Morgunblaðið - 19.04.1991, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.04.1991, Qupperneq 20
 .0 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 19. APRIL 1991 . A L Þ 1 N G 1 S K O S N 1 N G A R Fiskveiðistefna kvótakerfi eftir Benedikt Sigurðsson Um árabi! höfum við staðið frammi fyrir stjórnunarvanda vegna takmarkaðs og minnkandi veiðiþols fiskistofna. Ennþá eru tekjur þjóðfé- lagsins samt upp undir 80% runnar frá fiskveiðum og vinnslu. Síðustu mánuðina hafa hags- munaaðilar í sjávarútvegi látið í ljós ótta um að breytingar yrðu gerðar á fískveiðistefnunni og tekin frá þeim forréttindi sem felast í úthlutun framseljanlegra veiðiheimilda án endurgjalds. Allir vita að það skiptir máli fyrir atvinnureksturinn að vita hvað er framundan, og það sem kvótakerfið hefur gert er m.a. það að einstökum útgerðarmönnum og fyrirtækjum hefur verið afhent ávísun upp á þekkt magn af fiski í sjó. Slíkt hefur að sjálfsögðu auðveldað áætlanagerð í sjávarútvegi, gert samruna og ha- græðingu innan fyrirtækja möguleg- an, en ekki er alít sem sýnist. Samstaða um markmið Samstaða er um að við þurfum að takmarka fiskveiðar, við þurfum að viðhalda veiðiþoli og leita leiða til að auka afrakstur þessarar auð- lindar. Samstaða hefur reynst um það meginatriði sem komst inn í gildandi lög um fiskveiðistjómun, að fisk- stofnar í sjó eru sameign allrar þjóð- arinnar. Þessi grein hefur hins vegar ekki verið útfærð í lögunum, eða gildandi reglugerðum, þar hefur einstökum fyrirtækjum verið afhent einokun á sameign, til fullrar og óskoraðrar ráðstöfunar, án þess að þeim séu settar kvaðir um ráðstöfun. Niðurstaðan er: í fyrsta lagi, að sjómenn, launþeg- ar, sveitarstjómir, fiskvinnslufyrir- tæki hafa lítið eða ekkert um það að segja hvernig þessi auðlind er nýtt og ekki nokkra möguleika til að tryggja að þessi auðlind skili okk- ur raunverulegum arði í öðru formi en þeirri veltu sem skapast. Eðli út- gerðarmátans er það að hann er gerður upp á núlli, jafnvel stöndug fyrirtæki eins og Grandi, ÚA, Sam- heiji fara niður að núllinu m.a. með því að kaupa kvóta, og fjárfesta svo til að forðast skatt. í raun em kvóta- kaupin staðfesting á því að útgerðin viðurkenni auðlindaskatt, en vill bara fá að borga vinum sínum skattinn, en ekki til sameiginlegra sjóða sveit- arfélaga eða ríkis. í öðm lagi, að aflahámarkskerfi skapar hættu á ofveiði og útrýmingu fiskistofna þar sem sóknin þyngist, netum fjölgar, togtími lengist eftir því sem fiskunum fækkar í sjónum. Kvótakerfið getur leitt til sóunar þar sem við vitum að mikil hætta er á að undirmálsfiski sé hent þjóðinni til tjóns og vansa. Hvað verður um dauðan netafisk? í þriðja lagi, það er óréttlátt form úthlutunar sem afhendir örfáum ein- staklingum veiðiheimildir án endur- gjalds, heimilar fyrirtækjunum að selja óveiddan fisk á sama tíma og t.d. sjómenn hafa á langri ævi ekk- ert annað gert en að draga físk úr sjó, þeir mega ekki einu sinni veiða af bryggjunni, fiskvinnslufólkið fær ekki neina tryggingu fyrir að það fái að vinna við fisk, sveitarfélögin geta staðið frammi fyrir því einn daginn að búið sé að selja burt úr plássinu allar veiðiheimildir. Slíkt kerfi fær ekki staðist þar sem það mismunar þegnum sínum og byggist á svipuð- um hugsunarhætti og valdstjórn í einræðisríkjum fortíðarinnar eða al- ræði Kremlarvaldsins. Til lengri tíma á kvótakerfi ekki heima í lýræðisríki sem vill tryggja þegnum sínum jafn- an rétt. í fjórða lagi, við stöndum frammi fyrir ótrúlegu skömmtunarkerfi og spillingu við úthlutun veiðiheimilda. Nýleg grásleppudæmi af Melrakka- sléttu staðfesta það. Við vitum að sérstaða byggða eins og Grímseyjar er að engu höfð. Við stöndum agn- dofa frammi fyrir þeirri svívirðu að einyrkinn sem fiskar á krók sér og sínum til viðurværis og til varðveislu sínu lífsfonni, verður að hætta af því að kvótinn er skorinn. Alþingisflokkarnir hafa vanrækt að skilgreina mögulegar og mismun- andi leiðir til að ná þeim markmiðum sem allir eru sammála um, afrakst- ur, hámarksnýtingu, arð til samfé- lagsins og réttláta skiptingu milli byggða og þegna þjóðfélagsins. Leið- irnar eru margar og vil ég einungis benda á umræðuna um auðlinda- skattinn og gagnrýni dr. Einars Júl- íussonar. H-listinn vill leita samtöðu um að skilgreina réttlátar leiðir til nýtingar fiskistofna þannig að ekki verði byggt á mismunun milli einstaklinga með þá ófrávíkjanlegu kröfu að sveit- arstjórnir/héraðsnefndir, fisk- vinnslufólk, fyrirtæki í fiskvinnslu og veiðum eigi öll möguleika á að taka þátt í skipulagningu þessarar nýtingar. Við þurfum e.t.v. að taka okkur nokkur ár, t.d. 5, til að komast frá þessarri óskaplegu miðstýringu sem meðal annars hefur leitt til þess að þingmaður Austurlands (Halldór Ás- Benedikt Sigurðsson „Ótti vina minna í sjáv- arútvegi við breytingar er auðvitað skiljanleg- ur, en hann er auðvitað að miklu leyti ótti við að missa afgerandi for- réttindi, að missa ókeypis einokun.“ grímsson) bannar loðnuveiðar fyrir Norðurlandi, en setur síðan það skil- yrði að verulegur hluti af aflanum skuli veiddur fyrir hans eigin kjör- dæmi (75 þúsund tonn) og það í trássi við samstarfssamning við ná- grannaþjóðirnar. Hræddir við hvað? Ótti vina minna í sjávarútvegi við breytingar er auðvitað skiljanlegur, en hann er auðvitað að miklu leyti ótti við að missa afgerandi forrétt- indi, að missa ókeypis einokun. Ég veit að þeir sem hafa staðið sig vel innan núverandi kerfis munu hafa forskot til að aðlaga sig þeim breyt- ingum sem nauðsynlegt verður að gera, þeir munu geta gert áætlanir, sem standast af því að við verðum að taka þessar ákvarðanir allar með fyrirvara, og forðast kollsteypur for- tíðarinnar. Hér á Akureyri eru tvö af öflug- ustu sjávarútvegsfyrirtækjum lands- ins, þau eru þannig sett að við vitum að þau geta tekist á við nauðsynlega endurskipulagningu. Ég treysti t.d. engum betur en þeim Samheija- mönnum til að leita nýrra Iausna við breytilegum skilyrðum, ég vil meira að segja viðurkenna að mér finnst ég geta verið hreykinn af framtaki þeirra frændanna, og það held ég að við íbúar Eyjafjarðarbyggða eig- um öll að vera. Höfundur er skólastjóri og skipar 1. sæti H-listans i Norðuriandskjördæmi eystra. Óbreytt skip- an eða ný öfl eftir Tómas Gunnarsson Sennilega eru kosningarnar næsta laugardag þær mikilverðustu í sögu lýðveldisins. Því hverfa þarf frá stefnu- og úrræðaleysi fjórflokksins í innanlandsmálum og koma í veg fyrir stórslys í utanríkisviðskipta- og sjálfstæðismálum þjóðarinnar. Fjórflokksmenn hafa í kosninga- baráttunni brugðist því skylduverki sínu að upplýsa kjósendur glögglega um stöðu helstu mála og eigin stef- numið. Fjórflokksmenn hafa samein- ast um öll helstu kosningamál en •sérstaklega að þegja um það sem miður hefur farið. Gjörbreytt launa- kerfi listamanna eftir Svavar Gestsson í Iok alþingis voru samþykkt ný lög um launakerfi listamanna. Meginatriði laganna er þessi: Stofnaðir verða fjórir sjóðir. Launasjóður rithöfunda sem veitir árlega 360 starfslaun í byijun en síðan bætast við 24 mánaðarlaun á ári næstu fimm árin; alls 480 mánaðarlaun. Launasjóður myndlistarmanna veitir árlega fjármuni sem svara til 240 mánaðarlauna og síðan bætast við 16 mánaðarlaun á ári í 5 ár eða samtals 320 mánaðarlaun. Tónskáldasjóður veitir árlega starfslaun sem svara til 60 mánað- arlauna en síðan bætast við átta mánaðarlaun á ári næstu fimm ár. Listasjóður veitir starfslaun og styrki er svara til 240 mánaðarlauna og síðan bætast við 12 mánaðarlaun á ári í 5 ár eða alls 300 mánaðarlaun. Listamenn ráða úthlutunarnefndum Félög listamanna ráða úthlutun- amefndunum: Rithöfundasambandið tQii£Mr-i>Á.^eaL.aLáa. JiUtaíaoda,-.. „Fullyrða má að lögin um starfslaun lista- manna marki þáttaskil í kjaramálum lista- manna. Nú er eftir að vita hvert framhaldið verður.“ sjóðnum og Samband íslenskra myndlistarmanna og Tónskáldafélag Islands koma á sama hátt við sögu að því er varðar þeirra sjóði. Yfirum- sjón með vörslu þessara þriggja sjóða er í höndum sérstakrar stjórnar lista- mannalauna en hana skipa fulltrúar frá Bandalagi íslenskra listamanna, Háskóla Islands, uns Listaháskóli íslands hefur verið stofnaður, og frá ráðuneytinu. Þessi stjórn úthlutar ennfremur fé úr listasjóði sem hefur sérstöðu: Hann veitir meðal annars framlög til listamanna sem hafa no- tið listamannalauna undanfarin ár enda hafi þeir náð 60 ára aldri og að minnsta kosti helmingur launa úr Listasióði skal yejttur Igikhúsfplki,. Svavar Gestsson Launaviðmiðun — lífeyrissjóður Jafnframt ofangreindu er í lög- unum ákvæði um að starfslaun lista- manna skuli miðast við hærri launa- flokk opinberra starfsmanna en verið hefur. Loks er að finna í lögunum mikilvægt réttindaákvæði um að list- amenn sem njóta starfslaunanna skuli á meðan eiga rétt á aðild að Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda. Fullyrða má að lögin um starfs- laun listamanna marki þáttaskil I kjaramálum listamanna. Nú er eftir að vita hvert framhaldið verður. Veldur hver á heldur. Höfundur skipar 1. sæti G-listans í Reybjavík. Samtryggingin er slík, að sjálf- stæðismenn hafa veigrað sér við að nefna hrakfarir hinna þriggja arma fjórflokksins. Þeir nefna t.d. ekki að þjóðartekjur á mann hafa staðið í stað í um áratug og hlutur þeirra lakar settu er miklu verri nú en 1980 vegn,a vaxandi launamisréttis. Sjálfstæðismenn halda því ekki á lofti að ríkissjóður hefur í tæpan áratug verið rekinn með miklum halla, þrátt fyrir samdrátt opinberrar þjónustu, og tala jafnvel um skatta- lækkanir. Þeir styðja niðurskurð í landbúnaði og vilja ekki breyta kvót- askipan, sem leiðir til landauðnar. Hver eru kosningamálin? 1. Evrópskt efnahagssvæði. Fjórflokkurinn hefur í kosningabar- áttunni haft uppi blekkingar í sam- bandi við ráðgerða aðild að Evrópsku efnahagssvæði. Fjórflokksmenn hafa látið svo sem aðild að Evrópubanda- laginu væri ekki á dagskrá og samn- ingar um Evrópskt efnahagssvæði væru alfarið um gagnkvæmar tolla- ívilnanir. En það er öðru nær. Ráð- gerð aðild að Evrópska efnahags- svæðinu, sem ríkisstjórnarflokkarnir allir og Sjálfstæðisflokkurinn stefna að, á að taka gildi 1. janúar 1993. S því felst, að íslendingar skuldbinda sig að fylgja allmörgum ákv. Rómar- sáttmálans. Þeir stefna að að stað- festa sem íslenskar reglur um fjórtán hundruð lagabálka Evrópubanda- lagsins, ellefu þúsund blaðsíður evr- ópskra laga. En það eru um 60—70% allra laga Evrópubandalagsins. Stefnt er að sérstakri þingmanna- stofnun EES, einnig sérstakri eftir- litsnefnd EES, en framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins hefur almennt eftirlit með að aðildarríki EES efni ákv. Rómarsáttmálans. Þá er stefnt að sérstökum EES-dómstóli. Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, hefur upplýst að hann telji 98—99% samningsákvæða um Evrópska efnahagssvæðið frá gengin. Til frekari upplýsinga vísast til skýrslu hans til Alþingis um stöðu samningaviðræðna um Evrópska efnahagssvæðið frá mars 1991. Heimastjórnarsamtökin hafna aðild að Evrópsku efnahagssvæði. 2. Risaálver á Keilisnesi. Fjór- flokkurinn er sammála um að stefna Tómas Gunnarsson að byggingu þéss og nauðsynlegra orkuvera. Þessar aðgerðir valda stór- aukinni erlendri skuldasöfnun, mik- illi mengun, mikilli byggðaröskun, sérréttindum útlendinga, en fáum atvinnutækifærum, eða 300 til 500. íslendingar þurfa 3.000 ný atvinnu- tækifæri á ári næstu 20 ár. Heima- stjórnarsamtökin hafna risaálvers- lausninni. 3. Lögfesting lágmarkslauna. Eitt meginþjóðmálamarkmið síðasta áratugar hefur verið að draga úr launamun. Það hefur ekki tekist, lau- namunurinn hefur aukist ár frá ári. Er ljóst, að núverandi skipan launa- samninga stefnir ekki að launajöfn- uði. Hér þarf að fara nýjar leiðir, sem sagt þá að lögfesta lífvænleg lág- markslaun og ákveða aðrar þjóð- hagsstærðir, svo sem gengi, vexti og skatta í samræmi við það. Fjór- flokkurinn er svo illa bundinn hags- munatengslum við samtök vinnuveit- enda og launþega, að hann getur ekkert gert í þessu máli. Þess vegna þarf nýtt stjórnmálaafl til að koma. 4. Valddreifing frá miðstýrðu kerfi til fólksins og byggða úti á landi er áhersluatriði Heimastjórnar- samtakanna. Hér er bæði átt við breytta stjórnskipan, tilfærslu verk- efna og fráhvarf frá miðstýringar- aðgerðum, sem hafa verið aðalúr- ræði fjórflokksins. 5. Byggðakvótar. Ein versta að- gerð fjórflokksins er núverandi kvót- askipan í sjávarútvegi, sem hefur verið hönnuð í samræmi við óskir LÍÚ. Núverandi kvóti leiðir til of- veiði, a.m.k. tvöfalds útgerðarkostn- aðar og þess, að þeir ríkustu eignast kvótann um síðir. Ljóst er að Bret- ar, Þjóðveijar og Japanir eiga meiri peninga en íslendingar. Kvótinn iendir þar að óbreyttri skipan. Heim- astjórnarsamtökin krefjast byggðak- VÓta. Höfuudur skipar 1. sæti H-listans í Reykjavík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.