Morgunblaðið - 21.04.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.04.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1991 29 ATVIN N tMAUGL YSINGA R RÍKISSPÍTALAR Reyklaus vinnustaður Geðdeild Landspítalans Staða sérfræðings í geðlækningum við skor 5 er laus til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa reynslu við endurhæfingu geðsjúkra og auk þess menntun og reynslu í hópmeðferð. Umsóknir sendist Stjórnarnefnd Ríkisspítal- anna, Rauðarárstíg 31, fyrir 1. júni 1991. Upplýsingar veitir Tómas Zoega yfirlæknir sími 601000 og 626000. Akraneskaupstaður, tæknideild Garðyrkjustjóri hjá Akraneskaupstað Auglýst er eftir umsóknum um starf garð- yrkustjóra hjá Akraneskaupstað. Starfið er m.a. fólgið í undirbúningi og skipu- lagningu verkefna á sviði garðyrkjumála, umsjón með uppbyggingu og viðhaldi opinna svæða, lóða stofnana bæjarins og skógrækt- ar, umsjón með skipulagningu og fram- kvæmdum vinnuskóla, eftirlit með beitarhólf- um og forðagæslu. Næsti yfirmaður garð- yrkjustjóra er forstöðumaður tæknideildar. Menntun á sviði garðyrkju er áskilin. Laun eru skv. kjarasamningum Starfsmanna- félags Akraness. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður tæknideildar á bæjarskrifstofu Akraness, Kirkjubraut 28, 2. hæð í síma 93-11211, rnilli kl. 11.00 og 12.00 alla virka daga, eða á skrifstofu sinni, Kirkjubraut 28, Akranesi. Skriflegum umsóknum skal skilað til fulltrúa á bæjarskrifstofu Akraness, Kirkjubraut 28, 300 Akranesi, eigi síðar en 22. apríl nk. Umsóknareyðublöð afhendast á bæjarskrif- stofunni fyrir þá sem þess óska. Forstöðumaður tæknideildar. Ritari framkvæmda- stjóra (218) Óskum að ráða ritara framkvæmdastjóra til starfa hjá þekktu, framsæknu innflutningsfyr- irtæki í Reykjavík. Starfssvið: Sjálfstæð og sérhæfð ritarastörf, s.s. samskipti við viðskiptavini, undirbúning- ur funda og námskeiða, gerð og umsjá þjón- ustusamninga, fjölbreytt tölvuvinna, umsjá með gagnasafni fyrirtækisins o.fl. Við leitum að ritara, sem leitar að sjálfstæðu og krefjandi starfl, hefur getu til að leysa fjöl- þætt verkefni, góða tungumálakunnáttu (ensku/dönsku), Æskilegur aldur 25-35 ára. í boði er gott starfsumhverfi og góð laun í boði fyrir réttan aðila. Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk- ar, merktar „Rltari 218". Hagvangurhf Grensásvegi 13 Reykjavlk Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanlr Hrafnista, Hafnarfirði Hjúkrunarfræðingar - hjúkrunarnemar - sjúkraliðar óskast í sumarafleysingar. Ennfremur starfs- stúlkur, 18 ára og eldri, í umönnun. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 54288. Hafnarvörður Staða hafnarvarðar við Hafnarfjarðarhöfn er hér með auglýst laus til umsóknar. Umsóknum sé skilað á hafnarskrifstofuna Strandgötu 4, eða á skrifstofu Hafnarfjarðar- bæjar, Strandgötu 6, fyrir föstudaginn 26. apríl nk. Hafnarfjarðarhöfn. LANDSPÍTALINN Reyklaus vinnustaður Vífilsstaðaspítali Lausar stöður hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða Góð aðlögun Góð vinnuaðstaða Sveigjanlegur vinnutími Lungnadeild Hjúkrunarstjóri er Sólrún Einarsdóttir, sími 602862. 37 rúma deild fyrir bráðveika lungnasjúklinga og rannsókna- og meðferð- ardeild fyrir sjúklinga með kæfisvefn. Deildin er nýuppgerð. Hjúkrunarfræðingar og sjúkra- liðar óskast í fastar stöður og einnig til sum- arafleysinga. Hjúkrunardeild Hjúkrunardeildarstjóri er Jóhanna Hólm- steinsdóttir, sími 602840. 19 rúma hjúkr- unardeild fyrir sjúklinga með langvinna lungnasjúkdóma. Sjúklingaflokkun. Hjúkr- unarfræðingar og sjúkraliðar í fastar stöður og sumarafleysingar. Húð-og kynsjúkdómadeild Hjúkrunardeildarstjóri er Birna Svavarsdóttir, sími 602853. 12 rúma 5 sólahringa legudeild auk göngudeildar í Þverholti 18. Hjúkrunarfræð- ingar óskast til sumarafleysinga. Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur Bjarney Tryggvadóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri í síma 602800. Sérhæfður aðstoðarmaður Sérhæfður aðstoðarmaður óskast á lyflækn- ingadeildir á morgun- og næturvaktir. í starfinu felast m.a. sendiferðir og flutningur á sjúkling- um innan spítalans. Einnig þarf hann að geta hjálpað við að lyfta og snúa sjúklingum. Nánari upplýsingar gefur Hrund Sch. Thor- steinsson, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 601300. Gerðaskóli í Garði Kennarar - kennarar Hjá okkur eru lausar stöður á næsta skóla- ári. Meðal kennslugreina: Almenn bekkjar- kennsla, erlend mál, samfélagsfræði, heimil- isfræði og tónmennt. Kennaraíbúðir, leikskólapláss. Nánari upplýsingar gefur Eiríkur Hermanns- son, skólastjóri, í síma 92-27380 eða 92-27048 (heima). Skólanefnd. Selfossveitur Selfossveitur er sjálfstætt fyrirtæki í eigu Selfosskaup- staðar, sem annast á orkuveitusvæði sínu öflun, dreif- ingu og sölu á raf- og hitaorku. Rafvirki Selfossveitur óska eftir að ráða rafvirkja til almennra starfa hjá rafveitu. Laun miðast við samninga Rafiðnaðarsambands íslands. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsækjendur skulu senda inn skriflegar umsóknir, þar sem fram koma upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf. Farið verður með allar umsóknir sem trúnað- armál. Öllum verður svarað og gögnum skil- að aftur. Umsóknir sendist til Selfossveitna, Eyrarvegi 8, 800 Selfossi, fyrir 30. maí 1991. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Selfossveitna, Asbjörn Ólason Blöndal, í síma (98) 21577. Innkaupastjóri Námsgagnastofnun óskar eftir að ráða nú þegar innkaupastjóra til tímabundinna starfa á sölu- og afgreiðslusviði. Starfið felst í inn- kaupum á skólavörum erlendis frá, yfirum- sjón með innkaupum á vörum frá innlendum aðilum, eftirliti með verslun og lagerhaldi ásamt öðrum skyldum störfum. Leitað er að áhugasömum kennaramenntuð- um starfsmanni með góða enskukunnáttu og reynslu af skólastarfi. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi þekkingu á tölvuvinnslu. Reynsla af innflutningi æskileg. Nánari upplýsingar varðandi þessi störf og starfstíma veitir skrifstofustjóri í síma 28088. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Námsgagnastofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík eða í pósthólf 5192, 125 Reykjavík fyrir 7. maí nk. Afgreiðslustörf HAGKAUP óskar eftlr að ráða starfsfólk í eftirtaldar verslanir fyrirtækisins: Sérvöruverslun í Kringlunni Afgreiðsla á kassa. Heilsdagsstarf. Eiðistorg á Seltjarnarnesi Afgreiðsla í ávaxta- og grænmetisdeild. Heilsdagsstarf. Afgreiðsla á kassa. Hlutastarf eftir hádegi. Kjörgarður, Laugavegi 59 Uppfylling í matvörudeild. Heilsdagsstarf. Skeifan 15 Starfsmann í upplýsingar. Heilsdagsstarf. Nánari upplýsingar um störfin veita verslun- arstjórar viðkomandi verslana ó staðnum (ekki í síma). HAGKAUP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.