Morgunblaðið - 19.04.1991, Side 75
r
i«ei Jlm/, .>m ara^iav K .
^MO'RGUNBLAÐIÐ IPROTTIR FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991 75
I
I
I
Morgunblaöiö/KGA
J6n Kr. Gíslason sækir að körfunni og þeir Alan Ryan og Axel Nikulásson fylgjast með.
Fjörutíu stiga sigur
- á mjög slökum Skotum í öðrum vináttuleik liðanna
Mm
FOLK
I GUNNAR Gíslason og sam-
herjar í Hiicken sigruðu Jonsered,
4:1, í vesturriðli sænsku 1. deildar-
innar í knattspyrnu í gærkvöldi.
Þetta var annar leikur liðsins í deild-
inni. Gunnar lék mjög vel sem aft-
asti maður í vörn.
■ GUNNAR hefur verið meiddur
í hné að undanfömu en er að ná
sér. „Það hefur verið mikið um
meiðsli hjá okkur og nú vantaði til
dæmis fjóra lykilmenn. Byrjun okk-
ar er því betri en við þorðum að
vona,“ sagði Gunnar við tíðinda-
mann Morgunblaðsins í Svíþjóð
eftir leikinn í gær. Hacken gerði
jafntefli á útivelli í fyrsta leik.
B LEIFUR Dagfinnsson, mark-
vörður KR-inga, leikur ekki hand-
knattleik næsta vetur. Leifur segir
að læknir sinn hafi bannað sér að
æfa handbolta í að minnsta kosti
eitt ár vegna eymsla í mjöðm.
B LEIFUR Harðarson og fél agar
hans í blaklandsliðinu ganga um
þessar mundir í hús í Reykjavík til
að selja klósettpappír. Þeir eru að
safna fyrir ferð landsliðsins á Smá-
þjóðaleikana í Andorra um miðjan
maí.
B GRAEME Souness, sem hætti
sem framkvæmdastjóri Glasgow
Rangers á miðvikudag, tók við
starfi framkvæmdastjóra Liverpo-
ol strax á fimmtu-
FráBob dag. Hann skrifaði
Hennessy undir fimm ár samn-
lEnglandi ing, stjórnaði fyrstu
æfíngunni þá um
morguninn, og stýrir liðinu í fyrsta
leiknum á morgun, er Norwich
kemur í heimsókn.
fl SOUNESS keypti 10% hlut í
Rangers fyrir þremur árum fyrir
600.000 pund. David Murray,
stjórnarformaður félagsins, keypti
hlutinn af Souness áður en hann
fór — fyrir þijár milljónir punda.
B TALIÐ er að Souness fái 1,5
milljónir punda í laun fyrir fimm
ára samning hjá Liverpool. Félagið
þarf líklega að greiða Rangers 500
þúsund pund í bætur þar sem hann
átti eftir tvö ár af samningi sínum
þar.
B PHIL Boersma, sem var þjálf-
ari hjá Rangers, kemur með Sou-
ness. Hann lék með Liverpool á
árum áður og var um tíma aðstoðar-
maður Johns Toshacks hjá
Swansea.
fl SOUNESS má ekki vera í vara-
mannaskýlinu á leikjum Liverpool
fyrr en eftir næsta keppnistíama-
bil. Hann var dæmdur í tveggja ára
„hliðarlínubann" af skoska knatt-
spymusambandinu í fyrra, og það
gildir einnig í Englandi.
B ÞAÐ verður líkiega tilkynnt í
Lundúnum í dag að Liverpool verði
hleypt inn í Evrópukeppni aftur
næsta keppnistímabil, en liðið hefur
verið í banni síðan eftir harmleikinn
á Heysel-leikvanginum í Brussel
1985, er tæplega 100 manns létust
er slagsmál brutust út meðal áhorf-
enda. Eins og staðan er í deildinni
í dag er líklegt að Liverpool fái eina
sæti Englands í UEFA-keppninni.
B ÚRSLITALEIKUR ensku
deildarbikarkeppninnar, sem fram
fer á Wembley á sunnudag, verður
sýndu beint í ríkissjónvarpinu. Það
em Manchester United og Sheffi-
eld Wednesday sem mætast. Leik-
urinn hefst kl. 14. Ekki stóð til að
sýna leikinn, en samningur náðist
við umboðsaðila Pepsí á Islandi um
að kosta útsendinguna.
Islenska landsliðið í körfuknatt-
leik vann fjörutíu stiga sigur á
mjög slöku liði Skotlands í gær-
kvöldi í Hafnarfírði. íslenska liðið
náði góðri forystu
strax í upphafi og
þrátt fyrirýmsar til-
raunir Islendinga
vora gestirnir aldrei
nálægt því að veita nokkra keppni.
„Skotarnir hafa valdið okkur
vonbrigðum, við áttum von á þeim
sterkari. Kosturinn við leikina er
að við fáum góða samæfingu og
læram að leika gegn fastri vöm,“
sagði Jón Kr. Gíslason, fyrirliði
íslenska liðsins, við Morgunblaðið
eftir leikinn.
Falur Harðarson gaf tóninn fyrir
Island í byijun leiks, hann skoraði
18 stig á fyrstu átta mínútunum
og það var strax ljóst að Skotarnir
væra ekki líklegir til stórræða. Is-
lenska liðið virtist aldrei þurfa að
taka á honum stóra sfnum í leiknum
en oft brá fyrir góðum samleik og
fallegum körfum. Þegar leið á leik-
inn lentu Skotamir í miklum villu-
vandræðum. Þrír þeirra fengu fímm
villur og mótspyma þeirra var lítil
sem engin á lokamínútunum.
Skoska liðið stendur því íslenska
langt að baki hvað varðar tækni,
en liðið státar af tveimur þokkaleg-
um leikmönnum sem héldu því á
floti.
Það er erfitt að gera upp á milli
einstakra leikmanna íslenska liðsins
enda mótstaðan lítil. Allir leikmenn
fengu að spreyta sig en það var
greinilegur getumunur á byijunar-
liðinu og varaliðinu.
Ísland-Skotland 101:61
íþróttahúsið Kaplakrika, vináttulandsleikur
í körtuknattleik, fimmtudaginn 18. apríl
1991.
Gangur leiksins: 7:0, 18:6, 31:14, 46:26,
48:37 71:43, 101:61.
Stig íslands: Falur Harðarson 22, Magnús
Matthíasson 14, Jón Arnar Ingvarsson 14,
Valur Ingimundarson 13, Kristinn Einars-
son 9, Guðni Guðnason 8, Rúnar Ámason
6, Páll Kolbeinsson 6, Sigurður Ingimundar-
son 4, Axel Nikulásson 4, Friðrik Ragnars-
son 1.
Stig Skotlands: A. Kiddie 27, J. Morrison
19, M. Murrhead 6, A. Lamb 3, A. Ryan
2, T. McDaid 2, J. Mitchell 2.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Guðmund-
ur Stefán Maríasson dæmdu vel.
Áhorfendun 22 greiddu aðgang en með
boðsmiðum voru áhorfendur á annað hundr-
aðið.
Evrópukeppnin:
Drengjaliðið
gegn Þjóðverjum
Drengjalandsliðið í körfuknatt-
leik tekur þátt í Evrópukeppni
drengjalandsliða sem hefst í Speyer
í Þýskalandi í kvöld. Eftirtaláir leik-
menn skipa liðið:
Birgir Lárusson, ÍR, Atli Ámason,
UMFG, Brynjar Ólafsson, Haukum, Eirikur
Önundarson, ÍR, Halldór Kristmannsson,
IR, Máms Amarson, ÍR, Ólafur Theódórs-
son, ÍR, Kristján Guðlaugsson, ÍBK, Unnar
Sigurðsson, IBK, Þórhallur Flosason, KR,
Ósvaldur Knudsen, KR og Þór Ámason, KR.
Þjálfari liðsins er Sigurður Hjör-
leifsson og honum til aðstoðar er
Stefán Arnarson. Kristinn Alberts-
son, dómari, dæmir í keppninni.
Islenska liðið mætir Þjóðveijum
í fyrsta leik í kvöld kl. 19. Á morg-
un verður leikið gegn Belgum og á
sunnudag gegn Frökkum.
Evrópukeppni meistaraliða:
Jugoplastika meist-
ari þriðja árið í röð
Jugoplastika Sþlit frá Júgó-
slavíu varð Evrópumeistari í
körfuknattleik karla í gærkvöldi,
þriðja árið í röð, er það sigraði
spænska liðið Barcelona 70:65 í
úrslitaleik f París.
Barcelona var talið sigur-
strangiegra, en Júgóslavamir
voru betri allan tfmann og sigur-
inn sanngjam. Sömu lið mættust
í úrslitum í fyrra, og árið þar
áður slógu Júgóslavarnir lið Barc-
elona út í undanúrslitum.
Júgóslavneska liðið missti
nokkra frábæra leikmenn til er-
lendra félaga eftir sfðasta keppn-
istímabil, svo og þjálfarann Bozid-
ar Maljkovic, sem nú stjómar ein-
mitt liði Barcelona, en samt er
liðið það besta í Evrópu.
Zoran Savic og Toni Kukoc
vora bestu menn Jugoplastika í
gær.
Stig Split: Zoran Savic 27, Avie Lester 11,
Toni Kukoc 8, Zoran Sretenovic 7, Luka
Paviccvic 7, Vetimir PerasoVic 6, Jan Tabak
2, Aramis Naglic 2.
Stig Barfelona: Jose Rafael Ortiz 12, Stcve
Truntbo 12, Usard Gonzales Termens 9,
Jose Antonio Montero 9, Audie Norris 8,
Juan Antonio San Epjfanio 8, Ignacio
Solozaba! 7.
Áhorfendur vora 14.000.
i leik um þriója sadió sigraði israelska
liðið Maccabi Tel Avív ftalska liðið Scavolino
Pesaro 83:81.
Frosti
Eiðsson
skrifar
HANDBOLTI / 2. DEILD KVENNA
KR-stúlkur sigurvegarar
KR-stúlkur sigraðu í 2. deild kvenna í handknattleik 1991 og leika í
1. deild næsta keppnistímabil. KR vann Keflavík með 10 marka
mun, 24:14, í hreinum úrslitaleik á miðvikudagskvöldið og tryggðu sér
þar með sigurinn í deiidinni. ÍBK varð í öðru sæti, þremur stigum á eftir
KR og leikur einnig í 1. deild næsta tímabil. Sæti þessarra liða í 2. deild
taka Selfoss og ÍBV.
ídag
Skíði
Alþjóða mótið í alpagreinum heldur
áfram í Bláfjöllum í dag. Keppt verður
í svigi karia og kvenna og hefst fyrri
umferð kl. 9 og síðari umferð kl. 12.
Körfuknattleikur
ísland og Skotland leika vináttulands-
leik f íþróttahúsinu í Keflavik kl. 20.
Handknattleikur
1. delld karla:
ÍBV — Haukar.........kl. 20.00.
KA — GróUa...........kl. 20.00.
Handknattleikur
2. deild karla, úrslitakeppni efri liða:
UMFN-HK........................28:32
Hannes Leifsson 7, Magnús Þórðarson Ólaf-
ur Thorderscn 5, 6, Snorri Jóhannesson 4
- Rúnar Einarsson 8, Elvar Óskarsson 8,
Róbert Haraldsson 6, Gunnar Gtslason 4.
■Staðan í leikhléi var 17:15 fyrir Njarðvík-
inga. Hart var barist, leikmenn HK komust
ekki yfir fyrr en fimm mín. voru til leiks-
loka og þurftu að hafa mikið fyrir sigrinum.
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið:
ÍR-Valur......................0:1
- Gunnlaugur Einarsson.
Guðmundur G.
Þórarinsson
HÆTTIVIÐ
FRAMBOÐ
OGFÆR
TOPPSTÖÐUí
SJÓDAKERFINU
Frambjóðendur
'&on&cci
ú&zyctn ccm
fctfjteyutócc
ÍCHCfCtdútU -
FLOKKARNIR V
SKAMMTA SÉR
Z00 MILLJÚNIR
A HVERJU ARI
Popparar og
textaskáld sem
lentu á bannlista
Ríkisútvarpsins
Ævintýramennirnir í
Hagskiptum
SKILJA EFTIR
SIG SLÓflA
GJALDÞROTA
Þjóðþekktir menn
spá fyrir um
kosningaúrslit
Fullt blað af slúðr