Morgunblaðið - 21.04.1991, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 21.04.1991, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJON VARP 21- APRÍL 1991 ÁTT ÞÚ MUNI EÐA MYNDIR SEM TENGJAST SÖGU OG STARFI RAUÐA KROSSINS Á ÍSLANDI? í sumar höldum við yfirlitssýningu um sögu Rauða krossins á íslandi og nú heitum við á alla sem kunna að eiga í fórum sínum muni eða myndir sem tengjast Rauða krossinum á Islandi að koma okkur til hjálpar svo sýningin geti orðið sem veglegust. Látið okkur vita sem fyrst ef þið getið lánað okkur sýningargripi eða ef þið getið bent okkur á hvar slíkir gripir kunni leynast. Hafið samband við Ólaf Oddsson eða Jóhann Pétur Jónsson á skrifstofu Rauða krossins að Rauðarárstíg 18, Reykjavík eða í síma 91-26722 alla virka daga frá kl. 9 til 17. t/i => o or < íslands Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími: 91-26722 + Rauði kross UTVARP © RÁS1 FM 92,4/93,5 HELGARUTVARP 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurlregnir. 8.20 Morgunandakt. Séra Þorleifur Kristmunds- son prófastur á Kolfreyjustað flytur ritningarorð og bæn. 8.30 Kosningafréttir og tónlist. 9.00 Fréttir. 9.15 Kosningafréttir og tónlist. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Kosningaspjall. Rætt um úrslit Alþingiskosn- inganna. 11.00 Messa í Laugarneskirkju. Prestur séra Jón Dalbú Hróbjartsson. 12.10 Útvarpsdagbókin og dagskrá sunnudagsins. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.Tónlist. 13.00 Úrslit kosninganna. Þorkell Helgason próf- essor skýrir kosningaúrslitin. Fréttamenn ræða við formenn stjórnmálaflokkanna. Fjallað verður um úrslit kosninganna i hverju kjördæmi með viðtölum við nýkjörna alþingismenn og heima- menn á hverjum stað. (Þátturinn verður sendur út á stuttbylgju innanlands, til sjómanna á hafi úti og íslendinga erlendis.) 15.00 Með kosningakaffinu. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Reykjavik 21. apríl '91 ... Vangaveltur um sendibréf. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir. 17.00 Myndir i músik. Ríkarður Örn Pálsson bregð- ur á leik. (Einnig útvarpað mánudagskvöld kl. 21.00.) 18.30 Tónlist. Auglýsingar. Dánarfregnir. 18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.31 Spuni. Listasmiðja bamanna. Umsjón: Guðný Ragnarsdóttir og Helga Rut Guðmunds- dóttir. (Endurtekinn frá laugardagsmorgni.) 20.30 Hljómþlöturabb. Þorsteins Hannessonar. 21.10 Kikt út um kýraugað. Frásagnir af skondnum uppákomum i mannlífinu. Umsjón: Viðar Eggerls- son. (Endurtekinn þáttur frá þriðjudegi.) 22.00 Fréttir. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Orð kvöldsins. Dagskrá morgundagsins. 22.25 Á fjölunum — leikhústónlist eftir Kurt Weill. - Þætlir úr hljómsveitarsvítunni úr lögunum úr „Túskildingsóperunni". Sinfóniettan i Lundúnum leikur; David Atherton stjórnar.,. - Þættir úr sönleiknum „Das kleine Mahag- onny" Meriel Dickinson, Mary Thomas, Philip Langridge, Benjamin Luxon og Michael Rippon syngja með Sinfóniettunni i Lundúnum; David Atherton stjórnar. Stöð 2= Atifinnumenn ■■EHI I þessum þætti verður komið við á heimili Guðmundar OT 15 Torfasonar og haldið þaðan með honum á æfingu hjá St. Mirren. Guðmundur var kjörinn leikmaður ársins hjá félag- inu á síðasta keppnistímabili. Hann hefur verið einn af markahæstu leikmönnum skosku úrvalsdeildarinnar og á velgengni að fagna í Skotlandi, enda er hann nánast í dýrlingatölu meðal leikmanna St. Mirren. Skroppið er í heilsuklúbb með Guðmundi, sem aðeins fáir útvaldir hafa aðgang að, og á kránna þar sem stuðningsmenn hans koma saman fyrir og eftir leiki. Einnig verður rætt við nokkra heimsþekkta leikmenn St. Mirren, þeirra á meðal Steve Archibald og Victor Munoz fyrrum fyrirliða spænska landsliðsins. Umsjón með þættinum hefur Karl Garðarsson. Stundin okkar HNRNI Stundin okkar kveður í dag og í tilefni þess birtist Galdri 1 Q 00 hinn göldrótti á sviðinu og galdrar til sín alla helstu vini lö okkar sem skemmt hafa með glensi og gríni í vetur. Þetta er ansi föngulegur hópur, svo sem nærri má geta. Barnakór Bústaðakirkju tekur sér svo stöðu frammi fyrir mynda- vélunum og syngur fyrir okkur falleg lög úr söngleik Hauks Ágústs- sonar um Litlu Ljót sem margir muna eftir sem nú eru sjálfir orðn- ir foreldrar. í kjölfarið siglir blessaður karlinn hann Hrafna-Flóki en hann er þriðji landnámsmaðurinn sem við kynnumst í syrpunni um landná- mið. Hann var svoddan sauður, karlgreyið að hann steingleymdi að heyja handa rollunum sínum og því fór illa norður í Vatnsfirði, þeg- ar veturinn gekk í garð. En um það fræðumst við nánar í Stundinni. Hver man ekki skemmtilegu vísurnar hans Ómars Ragnarssonar um drullkukökubaksturinn? Dindill og Agnarögn kunna þær vel og baka líka eftir þeim. Að lokum verður komið samna á Torginu og þar verða allar persónurnar sem prýtt hafa Stundina okkar í vetur,- 23.00 Frjálsar hendur. Illuga Jökulssonar. 24.00 Fréttir. 0.10 Stundarkorn í dúr og moll. Umsjón: Knútur R. Magnússon. (Endurtekinn þáttur úr Tónlistar- útvarpi frá þriðjudagskvöld kl. 21.10.) 1.00 Veðurfregnir. 1.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. RÁS2 FM 90,1 SUMARTILBOÐ Á ÖLLUM FJALLAHJOLUM FÁLKINN Suðurlandsbraut 8, sími 84670 & Þarabakka 3, sími 84671 oz 8.07 Hljómfall guðanna. Dægurtónlist þriðja heimsins og vesturlönd. Umsjón: Ásmundur Jónsson. (Endurtekinn þáttur frá miðvikudegi.) 9.03 Sunnudagsmorgunn með Svavari Gests. Sígild dægurlög, fróðleiksmolar, spurningaleikur og leitað fanga í segulbandasafni Útvarpsins. (Einnig útvarpað I Næturútvarpi kl. 01.00 aðfara- nótt þriðjudags.) 11.00 Kosningarnar í gær. Spjallað við þingmenn um úrslitin. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Helgarútgáfan. Úrval vikunnar og uppgjör við atburði líðandi stundar. Umsjón: Lísa Pálsdóttir. 15.00 istoppurinn. Umsjón: Óskar Páll Sveinsson. 16.05 Þættir úr rokksögu (slands. Umsjón: Gestur Guðmundsson. (Einnig útvarpað fimmtudags- kvöld kl. 21.00.) 17.00 Tengja. Kristján Sigurjónsson tengir saman lög úr ýmsum áttum. (Frá Akureyri.) (Úrvali út- varpað í næturútvarpi aðfaranótt sunnudags kl. 5.01.) 19.00 Kvöldfréttír. 19.31 Úr íslenska plötusafninu: „Mandala" með Trúbroti frá 1972. Kvöldtónar. 21.00 Djass. Umsjón: Vernharður Linnet. (Einnig útvarpað aðfaranótt laugardags kl. 3.00.) 22.07 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Úr- vali útvarpað kl. 5.01 næstu nótt.) 0.10 í háttinn. 1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 8.00, 9.00.10.00,12.20,16.00,19.00, 22.00 og 24.00. NÆTURÚTVARP 1.00 Nætursól. Herdís Hallvarðsdóttir. (Endurtek- inn þáttur frá föstudagskvöldi.) 2.00 Fréttir. Nætursól Herdisar Hallvarðsdóttur heldur áfram. . 4.03 i dagsins önn - I heimsókn á vinnustað. Umsjón: Guðrún Frímannsdóttir. (Frá Akureyri.) (Endurtekinn þáttur frá föstudegi á Rás 1.) 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Næturtónar. 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 5.05 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson spjallar við fólk til sjávar og sveita. (Endurtekið úrval frá kvöldinu áður.) 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 6.01 Morguntónar. FMT9Q-9 AÐALSTÖÐIN FM 90,9 / 103,2 8.00 Moguntónar. 10.00 Úr Bókahillunni. Endurtekinn þáttur Guðríðar Haraldsdóttur. 12.00 Hádegi á helgidegi. Umsjón Randver Jens- son. 13.00 Leitin að týnda teitinu. Spurningaleikur i umsjón Kolbeins Glslasonar. 15.00 I þá gömlu góðu ... Grétar míller við fóninn og leikur óskalög fyrir hlsutendur. 19.00 A nótum vináttunnar. Endurtekinn þáttur Jónu Rúnu Kvaran á sunnudagskvöldum. 22.00 Úr bókahillunni. Umsjón Guðriður. Haralds- dóttir. 24.00 Næturdagskrá Aðalstöðvarinnar. Umsjón Rendver Jensson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.