkunum á þessu svæði hæfílega.
Þeir eru sofandi um hagsmuni Suð-
urlands í dag. Ef þeir tapa örlítið í
kjördæminu, þá hlaupa þeir til eftir
þessar kosningar og verða allir að
vilja gerðir með alla hluti fyrir Suð-
urland og kjósendur þar.
Niðurlag
A-listinn á Suðurlandi hefur áður
fengið alþingismann. Þar hefur alltaf
munað litlu. Raunar dugar, að hluti
þeirra sem lesa þessa grein, kjósi
A-listann að þessu sinni og refsi
með því stóru flokkunum. Þeir vakna
og gera meira á eftir fyrir kjördæ-
mið.
Við þurfum að byggja nýtt Suð-
urland. Þetta er fallegasta og besta
hérað landsins. Það á skilið betri
hlut, en það hefur í dag.
Við skulum lána A-lista Árna
Gunnarssonar nokkur atkvæði að
þessu sinni og þá verður Suðurland
einum þingmanni ríkara. Suðurland
fer að blómstra.
Ilöfundun er m 1;1>[ö iöioii .Gflfttjrn
hæstorettarlögmn ður.