Morgunblaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 76
— svo vel
sétryggt
\LN1ENNAR
FOSTUDAGUR 19. APRIL 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
...þar sem gæðin skipta máli
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
Sinfóníuhlj ómsveitin:
30 hljóð-
færaleikur-
um bætt við
sveitina
FYRIR tilstuðlan IBM á íslandi
er mögulegt að fjölga hljóðfæra-
leikurum Sinfóníuhljómsveitar
íslands um 30 það sem eftir lifir
starfsári hljómsveitarinnar.
Af fjárhagsástæðum hefur
hljómsveitin ekki getað leikið með
þeirri stærð af strengjasveit sem
æskilegt verður að teljast. Þetta
kemur niður á hljómgæðum henn-
ar, veldur ósamræmi á milli hljóð-
færadeilda og gerir erfitt eða ókleift
að flytja ýmis stærri tónverk. Stefnt
er að því að ijöiga hljóðfæraleikur-
um með tímanum þannig að hljóm-
sveitin nái eðlilegri stærð. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
Sinfóníuhljómsveitinni.
Þar kemur einnig fram að fyrir
tilstuðlan IBM sé mögulegt að flytja
Vorblót Stravinskíjs á tónleikum
16. maí nk. með eðlilegri hljóðfæra-
skipan.
IBM á íslandi styrkir hljómsveit-.
ina um 4,5 milljónir á þessu starfs-
ári og því er mögulegt að fjölga
hljóðfæraleikurum um 30, en þá
verða þeir um eitt hundrað talsins.
Aðnjótagóða veðursins
Morgunblaðið/RAX
Sannkallað vorveður var í Reykjavík í gær og ungir sem gamlir
nutu veðurblíðunnar. Sundlaugarnar voru fjölsóttar, eins og alltaf
þegar sér tii sólar og þessar ungu konur voru meðal þeirra sem tóku
forskot á sumarsæluna.
Lúðurgasbrúsar, sem unglingar hafa orðið uppvísir að því að
nota til að reyna að komast í vímu.
Lögreglan rannsakar
skaðsemi lúðurgass
Piltur slasaðist eftir að hafa neytt efnisins
LÖGREGLAN í Reykjavík rannsakar nú skaðsemi svokallaðs lúð-
urgass, sem selt er á brúsum til þess að knýja lúðra eins og al-
gengt er að notaðir séu á iþróttakappieikjum. Ungur piltur slasað-
ist nýlega alvarlega við fall, eftir að hafa komizt í annarlegt
ástand við neyzlu lúðurgass ásamt félögum sínum.
Að sögn Amars Jenssonar lög-
reglufulltrúa, sem fer með fíkni-
efnavarnir hjá forvarnadeild lög-
reglunnar, eru dæmi þess að fólk
hafi komizt í vímu við neyzlu lúð-
urgassins. Á brúsanum, sem um
ræðir í þessu tilviki, stendur hins
vegar „non-poisonous“ — ekki
eitrað. Brúsinn inniheldur freon-
efni. Amar segir að lögreglan sé
í samstarfi við Hollustuvernd
ríkisins að rannsaka skaðsemi lúð-
urgassins og hvaða reglur gildi
um þau efni, sem eru í gasinu.
Þótt einhver dæmi séu þess að
unglingar úði efnum af þessu tagi
í vit sér til þess að komast í vímu,
er að sögn Amars ekki um neinn
snifffaraldur að ræða, eins og
komið hefur upp öðru hvoru und-
anfarin ár. Fyrir nokkrum árum
voru settar reglur um sölu kveikj-
aragass og bannað að selja það í
almennum verzlunum. Einnig var
seljendum efnisins, sem einkum
eru benzínstöðvar og aðrar sér-
verzlanir, lögð sú skylda á herðar
að selja unglingum ekki efnið.
Neyzla rokgjarnra efna á borð
við lím, lökk og gas hefur valdið
nokkmm unglingum varanlegum
skaða. Þegar efnanna er neytt
getur líkaminn komizt í lost-
ástand. Taugaviðbrögð ruglast og
líffæri fara að starfa óeðlilega.
Slíkt er að sögn Arnars Jenssoriar
lífshættulegt út af fyrir sig, en
einnig eru dæmi þess að hjarta
fólks, sem neytt hefur svona efna,
hefur stöðvazt. Slíkt getur valdið
alvarlegum heilaskemmdum.
Hití á hafsbotni kann-
aður með nýrri tækni
Leiðangur til að kanna hvar
jarðhita er að finna á sjávar-
botni fyrir Norðurlandi leggur
af stað í dag. Beitt verður nýrri
tækni og sjó dælt um borð í rann-
sóknarskipið Árna Friðriksson,
þar sem hann verður efna-
greindur jafnóðum. Að sögn
Jóns Olafssonar, haffræðings og
leiðangursstjóra, verða niður-
stöður tölvuskráðar og staðsetn-
ing skipsins teiknuð inn á kort.
„Við ætlum að reyna nýja tækni,
sem nemur hvort um er að ræða
virkan neðansjávatjarðhita á Atl-
antshafshryggnum," sagði Jón.
„Sjó verður dælt upp í skipið af
dýpi og hann efnagreindur en sum
efni eins og til dæmis mangan eru
frekar í jarðhitavatni en í sjó. Þau
er hægt að nema þrátt fyrir mikla
útþynningu."
Jón sagði, að t-ilgangur rann-
sóknanna væri fræðilegs eðlis til
Málavextir eru þeir, að klukkan
22.20 um kvöldið hringdi maður á
lögreglustöðina og sagði að dreng-
ur væri að aka um á fjórhjóli og
stafaði hætta af honum í íbúðar-
hverfinu. Þegar lögreglan kom á
að kanna hvernig eldvirkni er hátt-
að í hafinu norður og suður af
landinu, þar sem sprungukerfi Atl-
antshafshryggsins gengur til hafs.
„ísland er lítill hluti af hryggnum
og við þykjumst vita, að þar er
virkni á hafsbotninum. Það er hins
vegar lítið vitað um hversu mikil
hún er og hvernig henni er háttað.
Meðal annars hvort um er að ræða
lághita eða háhita. Með þessari
ÚTLIT er fyrir norðan- og norð-
austanátt um allt land á morg-
staðinn reyndist drengurinn aftur
á móti vera á tvíhjóli, venjulegu
reiðhjóli. Kærandinn var hins veg-
ar undir áhrifum áfengis og hefur
e.t.v. séð tvöfalt.
tækni sjáum við strax hvar jarðhit-
inn er og getum nánast þefað hann
uppi,“ sagði Jón. „Þetta er nokkuð
sem við vitum af en of lítið um og
þurfum að kanna betur.“
Farið verður norður fyrir land
að Kolbeinseyjarhrygg, þar sem
vitað er um jarðhita. Síðan verður
farið á aðra staði fyrir norðan, sem
fregnir hafa borist um að tengjast
jarðhita á hafsbotni.
un, laugardag, þegar kosið
verður til alþingisi I samræmi
við veðurspá hefur ríkisstjórnin
ákveðið að kjördagur skuli vera
einn. Ef spá hefði verið slæm,
var áformað að gefa út bráða-
birgðalög þess efnis að einnig
yrði kosið á sunnudag.
Spáð er nokkrum strekkingi
norðanlands og lítilsháttar éljum
án þess að útlit sé fyrir að færð
spillist á vegum eða í lofti. Bjart
verður sunnanlands og hiti um og
yfir frostmarki á laugardag en
lítilsháttar frost norðanlands.
Um 4 þúsund manns höfðu kos-
ið utan kjörstaðar á skrifstofu
borgarfógeta í Reykjavík síðdegis
í gær. Það eru aðeins fleiri en
kosið höfðu utan kjörstaðar á
sama tíma fyrir síðustu kosningar.
Bakkus gerði fjór-
hjól úr reiðhjóli
KÆRT var til lögreglunnar í Reykjavík á miðvikudagskvöld að
drengur æki á fjórhjóli um íbúðargötu í austurbænum. Þegar lög-
reglan kom á vettvang virtist skýringin á kærunni einna helst
vera sú, að kærandinn hefði séð tvöfalt.
Ákveðið að hafa einn kjördag:
Líkur á ágætu kosn-
ingaveðri um allt laud