Morgunblaðið - 21.04.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.04.1991, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 21. APRIL 1991 SH VERKTAKAR M Oskum eftir að ráða múrara eða mann, vanan múrviðgerðum, í Blönduvirkjun, sem getur byrjað strax. Upplýsingar gefa Guðmundur eða Ásgeir í síma 95-30230 og Gunnar í síma 91 -652221. Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rann- sóknastöður við Raunvísindastofnun Háskólans sem veittar eru til 1-3 ára. a) Ein staða sérfræðings við Eðlisfræði- stofu. b) Þrjár stöður sérfræðinga við Stærðfræði- stofu. Einum sérfræðingnum er einkum ætlað að starfa að rannsóknum í stærð- fræðilegri eðlisfræði. Fastráðning í þá stöðu kemur til greina. Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar frá 1. september nk. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjend- ur skulu hafa lokið meistaraprófi eða tilsvar- andi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við rannsóknir. Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsókna- starfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs raun- vísindadeildar og stjórnar Raunvísindastofn- unar Háskólans, og skal þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti af starfs- skyldu viðkomandi starfsmanns. Umóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, auk ítarlegrar lýsingar á fyrirhuguðum rann- sóknum, skulu hafa borist Raunvísindastofn- un Háskólans, Dunhaga 3, 107 Reykjavík, fyrir 21. maí 1991. Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dómbærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísinda- leg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lok- uðu umslagi sem trúnaðarmál. Raunvísindastofnun Háskólans. Ióntœknistofmin vinnur aö tœkniþróun og aukinni fratn leiöni í (slensku atvinnuiífi. A stofnuninni eru stundaöar hagnýtar rannsóknír, þróttn, rúögjöf gœöaeftirlit, þjón- usta, frceösla og stöölun. Áhersla er lögö cí hceft stcirfsfólk til ctö trygg/d gceöi þeirrctr þjónustu setn veitt er. Ritari Staðladeild Iðntæknistofnunnar óskar að ráð ritara í fullt starf. Um er að ræða fjölbreytt og sérhæfð ritarastörf í náinni samvinnu við aðra starfsmenn deildarinnar. Leitað er eftir manneskju með starfsreynslu og góða sam- starfshæfileika. Starfið krefst. - Góðrar þekkingar í ritvinnslu (WP 5.0). - Góðrar kunnáttu f fslenskri og enskri stafsetningu, ásamt nokkurri þekkingu á einu Norðurlandamáli. - Sjálfstæðra vinnubragða, nákvæmni og frumkvæðis. í umsókn þarf að koma fram aldur, mennt- un, fyrri störf og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað og gögn- um skilað. Upplýsingar gefur Jóhannes Þorsteinsson eða Arnhildur Arnaldsdóttir. Iðntæknistofnun ■ I IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Keldnaholt, 112 Reykjavik Sími (91)68 7000 Byggingastjóri Stórt verktakafyrirtæki í borginni óskar að ráða byggingastjóra til starfa sem fyrst. Leitað er að dugmiklum, drífandi og áhuga- sömum tæknifræðingi eða byggingafræð- ingi. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýs- ingar fást á skrifstofu okkar til 27. apríl. Guðnt TÓNSSON RÁÐGJÖF &RÁÐNINGARÞJÓNUSTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Raftækjaverslun Óskum eftir að ráða starfskraft í raftækja- verslun. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af sölu rafmagnsheimilistækja. Þarf að geta hafið störf fljótlega. Þeir, sem hafa áhuga, hafi samband við fram- kvæmdastjóra í síma 50022 eða 620100. JL jÍMm mÆJL Lækjargötu 22, Hafnarfirði, Borgartúni 26, Rvk. Sölumaður - dreifingarstjóri - bílstjóri Óskum eftir að ráða starfsmann til að sjá um útkeyrslu sem felur í sér dreifingu á vör- um og sölumennsku. Um er að ræða framtíðarstarf. Æskilegur aldur er 25-35 ára. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „B - 1f136“ fyrir mánudaginn 29. apríl 1991. íöh Starfsmaðurá skrifstofu U.M.F. Stjarnan, Garðabæ, vill ráða starfs- mann í fullt starf á skrifstofu félagsins sem fyrst. Verksvið: Starfið felst í umsjón með bókhaldi félagsins, áætlana- og skýrlslugerð og fleiri störfum í samvinnu við allar deildir félagsins. Umsókn, er greini menntun, fyrri störf og óskir um laun, sendist á skrifstofu félagsins, Goðatúni 2, Garðabæ, fyrir 30. apríl nk. Ferðaskrifstofustarf Ferðaskrifstofa Vestfjarða hf. á ísafirði óskar að ráða starfsmann. Aðeins kemur til greina einstaklingur með víðtæka þekkingu og reynslu af farseðlaútgáfu og ^lmennum ferðaskrifstofustörfum og sem hefur frum- kvæði og þjónustulund. Starfið er kjörið fyrir einstakling sem getur unnið sjálfstætt og hefur áhuga á uppbygg- ingu og nýjungum í ferðaþjónustu úti á landi. Ferðaskrifstofa Vestfjarða hf. annast alla al- menna farseðlaútgáfu, skipulagningu ferða innanlands sem til útlanda, auk þess sem skrifstofan annast móttöku ferðamanna á Vestfjörðum og starfar sem upplýsingamið- stöð ferðamanna. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Frekari upplýsingar veitir Björn Hermanns- son, í símum 94-3557 og 94-3457. Ferðaskrifstofa Vestfjarða, Aðalstræti 11, 400 Isafirði. ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Fóstra Við erum með lítið heimili í Vesturbæ og okkur vantar fóstrur. Aldur barnanna er 1- 3ja ára og er heimilið mjög vel útbúið. Nánari upplýsingar gefur Arna Heiðmar, for- stöðumaður, í síma 604364. Glerið sf., Bíldshöfða 16 Óskum að ráða mann á verkstæði vort nú þegar. Glerið sf., sími 686510. Laus staða tónlistarkennara Tóniistarskóli Húsavíkur auglýsir lausa til umsóknar stöðu kennara á blásturshljóðfæri frá 1. september 1991. Æskilegt að umsækjandi geti kennt á þver- flautu og klarinett. Kennsla á önnur hljóð- færi kemur einnig til greina. Reynsla af kór og hljómsveitarstjórn er æski- leg. Einnig er laus hálf staða tónmenntakennara við barnaskóla Húsavíkur frá 1. ágúst nk. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri tónlist- arskólans í síma 96-41560 og heimasíma 96-41741. Umsóknir sendist til Tónlistarskóla Húsavík- ur, pósthólf 135, 640 Húsavík. Umsóknarfrestur er til 20. maí nk. Skólastjóri. Framkvæmdastjóri Óskum að ráða framkvæmdastjóra til starfa hjá stóru fyrirtæki í fiskvinnslu og útgerð. Starfssvið framkvæmdastjóra: Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri. Stefnumótun og markmiðasetning. Samræming á starfsemi útgerðar og fiskvinnslu. Við leitum að hæfum manni til að stjórna stóru og öflugu útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tæki. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu á sviði fyrirtækjastjórnunar og geti axlað ábyrgð. Starfið er umfangsmikið og erilsamt ábyrgð- ar- og stjórnunarstarf, sem krefst áræðni og frumkvæðis. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Farið verður með allar fyrirspurnir og um- sóknir sem trúnaðarmál. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Framkvæmdastjóri 136“, fyrir 25. apríl nk. Hagvangur M I Grensásvegi 13 I Reykjavík 1 Sími 83666 Ráðningarþjónusta 1 Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.