Morgunblaðið - 21.04.1991, Blaðsíða 1
104 SIÐUR B/C
90. tbl. 79. árg.
SUNNUDAGUR 21. APRIL 1991
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
BLOMAROSIR OG RJÓMAÍS
Morgunblaðið/RAX
Yasser Arafat, formaður PLO, í einkaviðtali við Morgunblaðið:
Fer frá ef meirihluti full-
trúa PLO vill leiðtogaskipti
YASSER Arafat, formaður Frelsissam-
taka Palestínu (PLO), segir í einkavið-
tali við blaðamann Morgunblaðsins, sem
birt er í blaðinu í dag, að ef meirihluti
lýðræðislega kjörinna fulltrúa á þingi
samtakanna telji rétt að skipta um leið-
toga niuni hann hlíta því.
Yasser Arafat hefur átt undir högg að
sækja frá lokum stríðsins fyrir botni Persa-
flóa í lok febrúar og fram hafa komið kröf-
ur um að hann víki úr formannssætinu.
Aðspurður um hvort valdabarátta ætti sér
stað innan æðstu stjórnar PLO kvaðst hann
engar áhyggjur hafa af slíku. „Við erum
með lýðræðislega uppbyggt kerfi og erum
stoltir af því. Við erum engar strengjabrúð-
ur, hvorki eins né neins, og hver hefur sjálf-
stæðan vilja og skoðanafrelsi." Hann lagði
hins vegar áherslu á að meðan hann nyti
stuðnings meirihluta fulltrúa PLO gæti
hann ekki runnið af hólmi. Hann kvaðst
ekki vera orðinn þreyttur á baráttunni fyr-
ir frelsun Palestínu. „Þetta er bylting,
lengsta bylting sögunnar og henni verður
haldið áfram þar til sigur vinnst".
Aðspurður um hugmyndir varðandi
stofnun sambandsríkis Palestínu og Jórd-
aníu sagði Arafat að slíkt þyrfti að semja
um á jafnréttisgrundvelli eins og tíðkaðist
í samskiptum tveggja fullvalda ríkja. Hann
myndi hlíta þeirri ákvörðun sem tekin yrði
á lýðræðislegan hátt.
Arafat léði máls á því að Palestínumenn.
sem ekki eru félagar í PLO, ræddu við
James Baker, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, á ferð hans um Mið-Austurlönd
á dögunum. Hann kvaðst gera sér grein
fyrir því að Palestínumenn á hernumdu
svæðunum væru ekki allir sáttir við þá
ákvörðun hans. Forysta PLO hefði hins
vegar ekki viljað ganga gegn friðarumleit-
Unum, sem kynnu að verða málstað Pal-
estínumanna til framdráttar.
Arafat sagði að forysta PLO hefði leitað
friðsamlegrar lausnar á deilu íraka og
Kúveita en henni hefði ekki tekist að af-
stýra stríði. Afleiðingarnar væru hörmuleg-
ar. „Það verða ljót ör eftir þessa styrjöld
og gjár milli fólks og mikillar og ákveðinn-
ar viðleitni er þörf nú. írak hefur verið lagt
í rúst. Alvarlegir eldar loga í oiíulindum
Kúveits og ógnunin frá þessum harmleik
er ekki hara o-orrnyart fAjVjnu j hessnm
heimshluta, íraskir Kúrdar eru aðeins einn
þáttur umfangsmikils harmleiks,“ sagði
hann.
Sjá „Hefndarhugur færir okkur ekki
föðurland“ á bls C26.
ímyndunarafli
smyglara eng-
in takmörk sett
Suður-amerískir eiturlyfjabarónar ger-
ast æ hugmyndaríkari. Lögreglumenn
í Madrid gerðu nýlega 11 baðkör úr
trefjaplasti og kókaíni upptæk. Ferða-
maður nokkur var stöðvaður á Roissy-
flugvelli fyrir utan París fyrir að klæð-
ast suður-amerískri herðaslá sem þakin
var uppleystu kókaini sem síðan hafði
storknað inn í efnið líkt og stífelsi.
Fundist hafa málverk máluð með
„kókaín-málningu“, litlar Krists-styttur
gerðar úr „kókaín-leir“ og ferðatöskur
pressaðar úr kókaín-blöndu. Kókaín
hefur einnig fundist sprautað inn í
kókoshnetur. Imyndunarafli smyglar-
anna eru engin takmörk sett.
Fyrst símboðinn
svo farsíminn
Truflun af völdum simboða verður æ
meiri í skólastofum í menntaskólum í
Sameinuðu arabisku furstadæmunum.
Til að bæta gráu ofan á svart biðja
nemendur kennara sína síðan gjarna
um leyfi til að fá að hlaupa út í bil til
að hringja úr bílasímanum sínum!
Safnið verður
svart diskótek
Stalinistinn Enver Hoxha myndi eflaust
snúa sér við i gröfinni ef hann vissi
að fáklæddar stúlkur dansa nú fyrir
framan sjónvarpsmyndavélar í safni,
sem reist var í Tirana til minningar
um ævi hans og starf. Safnbyggingin
er nú notuð til að taka upp vinsælan
skemmti- og dægurlagaþátt fyrir alb-
anska sjónvarpið en henni á að breyta
í eitt af glæsilegustu diskótekum heims
og verður það allt svartmálað.
Rafmagni stolið
fyrir milljarða
PLN, ríkisreknar rafmagnsveitur í Ind-
ónesíu, ætla að grípa til róttækra að-
gerða vegna gífurlegs raforkustulds.
Talið er að verksmiðjur og fleiri aðilar
steli raforku frá PLN fyrir um 3,5
milljarða ÍSK á ári, aðallega með því
að koma fyrir rafmagnsvírum inni í
aðalrafmagnsstrengjum. íbúar höfuð-
borgar Indónesíu, Jakarta, sem vilja fá
rafmagn leiíí. jrjn í lliis sír^ nrota smiirl
sér beint til starfsmanna rafmagns-
veitnanna og borgað þeim fyrir að
„beintengja" hús sín inn á rafmagns-
æðar. Tekjur PLN aukast því ekkert
þrátt fyrir aukna framleiðslu.
BYGGÐA-
VANDIÁto
SEYÐISFIRÐI
ÞRAUTASAGA
ÞJÓÐA-
BÓK-
HLÖÐU
Einkavidtal
Morgunblads-
insvið Yasser
Arafatyfor-
tnann Frelsis-
samtaka Pal-
estínu
26
MIFIT