Morgunblaðið - 21.04.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.04.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ' SUNNUDAGURT21'. APRÍL '1991 17 voru samþykkt á Alþingi árið 1989. Þar er enn lagður á þjóðina sérstak- ur eignarskattsauki sem er í raun framlenging á hinum fyrra skatti og skal honum í fyrstunni eingöngu varið til að ljúka við Þjóðarbók- hlöðu. Alls innheimtust 229 milljón- ir króna á síðasta ári. Ekki rötuðu þær allar í byggingarsjóðinn heldur aðeins 67 milljónir og á yfirstand- andi ári er einnig augljóst að meira verður tekið af skattborgurum í eignarskattsaukann en skilar sér til Þjóðarbókhlöðunnar. Vantar þar 190 milljónir króna miðað við álagn- ingu. Séu þessar upphæðir reiknað- ar til núverandi verðlags vantar rúmlega 750 milljónir króna upp á að skattheimta ætluð Þjóðarbók- hlöðu hafi skilað sér til fram- kvæmdanna. Menntamálaráðherra hefur lýst því yfir að framkvæmdum við Þjóð- arbókhlöðu skuli lokið 17. júní 1994 á 50 ára afmæli lýðsveldisins. Egill Skúli segir að það sé ennþá hægt - miðað við ákveðnar forsendur: -Sú framkvæmdaáætlun sem við vinnum eftir í dag gerir ráð fyrir 334 millj. króna framlagi á þessu ári, sem þegar er ljóst að hefur verið skert og er einlmgis 145 millj- ónir króna, á næsta ári þurfum við 543 milljónir, árið 1993 um 382 m. kr. og um 238 árið 1994. Þar sem þegar er ljóst að framlag þessa árs er minna en við gerðum ráð fyrir höfum við í hyggju að kanna hvort hægt verður að bæta úr því þegar næsta ríkisstjórn hefur tekið til starfa. Áætlunin er þannig gerð að fresta má vissum þáttum hennar og vinna meira síðar. Ef það geng- ur hins vegar ekki er ljóst að safn- ið verður ekki tekið í notkun suma- rið 1994, segir Egill Skúli. Ýmsar þarfir bókasafns og gag- namiðstöðvar sem þessarar hafa breyst á hinum langa bygging- artíma. Kallar það á töluverða end- urskoðun á forsögn og teikningum enda þótt breytingar á því sem þeg- ar hefur verið byggt séu ekki mikl- ar. Breytingarnar snúast mest um búnað og aðstöðu sem tengist rekstrinum. Má þar nefna þjófa- varnir, símakerfí, netvæðingu og svo sjálfan tölvubúnaðinn. Starf- semi bókasafna, ekki síst vísinda- bókasafna, Verður sífellt fjölbreytt- ari og slík söfn eru í dag ekki að- eins hús þar sem lánaðar eru út bækur, heldur nánast alhliða gag- namiðstöðvar, sem bjóða upp á að- stöðu til margs konar rannsókna og fræðastarfa. Þeir sem stunda vilja rannsóknir þurfa aðgang að fjölbreyttum bókakosti, tímaritum, geisladiskum með rituðu máli og erlendum gagnabönkum og þeir vilja koma með einkatölvur sínar í les- eða vinnustofurnar til að vinna á þær þar. Flóknir flutningar Sjálfur flutningur safnanna er viðamikið verkefni. Ljóst er að ekki verður sópað úr hillum á gamla staðnum og bókunum skelit upp í hillur af handahófi í nýja húsinu. Verkefnið er flóknara fyrir það að verið er að sameina tvö stór söfn sem raunar eru með ritakost sinn dreifðan út um allan bæ. Grisja þarf ritakostinn af gagnslitlum rit- um, hreinsa hann, gera við, binda o.s.frv. Samræma þarf flokkun ri- tanna og skráningu og koma skrán- ingunni í tölvutækt form. Þá þarf að setja strikaletursmiða á bækurn- ar vegna tölvuvæðingar útlána. Ekki má heldur gleyma því að bóka- verðir starfa náið með hönnuðum, lýsa þörfum og kröfum um búnað og fyrirkomulag. Allt er þetta mjög mikil vinna. Núverandi starfsmenn safnanna bæta, naumast á sig þessum undir- búningi því þeir eru þegar önnum kafnir og gera vart meira en að sinna daglegum rekstri, afgreiðslu og þjónustu safnanna. Því þarf að ráða viðbótarstarfsmenn til að ann- ast flutninginn og þann viðbúnað sem honum fylgir, blandað starfslið sem yrði bæði bókaverðir og ófag- lært aðstoðarfólk. Sem dæmi um umfang þessara flutninga má nefna að í verkáætlun- inni er gert ráð fyrir að undirbún- ingur flutnings hefjist þegar á þessu Einar Sigurðsson háskólabókavörður (t.h.) og Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður eru hér í hinu ólokna húsi þjóðarbókhlöðunnar. Mkr Innheimt af álagningu 1987-1989 Fjárfest í I’jóðarbókhlöðu 1987 1988 1989 1990 400 1990 1991 A þessum súluritum sést hvernig minna skattfé hefur skilað sér til Þjóðarbókhlöðunnar heldur en innheimst hefur. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Barnainniskór Stærðir: 20-30 Stærðir 18-27 Litir: Rautt og blátt. Efni: Leður. Sóli: Skinn. 5% staðgreiðsluafsláttur. Póstsendum samdægurs. Domus Medica, Kringiunni, Toppskórinn, s. 18519. s. 689212. Veltusundi, s.21212. Skattfé sem ekki hef ur skilað sér til Þjéðarbókhlöðu (ó verðlagi érsins 1991) Mkr Skattur 1987-1989 397 Skattur 1990 168 Skattur 1991 190 Heild 1987-I991~ 755 ári þegar ráða átti 6 nýja starfs- menn. Ekki fékkst þó leyfi fyrir nema 1,5 stöðugildi og það raunar ætlað til annars, en á næsta ári er sótt um að ráða 6 nýja menn og líka árin 1993 og 1994. Gert er ráð fyrir að starfsemi safnanna verði í lágmarki og þeim raunar að mestu lokað sumarið 1994 þegar sjálfir flutningarnir fara fram. Er vart hægt að loka slíkum söfnum á öðr- um árstímum og má því segja að komi þessi verkáætlun ekki til með að standast er ljóst að opnun Þjóð- arbókhlöðunnar verður ekki frestað um nokkrár vikur eða mánuði held- ur heilt ár. Vandræðamál Byggingarmál bókhlöðunnar er skelfilegt vandræðamál og stendur safnrekstrinum meira fyrir þrifum en með orðum verði lýst, segir Ein- ar Sigurðsson háskólabókavörður. Hefur hann áreiðanlega á réttu að standa því þrátt fyrir yfirlýsingar síðustu menntamálaráðherra og góðan ásetning þeirra sem og sér- staka fjáröflun til byggingarinnar hefur ekki tekist að þoka verkinu markvisst áfram. Ráðamenn hafa samþykkt lög og ijárveitingar með annarri hendinni og tekið þær til baka með hinni. Hver getur verið skýringin? Hún er í raun einföld: Þjóðarbókhlaðan á sér ekki þrýstihóp. Engin hags- munasamtök hafa tekið hana upp á arma sína. Hún er ekki eins og byggðarlag sem hefur orðið fyrir atvinnubresti og þingmenn slá skjaldborg um til að byggja upp á ný. Þjóðarbókhlaðan virðist í augum of margra vera eitthvert óskilgreint fyrirtæki, stofnun sem þjónar að- eins sérvitringum og grúskurum sem geta bara haldið áfram að hafa sitt dót í kössum án þess að við hin skiptum okkur af því. Það er raunar eftirtektarvert hve margar stofnanir sem hafa orðið þjóð í nafni sínu hafa átt undir högg að sækja í þessu landi rétf eins og því fylgi einhver ófarnaður. Er þetta ekki umhugsunarefni nú á dögum taumlítillar efnishyggju? Grundvöllur menningarsamfélags En þjóðarbókhlaðan er ekki hreiður fyrir grúskara eina saman. Starfsemi hennar er ákveðinn grundvöllur fyrir menningu, vísindi og atvinnulíf. Eigi menning og vís- indi að þrífast í þessu landi verður að vera til aðstaða fyrir rannsóknir og fræðistörf. Eigi að vera hér áframhaldandi skilyrði fyrir þróun og nýsköpun í atvinnulífi verður að veita tækifæri til vísindaiðkana. Þjóðarbókhlaðan er með öðrum orð- um ein undirstaða þess að hér þríf- ist íslenskt nútímasamfélag í sam- félagi þjóðanna. Margar af menningarþjóðum Evrópu eru þessi árin að byggja yfir þjóðbókasöfn sín af miklum metnaði. Nefna má Breta og Frakka. Mitterand Frakklandsfor- seti hefur gert byggingu risastórs þjóðbókasafns að sínu aðalmáli á menningarsviðinu. Einn af stjórn- endum þess safns heimsótti Island fyrr á þessu ári og í Morgunblaðinu 10. febrúar sl. er langt og fróðlegt viðtal við hann. Ljúkum verkinu 1994 Drátturinn á byggingu yfir aðalsöfn okkar er þjóðarskömm. En verði framfylgt lögunum um eignarskattsaukann, bæði hinum eldri og yngri, og honum skilað að fullu til bókhlöðunnar, ætti að vera svigrúm til að finna ráð og fé til að ljúka henni svo að unnt reynist að sameina söfnin á 50 ára afmæli lýðveldisins 1994 eins og rætt hefur verið um. SKIPARADÍÓ HF. FURUNO KENNSLA/SÝNING Dagana 22., 23. og 24. apríl milli kl. 14.00 og 17.00, verður kennsla/sýning á staðsetn- ingartækjum (GPS/LC Loran) og fiskleitar- tækjum. Komið og lærið á þessi tæki og kynnið ykkur hvaða Furuno-tæki við höfum upp á að bjóða í bátinn, skipið eða togarann. Allir velkomnir. Skiparadíó hf., Fiskislóð 94, Reykjavík, simi 20230, Fax 620230. Metsölublcid á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.