Morgunblaðið - 19.04.1991, Page 30
8í
MORGÚNBI.ADH) FÖSl’ÚDAéúR 19.! APRÍL'Mbl
N G 1 1 S K O S N 1 N G A R
A L
Inn- og útfíutningiir stj órn-
valda á atvinnutækifærum
eftir Guðmund
Guðmundsson
Nýlega felldi fjármálaráðherra
Ólafur Ragnar Grímsson niður að-
flutningsgjöld af aðföngum nýs flug-
skýlis, sem Flugleiðir hf. hyggjast
byggja. Niðurfellingin er forsenda
þess að hagkvæmt sé að flytja þessa
starfsemi til landsins. Það ræður sem
sagt úrslitum að fella niður hluta
opinberra gjalda af byggingunni.
Þama verðum við enn einu sinni vitni
að því að samkeppnisskilyrði, sem
íslensk fyrirtæki keppa á við erlenda
keppinauta eru skökk. Enn einu sinni
þurfa stjómvöld að fara út í sértæk-
ar aðgerðir fyrir ákveðna atvinnu-
grein eða fyrirtæki, til að það haldi
velli eða fái að dafna eðlilega, í stað
þess að skapa almenn skilyrði, sem
era samkeppnishæf við það sem er-
lendis gerist.
Svo einkennilega vill til að rétt
fyrir kosningar gerist þetta og lesa
má í fjölmiðium að atvinnutækifæri
fyrir 180 manns færist til landsins
og það einmitt til Suðumesja, kjör-
dæmis ijármálaráðherra, sem er
einnig einskær tilviljun. Af þessu
máli er því óneitanlega blær kosn-
ingavíxils, þótt allir fagni auðvitað
bættum atvinnuskilyrðum á Suður-
nesjum.
En hvernig væri nú að gera enn
betur, Ólafur Ragnar? Hvemig
væri að skapa 1-2.000 manns at-
vinnu um allt land? Og það jafn-
vel án þess að það kostaði ríkið
einhveijar fómir með niðurfell-
ingum? Það er nefnilega svo að nú
á síðustu árum hefur meginhluti
verkefna við breytingar og nýsmíði
íslenska fiskiskipaflotans farið fram
erlendis. Það er ekki vegna þess að
íslensku stöðvarnar séu ekki sam-
keppnishæfar í framleiðslukostnaði
við þær í Vestur-Evrópu. Það var
staðfest í úttekt breska ráðgjafarfyr-
irtækisins A&P Appledore árið 1987-
1989 að framleiðslukostnaður væri
svipaður hér á landi og t.d. í Nor-
egi. Sú staða hefur batnað ef eitt-
hvað er íslensku stöðvunum í hag,
m.a. með lækkandi raungengi. En
hvað er þá að? Jú, ytra umhverfi
skipasmíðastöðvanna er ekki í lagi.
Fjármögnunarmöguleikar á verkefn-
um, fyrirgreiðsla bankakerfisins, op-
inber gjöld og margt fleira. Félag
dráttarbrauta og skipasmiðja hefur
nú um nokkurt skeið í samvinnu við
iðnaðarráðuneytið unnið að mark-
aðsátaki innanlands og erlendis. Nú
þegar hafa skapast viðskiptatæki-
færi við erlenda aðila, sem era farin
að stranda, ekki vegna þess að verð-
ið frá stöðvunum sé of hátt! Nei,
vegna þess að fjármögnunarað-
stoð, sem stöðvarnaí- geta boðið
kaupendum, er engin og stjórn-
völd hafa ekki uppi neinar aðgerð-
ir til að laða slík viðskipti inn í
landið. Þar á meðal fjármálaráðu-
neytið!
Nú eru íslenskar skipasmíðastöðv-
ar í viðræðum við aðila um smíði á
4-8 björgunarskipum til notkunar í
Norðursjó. Mannaflaþörf við verkið
eru 150 manns í 2-3 ár. Tilboð ligg-
ur fyrir í viðgerðir á skipi frá Lithá-
en. Mannaflaþörf er 50 manns í ár.
Ef það gengi upp er líklegt að a.m.k.
10 skip komi til viðbótar, eingöngu
frá þessu litháeska útgerðarfyrir-
tæki. Slippstöðinni hf. tekst ekki að
selja nýsmíðaskipið óselda, þrátt fyr-
ir mikinn áhuga kaupenda. Oll þessi
mál standa á fjármögnunaraðstoð og
að eðlileg skilyrði frá hendi stjóm-
valda era ekki til staðar, í samræmi
Guðmundur Guðmundsson
við það sem gerist í nágrannalönd-
unum. Þekking á fjármögnun stórra
útflutningsverkefna er í lágmarki hér
á landi. Þrátt fyrir að banka- og fjár-
málakerfíð sé að miklu leyti á vegum
ríkisins gerir ríkisvaldið ekkert til
þess að bæta hér um fremur en um
samkeppnisskilýrðin almennt.
En þetta er ekki allt. Erlend skip
„En hvernig væri nú að
gera enn betur, Ólafur
Ragnar? Hvernig væri
að skapa 1-2.000 manns
atvinnu um allt land?
Og það jafnvel án þess
að það kostaði ríkið ein-
hverjar fórnir með nið-
urfellingum?“
sem eru að veiðum fyrir utan ís-
lensku fiskveiðiiögsöguna koma
ekki til landsins vegna laga frá
1922, sem banna útlendingum að
hafast við land nema þeir þurfi
að leita skjóls vegna óveðurs. Hér
er hægt með einu pennastriki að
afla fyrirtækjum, sérstaklega á
landsbyggðinni, mikilla viðskipta.
Færeyingar eru að verða miðstöð
fyrir þjónustu fyrir erlend skip á
Norður-Atlantshafínu, sem aflar ekki
aðeins málm- og skipasmiðum verk-
efna heldur einnig verslun, olíufyrir-
tækjum, hótel- og ferðaþjónustu og.
ekki síst sveitarfélögum.
Með því að rétta samkeppnis-
grandvöll iðnaðar almennt, batna
ekki aðeins útflutningsmöguleik-
ar hans, heldur batnar samkeppnis-
staða hans á heimamarkaði, sem
færir störf til landsins, sem nú era
unnin erlendis fyrir íslenska aðila.
Áætla má að eingöngu í skipaiðnaði
hafí störf fyrir a.m.k. 800-1.000
manns á ári verið flutt út vegna nið-
urgreiðslna, styrkja, hagstæðra lána
og annarrar aðstoðar, sem erlend
stjórnvöld viðhafa _ til að aðstoða
þennan skipaiðnað. í viðskiptum gef-
ur enginn neinum neitt. Skipasmíða-
stöð er endapunktur mikillar fram-
leiðslu og verðmætasköpunar, þar
er skipið sett saman og gjarnan hef-
ur verið miðað við að eitt starf í
skipasmíðastöð skapi 2-3 störf ann-
ars staðar og það gjarnan í tæknileg-
um framleiðsluiðnaði.
Með því að breyta lögunum frá
1922, færa fj ármögnunaraðstoð
stjórnvalda til samræmis við það,
sem gerist í samkeppnislöndunum
og gera samkeppnisgrunn almenns
iðnaðar á Islandi (ekki bara flug- eða
skipaiðnaðar), sambærilegan við það
sem gerist erlendis þá skapast arð-
bær störf fyrir komandi kynslóðir í
landinu öllu. Störf, sem við „fiytjum
út“ núna. Það eru jú a.m.k. 4 skipa-
viðgerðarstöðvar í Reykjaneskjör-
dæmi og fjöldi málmiðnaðarfyrir-
tækja, sem vinnur fyrir sjávarútveg.
Það er ekki nóg að atvinnulífið sé
samkeppnishæft gagnvart erlendum
fyrirtækjum, íslensk stjórnvöld þurfa
einnig að vera það gagnvart erlend-
um stjórnvöldum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Félags drátt&rbrauta og
skipasmiðja.
Davíð og geislabaugurinn
eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur
f Morgunblaðinu sl. þriðjudag er
viðtal við Davíð Oddsson. Þar er orð-
rétt haft eftir honum: „Við höfum
lækkað okkar skattstofna. Við eram
með lægsta útsvar sem nokkurt
sveitarfélag leggur á í landinu og
lægstu fasteignaprósentu sömuleiðis.
Samt sem áður era tekjur borgarinn-
ar miklar og hafa vaxið.“
Ósannindi Davíðs
Hvað skyldi nú vera satt í þessu?
í yfírliti frá Sambandi ísl. sveitarfé-
laga um álagningarreglur fasteigna-
skatta í 30 kaupstöðum á árinu 1991
kemur fram-að um % þessara kaup-
staða nota lægri prósentu heldur en
Reykjavík við álagningu bæði á íbúð-
arhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Fjöl-
mörg önnur sveitarfélög era með
lægri álagningarprósentu. Mörg
sveitarfélög era með sömu útsvars-
prósentu og nokkur með lægri. Dav-
íð fer sem sagt með tilhæfulaus
ósannindi. Nú er spurningin sú, hefur
Davíð verið í þeim fílabeinsturni að
hann þekki ekki málefni Reykjavík-
urborgar og annarra sveitarfélaga
betur en þetta? Eða skrökvar hann
vísvitandi og treystir á að fjölmiðla-
veldi íhaldsins muni koma í veg fyrir
að sannleikurinn komi í ljós fyrir
kosningar? Hvað um annað sem hann
heldur fram í kosningabaráttunni
þegar skrökvað er til um hluti eins
og þessa?
Skattakóngurinn Davíð
í sama viðtali segir Davíð: „Við
Aðdróttanir for-
sætisráðherra
eftirSmára
Ríkharðsson
Eitt af stærri kosningamálum
framsóknarmanna fyrir komandi
kosningar _ er ímynduð yfírvofandi
innganga íslendinga í Evrópubanda-
lagið. Þar er verið að tortryggja sjálf-
stæðismenn með þeim aðdróttunum
að þeir vilji í blindni ganga á hönd
bandalaginu án þessað tala við kóng
né prest og án þess að semja um
eitt eða neitt.
Sjálfstæðismenn ályktuðu um
þessi efni á síðasta landsfundi, þess
efnis að halda skuli uppi beinum við-
ræðum sem og með öðram EFTA-
þjóðum við Evrópubandalagið um
framtíðarskipulag á samskiptum
þjóðanna, viðskiptalega sem og
menningarlega. Þar var ekki minnst
á beina aðild að EB.
Flokksforysta framsóknarmanna
virðist Ioka augunum fyrir hlutverki
og markmiði þeirra viðræðna sem
að undanfarið hafa farið fram á veg-
um aðila ÉFTA og EB um Evrópskt
efnahagssvæði. Þar er tekið á stórum
hluta jieirra þátta sem að lúta að
aðild Islands-«ð-bandalaginu. Þetta -
„Framsóknarmenn eru
að hafna hugmyndum
sem að þeir stóðu sjálfir
í að móta og eru síðan
að kenna öðrum um.
Slíkt er ábyrgðarleysi.
Framsóknarflokkurinn
hefur sýnt að hann er
ekki til forystu fallinn.“
gerist allt saman undir forsæti fram-
sóknarmanns sem síðan vill kross-
festa aðra fyrir vikið.
Forseti Frakklands var í heimsókn
hér á dögunum og þótti, að því er
virðist hafa haft, afar gaman að
beija landann augum. Þetta er auð-
vitað upphefð fyrir ríkisstjórn, enda
merkismaður á ferð. Meðan á dvöl-
inni stóð var skrafað mikið og þá
sérstaklega um inngöngu og eða ein-
hverskonar hluta aðild íslendinga á
EB. Mér er spurn hvort að ekki hefði
verið auðveldara fyrir háttsettan
starfandi forsætisráðherra að jarða
hugmyndir um samstarf og halda
- -einangranarhugmyndinni- til streitu,
Smári Ríkharðsson
í stað þess að boða samstarfsvilja
og áhuga eins og gert var. Núna era
Frakkar búnir að vinna í okkar mál-
um og búnir að kanna íslenskar hug-
myndir innan bandalagsins og ef að
gengið verður að þeim þá lendum
við Evrópubandalaginu fyrir tilstuðl-
an mannsins sem er á móti því og
boðar afneitun þessa.
Þetta heffur verið ragl frá byijun.
Framsóknarmenn era að hafna hug-
myndum sem að þeir stóðu sjálfír i
að móta og eru síðan að kenna öðrum
um. Slíkt er ábyrgðarleysi. Fram-
sóknarflokkurinn hefur sýnt að hann
er ekki til forystu fallinn.
Höfundurer viðskiptafræðingur.
getum lækkað skattana, en samt sem
áður geta tekjur ríkisins vaxið, alveg
eins og gerst hefur hjá Reykjavíkur-
borg.“
Staðreynd málsins er sú að skatta-
hækkun hjá Reykjavíkurborg árin
1988-89 og 1990 var 20% meðan
sambærileg taia fyrir önnur sveitar-
félög var að meðaltali 13,5%. Skatta-
hækkun hjá ríkinu á þessum sama
tíma var 12,5%. Svo leyfir þessi odd-
viti Sjálfstæðisflokksins sér og helsti
skattakóngurinn á íslandi sér að
bera slíkar blekkingar á borð fyrir
kjósendur og brigsla ríkisstjóminni
um skattaáþján.
íhaldið hefur lengi gumað af góðri
fjármálastjóm Reykjavíkurborgar.
Hver skyld) nú vera galdurinn á bak
við hana? Á árinu 1990 voru tekjur
af útsvari, fasteignaskatti og aðstöð-
ugjaldi um 92.439 kr. á Ma í
Reykajvík, en um 74.816 kr. á Ma
5 öðrum sveitarfélögum. Þetta þýðir
að umframtekjur Reykjavíkur af
þessum þremur tekjustofnum vora
hátt í tvo milljarða á árinu 1990.
Þá eru ótaldir skattar sem_ borgin
leggur á eigin fyrirtæki. Á árinu
1991 er gert ráð fyrir að þessir skatt-
ar verði um 600 millj. króna. Reykja-
víkurborg er þar að auki í aðstöðu
til að leggja á mun hærri gatnagerð-
argjöld heldur en flest önnur sveitar-
félög.
Monthallir og biðlistar
láglaunafólks og aldraðra
Skyldi þessum peningum svo vera
varið til þess að grynnka á lengstu
biðlistum á landinu eftir félagslegum
íbúðum og húsnæði og hjúkrana-
rrými fyrir aldraða? Onei, meðan
neyð ríkir hjá láglaunafólki og öldr-
uðum í Reykjavíkurborg byggir þessi
skattakóngur sér monthöll við Tjöm-
ina og veitingahús uppi á Öskjuhlíð.
Skyldi ekki mörgum hafa dottið í hug
þessi minnismerki Davíðs þegar þeir
hlustuðu á það í sjónvarpi nýlega að
ekki væri hægt að útskrifa aldraða
af sjúkrahúsum vegna skorts á
heimaþjónustu fyrir aldraða í höfuð-
borginni?
Davíð dettur af stallinum
Um áratugaskeið hefur fjölmiðla-
veldi Sjálfstæðisflokksins séð um það
að setja borgarstjóra íhaldsins á stall
nær Guði heldur en mönnum og auð-
vitað með geislabaug. Man nokkur
eftir því að Morgunblaðið blað allra
-landsmamra hafí■ gagnrýnt -borgar-
Jóhanna Sigurðardóttir
„Staðreynd málsins er
sú að skattahækkun hjá
Reykjavíkurborg árin
1988-89 og 1990 var
20% meðan sambærileg
tala fyrir önnur sveitar-
félög var að meðaltali
13,5%. Skattahækkun
hjá ríkinu á þessum
sama tíma var 12,5%.
Svo leyfir þessi oddviti
Sjálfstæðisflokksins og
helsti skattakóngurinn
á Islandi sér að bera
slíkar blekkingar á
borð fyrir kjósendur og
brigsla ríkisstjórninni
um skattaáþján.“
stjóra í Reykjavík? Getur það verið
að allt sem Reykjavíkuríhaldið hefur
gert hafi verið yfir gagnrýni hafíð?
Svipað á raunar við um DV-fijálst
og óháð og hvað verður ef íhaldinu
tekst að sölsa undir sig fleiri fjöl-
miðla? Reynslan kennir okkur að
þegar borgarstjórar íhaldsins hafa
þurft að stíga niður af stallinum og
taka þátt í stjórnmálastarfi á landsv-
ísu þá hefur geislabaugurinn verið
fljótur að hverfa þrátt fyrir ofurveldi
Sjálfstæðisflokksins í fjölmiðlum.
Það er alveg ljóst nú þegar að geisla-
baugurinn fer Davíð Oddssyni illa.
Höfundur er~fé1agsmálaráðherfa.