Morgunblaðið - 19.04.1991, Qupperneq 65
MORGÖNBLAÐIÐ FÖSTUDA&UR 19. APRÍL 1991
65
Furstinn íSkipholti
Búið er að opna nýjan veitingastað, Furstann, í Skipholti 37,
Reykjavík. Furstinn býður upp á eldbakaðar pizzur, smárétti og
drykki. Opið er alla daga frá kl. 11.30-23.30 nema á föstudögum
og laugardögum, þá er opið til kl. 3.00. Vegna opnunar Furstans
verður sérstakt tilboð sem stendur til 23. apríl nk. Á myndinni er
Eggert Ketilsson, einn af eigendum Furstans, við pizzuofninn.
Amerískir dag*-
ar í Kringlunni
AMERÍSKIR dagar ’91 verða í Kringlunni dagana 18. til 27. apríl.
Viðskiptavinum gefst kostur á að skoða nýjustu glæsivagnana frá
Ameríku, kynnast bandarískum vörum, bragða á mat og hlusta á
listamenn, sem koma fram. Gestir geta tekið þátt í léttum spurninga-
leikjum þar sem veglegir vinningar eru í boði. Kringlan er sérstak-
lega skreytt af þessu tilefni.
hann sjó á sumrin og eftir að hann
lauk prófi frá Vélskólanum var
hann eitt ár á togaranum Narfa.
Síðan lá leiðin til Danmerkur og
lauk hann námi í tæknifræði frá
Odense Teknikum 1965.
Eftir heimkomuna starfaði
Sveinn m.a. við Iðnskólann í
Reykjavík og var aðstoðarskóla-
stjóri og síðan skólastjóri. Þegar
hann hætti þar vann hann um ára-
bil á Rekstrarstofunni, en síðustu
árin var hann framkvæmdastjóri
hjá Félagi íslenska prentiðnaðarins.
Áður en Sveinn hélt tii Danmerk-
ur gekk hann að,. eiga unnustu sína
Margréti Björk Andrésdóttur, en
þau gengu í hjónaband 6. júlí 1962.
Það var þeirra gæfuspor, því virðing
og væntumþykja var aðalsmerki
beggja.
Eftir að heim kom bjuggu þau
um árabil í sama húsi og foreldrar
Margrétar, Ólöf Sölvadóttir og
Andrés Pétursson, og var umhyggja
Sveinsfyrirtengdaforeldrunum ein-
stök. Óíöf er látin fyrir nokkrum
árum en Andrés hefur búið síðustu
árin hjá dóttur sinni og tengda-
syni. Var traust vinátta milli Sveins
og tengdaföður hans. Síðustu árin
hefur fjölskyldan búið í einbýlishúsi
við Stuðlasel, sem þau hjón reistu
sér.
Sveinn var alla tíð mjög annt um
velferð fjölskyldu sinnar, og var
heimilið sá hornsteinn, sem hann
vildi hlúa að. Þau hjón eignuðust 3
börn, sem bera vitni um gott og
fagurt veganesti sem þau hafa hlot-
ið í uppeldinu. Börn þeirra eru: Ólöf
Adda, f. 8. apríl 1967, Sigurður
Rúnar, f. 2. des. 1970 og Bjarki
Már, f. 17. janúar 1972.
Sveinn hafði mikla ánægju af
allri útivist og stundaði mikið göng-
ur. Þar fór saman áhugamál þeirra
hjóna að njóta fegurðar og náttúru
landsins. Þá stundaði hann jíkams-
rækt í flokki hjá Valdimar Örnólfs-
syni og eignaðist þar góða vini.
Fyrir tveim árum stofnaði hann
veiðifélag ásamt nokkrum kunn-
ingjum og höfðu þeir félagar reist
veiðihús norður í Skagafirði, nálægt
heimabyggð Sveins. — Af framan-
sögðu má sjá að hugðarefnin voru
mörg og vinahópurinn orðinn stór,
sem kveður hann nú með söknuði.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V.Briem)
Að leiðarlokum bið ég föður ljóss
og lífs að senda ástvinum Sveins
sína vermandi sólargeisla.
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir
Örfá kveðjuorð
Undarleg eru örlög manna.
Engum í leikfimisflokknum okkar
hefði dottið í hug, að Sveinn, þessi
stælti og kraftmikli fimleikamaður,
færi fyrstur okkar yfir móðuna
miklu.
Hann vakti athygli mína, þegar
hann kom í flokkinn fyrir um það
bil 20 árum fyrir undraverða mýkt
í öllum hreyfingum. Hann virtist
fremur líða áfram en hlaupa eða
ganga. Þegar ég kynntist Sveini
betur fann ég, hvernig þessi mýkt
einkenndi allt hans dagfar og við-
mót. Hann var ákaflega ljúfur og
notalegur og prúðmenni hið mesta.
Hjálpsemin var honum í blóð borin
og naut ég hennar oft, einkum við
hluti sem þurfti lagni og útsjónar-
semi við.
Eins og oft vill vera með „mjúka
menn“ var Sveinn gæddur við-
kvæmri lund, en lét ekki á því bera,
þótt honum liði ekki alltaf vel, en
naut sín því betur á góðum stundum
í glöðum hópi og verður okkur fé-
lögunum ógleymanlegur fyrir sinn
þýða skagfirska tenór og dillandi
skæra hlátur.
Við söknum þess að hafa ekki
lengur þennan ljúfa félaga meðal
okkar og þökkum honunrog hans
góðu konu, Margréti, fyrir lipurð
þeirra og gestrisni og allar góðar
samverustundir.
Margréti og börnunum sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Valdimar Örnólfsson
Kveðja frá veiðifélögum
Sveinn Sigurðsson veiðifélagi
okkar og vinur er látinn. Við veiðifé-
lagarnir sem eftir stöndum horfum
á eftir þessum félaga okkar með
söknuð í huga og sorg í hjarta.
Sveinn var jafnan forystumaður við
uPPbyggingu á þessum ánægjulega
félagsskap okkar, bæði varðandi
félagslegt starf og verklegar fram-
kvæmdir. Það á ekki síst við um
aðstöðu á heimili hans við smíði á
veiðihúsi og nutum við þar jafnan
velvilja hans og fjölskyldunnar allr-
ar.
Við veiðifélagarnir munum því
geyma minninguna um Svein í hug-
um okkar við áframhaldandi upp-
byggingu og starfsemi á félagi okk-
ar.
Að lokum sendum við fjölskyldu
og ættingjum hins látna okkar
dýpstu samúðarkveðjur með þeirri
ósk að kærleikur lífsins veiti þeim
huggun og styrk á þessari erfiðu
stund.
Veiðifélagar í Afla
Sendiherra Bandaríkjanna á ís-
landi, Charles E. Cobb jr., á frum-
kvæðið að þessari kynningu, en að
henni standa Glóbus hf., Jöfur hf.,
Jötunn hf., Vífilfell hf. og fyrirtæki
í Kringlunni.
Bílaumboðin sýna alla nýjustu
bílana frá Chrysler, Ford og Gener-
al Motors. Alls verða sýndir 20 bíl-
ar í göngugötum og utandyra. Til
sýnis verða fólksbílar, fjölnotabílar,
jeppar og pallbílar og hafa sumir
þeirra ekki verið kynntir áður hér
á landi. Einnig verður sýndur elsti
bíll landsins sem er Ford-vörubíll.
Verslanir í Kringlunni sem selja
bandarískar vörur leggja áherslu á
kynningu þeirra. Hagkaup verður
með fjölbreyttar kynningar og til-
boð á matvörum, hreinlætisvörum
o.fl. Íslensk-ameríska verður jafn-
framt með verðlaunagetraun í Hag-
kaup, þar sem vinningar eru 4
Candy-þvottavélar auk 100 auka-
vinninga. Veitingahúsin bjóða upp
á ameríska rétti á tilboðsverði og
bandarískur gestakokkur verður í
Hagkaup. Flugleiðir hf. verða með
kynningar á ferðum til Ameríku og
Eymundsson hf. heldur bókasýn-
ingu. Viðskiptavinir geta tekið þátt
í léttum spurningaleik og glæsileg
verðlaun eru í boði. Vinningar eru
25, þ. á m. ferð fyrir tvo til Wash-
ington með Flugleiðum.
Á vegum Menningarstofnunar
Bandaríkjanna eru tvær sýningar á
þriðju hæð Kringlunnar. Önnur sýn-
ingin er frá National Air & Space
safninu í Washington, þar sem rak-
in er saga flugs og geimferða í
Bandaríkjunum. Hin sýningin er frá
National Oceans Atmospheric Ad-
ministration. Kynntar eru umhverf-
isrannsóknir stofnunarinnar á
Norður-Atlantshafi.
Á hveijum degi verða skemmtiat-
riði í göngugötunni. Hljómsveitir
og söngvarar koma fram og kynna
jass, dixieland, sveitatónlist eða
rokk o.fl. Nemendur úr dansskólum
sýna dansa og bandarískur fótbolti
verður kynntur. Einnig munu þátt-
takendur í fegurðarsamkeppni ís-
lands halda tískusýningu. Skemmti-
atriði eru-breytileg frá degi til dags,
en dagskrá hvers dags verður kynnt
í dagblaða- og útvarpsauglýsingum.
(F réttatilky nning)
________Brids____________
AmórRagnarsson
Bridsfélag Reyðarfjarðar og
Eskifjarðar
Hafinn er tveggja kvöda tvímenn-
ingur. Spilaður er barometer og er
staða efstu para þessi eftir fyrra
kvöldið:
Jóhann Þorsteinsson - Kristján Kristjánsson 55
Búi Birgisson - Gisli Stefánsson 42
Ámi Guðmurtdsson - Jón Ingi Ingvarsson 40
Andrés Gunnlaugsson - Þorbeigur Hauksson 22
Einar Þorvai'ðarson - Garðar Jónsson 13
Ásgeir Metúsalemsson - Jónas Jónsson 6
Seinni umferðin verður spiluð 23.
aprll. Nú eru aðeins tvö kvöld eftir
af vetrarstarfinu.
Bridsfélag byrjenda
Síðastliðinn þriðjudag var spila-
kvöld hjá félaginu í Sigtúni 9. Þátt-
taka var nijög góð og var spilað á 27
borðum. Spilaður var Mitchell-
tvímenningur og urðu úrslit þessi:
Norður/Suður.
ÓskarB.Ing^son-JónÞ.Rósmundss. 176
EinarGuðmannsson - Valgarð M. Jakobsson 171
OddurÓlafsson-KjartanAntonsson 169
María Haraldsdóttir - Lilja Halldórsd. 167
Felix Sigurðsson—Jóhannes Laxdal 166
Austur/Vestur:
Halldór Már Sverrisson - Ingvar Hilmarsson 189
Elín Bjarnadóttir - Álfheiður Gísladóttir 176
ÓlafurErlingsson-HaraldurBriem 173
Jóna Magnúsdóttir - Bjami J. Guðmundsson 170
Steinþór Benediktsson - Amar V. Amarsson 166
Næsta spilakvöld verður ! Sigtúni
9 þriðjudaginn 30. apríl nk. og verður
byrjað að spila kl. 19.30. Fólk er beð-
ið um að mæta tímanlega og alls ekki
seinna en 19.15.
Standard-sagnkerfið
Önnur bók
í byijun árs 1989 gaf Guðmundur
Páll Arnarson út bókina Standard
sagnkerfið en Standard hafði þá rutt
sér mjög til rúms hérlendis. Hér var
um tilraunaútgáfu að ræða en
skemmst er frá því að segja að móttök-
urnar voru góðar og seldist upplagið
upp á skömmum tíma.
Nú hefir bókin verið endurútgefin
og gefin út Standard - önnur bók.
Að sögn útgefanda er gert ráð fyrir
því að lesandi Standard/2 hafi góða
þekkingu á undirstöðum kerfisins og
að hann hafi stundað keppnisbrids eða
eins og útgefandi orðar það - að les- S
andinn verði að vera sjóaður spilari.
Báðar bækurnar eru samtals um
250 bls.
t
Innilegar þakkir færum við þeim, sem
sýndu okkur vinsemd og hlýhug við
andlát og útför bróður okkar,
ALFREÐS INGA JÓNSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og for-
stöðukonu Dvalarheimilis aldraðra í
Vestmannaeyjum. Einnig til forstöðu-
manns sjúkrahússins og starfsfólks og
vina hans í Fiskiðjunni í Eyjum.
Systkini hins látna.
Vegna mistaka víxluðust myndir í þessum tilkynningum í blaðinu f gær, því
eru þær endurbirtar leiðréttar og hlutaðeigandi beðnir afsökunar á þessum
mistökum.
+ Þökkum innilega öllum, sem sýndu okk-
ur samúð og vinarhug við andlát bróður * . ' *'
okkar, fósturbróður og mágs,
MEYVANTS RÖGNVALDSSONAR,
Lindargötu 18,
Siglufirði.
Sérstakar þakkir færum við læknum og ÆsÉfi
starfsfólki Sjúkrahúss Siglufjarðar, enn-
fremur skólasystkinum úr árgangi ’33.
Jóhann Rögnvaldsson, Erna Rósmundsdóttir,
Aðalheiður Rögnvaldsdóttir,
Gottskálk Rögnvaldsson, Unnur Jónsdóttir,
Aðalbjörn Rögnvaldsson,
Guðbjörg Jóhannsdóttir, Bjarni Árnason.
F egrirð og leiðindi í Feneyjum
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabió: Ekki er allt sem
sýnist - „The Comfort of Stran-
gers“. Leiksfjóri Paul Schrad-
er. Handrit Harold Pinter. Tón-
list Angelo Badalamenti. Kvik-
myndatökustjóri Dante Spi-
notti. Aðalleikendur Christop-
her Walken, Rupert Everett,
Natasha Richardson, Helen
Mirren. Bretland 1990.
Einsog sjá má að ofan kemur
vænn hópur kvikmyndagerðar-
fólks hér við sögu en á misjafnan
dag, svo spöruð séu stóru orðin.
Ekki er allt sem sýnist (íslenska
heitið nær inntaki og áhrifum
myndarinnar óvenju vel, því í
rauninni veit maður lítið hvað hér
er að gerast) segir af hjónaleysun-
um Everett og Richardson sem
hafa brugðið sér í frí til Feneyja,
þar sem þetta glæsilega par
hyggst komast til botns í vanda-
málum sínum. Hún á tvo börn af
fyrra hjónabandi og hann er tví-
stígandi yfir því hvort þau eigi
að hefja sambúð. Rask kemst á
framtíðarplönin er þau hitta af
tilviljun harla furðulegan náunga
(Walken) ogengu annarlegri konu
hans (Mirren). Þau kynni eiga
eftir að verða afdrifarík.
Ekki er allt sem sýnist hefur
bæði góða kosti og slæma galla.
Hún er einstaklega falleg ásýnd-
um, búningarnir frá Armani,
sviðstjöldin og Feneyjar séðar
gegnum linsur kvikmyndatöku-
stjórans Spinotti eru eftirminni-
lega glæsilegir þættir, eins tónlist
hins sívaxandi Badalamenti, þó
grísku áhrifin komi á óvart miðað
við kringumstæður. Og ekki er
við leikarana að sakast. Það
stormar af Walken sem gefur
sviðsvönum Bretunum ekkert eft-
ir nema síður sé og sannar að
hæfileikarnir eru ennþá fyrir
hendi, þrátt fyrir langt lægð-
artímabil. Richardson hefur erft
einstaka leikhæfileika og engu
síðri glæsimennsku og kynþokka
frá sínum frægu foreldrum, og
Mirren heldur tign sinni, en þau
Walken eru í einkar erfiðum hlut-
verkum sem lykta af óeðli. Meira
að segja Everett nær sér á flug
uppúr pempíuskapnum, en brot-
hættur fríðleiki hans er leikaran-
um oftar en ekki fjötur um fót.
Það er hið hinsvegar handrit
hins heimskunna leikritaskálds
Harolds Pinters sem er megin-
galli myndarinnar. Það er allt I
senn; bókmennta-, tilgerðar- og
leikhúslegt. Og það sem verra er,
lengst af uppskrúfað, ýjandi og
torskilið. Hvað maðurinn er að
fara er hreint ekki ljóst. Víst er
að fegurðin, sem allt snýst hér
um meira og minna, getur verið
beinlínis lífshættuleg sem og van-
hugsaður félagsskapur. En pæl-
ingarnar drukkna oftar en ekki í
illþolandi endurtekningum, ill-
skiljanlegum persónum og dulúð
undir rós og lausu endarnir væru
efni í heilsíðugrein.
Schrader teygir á lopanum, á
köflum er Ekki er allt sem sýnist
alveg ótrúlega leiðinlega lang-
dregin, einkum fyrri hluti mynd-
arinnar. Miðkaflinn er best upp
byggður og virkilega áhugavekj-
andi en eftir lokakaflann er maður
aftur litlu nær. Schrader er kunn-
astur fyrir áhuga sinn á öfug-
uggahætti, siðspillingu og öðrum
brestum mannlegrar náttúru og
fær hér í nógu að snúast. Engin
efast um snilli Pinters sem leikrit-
askálds og Schrader hefur gert
athyglisverðar myndir inn á milli.
En þeir eiga, eins og aðrir dauð-
legir menn, sínar hæðir og lægð-
ir. Að þessu sinni eru þeir nálægt
botninum.