Morgunblaðið - 21.04.1991, Síða 8

Morgunblaðið - 21.04.1991, Síða 8
s- xeeí JIH4A.I MORGUNBLAÐIÐ MU8 GIGAJ3MU0fl0M SUNNUDAGUR 21. APRIL 1991 \ /^ersunnudagur21. apríl, 3. sd. eftirpáska. 111. dagur ársins 1991. Árdegisflóðí Reykjavík kl. 11.38 og síðdegisflóð kl. 24.16. Fjara kl. 5.29 og kl. 17.49. Sólarupprás í Rvík kl. 5.36 og sólarlag kl. 21.19. Myrkur kl. 22.18. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.26 og tungliðí suðri kl. 19.59. (Almanak Háskólaíslands). Þú ert fulitingi mitt og frelsari, tef eigi, Guð minn. (Sálm 40,18.) ÁRNAÐ HEILLA QAára afmæli. Á morgun, i/V/ 22. þ.m. er níræður Þórður Jónsson, Sölvholti, Hvamgerðishreppi, Árn. Hann stundaði sjómennsku nær samfellt í tvo áratugi á yngri árum. Hann hefur búið á jörð sinni, Sölvholti, í um fimmtíu ár. Þórður kvæntist árið 1933 Þórhildi Vigfús- dóttur frá Þorleifskoti. Hún lést fyrir rúmum tveim árumi KROSSGATAN E 9 3 13 [■21 23 24 ___________________ LÁRÉTT: — 1 ósvinna, 5 karlfisks, 8 gerðin, 9 hand- æði, 11 myrkurs, 14 kassi, 15 rífa, 16 húsgögn, 17 kveik- ur, 19 notfæra, 21 manns- nafn, 22 mjög slæma, 25 haf, 26 auli, 27 táknletur. LOÐRETT: - 2 ræfill, 3 dý, 4 mannsnafn, 6 eðli, 7 gljúfur, 9 druslu, 10 'slær, 12 dútlar, 13 hellirinn, 18 loka- orð, 20 burt, 21 borðaði, 23 sjór, 24 tveir. LAUSN SIÐUSTU KROSSGATU: LÁRÉTT: — 1 skegg, 5 vætan, 8 erfið, 9 skæra, 11 lafði, 14 Níl, 15 valan, 16 aflir, 17 inn, 19 máni, 21 óðan, 22 Indriði, 25 agn, 26 ónn, 27 Rán. LÓÐRÉTT: — 2 kæk, 3 ger, 4 granni, 5 villan, 6 æða, 7 arð, 9 skvampa, 10 ætlunin, 12 falaðir, 13 iðrunin, 18 norn, 20 in, 21 óð, 23 dó, 24 in. FRÉTTIR/MANNAMÓT ÞENNAN dag árið 1971 komu fyrstu handritin tii landsins frá Kaupmannahöfn. KOSNINGARNAR. Það kemur fram í tilk. í Lögbirt- ingablaðinu að íslendingar á Grænlandi hafí getað kosið þar í utankjörstaðakosningu hjá ræðismanni íslands í Nuuk, 8. og 9. apríl sl. Ræðis- maðurinn er Anders Bröns og rekur fyrirtækið Egede & Bröns þar í bænum. SAMVERKAMENN Móður Tereseu halda mánaðarlegan fund f safnaðarheimilinu á Hávallagötu 16, mánudags- kvöldið kl. 20.30. NORÐURBRÚN 1. í dag, 21. apríl, eru liðin 17 ár frá því að félagsstarf aldraðra hófst á Norðurbrún 1. Verður þess minnst þar í dag kl. 14—17. Kaffíhlaðborð, þá verður upplestur og söngur. SKRAUTDÚFUFÉL. ís- lands heldur aðalfund annað kvöld, mánudag, kl. 20 í Fellahelli. Að fundarstörfum loknum verða sýnd nokkur ný afbrigði af skrautdúfum og sýndar dúfnamyndir af myndböndum. FÉL. eldri borgara. I dag er opið hús í Goðheimum kl. 14, frjáls spilamennska. Dansað kl. 20. Á mánudag verður opið hús í Risinu kl. 13—17. Þá kemur Björn Th. Björnsson, listfræðingur, í heimsókn og segir frá Ás- mundi Jónssyni myndhöggv- ara. Verður síðan farið í höggmyndasafn hans. Þriðju- dagskvöld kl. 20.30 verður haldinn félagsfundur, þá verða kjömir fulltrúar á aðal- fund Landssambands aldr- aðra. Sumardaginn fyrsta verður svo haldin vorgleði í Risinu sem hefst kl. 15. Skemmtidagskrá, kaffiveit- ingar og matur. Þá verður dansað kl. 20.30. ICC-deildir. Mánudagskvöld kl. 20.30 heldur deildin Ýr fund í Síðumúla 17. Fundur- inn er öllum opinn. Þær Anna s. 611413 og Ester s. 674730 gefa uppl. Deildin Eik heldur fund á Hallveigarstöðum mánudagskvöld kl. 20.30. Inga s. 612046 gefur nánari uppl. Deildin Kvistur heldur fund á mánudagskvöldið í Holiday Inn kl. 20.30. Hann er öllum opinn. Olga í s. 35562 gefur nánari uppl. Þessir byggingarverkamenn eru með loftbor að störfum á þaki norðurálmu Hallgrímskirkju. Þar eru hafnar endurbætur á stuðlunum sem liggja að turni kirkjunnar. Þeir eru illa farnir eftir ára- tuga veðrun og verða þeir endurnýjaðir. Þessar framkvæmdir eru framhald af hinni umfangsm- iklu viðgerð sem fram fór á turni kirkjunnar og lokið var við í fyrra. (Morgunblaðið Árni Sæberg). MORGUNBLAÐIÐ FYRIR 50 ÁRUM Lögmaðurinn í Rvík hef- ur dæmt ríkissjóð til að greiða ekkju tæplega 26.000 kr. í bætur. Mað- urinn hennar hafði orðið fyrir bíl sem var i eigu ríkisins, suður við Öskjuhlíð. Maðurinn hafði látist af völdum slyssins. Bíllinn hafði ver- ið keðjulaus á hálku. * í loftárásum Þjóðverja á London höfðu þinghúsið og St. Pálskirkjan orðið fyrir sprengjum. í frétt- um frá Bretlandi sagði að þá stæðu yfir þijár stórorrustur. Orrustan um Grikkland, orrustan um Egyptaland og orr- ustan um Atlantshafið, sem var talin mikilvæg- ust. I Grikklandi var þá barist í hríð og frosti. * Vatnsveitustjórinn í Rvík sagði frá því að farið væri mjög ósparlega með vatnið í bænum. Hét hann á borgarbúa að spara svo ekki hlytust af vandræði. Hann sagði að yfirmenn setuliðsins hefðu líka Iof- að að gera sitt til að spara vatnið. Myndi t.d. ekki verða notað vatn i stein- steypuna í lagningu flug- brautanna á Reykjavík- urflugvelli, heldur yrði notaður snjór. KVENFÉL. Kópavogs. Spilakvöld verður nk. þriðju- dagskvöld í félagsheimili bæj- arins. Byijað að spila kl, 20.30 og er það öllum opið. SAMTÖK um sorg og sorg- arviðbrögð. Næstkomandi þriðjudagskvöld verður opið hús í safnaðarheimili Laugar- neskirkjú kl. 20—22. Á sama tíma verða veittar uppl. og ráðgjöf í síma 34516. Aðal- fundur samtakanna verður haidinn í safnaðarheimilinu sunnudaginn 28. apríl kl. 20. ÁRBÆJARSÓKN. Þjónusta fyrir aldraða: Fótsnyrting mánudaga. Leikfimi á þriðju- dögum og hágreiðsla hjá Hrafnhildi. ORLOF húsmæðra í Reykjavík. Kynningarfundur verður á Hallveigarstöðum á sumardaginn fyrsta kl. 15. Kynntar verða orlofsferðir og dvöl á sumrinu sem farnar verða að Hvanneyri í Borgar- firði tvær og fjórar ferðir og dvöl suður á Spáni. Byijað verður á fundinum að skrá þátttakendur. Skrifstofa or- lofsins er á Hringbraut 116 og verður opin 25. apríl til 10. maí. BARÐSTRENDINGAFÉL. Fundur kvennadeildarinnar sem átti að halda 23. þ.m. frestast til 14. maí. ÁSPRESTAKALL. Safnað- arfélagið heldur síðasta fund- inn á vetrinum næstkomandi þriðjudagskvöld kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkjunnar. Vorferð félagsins verður farin 4. maí næstkomandi og verð- ur farið austur að Sólheimum í Grímsnesi. Guðrún gefur nánari uppl. um ferðina s. 37788. BARNADEILD Heilsu- verndarstöðvarinnar við Bar- onstíg. Opið hús fyrir foreldra ungra barna næstkomandi þriðjudag. Umræðuefnið verður þá mataræði bama. KIRKJUR ÁRBÆJARKIRKJA: Öpið hús í safnaðarheimilinu mið- vikudagkl. 13.30. Fyrirbæna- stund í Árbæjarkirkju mið- vikudag kl, 16.30. Opið hús í safnaðarheimili Árbæjar- kirkju fyrir mæður og feður ungra barna í Ártúnsholti og Árbæ, þriðjudag kl. 10—12. Hansína Einarsdóttir fjallar um samskipti — sjálfsmynd. BÚSTAÐAKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í dag, sunnudag kl. 17. GRENSÁSKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í kvöld kl. 20. NESKIRKJA: Æskulýðs- starf unglinga mánudagsk- völnd kl. 20. Þriðjudag: Mömmumorgun. Opið hús fyrir mæður og börn þeirra kl. 10—12. Æskulýðsstarf 12 ára og yngri kl. 17. FELLA- og Hólakirkja: Fundur í æskulýðsfélaginu mánudagskvöld kl. 20.30. Fyrirbænir í kirkjunni þriðju- daga kl. 14. SELJAKIRKJA: Mánudag: Fundur KFUK, yngri deild kl. 17.30, eldri deild kl. 18. Æskulýðsfundur kl. 20. SELTJARNARNES- KIRKJA: Æskulýðsfundur í kvöld kl. 20.30. Opið hús fyr- ir 10—12 ára mánudag kl. 17. SKIPIN RE YK JA VÍKURHÖFN: í gær kom Esja úr strandferð og fór aftur í ferð samdæg- urs. Þá kom togarinn Ásgeir inn til löndunar. í dag er frystitogarinn Freri væntan- legur inn af veiðum. Á morg- un er Brúarfoss væntanlegur að utan og togarinn Snorri Sturluson inn til Iöndunar. HAFNARFJARÐAR- HÖFN: í fyrradag kom Svanur að utan og þá fór Haukur á ströndina og grænl. togari fór út aftur. I gær fór Urriðafoss á strönd- ina og Oddeyrin hélt til veiða. Hofsjökull kom af strönd. I dag fer togarinn Sjóli til veiða á djúpkarfaslóð- ina. Á morgun verður landað úr Helgu og Skúm, frystitog- urum og Lagarfoss er vænt- anlegur að utan. ÁHEIT OG GJAFIR ÁHEIT á Strandarkirkju, af- hent Morgunblaðinu: Bjarni Finnsson 10.000, Phobe 10.000, NN 8.000, MLPO 5.000, Sigurlaug 5.000, BJ 3.000, SJ 3.000, NN 2.500, GJT 2.400, Elín 2.000,NN 2.000, HB 2.000, Helga B. Guðmundsd. 2.000, Ónefnd 2.000, ÞV 2,000, Ágúst 1.800, Dagmar Ólafsd. 1.500, Matthildur 1.200, ASK 1.000, RB 1.000, Steinunn 1.000, BSE 1.000, HLJ 1.000, Ingi- björg Guðmundsd. 1.000, JS 1.000, Sigurvin Hannibalsson 1.000, SB 1.000, ÞJ 1.000, Helga Ágústsd. 500, BS 500, Sigrún 500, Anna Þórðard. 500, SJL 500, NN 500, Gerð- ur Gunnlaugsd. 500, ES 500, Sig NAT 500, RSL 500, OÞ 500, Margrét Finnbogad. 500, BÓ 500, SA 500, SA 420, SK 300, SK 300, KÞ 300, Laufeý Kristinsd. 250, RI 200, Lilja 200, Elin Björnsd. 100, KA 100. ORÐABOKIN Viðnám í stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins má lesa þetta m.a.: „Dugnað og þekkingu þjóðarinnar þarf að virkja sem best og gefa öllum tækifæri til að veita kröftum sínum viðnám í samræmi við hæfíleika og getu.“ Þegar ég las þessa málsgrein, hnaut ég, satt bezt að segja, um notkun no. viðnám í þessu sambandi, enda fæ ég ekki betur séð en það sé hér notað í al- rangri merkingu og það svo, að smiðir yfírlýsing- arinnar segi í reynd allt annað en þeir hafa að sjálfsögðu ætlað sér. Samkv. OB og OM merkir viðnám nú orðið sama og andstaða, og orðasam- bandið að veita e-u við- nám það að standa gegn e-u. Þetta mun hins vegar örugglega ekki það, sem fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins ætla okkur, óbreyttum borgurum, að skilja með téðu orðalagi. Hér hefði no. útrás átt einna bezt við. Samkvæm OM er ein merking þess orðs talin afleidd af no. farvegur eða framrás. Menn fá útrás fyrir ýmis- legt, m.a. fyrir krafta sína, og það eiga menn áreiðanlega að lesa úr of- angreindri málsgrein. Þá var no. viðnám áður fyrr einnig haft um viðstöðu eða dvöl, en sú merking mun horfin úr mæltu máii. í gömlum annál má lesa þetta: „Hafís hafði ekki lengi viðnám“, þ.e. hann hvarf fijótt frá landi. - JAJ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.