Morgunblaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991
M
Ungt fólk áhugalaust?
eftir Ólaf Rafn
Somers Jónsson
Fullorðið fólk talar oft og mikið
um það hvað við unga fólkið séum
áhugalaus um stjórnmál. Það er
alveg rétt. En ástæðan fyrir því er
ekki síst sú að þegar við tölum um
stjórnmál við okkur eldri menn, eða
leggjum fyrir þá erfiðar spurning-
ar, sjá þeir sér oft þá leið auðveld-
asta að snúa út úr spurningunum.
Þetta á ekki síst við þingmenn til-
tekinna flokka og ráðherra. Þeir
gera annaðhvort góðlátlegt grín að
okkur og kæfa megininntak spurn-
inga okkar, eða gerast þeir hinir
mestu dónar og lítilsvirða okkur á
allan hátt.
Þeir segja okkur að við séum
ekki nógu vel „upplýst" um þessi
mál (á íslensku þýðir þetta einfald-
lega að við séum of heimsk til að
skilja þetta) og ýja oft að því að
þær skoðanir sem við höfum séu
ekki okkar heldur séum við bara
að endurtaka það sem við höfum
heyrt aðra segja. Það er margsann-
að að þegar einstaklingi er sagt að
hann sé of ungur og heimskur til
að skilja þessi mál þá fer hann
smátt og smátt að trúa því ef ekk-
ert er að gert til að hindra það. Það
er þessi heilaþvottui\ sem hefur
veirð að. aukast hér á íslandi. Auk
þess er það ekki alltaf hvetjandi
þó að stjórnmálamenn ákveða loks-
ins að svara spurningum okkar, því
þá er það mjög oft á einhveiju prjál-
máli þar sem þeir svara út í hött.
Stjórnmálamönnum skjátlast ef
þeir halda að við látum bjóða okkur
svona framkomu. Ég er ekki að
„Ef fullorðnir vilja að
við sýnum þeim virð-
ingu þá verða þeir að
haga sér samkvæmt því
gagnvart okkur.“
tala um að það eigi að sýna ungling-
um sérstaka gætni eða varkárni
þegar þeim er svarað. Ég vil aðeins
að það sé a.m.k. reynt að tala við
þá á jafnréttisgrundvelli, ekkert
annað.
Sérstaklega kom sjálfur forsætis-
ráðherrann mér á óvart á opnum
Framsóknarfundi nú á dögum. Ég
hafði alltaf staðið í þeirri trú að
hann héldi mikið upp á æsku þessa
lands og vildi allt fyrir hana gera
en þar sýndi hann mér, og fleira
ungu fólki, að hann notar óspart
þessar fyrrnefndu aðferðir. Ég við-
urkenni og biðst velvirðingar á því
að ég virti ekki að öllu leyti venju-
leg fundarsköp á fundi með forsæt-
isráðherra, en svör hans kölluðu á
þessi viðbrögð af minni hálfu. Mér
er þó ljóst að þau réttlæta ekki
hvatvísi mína á fundinum. Ef full-
orðnir vilja að við sýnum þeim virð-
ingu þá verða þeir að haga sér sam-
kvæmt því gagnvart okkur.
Að lokunvvil ég taka undir orð
Davíðs Oddssonar í viðtali við Birnu
Bláu í 3. tbl. þar sem hann ráðlegg-
ur ungu fólki að „hella sér í slag-
inn, taka þátt frá byijun og ímynda
sér ekki að þeir, sem eldri kunni
að vera, hafi öll ráð í hendi sér“.
Höfimdur er neitii í Mennta■
skólanum á Akureyri.
Álforstjóri á
móti lýðræði
- kýs hann T-listann?
eftir Svavar Gestsson
Óvæntur liðsauki bætist í skóla-
málaumræðuna í Morgunblaðinu í
gær: Ragnar Halldórsson lengi for-
stjóri ÍSAL. Hann ræðst aðallega
gegn lýðræði í skólakerfinu undir
þeim formerkjum að þar eigi að koma
á miðstýringu. Staðreyndin er sú að
allar nefndir grunnskólanna þar sem
starfa hátt í 50 þúsund manns, nem-
endur og kennarar, eru lýðræði, vald-
dreifing, og með þeim er verið að
flytja völdin frá ráðuneytinu en ekki
til ráðuneytisins. Ef þessar nefndir
og ráð væru ekki til staðar væri ráð-
herrann sannarlega einráður. Það er
greinilega stefna Sjálfstæðisflokks-
ins sem Ragnar Halldórsson hvetur
fólk til að kjósa.
Hvaða nefndir eru hér á ferðinni:
1. Grunnskólaráð er nýtt. Tilgang-
ur þess er að skapa forsendur fyrir
sameiginlegri ráðgjöf kennara, for-
eldra, sveitarfélaga og kennara-
menntunarstofnana gagnvart ráðu-
neytinu á hveijum tíma. Við meðferð
málsins á Alþingi kom ekki fram
nein tillaga um að leggja þetta ráð
niður. Þar kom hins vegar tillaga um
að fjölga foreldrafulltrúum og að
koma þar inn fulltrúum framhalds-
skólanna. Á það var fallist og Sjálf-
stæðisflokkurinn stóð að þeirri breyt-
ingu samhljóða og átti reyndar frum-
kvæðið að því að fjölga í ráðinu.
Semsé: Sjálfstæðisflokkurinn stóð að
ráðstjórninni sem Ragnar Halldórs-
son kallar svo.
2. Samstarfsnefnd ráðuneytis og
sveitarfélaga - óhjákvæmilegur vett-
vangur fyrir báða aðila. Engin gagn-
rýni kom fram á Alþingi; — þvert á
móti fagnaði Birgir Isleifur Gunnars-
son þessari samstarfsnefnd sérstak-
lega. Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði
ráðstjórninni!
„Ef þessar nefndir og
ráð væru ekki til staðar
væri ráðherrann sann-
arlega einráður.“
3. Fræðsluráð starfa samkvæmt
lögum um verkaskiptingu rikis og
sveitarfélaga. Allir flokkar stóðu að
ákvörðun um þá ráðstjórn.
4. Samstarfsráð er ekki á vegum
ráðuneytisins; heldur er heimilt að
stofna það í héruðunum. Valddreif-
ing. Engar tillögur komu fram um
að fella það niður. Allir stóðu að
samþykktinni.
5. Skólaráð. Skynsamleg sam-
starfsnefnd foreldra ög skóla sett inn
að tillögu Salóme Þorkelsdóttur!
Samþykkt samhljóða.
Með öðrum orðum: Nefndirnar eru
allar óbreyttar frá gildandi lögum
nema Grunnskólaráð sem var íjölgað
í að beiðni Sjálfstæðisflokks og Skól-
aráð sem voru tekin inn að beiðni
Sjálfstæðisflokks.
Það dugir semsé ekki fyrir Ragnar
Halldórsson að vísa kjósendum á
Sjálfstæðisflokkinn til þess að mót-
mæla grunnskólalögunum. Mér sýn-
ist í fljótu bragði hins vegar að hér
sé kominn einn öflugur talsmaður
T-listans sem hefur haft í frammi
sérstök skemmtiatriði í kosningabar-
áttunni. Ef það var ætlun Ragnars
Halldórssonar að vera skemmtikraft-
ur bið ég hann afsökunar á því að
hafa gert tilraun til að svara honum.
Það kemur hins vegar engum á
óvart að Ragnar Halldórsson skuli
vera á móti lýðræði í skólum — að
minnsta kosti ekki þeim sem unnu
með honum í Straumsvík í áratugi.
En meirihluti þjóðarinnar þekkir ekki
þá stjórnarhætti sem betur fer.
Höfundur er
menntamálaráðherra og efsti
maður G-listans í Iteykjavík■
er barna- og unglingalínan
frá Þrælstek og falleg 1 8
gíra alvöru fjallahjól með öflugum
bremsum í mörgum stærðum frá
og 20", 6 gíra fyrir
þau yngri (stráka og stelpuútgáfur) á
\<r. 17.62Ó,- r ;f.
Barnahjólin frá eru
einstaklega sterk og falleg og verð
miðað viö gæbi ótrúlega lágt eins og á
öðrum hjólum. Tvær stæröir frá
4ra ára og eldri frá
SENDUM I
Reidhjolaverslunin
POSTKROFU
UM LAND ALLT
RAÐGREIÐSLUR
SKEIFUNNI I I O SPÍTALASTÍG 8
VERSLUN SIMI 679890 VERKSTÆÐI SIMI 67989 I Qt VIÐ ÖÐINSTORG‘ SÍMI 7466 7
Þetta er lúxus útgáfan af þýsku
barnahjólunum vinsælu,
þrælsterk og með öllum búnaði eins
og á mynd. Tvílit í mjög fallegum litum
og þremur stærðum fyrir börn allt frá
4ra ára aldri og eldri.
Verð frá
Þýsku barnahjólin eru líka
til í ódýrari útgáfu í einum lit, en með
öllum búnabi eins og á mynd og í
þremur stærbum. Fyrir börn frá 4ra ára
og eldri og kosta frá
Dönsku barnahjólin eru
löngu orðin landskunn fyrir góSa
endingu, fallegt útlit og gæði, enda
eiga þau sér tugþúsundir tryggra
abdáenda. Til í mörgum stærðum og
gerSum fyrir börn allt frá 21 /2 árs og
eldri. VerS frá
Einhver albestu kaupin í þríhjólum
gerir þú í Þau hafa
ótrúlega endingu og hafa gengið í
erfói r eru einföld og ódýr í viShaldi,
og allt til í þau. Til með eða án skúffu
og kosta frá
Þýsku hjólin hafa farið
sigurför um Island, enda reynst
framúrskarandi vel. Nú eru þau komin
í unglinga og fullorðinsstærðum í 1 991
litunum fyrir karla og konur. An gira
frá og meS 3 gírum frá
Kr. iv.ooö,- stgr.
| FYRIR SUMARDACINN FYRSU]